Morgunblaðið - 17.11.2001, Síða 28

Morgunblaðið - 17.11.2001, Síða 28
HEILSA 28 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Spurning: Ég var að lesa ágæta grein á heimasíðu þinni um skottu- lækningar, en áhugi minn á þeirri síðu vaknaði eftir að ég var tengdur inná hana í gegnum smáskoðun á jóhannesarjurtinni, sem þú minnist á í greininni. Ég vildi m.a. forvitn- ast um hvaða skoðun þú hefðir á jó- hannesarjurtinni, og hvort þú gæt- ir svarað þessum staðhæfingum? 1. Jóhannesarjurt veldur því að sjúklingur verður ofur-næmur fyr- ir sólarljósi, og brennur mun auð- veldar. 2. Jóhannesarjurt dregur úr virkni ákveðinna lyfja. Alnæm- islyfja, sumra getnaðarvarnalyfja o.fl. 3. Jurtin hefur jákvæð áhrif á fólk sem þjáist af „nigth-terror“ draumum. 4. Jurtin hefur líka sýnt jákvæð áhrif á þunglyndissjúklinga, en er þó ekki ráðlagt að mæla með henni ef sjúklingurinn er bi-polar (maníu- depressífur). Svar: 1. Til er fjöldinn allur af efn- um í jurtaríkinu sem gera húðina næmari fyrir sólarljósi og jafnvel venjulegum ljósaperum; má þar nefna sellerí og hvönn sem dæmi. Ég hef ekki fundið heimildir um að Jóhannesarjurt innihaldi slík efni en vel gæti verið að svo væri. 2. Helstu vandræðin með þessa jurt er að hún örvar vissa efna- hvata (ensím) í líkamanum og við það minnka áhrif margra lyfja. Helstu lyfin sem um ræðir eru warfarín og önnur skyld sega- varnalyf (blóðþynningarlyf), cikló- spórín sem er notað til að bæla ónæmiskerfið eftir líffæraflutn- inga, teófýllín sem er notað við astma, sterar, þunglyndislyf, hjartalyfið digoxín og lyf við al- næmi af flokki sem nefnist pró- teasahemlar. Þekkt eru nokkur dæmi um að neysla jurtarinnar hafi orðið til þess að líkami sjúklings hafnaði ígræddu líffæri hjá sjúk- lingum sem notuðu ciklóspórín og að alnæmi blossaði upp aftur hjá sjúklingum á meðferð með pró- teasahemlum. 3. Draumar sem vekja ótta og martraðir geta fylgt þunglyndi og kvíða og vitað er að efni í jurtinni geta haft bætandi áhrif á slíkt. 4. Hér á landi er Jóhannesarjurt á markaði sem náttúrulyf frá tveimur framleiðendum undir nöfnunum Esbericum og Modigen. Viðurkennd notkun þessara nátt- úrulyfja er við vægu þunglyndi, framtaksleysi og depurð. Þetta notagildi hefur sannast í nokkrum vönduðum rannsóknum á sjúkling- um með þunglyndi og vitað er að Jóhannesarjurt inniheldur efni sem hafa svipaða verkun og algeng þunglyndislyf. Ekki er vitað hvort einhver ávinningur er í að nota Jó- hannesarjurt frekar en venjuleg þunglyndislyf. Það er rétt að öll þunglyndislyf, þ.m.t. Jóhann- esarjurt, geta verið varasöm í geð- hvarfasýki (bi-polar sjúkdómi) vegna þess að þau geta magnað sveiflurnar milli geð- hæðar og geðlægðar (þunglyndis). Jóhannesarjurt (stundum kölluð Jónsmessurunni) dregur nafn sitt af Jóhannesi skírara og segir sagan að þegar Jóhannes var hálshöggv- inn hafi blóð hans farið í jurtina og gefið henni lækningamátt. Á mið- öldum var seyði af jurtinni notað til lækninga og gekk á Norðurlöndum undir nafninu Hirkumpirk sem er afbökun á latnesku nafni jurtarinn- ar, Hypericum perforatum. Um Jóhannesarjurt MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA Notagildi sannað  Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn- inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið er á móti spurningum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir- spurnir sínar með tölvupósti á netfang Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot- mail.com. ÓLAFUR G. Sæmundsson næring- arfræðingur gerir á netdoktor.is nokkra grein fyrir fitu-/próteinkúr- unum margumtöluðu og leggur út frá nýlegum fréttum um að félag Hjarta- verndar í Bandaríkjunum (American Heart Association) hafi lýst yfir stríði gegn skyndimegrunarkúrum og ekki síst kúrum sem byggjast á þeirri kenningu að til að megrast ætti fólk fyrst og fremst að borða feitmeti og prótein en neyta mjög lítilla kolvetna. Ólafur segir að í reynd hafi fagfélög innan heilbrigðisgeirans (s.s. mat- væla- og næringarfræðafélög, hjarta- verndarfélög, krabbameinsfélög) var- að við slíkum kúrum um áratugaskeið. En vinsældir slíkra kúra hafi ávallt verið miklar og sá megrunarkúr, sem hefur verið hvað vinsælastur í Bandaríkjunum síðast- liðin ár og nefnist Atkins-kúrinn, hafi hvert líkamskíló. Ólafur gerir síðan grein fyrir því hvernig kúrar þessara tegundar virka en þar kemur fram að framleiðsla á svoköll- uðum ketónsýrum leiðir til þess „að löngun í mat verður lítil sem engin og er hér komin skýringin á því af hverju svo margir sem fara í sveltimegrun- arkúra eða kúra sem innihalda fyrst og fremst fitu og prótein hætta að finna til löngunar í mat innan nokk- urra daga. Og síminnkandi neysla ýt- ir að sjálfsögðu enn frekar á þyngd- artapið.“ Ólafur segir að vinsældir svelti- og fitu-próteinkúra megi fyrst og fremst rekja til mikils þyngdartaps sem fólk verður fyrir á skömmum tíma. „En staðreyndin er sú að „megrunin“ felst að stórum hluta í vatnstapi, ekki síst í upphafi. En auðvitað missir fólk um- talsvert af fitu og vöðvatap er meira en eðlilegt getur talist.“ Ólafur rekur síðan mikilvægi kolvetnis sem orkugjafa vegna þess að frumur líkamans, eins og heila- og taugafrumur, nær- ist fyrst og fremst á kolvetna- tegundinni glúkósa. „Lítil sem engin neysla kolvetna leiðir yfirleitt til þess að glýkógenbirgðir líkamans eyðast á tveimur til þremur dögum. Þegar tekið er tillit til þess að hvert gramm af þessum þrem til fjórum hundruðum bindur í sér 3 til 4 g af vatni verður vökvatapið 900 g til 1,6 kg. Á tveimur til þremur dögum get- ur því einstaklingurinn lést um allt að 2 kg vegna taps á vatni og glýkógeni. Ef hætt er á kúrnum um leið og glýkógenbirðirnar eru tæmdar og farið að borða kolvetnaríkan mat bætast þessi tvö kíló á aftur þar sem glýkógenbirgðirnar endurnýjast.“ Einstaklingurinn hríðhorast hins vegar ef þessum öfgakenndu neyslu- háttum linnir ekki, segir Ólafur, og ástæðuna má að miklu leyti rekja til vöntunar á glúkósa sem margar frumur líkamans þrá að fá. Uppskeran heilsuvandamál „Reyndar ná sumir að halda auka- kílóunum frá til „lengri tíma með því að leita í þessar hættulegu neyslu- venjur með reglubundnu millibili. En þeim hinum sömu má vera ljóst að eftir því sem lengur og oftar er farið á slíkt mataræði þeim mun meiri líkur eru á að þeir uppskeri heilsuvanda- mál. Og að sjálfsögðu er meginástæða þess að virt félagasamband eins og Hjartavernd Bandaríkjanna gengur fram fyrir skjöldu og lýsir stríði á hendur þessum öfgakenndu kúrum sú að mikil fitu- og próteinneysla í langan tíma eykur hættur á að við- komandi geti fengið hjartabilanir, sykursýki, slag og allnokkrar tegund- ir af krabbameini. Þá getur hættan á nýrna- og lifrarsjúkdómum aukist í vissum tilvikum. “ Ólafur segir að megrunarkúrar sem byggjast á téðri kenningu skipti tugum ef ekki hundruðum en oftast sé þó einhver blæbrigðamunur milli þeirra varðandi orkusamsetningu. „Svo ég nafngreini örfáa þeirra: Scarsdale-kúrinn, Matur án kolvetna- kúrinn, Ég borða – en grennist samt- kúrinn, Ríkisspítala-kúrinn (sem auð- vitað var ekki gefinn út af neinum spítala), Að borða í anda síns blóð- flokks (svo framarlega sem viðkom- andi er í O-blóðflokki)“. Að lokum vill Ólafur hvetja alla sem vliji losna við aukafitu að hafa í huga að heildarhita- einingafjöldinn sem neytt er skipti mestu. „Og það er vitað að matur sem er kolvetnaríkur er gjarnan mjög sað- samur án þess að gefa margar hita- einingar. Hér má nefna hollustufæði eins og grófkornmeti, baunir, ávexti og grænmeti. Því er ljóst að margir sem vilja léttast mættu gjarnan auka neyslu slíkrar fæðu enda erfitt að fitna af slíkum mat.“ Vörumst fitu- og prót- einkúrana sívinsælu TENGLAR ..................................................... http://netdoktor.is/grein/efni/ grein.asp?id_grein=1870&flokkur=6 einnig verið gríðarvinsæll þar í landi fyrir 25 árum. „En Atkins-kúrinn hef- ur því miður einnig náð að festa sig í sessi hér á landi,“ segir Ólafur. Dæmi um einn dag Ólafur gefur dæmi um hvernig einn dagur á Atkins-kúrnum geti litið út: Morgunverður: Beikon: 50 g; egg, steikt = 2 stk. Hádegi: Kjöt: 150 g; salat: 200 g Miðdegisverður: Enginn Kvöldverður: Kjöt: 150 g; salat; 150 g; olía ½ msk. Orkuleg samsetning kúrsins er eft- irfarandi: Kolvetni tæp 10%; fita rúm 60%; prótein rúm 30%. Næringar- fræðin telur orkusamsetningu sem þessa stórvarhugaverða. Og hér á eft- ir verða færð rök fyrir því. En áður er rétt að taka fram að samkvæmt nær- ingarfræðinni lítur eðlileg orkusam- setning, í megrun, svona út: Kolvetni 50–65%; fita 15–30% og prótein 15– 25%, eða 0,8 g af próteinum fyrir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.