Morgunblaðið - 17.11.2001, Blaðsíða 33
Í JÓNSHÚSI í Kaupmanna-
höfn verða haldnir tónleikar í
kvöld kl. 20. Kristjana Arn-
grímsdóttir, Kristján Hjartar-
son og Þorkell Atlason flytja ís-
lenska og skandinvíska
vísnatónlist og ballöður.
Þau tóku þátt í stofnun og
starfrækslu Tjarnar-kvart-
ettsins, sem starfaði í rúman
áratug við miklar vinsældir, og
hélt fjölda tónleika bæði á Ís-
landi og einnig víða í Evrópu.
Tjarnarkvartettinn gaf út fjóra
geisladiska.
Tónleikar
í Jónshúsi
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 33
SÍÐASTI DAGUR
Lagersalan á Laugavegi 67
70% AFSLÁTTUR AF ÖLLU
Kápur
Úlpur
Dragtir
Kjólar
Buxur
Toppar
SkórO
PI
Ð
K
L.
1
0-
17
Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið
Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
Hvað fá þátttake
ndur út
úr slíkum námsk
eiðum?
Læra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi.
Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggi-
legan hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
Læra að hjálpa öðrum til þess sama.
Lausir einkatímar í heilun og ráðgjöf
Námskeið í Reykjavík
24. - 25. nóv. I. stig • Helgarnámskeið.
26. - 28. nóv. I. stig • Kvöldnámskeið.
4. - 6. des. II. stig • Kvöldnámskeið.
Sáttmálinn
Hugrækt og sjálfstyrking
1-2 des. • helgarnámskeið, fyrri hluti.
12.-13. jan. • helgarnámskeið, seinni hluti.
BRESKI leikstjórinn Sally Potter
hefur farið sínar eigin leiðir í kvik-
myndagerð sinni. Sögurnar sem hún
segir eru margar hverjar drama-
tískar og magnþrungnar og fram-
settar af sterkri sjónrænni meðvit-
und. Kvikmyndin Orlando sem
byggð er á samnefndri skáldsögu
Virginiu Woolf er líklega þekktasta
verk Potter af þessu tagi.
Nýjasta kvikmynd Potter, The
Man Who Cried, býður áhorfandan-
um hreinlega að baða sig upp úr
sjónrænni upplifuninni, en hluti af
þeirri skynjun er jafnframt fögur og
andstæðukennd tónlistin sem er
veigamikill þáttur í kvikmyndinni.
Umfjöllunarefni myndarinnar er í
grunnatriðum hin stormasama Evr-
ópusaga nýliðinnar aldar, en þá sögu
segir Potter með sínum sérstaka
hætti, og fylgir þar eftir stúlkunni
Suzie, sem fædd er í Rússlandi og er
af gyðinga- og sígaunaættum. Suzie
er hörð af sér og því tekst henni að
lifa af hina umbyltingarsömu tíma
síðari heimsstyrjaldarinnar. Hún
kemst undan sígaunaofsóknum til
Bretlands þar sem hún er alin upp af
góðborgaralegum breskum foreldr-
um, heldur þaðan til Parísar, og
kemst loks við illan leik til Banda-
ríkjanna, eftir að Þjóðverjar hertaka
Frakkland.
Lífshlaup Suzie er sagt í fáum og
sterkum dráttum, þar sem leikstjór-
inn hægir stundum skyndilega ferð-
ina og dvelur við heillandi sjónræn
atriði, eins og til dæmis undarlega
hesta- og hjólreið um torg Parísar-
borgar. Fleiri sterkar persónur
koma við sögu, s.s. rússneska stúlk-
an Lola (Kate Blanchett) sem reynir
að bjarga sér í lífinu með því að ná
sér í fjáðan karlmann, Dante Dom-
ino (John Turturro) söngvari af fá-
tækum ítölskum uppruna, sem kom-
inn er á framabraut í söngheiminum.
Loks er það hinn blóðheiti sígauni á
hvíta hestinum Cesar (Johnny
Depp), elskhugi Suzie, sem birtist í
kvikmyndinni í upphafinni – allt að
því yfirnáttúrulegri mynd.
Í gegnum söguna er sjónum beint
að þeim ólíku kynþáttum og uppruna
fólks, sem mótun og átök sögunnar í
hinum vestræna heimi hverfist um.
Ólík menning og hugarfar Evrópu-
búa og vesturheimsbúa, allt frá sí-
gaunum, Bretum, Bandaríkjamönn-
um og gyðingum. Það er einkar næm
sýn sem Potter færir okkur í þessari
kvikmynd, sem leikstýrt er af list-
rænu sjálfstæði með liðsinni frá-
bærra leikara.
Sjónarspil
Evrópusögunnar
H á s k ó l a b í ó
Leikstjórn og handrit: Sally Potter.
Kvikmyndataka: Sacha Vierny.
Tónlistarstjóri: Osvaldo Gilojov.
Aðalhlutverk: Christina Ricci, Cate
Blanchett, Johnny Depp og John
Turturro. Sýningartími: 100 mín.
Bretland/Bandaríkin, 2000. Uni-
versal Pictures.
MAÐURINN SEM GRÉT
(THE MAN WHO CRIED)
KVIKMYNDA-
HÁTÍÐ
Heiða Jóhannsdótt ir
HARRY er ríkur og lifir þægilegu
lífi. Hann á í einhverjum vandræðum
með sjálfan sig, en hvað það er er ekki
alveg á hreinu. Þegar hann hittir af
tilviljun Michel, sem var með honum í
skóla fyrir 20 árum, treður hann sér
heim til hans, konu hans og dætra,
með frekar heimskulega heitmey
sína. Hann virðist hafa dýrkað Michel
í öll þessi ár og þá ekki síst skrif hans í
skólablaðið sem hann kann utan að.
Brátt verður Harry sífellt meira
uppáþrengjandi og óþolandi hjálp-
samur.
Þessi mynd hefur fengið mjög góða
dóma bæði í Bandaríkjunum og
Frakklandi, en því miður varð ég ekki
mjög ánægð. Fyrst og fremst er hún
bara of langdregin. Ekkert í raun ger-
ist fyrr en eftir hlé. Ef sá tími hefði
verið notaður til að byggja upp magn-
aða sálfræðispennu hefði honum verið
vel varið, en það er tekst ekki. Auk
þess fær maður aldrei skýrt svar við
því hvað Harry er að pæla né neina
bakgrunnsþekkingu á hans karakter
sem skýrir gjörðir hans og tilfinning-
ar. Leikararnir eru fínir. Bæði Laur-
ent Lucas sem leikur Michel og Mat-
hilde Seigner sem leikur konu hans
eru mjög sannfærandi í hlutverkum
sínum. Sergi Lopez er þó bestur, en
honum tekst að gera alveg sérlega
óviðfelldna, óþolandi og uggvekjandi
mannveru úr Harry og er hann það
besta við myndina og hann fékk ein-
mitt Evrópsku kvikmyndaverðlaunin
í fyrra fyrir þetta hlutverk. Sagan er
vissulega áhugaverð og hrollvekjandi,
en hefði mátt vera aðeins skýrari og
spennuþrungnari á stundum.
S a m b í ó i n v i ð
S n o r r a b r a u t
Leikstj: Dominik Moll.
117 mín. Frönsk 2000. 1⁄2
HARRY KEMUR TIL
HJÁLPAR / (HARRY UN
AMI QUI VOUS VEUT DU
BIEN)
Hildur Loftsdótt ir
MYNDIN dregur nafn sitt af
æskuvinunum Buck (Mike White)
og Chuck (Chris Weitz), sem ým-
islegt brölluðu saman framundir
fermingu í smábæ í Kaliforníu.
Sumt hlýtur að teljast á útnára
kynferðislegrar hegðunar. Veröld
Bucks hrynur er Chuck flytur til
Los Angeles. Þeir hittast aftur er
móðir Bucks deyr og Chuck kemur
til að fylgja henni til grafar. Chuck
er farinn að njóta velgengni sem
framleiðandi í stórborginni, Buck
lifir enn í ljóma gullinna æskuminn-
inganna þegar Chuck og Buck voru
kóngar í ríki sínu. Kærasta Chucks
sér aumur á þessum æskuvini hans
og býður honum í heimsókn.
Harla óvenjuleg mynd um eft-
irsjá æskuáranna, falskar vonir,
brostnar ástir, gengna vináttu, af-
brigðilega kynhneigð, einmanaleika,
þráhyggju og upprisu. White kemst
dæmalaust trúverðuglega frá marg-
flóknu efni í þessari óháðu kvik-
myndagerð, sem iðnaðarmaskínan
hefði vafalítið klúðrað. Hún hefur
sjaldan sloppið vel frá jaðarefni og
-persónum. White er ekki aðeins
maðurinn á bak við handritið, sem
er, þrátt fyrir allt, trúverðugt og
tilfinningaþrungið, heldur leikur
hann Buck af fumlausum sannfær-
ingarkrafti og skapar óskoraða
samúð með brjóstumkennanlegu
ungmenni, rifnu upp með rótum í
flestum skilningi. Hinn samkyn-
hneigði Chuck, sem velur áhættu-
minni braut gagnkynhneigðar, er í
nokkuð góðum höndum Chris
Weitz. Bróðir hans, Paul, á betri
dag sem B-leikari, en bræðurnir
eru höfundar handrits myndanna
um American Pie. Þá er vert að
geta eftirminnilegrar frammistöðu
Lupe Ontiveros í hlutverki rekstr-
arstjóra áhugamannaleikhúss, sem
kemur mikið við sögu, og stólpa í
endurhæfingu hins vonsvikna
Bucks. White botnar söguna á rök-
réttum nótum, þannig að Chuck &
Buck ætti að nýtast sem bærileg
pilla við hómófóbíu, auk þess sem
hún er allrar athygli verð fyrir
óvenjulegt efni og efnistök. Myndin
hefur vakið það mikla eftirtekt og
jákvætt umtal að þeir félagar,
White og leikstjórinn Michael Art-
eta, eru að vinna saman að A-mynd
með Jennifer Aniston, John C.
Reilly og fleira góðu fólki í kvik-
myndaborginni.
B í ó b o r g i n
Leikstjóri: Michael Arteta. Hand-
ritshöfundur: Mike White. Aðalleik-
endur: Mike White, Chris Weitz,
Paul Weitz, Lupe Ontiveros, Beth
Colt. Bandarísk. 2000.
CHUCK & BUCK Sæbjörn Valdimarsson
CARITAS á Íslandi, hjálp-
arstofnun kaþólsku kirkjunnar í
samstarfi við Hjálparstarf þjóð-
kirkjunnar, efnir til tónleika í
Kristskirkju, Landakoti, á sunnu-
dag kl. 16. Tónleikarnir eru til
styrktar neyðaraðstoð í Afganist-
an.
Flytjendur eru Gunnar Kvaran,
sellóleikari, Sigrún Eðvaldsdóttir,
fiðluleikari, Sigurður Skagfjörð,
barítonsöngvari, Sigurður I.
Snorrason, klarinettleikari, Úlrik
Ólason, organleikari, og Vox
Feminae undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur.
Á efnisskránni eru verk eftir
Atla Heimi Sveinsson, Árna Thor-
steinson, J.S Bach, G. Bizet, L.
Boccherini, Z. Kodály, W. A Moz-
art.
Aðgöngumiðar verða seldir hjá
skrifstofu kaþólsku kirkjunnar,
Hávallagötu 14, Kirkjuhúsinu við
Laugaveg eða við innganginn.
Miðaverð kr. 2000.
Morgunblaðið/Þorkell
Hluti tónlistarfólksins sem kemur fram á styrktartónleikum Caritas
ásamt Sigríði Ingvarsdóttur, umsjónarmanni tónleikanna.
Tónleikar til
styrktar Afgönum