Morgunblaðið - 17.11.2001, Síða 48

Morgunblaðið - 17.11.2001, Síða 48
MINNINGAR 48 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Elskuleg systir mín, Svava Sigríður Krist- jánsdóttir, er látin. Hún lést 1. september síðastliðinn á hjarta- deild Landspítalans. Svava fæddist á Ísa- firði 13. júlí 1929. Lífsreynsla henn- ar var erfið. Hún giftist Hallgrími Jónssyni frá Laxamýri, og þar bjuggu þau um tíma. Það var hringt til mín og ég beðin um að koma til Svövu systur minnar. Hún var að fæða fyrsta barn þeirra hjóna og var það stúlkubarn, barnið lést í fæð- ingu. Þetta var mikil sorg og lífs- reynsla. Hjónin fluttust til Reykjavíkur. Seinna fæddust þeim tvær stúlkur, sem veittu þeim gleði. Þá byrja þau SVAVA SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR ✝ Svava SigríðurKristjánsdóttir fæddist á Ísafirði 13. júlí 1929. Hún lést 1. september síðastlið- inn á hjartadeild Landspítalans og fór útför hennar fram í kyrrþey. að byggja sér nýtt hús. En þau Svava og Hall- grímur skildu. Aldrei varð af því að systir mín Svava, ætti heimili í því húsi, það var ætlað annarri konu. Allt þetta hafði mikil áhrif á heilsu Svövu systur minnar. En hún dreif sig í Húsmæðra- skólann á Ísafirði, því þaðan var hún ættuð. Henni gekk mjög vel í Húsmæðraskólanum, öll hennar handavinna hreint listaverk, svo falleg og henni til sóma. Veisluhald og allt sem snerti heimilið var til fyr- irmyndar. Myndarskapurinn alveg í fyrirrúmi. Seinna giftist Svava Þorvaldi Stef- ánssyni. Þau eignuðust fimm efni- lega syni. Þorvaldur var stýrimaður og því mikið að heiman, hann er nú látinn. Í Guðs friði, elsku systir mín. Þakka þér fyrir allt og allt. Ólöf E. Wheeler, Nesa, Az. USA. ✝ Sigurgeir Gunn-arsson fæddist á Vegamótum á Stokkseyri 22. júlí 1911. Hann lést í Landspítalanum í Fossvogi 9. nóvem- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru Ingibjörg Sigurðar- dóttir, f. í Grímsfjós- um á Stokkseyri 12. nóvember 1883, og Gunnar Gunnarsson, f. í Byggðarhorni í Sandvíkurhreppi 22. júní 1877. Þau bjuggu á Vegamótum á Stokks- eyri. Sigurgeir var þriðji í röð sjö systkina. Þrjú eru látin: Sigríður, f. 1906, Gunnar, f. 1908, og Ing- ólfur, f. 1913, og þrjú eru á lífi: Hrefna, f. 1917, Þórir, f. 1920, og Þorvarður f. 1923. Sigurgeir kvæntist 24. júní 1944 ur hennar er Adam, f. 2000. 2) Hrafnhildur, f. 10. september 1951, gift Guðmundi Lýðssyni. Börn þeirra eru: Lýður Geir, f. 1971, sambýliskona hans er Hjör- dís Auðunsdóttir, sonur hennar er Viktor Snær, f. 1995; og Brynja Kristín, f. 1975. 3) Gunnar, f. 1. desember 1953, kvæntur Gerði Óskarsdóttur. Börn þeirra eru: Karítas, f. 1993, og Trostan, f. 1995. Fyrir átti Gunnar Daníel, f. 1982, og Gerður Ými Sigurðarson, f. 1982. 4) Hörður Ingi, f. 3. janúar 1960. Á yngri árum vann Sigurgeir ýmis störf til sjávar og sveita, m.a. að vegagerð víða á Suðurlandi, lagningu Flóaáveitunnar og á ver- tíðum á Stokkseyri, í Vestmanna- eyjum og suður með sjó. Þrítugur að aldri réðst hann til starfa hjá Kaupfélagi Árnesinga og vann þar nærfellt þrjá áratugi, mest við tin- kveikingar. Frá 1970 og meðan starfsþrek leyfði vann Sigurgeir á eigin vegum í aðstöðu sem hann kom sér upp heima. Útför Sigurgeirs fer fram frá Selfosskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Kristínu Guðmunds- dóttur, f. í Kolsholts- helli í Villingaholts- hreppi 20. september 1922, d. 18. febrúar 1987. Foreldrar henn- ar voru Marta Brynj- ólfsdóttir, f. 27. júlí 1889, og Guðmundur Kristinn Sigurjóns- son, f. 23. maí 1896. Þau bjuggu í Kols- holtshelli í Villinga- holtshreppi. Sigurgeir og Kristín bjuggu all- an búskap sinn á Sel- fossi, lengst í húsi sem þau reistu 1957 á Lyngheiði 13. Börn Sigurgeirs og Kristínar eru: 1) Marteinn Guðmundur, f. 30. mars 1945, kvæntur Öldu Guð- mundsdóttur. Börn þeirra eru: Þór, f. 1976, Sara Mjöll, f. 1980, og Marta Björk, f. 1982. Fyrir átti Marteinn Hrafnhildi, f. 1972. Son- Elsku afi, nú ertu farinn frá okk- ur. Við systkinin viljum í nokkrum orðum segja hversu lærdómsríkt var að kynnast þér, hve margt þú kenndir okkur og umfram allt settir bros á okkar vör. Þú varst umfram allt glettinn og þær eru margar sög- urnar sem koma í huga okkar þar sem þú skildir okkur eftir þar sem við sátum og íhuguðum gátuna sem oft var ekki leyst fyrr en nokkrum dögum seinna. Í þessum gátum fólst oft á tíðum mikil lífsspeki sem er gott veganesti út í lífið. Þú hafðir mikinn áhuga á veiði og það eru ófáar veiðiferðirnar sem við systkinin fórum með þér í veiðikof- ann eða við Þjórsárósa þar sem lagt var net eða beitt ánamaðki eða hrogn á öngul. Svo var beðið, og kát- ínan mikil þegar loksins var bitið á. Það er einnig margs að minnast úr bílskúrnum þínum sem var ein stór draumaveröld með öllum sínum tækjum og tólum. Ekki má gleyma maðkabeðinu í garðinum þar sem þú ræktaðir heimsins stærstu maðka fyrir veiðiferðirnar þínar. Það var gaman að segja þér sögur enda hafðirðu alltaf áhuga á að vita hvað við værum að gera. „Þú segir mér fréttir“ var setning sem við systkinin heyrðum oft frá þér enda var ekkert eins skemmtilegt og að deila með þér einni góðri sögu sem þú hlustaðir áhugasamur og spennt- ur á. Afi var ofboðslega barngóður og hvíslaði hann yfirleitt „krakkar, krakkar“ á börnin sem höfðu gaman af því að tala við hann. Gott dæmi um hve barngóður hann var er þeg- ar hann hélt upp 85 ára afmælið sitt og bauð einungis krökkunum í Lyngheiðinni upp á ís og súkkulaði. Það er margs að minnast og minningar um afa munu hlýja okkur um hjartarætur um ókomna tíð. Við vitum að honum líður vel þar sem hann er núna með ömmu og öllum vinum þínum. Láttu guðs hönd þig leiða hér, lífsreglu halt þá bestu: Blessuð hans orð sem boðast þér, í brjósti og hjarta festu. (Hallgrímur Pétursson.) Blessuð sé minning þín. Lýður Geir og Brynja Kristín. Þrjátíu og fimm ára kynni af Sig- urgeir Gunnarssyni láta mann ekki ósnortinn, og alls ekki vandalaust að lýsa þeim kynnum né sérkennum hans og manngöfgi. Hann kom inn í líf mitt er Guðmundur bróðir minn varð tengdasonur hans. Varð hann þá tíður gestur á heimili mínu ásamt konu sinni, Kristínu Guðmundsdótt- ur. Kristín lést fyrir aldur fram fyrir tæpum 15 árum. Ung bundust þau hjón ástarböndum og taldi Sigurgeir það lífslán sitt að ná í Kristínu, þá kornunga þjónustustúlku hjá Stef- aníu frænku hans og séra Sigurði Pálssyni í Hraungerði. Þau Kristín hófu búskap á Selfossi í lýðveldis- byrjun og bjuggu þá um skeið í verkamannabústöðunum við Sel- fossveg. Ekki veit ég hversu mikill áttabarningur það var fyrir þau að koma undir sig fótunum, en von bráðar tókst þeim að byggja sér gott hús við Lyngheiði l3 á Selfossi. Mátti segja að Sigurgeir byggi þar til hinstu stundar. Kristín er mér minnisstæð í sinni hóglátu framkomu: brosmild og svipfríð, stöðugt vinnandi og lét ekk- ert hagga sér. Á síðari árum sínum var hún bréfberi á Selfossi og hafði kynni af mörgum. Hún gaf hnyttnar athugasemdir sem stundum voru í blóra við skoðanir eiginmannsins, en það fór ekki milli mála að einstak- lega hlýtt var með þeim hjónum. Harmaði Sigurgeir Kristínu mikið og hlakkaði til endurfundanna. Þeir eru nú orðnir ef mín trú er rétt. Sigurgeir Gunnarsson lifði tvenna tíma. Hann fæddist Stokkseyringur en varð Selfyssingur. Hann hóf starfsferilinn sem sjómaður en lauk honum sem starfsmaður í kveiking- um á brúsum og viðgerðum á bíla- vatnskössum, bæði hjá Kaupfélagi Árnesinga og síðast heima hjá sér. Orðhagur maður gaf honum starfs- heitið „tinkveikjari“; mér er til efs að það orð hafi komist í orðabækur. Þótt Sigurgeir væri alla tíð Stokkseyringur í andanum, hélst hann þar ekki við. Varð illa sjóveik- ur og önnur störf en sjómennska fundust þá vart á Stokkseyri. Því komst Sigurgeir í þá vinnu sem var ættlæg: að kveikja, brasa og sjóða. Gunnar faðir hans var bráðfær járn- smiður og bróðir hans, Þórir, einn færasti rafsuðumaður hér sunnan- lands. En andinn eða arfleifðin frá Stokkseyri fólst í öðru. Þar voru í ungdæmi Sigurgeirs ákaflega merk- ir alþýðumenn, hnyttnir og hagorðir snillingar. Ég nefni fyrst alþýðu- skáldið Magnús Teitsson sem Sig- urgeir kunni margt eftir. Þá var ekki síðri gáfumaðurinn Guðmundur Helgason í Hól, sem Sigurgeir sagði mér margt af. Mér fannst hann vera lærisveinn þeirra beggja, eða hinn þriðji í röðinni þessara alþýðumeist- ara. Að Guðmundi safnaðist fólk þegar hann fór að segja sögur. Það var eitt sinn að hann var miðpunkt- urinn í húsgaflaspjalli er drengurinn Sigurgeir kom þar að. Fór hann brátt að leggja sitthvað til málanna. Þá sneri Guðmundur sér að honum og mælti: „Þú talar í líkingum, ung- lingur!“ Það gerðu þeir reyndar báðir. En Sigurgeir átti sér hófstilltari og ýkjulausari frásagnarsnilld. Mér er margt minnisstætt. Við hittumst á opinberum vinnustað á Selfossi. Þar höfðu orðið valdsmannaskipti og hinir nýju valdhafar hófu að flikka upp á staðinn m.a. með „gullbet- rekki“. „Þetta er nú fermingarbet- rekkið þeirra,“ sagði Sigurgeir. Hann útskýrði fyrir mér að þegar fátækt barnafólk á Stokkseyri fór að undirbúa fyrstu ferminguna, var nærtækast að betrekkja íbúðina upp á nýtt. Aðrir dýrari kostir gáfust ekki. Enn var langt í land með harð- viðarklæðninguna. Í annan tíma ræddum við um dugnaðarfork í fé- lagsmálum sem hélt ýmsum störfum samtímis. „Hann er í tveimur reif- unum, ef ekki þremur,“ sagði þá Sigurgeir. Honum lét alls ekki að skíta út náungann. Margar sögur hans gengu á sjálfan hann. Lýsingar hans á aðstæðum gátu verið með ein- dæmum. Hann kom í hús hjá fólki í afskekktri byggð. Aðalíverustofan var í „náttúrulegu umhverfi enda sá í heiðan himininn upp í gegnum loft- ið.“ Þeim var boðin mjólk að drekka sem félagar hans afþökkuðu snar- lega er hún var borin fram. Sögðust aldrei drekka mjólk, „en ég drakk hana og er lifandi enn“. Svona voru sögurnar hans Geira og hér fátt sagt af þeim. Sögur af al- þýðunni til sjávar og sveita enda fannst mér hann sagnaþulur alþýð- unnar númer eitt. Margt var honum betur gefið en öðrum. Hann var aflakló við alla fiskveiði uppi á landi. Sjö ára gamall veiddi hann Maríu- fiskinn sinn út frá Ásgautsstaðaeyju á Stokkseyri. Þann fisk gaf Geiri móður sinni, sem færði hann vin- konu sinni á sæng. „Og ég sem var farinn að hlakka til að éta bleikj- una,“ sagði hann. Ógleymanlegar voru mér einnig lýsingar hans á verkstæðisárunum á Selfossi, enda átti hann þar marga litríka samstarfsmenn. Hann sagði mér nýlega frá verkstæðisflautunni háværu sem ómaði um hálfan Fló- ann. Ekki gast Geira að hávaðanum, sá stundvísi maður þurfti ekki flautu til að minna sig á mætingu. En þeg- ar hann eitt sinn hélt í sumarfrí og var kominn langt niður í Flóa er flautið brast á – þá fannst honum ekkert sumarfrí vera lengur! Sigurgeir var mikill fjölskyldu- maður, en þar voru börnin fremst í flokki. Barnabörnin – reyndar öll börn – löðuðust að honum og flest- um fremur kunni hann að tala á þeirra máli. Mér er sagt að eitt sinn hafi hann haldið upp á merkisafmæli sitt með því að bjóða öllum börnum í götunni í ísveislu. Sjálfum sér hélt hann ekki veislur en þó auðnaðist vandamönnum hans og vinum að gera honum níræðisafmælið í sumar eftirminnilegt. Hann hélt í ferðalag austur í Rangárþing. Við heimsótt- um með honum fjórar kirkjur er komu við ættarsögu hans. Loka- punkturinn var heimsókn í Byggða- safnið hans Þórðar í Skógum. Þórð- ur lék við hann sem fáséðan grip sem varðveita ætti undir drep og af- mælisbarnið lék við hvern sinn fing- ur. Nú er Sigurgeir Gunnarsson far- inn frá okkur þótt minningin um þennan hugljúfa og sérgáfaða al- þýðumann verði ekki frá okkur tek- in. Við varðveitum þá minningu bet- ur en flesta aðra safngripi í hugarfylgsnum okkar. Páll Lýðsson. Hann Geiri frændi var heimspek- ingur, a.m.k. var hann spekingur. Ég minnist hans sem hins rólega og yfirvegaða manns með pípu, sem talaði í gátum. Hann hafði einkar næmt auga fyrir hinu smáa í umhverfinu og skynjaði hlutina oft á annan hátt en aðrir. Mörg tilsvör hans eru löngu fleyg og hafa sum þeirra ratað í bækur. Hann hafði ákaflega þægilega nærveru og kom manni til að líta hlutina öðrum augum en maður hafði vanist. Ekki var undirritaður duglegur að heimsækja þennan frænda sinn hin síðari ár og frekar að Geiri legði land undir fót og minnist ég sér- staklega þriggja til fjögurra daga dvalar hans hjá okkur í Eyjum fyrir tæpum 20 árum. Geiri hafði á árunum fyrir stríð verið á vertíðum í Eyjum og langaði nú að sjá staðinn á ný. Hann fór einn síns liðs í langar gönguferðir á degi hverjum og er hann kom til baka að áliðnum degi sagði hann frá því sem fyrir augu hafði borið. Þá skynjaði ég réttmæti máls- háttarins að „glöggt er gests augað“ og þá ekki síst þegar Geiri átti í hlut og gaman að upplifa hvernig Geira tókst að glæða hið daglega umhverfi okkar og bæjarlífið nýrri vídd með frásögnum sínum. Börnunum okkar sagði hann svo aðrar sögur fyrir háttinn og átti hann einkar létt með að ná til þeirra, jafnvel þó ein og ein stremb- in gáta flyti með. Lítil saga úr þessari ferð Sigur- geirs til Eyja skal hér sögð: Einn daginn er Geira gengið fram hjá Verslun Gunnars Ólafssonar við Strandveg. Tröppur nokkrar lágu upp að búðardyrunum en múrað hafði verið upp í innganginn og nýr inngangur gerður á gafli hússins en tröppurnar stóðu á sínum gamla stað. Geiri gengur nú upp tröppur þessar og aftur niður. Þetta end- urtekur hann í þrígang og þegar manni í nærstöddum bíl sýnist hann ætla að hefja fjórðu tilraun við inn- ganginn kallar hann til Geira og segir að nú sé gengið inn á öðrum stað. „Veit ég það,“ mælti þá Geiri, en tröppur þessar gekk ég oft léttur í spori fyrir nær hálfri öld og þær eiga það skilið að ég heilsi þeim á ný.“ Þetta mætti kalla að feta sig inn í fortíðina í bókstaflegri merk- ingu. Þótt Geiri væri maður orðsins var hann ekki síður hagur til handa og fékk Kaupfélagið á Selfossi að njóta þeirrar leikni hans í áratugi og sagt hefur mér verið, að hlutir sem dæmdir höfðu verið úr leik hefðu fengið líf á ný þegar Geiri hafði farið um þá höndum. Sigurgeir hélt upp á 90 ára af- mæli sitt á miðju sl. sumri þá er sól skein skærast á Suðurlandi. Fyrst var safnast við heimili afmælis- barnsins á Lyngheiði á Selfossi en síðan farið að Skógum undir Eyja- fjöllum og er það mál þeirra sem voru í fögnuði þessum að sjaldan hafi þeir verið í jafn ánægjulegri veislu þar sem hvorki skorti veislu- föng né gleði. Geiri var höfðingi til hinstu stund- ar. Ég þakka Sigurgeiri ánægjuleg kynni og votta börnum hans og að- standendum samúð mína. Gísli Þorsteinsson. Hann kom reglulega í heimsókn til okkar í Eskihlíðina. Sat þar ró- legur yfir kaffibolla og með því í eld- húsinu hjá henni ömmu minni. Lág- vaxinn, grannur í kaupstaðarfötunum sínum með grátt hár og sterkan svip. Djúpt augnaráðið hvíldi oft lengi á ein- hverjum óræðum stað úti í busk- anum. Mál hans var hægt og ábúð- arfullt, hann kvað fast að og var ekkert að flýta sér. Hlustaði af at- hygli á aðra og þætti honum mikið til koma, hreyfði hann höfuðið hægt til hliðar og svo ögn niður á við um leið og hann sló sér létt á lær með krepptum hnefa: ,,Jaaáá, þannig var það.“ Sjálfur hafði þessi merkilegi mað- ur allt annað og mun ríkulegra tungutak en flestir aðrir. Og oftar en ekki talaði hann líka í gátum: ,,Hvaðan kemur vindurinn og hvert fer hann?“ Þetta var hann Geiri frændi minn kominn að austan í heimsókn til Hrefnu systur sinnar í Eskihlíðinni. Svona man ég fyrst minn góða frænda Sigurgeir Gunnarsson ætt- aðan frá Vegamótum á Stokkseyri, þá orðinn sextugan að aldri. Á þess- um rúmu þrjátíu árum af lífi frænda míns sem ég þekkti hann, lærði ég enn betur að virða og meta mann- kosti þessa merkilega manns. Það var afar kært milli þeirra systkina Hrefnu ömmu minnar og Geira og oft hafa þau líklega mátt styðja hvort annað í uppvextinum þar sem ekki var alltaf úr miklu að moða. Enda var hann alltaf jafn tryggur og elskulegur við litlu systur sína og síðar við okkur afkomendur hennar. Og ekki var hann síður skemmti- legur. Mikið ef hann þótti ekki bara með skemmtilegri mönnum í Flóan- um! Samferðamenn hans í lífinu munu víst geta sagt margar sögur um Sig- urgeir frænda enda annálaður og vel máli farinn spekingur. Gott ef ekki heimspekingur. Það sem einkennir Sigurgeir Gunnarsson í mínum huga er þó um- fram allt hans mikla hlýja og sanna umhyggja í minn garð þó ekki væru samskiptin alltaf mikil enda tilheyri ég þessari sjálfhverfu kynslóð sem alltaf er á þönum en þjáist þó stöð- SIGURGEIR GUNNARSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.