Morgunblaðið - 17.11.2001, Qupperneq 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 23
Sími: 591 4000
Fax: 591 4040 E-mail: avis@avis.is - Knarravogur 2 - www.avis.is
Bíll í A-flokki
kr. 2.999,- á dag
Opnunartilboð
Verið velkomin
Avis
mæli
r með
Opel
Við erum flutt
að Knarravogi 2
Ótakmarkaður akstur, tryggingar og skattar
Alltaf á þriðjudögum
Geisladiskahulstur
aðeins 500 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
SEÐLABANKI Íslands lækkaði
stýrivexti sína í lok viðskiptadags
áttunda þessa mánaðar um 0,8% í
10,1%. Í framhaldi af því lækkuðu
viðskiptabankarnir vexti sína til
samræmis. Ávöxtunarkrafa skulda-
bréfa er hins vegar svipuð og fyrir
vaxtalækkunina eins og sjá má á
meðfylgjandi línuriti því þótt hún
hafi lækkað nokkuð fyrst á eftir
hækkaði hún fljótt á ný.
Ýmsar ástæður eru nefndar fyrir
því að ávöxtunarkrafa hefur ekki
lækkað í framhaldi af vaxtalækkun-
inni, svo sem lausafjárskortur, sem
stafi meðal annars af því að enn séu
vextir háir þótt þeir hafi lækkað
nokkuð. Í því sambandi er jafnframt
bent á að millibankavextir, svokall-
aðir Reibor-vextir, hafi ekki lækkað
til jafns við vexti seðlabanka.
Þá hefur útgáfa húsbréfa verið
töluverð og hefur aukin útgáfa á
seinni hluta ársins vegið upp sam-
drátt á fyrri hluta þess, en verð hús-
bréfa, og þar með ávöxtunarkrafan,
ræðst af framboði og eftirspurn. Ef
framboð húsbréfa er meira en eft-
irspurn þýðir það að öðru óbreyttu
að ávöxtunarkrafan hækkar. Fram-
boð bréfanna ræðst að verulegu leyti
af útgáfu þeirra en eftirspurn af
kaupáhuga fjárfesta. Þó eykst fram-
boð einnig ef fjárfestar vilja losa sig
við húsbréf, en eitt af því sem nefnt
er sem hugsanleg skýring nú er að
einhverjir fjárfestar hafi átt húsbréf
sem þeir biðu með að selja þar til að
vaxtalækkun kæmi þar sem markað-
urinn yrði þá hagstæðari seljendum.
Áhrif vaxtalækkunarinnar
voru þegar komin fram
Í ritinu Icebonds, sem fjallar um
skuldabréfamarkaðinn á Íslandi og
Kaupþing gefur út í hverjum mánuði
fyrir erlenda fjárfesta, segir að svo
virðist sem markaðurinn hafi þegar
verið búinn að gera ráð fyrir vaxta-
lækkuninni og því hafi viðbrögðin
verið furðu lítil. Þar kemur einnig
fram að verðbólga í október hafi ver-
ið nokkru hærri en markaðurinn hafi
gert ráð fyrir. Þó þarna hafi ekki
munað miklu á væntingum markað-
arins og raunverulegri verðbólgu
virðist það hafa nægt um sinn til að
eyða áhrifunum af vaxtalækkuninni
á ávöxtunarkröfuna.
Ávöxtunarkrafa
óbreytt þrátt
fyrir vaxtalækkun
. /
!
012$33(
(2 &2 (32 (&2
4($3
((3
(33
53
'3
63
)3
&3
73
83
$3
(3
33
!
"#
$%&
EINS OG greint var frá fyrir nokkru
stóð til að Joseph E. Stiglitz, sem ný-
verið tók við Nóbelsverðlaunum í
hagfræði, kæmi til landsins í lok mán-
aðarins til að tala á 60 ára afmælisráð-
stefnu viðskiptadeildar Háskóla Ís-
lands. Nú hefur komið upp að Stiglitz
mun ekki geta flutt erindi á ráðstefn-
unni og samkvæmt heimildum frá
Hagfræðistofnun hefur komu hans til
landsins verið frestað um sinn.
Á afmælisráðstefnunni, sem haldin
verður 30. þessa mánaðar, verður
fjallað um stöðugleika fjármálakerf-
isins, fjármálaeftirlit og áhættu-
stjórnun fyrirtækja.
Afmælisráðstefna viðskiptadeildar
Heimsókn Stiglitz frestað