Morgunblaðið - 17.11.2001, Blaðsíða 56
MINNINGAR
56 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
bein útsending frá ensku knattspyrn-
unni, þá helst Liverpool og Man-
chester United. Goggi var harðasti
United aðdáandi sem við hittum og
er þá mikið sagt.
Já, minningarnar eru margar, góð-
ar og ógleymanlegar, sem ekki er
ætlunin að rekja hér. Hetjulegri bar-
áttu við erfiðan sjúkdóm er lokið,
baráttu sem fjölskyldan tók svo mik-
inn þátt í, þar sem húsmóðirin fór
fyrir hópnum sínum, með sínu æðru-
leysi. Það er komið að því að kveðja
góðan vin, vin sem við erum þakklát
fyrir að hafa verið samferða. Kæri
vinur, hafðu þakkir fyrir allt og allt.
Harpa, börn og aðrir ástvinir, megi
góður Guð styrkja ykkur í sorg ykk-
ar.
Minningin um góðan dreng mun
lifa. Guð blessi ykkur öll.
Guðmundur Þ. B. Ólafsson,
Þuríður Kristín Kristleifsdóttir
og fjölskylda.
Það er sárt að kveðja góðan vin og
samstarfsmann til margra ára. Ég
man fyrst eftir Georg Þór sem litlum
dreng. Þannig hagaði til að foreldrar
mínir og afi hans og amma, þau
Georg Gíslason kaupmaður og Guð-
finna Kristjánsdóttir, áttu sinn helm-
inginn hvor í húsinu að Vestmanna-
braut 25 í Vestmannaeyjum. Verslun
Georgs Gíslasonar var við hliðina og
eftir fráfall hans tók Kristján, faðir
Georgs Þórs, við versluninni og rak
hana í nokkur ár.
Uppvaxtarárin liðu og þrátt fyrir
nokkurn aldursmun áttu leiðir okkar
Georgs Þórs eftir að liggja víða sam-
an síðar á lífsleiðinni. Mikill áhugi á
félagslífi einkenndi lífshlaup hans allt
frá skólaárum í gagnfræðaskóla.
Virk þátttaka í íþróttum og fé-
lagsstörfum, sem því fylgdi, ásamt
skátastarfi, voru fyrstu skrefin á
þeirri leið. Þá gerðist hann snemma
virkur í starfi Eyverja, félags ungra
sjálfstæðismanna í Eyjum.
Það urðu miklar breytingar í Vest-
mannaeyjum af völdum eldgossins á
Heimaey 1973. Uppbyggingin eftir
gosið var mikið og erfitt verkefni.
Þegar styttast tók í kosningar til
bæjarstjórnar vorið 1978 var ákveðið
hjá Sjálfstæðisflokknum að halda
prófkjör til þess að velja á framboðs-
listann. Niðurstöður prófkjörsins
leiddu til kynslóðaskipta í efstu sæt-
um listans. Þar lágu leiðir okkar
Georgs saman á ný. Flokkurinn hafði
þá haft fjóra fulltrúa af níu í bæj-
arstjórn um nokkurt árabil. Margir
hrukku við þegarí ljós kom að í efstu
sætin völdust fjórir ungir menn, sá
elsti 37 ára. Georg var yngstur af
okkur, þá nýorðinn 28 ára. Í kosning-
unum 1978 átti Sjálfstæðisflokkurinn
alls staðar erfitt uppdráttar og okkur
tókst ekki að endurheimta fyrri stöðu
flokksins í Vestmannaeyjum að því
sinni. Við Georg sátum saman í
minnihluta í bæjarstjórn þetta kjör-
tímabili, 1978–1982, en síðan í meiri-
hluta 1982–1986.
Margs er að minnast frá þessum
tíma. Það fylgir því mikil vinna að
sitja í bæjarstjórn. Fyrir nýtt fólk
kallar þetta starf á mun meiri vinnu.
Í bæjarstjórn þarf að taka ákvarð-
anir sem orkað geta tvímælis. Fólk
tekur á sig mikla ábyrgð með því að
stjórna bæjarfélaginu. Samstarf okk-
ar Georgs í bæjarstjórn byggðist á
trausti og kom þar aldrei brestur í.
Sérstaklega minnist ég tímans á
verðbólguárunum, þegar erfitt var að
gera áætlanir og rekstur sveitarfé-
laga varð mjög þungur. Þá þurfti oft
sterk bein og góða samstöðu.
Skömmu eftir að Georg tók sæti í
bæjarstjórn gerðist hann félagi í
Kiwanisklúbbnum Helgafelli í Eyj-
um og var þar fljótlega valinn til for-
ystu. Árið 1990 tók Georg sæti á ný í
bæjarstjórn og sat þar tvö kjörtíma-
bil til viðbótar. Við áttum langt og
ánægjulegt samstarf í stjórn Bæjar-
veitna, vorum síðast endurkosnir í
stjórnina fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokksins fyrr á þessu ári. Í apríl sl.
tókum við báðir sæti í stjórn Sjálf-
stæðisfélags Vestmannaeyja og
framundan var undirbúningur bæj-
arstjórnakosninga næsta vor. En
stuttu síðar bárust okkur, félögum
Georgs, þær hörmulegu fréttir að
hann hefði greinst með mjög erfiðan
sjúkdóm og framundan væri þung
krabbameinsmeðferð. Eyjamönnum
var öllum mjög brugðið, að maður á
besta aldri, heilsuhraustur alla tíð,
glaður og reifur, sætti slíkum örlög-
um.
Allt frá upphafi var ljóst að barátta
Georgs við sjúkdóminn yrði mjög erf-
ið. Viðbrögð hans sjálfs við þessum
tíðindum voru hins vegar einstök.
Hann hélt sínum sálarstyrk og jafn-
aðargeði allt þar til yfir lauk. Þegar
ljóst var að frekari sjúkdómsmeðferð
var vonlaus óskaði hann eftir því að
dveljast á heimili sínu í Eyjum. Í
þessu veikindastríði reyndi mikið á
fjölskylduna sem stóð vaktina allt þar
til yfir lauk. Ég heimsótti Georg síð-
ast tíu dögum fyrir andlátið. Þó að
mjög væri þá af honum dregið var
hugsunin skýr og málefni líðandi
stundar voru til umræðu.
Með fráfalli Georgs Þórs Krist-
jánssonar er genginn góður og
traustur drengur. Sjálfstæðisfélag
Vestmannaeyja og fulltrúaráð
flokksins í Eyjum þakkar fyrir mikil
og fórnfús störf á undanförnum ár-
um. Fylkir, blað flokksins í Eyjum,
sér á eftir góðum liðsmanni, en Georg
sat um tíma í ritnefnd og skrifaði
mikið í blaðið. Samfélagið í Eyjum
hefur misst mikið.
En sárastur er missir fjölskyld-
unnar. Við Guðrún sendum Hörpu,
börnum og öðrum aðstandendum
innilegar samúðarkveðjur á sorgar-
stundu.
Guð blessi minningu Georgs Þórs
Kristjánssonar.
Arnar Sigurmundsson.
Frábær drengur og félagi er geng-
inn langt fyrir aldur fram. Sólsetur
þessa árs nálgast óðfluga og Goggi í
Klöpp kveður á þeim tíma sem sólin
sjálf sest nær suðrinu en vestri. Sjálf-
ur var Goggi einn af sólstöfum mann-
lífsins, alltaf glaðlyndur, alltaf góð-
viljaður, alltaf vinur vina sinna og
reiðubúinn að eignast nýja í hverju
fótmáli. Goggi var eins og sunnan-
blærinn í sólskini. Georg Þór Krist-
jánsson átti þann persónuleika að
fólk laðaðist að honum, átti sam-
kennd með hans hlýja hjarta. Þeir
sem búa yfir stíl eiga hann ýmist af
sjálfu sér eða hafa ræktað hann. Stíll
Gogga var honum eiginlegur frá nátt-
úrunnar hendi. Hann var Guðs gjöf
og það nutu margir góðs af, því það
var Gogga eiginlegra að gefa en
þiggja. Hans auður var þó fyrst og
fremst lífsgleðin, viljinn til þess að
gera gott úr jóraspjalli mannlífsins,
en samtvinnað þessari lífsgleði var
hún Harpa hans, börnin þeirra sem
spegla svo tært orðið sem Óli Tótu
sagði að væri ekki hægt að þýða á er-
lend mál, vinarþel. Það er vissulega
magnað að kynnast árfarvegi stór-
fljóta jarðarinnar, sjá hvernig þau
teikna sögu sína í jörðina sjálfa, en
það er þó miklu magnaðra að kynnast
því hvernig persónuleiki einstaklings
býr í raun yfir margföldum krafti
stórfljótanna, ætt af ætt, maður af
manni. Þegar rifjað er upp fas
Georgs afa, Gogga, sprangandi um
verslunina og miðbæinn, snerpu
Kristjáns, föður Gogga, á fótbolta-
vellinum og léttleika Gogga sjálfs í
lífsleiknum sjálfum sér maður svart á
hvítu að þetta er engin tilviljun, efnið
er gott og andinn eftir því og ekki dró
Helga móðir hans úr.
Það fór Gogga vel að vera hrókur
alls fagnaðar, bregða á leik, fylgja
góðum málum eftir, drífa hugmynd-
irnar áfram og taka þátt í félagsstarf-
inu, leggja hönd að hönd. Þar kom
hann víða við, á vettvangi stjórnmál-
anna, íþróttanna, Kiwanis og fleira
og fleira og ekkert var með hangandi
hendi. Það er til að mynda ótrúlegur
tími sem hann og Harpa létu af hendi
rakna í starfi Kiwanishreyfingarinn-
ar, en einmitt vegna slíks fólks verða
góðar hreyfingar til, mannræktar-
hreyfingar sem gæta þess að hið já-
kvæða ráði ferðinni.
Goggi var skemmtilegur keppnis-
maður og lifði sig inn í það sport sem
hendi var næst, hvort sem það var
fótboltinn, billjard eða hvaðeina þar á
milli og ein höfuðíþrótt hans var að
taka þátt í spjallinu, rökræða og
skiptast á skoðunum. Þá gat stund-
um hvesst skemmtilega hjá strák og
tálgað háðið var eins og undan vel
stáluðum flökunarhníf. Þá var Goggi
í essinu sínu í þeim leik. Þann eig-
inleika hafði hann verulega frá móð-
ur sinni.
Goggi gerði allt óhikað og það fór
ekkert á milli mála. Jafnvel með tak-
markaðri tungumálakunnáttu gat
hann átt tjáskipti við fólk hvaðan sem
var af jörðinni og allir viðmælendur
hans voru fljótlega á hans bandi.
Meira að segja þegar hann var einu
sinni sem oftar í Bretlandsferð með
vinum sínum úr Eyjum og var ekki
alveg klár á stundinni hvernig ætti að
biðja um ís í kókglasið, en sagði hisp-
urslaust við þjóninn: „Klake in the
coke“ og var afgreiddur á stundinni.
Goggi sómdi sér líka vel í hópi
Hrekkjalómanna í Eyjum, alltaf til í
tuskið til þess að rífa upp fjörið og
hafa gaman af lífinu.
Það er mikill söknuður að þessum
sérstæða samferðamanni sem batt
ekki alltaf bát sinn hinum hefð-
bundnu festum og stundum kostaði
það sem menn kalla í daglegu máli
mistök, en hvaða frumkvöðull hefur
staðið undir nafni án þess að gera
mistök. Það er væntanlega innifalið í
þeirri fórnfýsi að ríða á vaðið, brjóta
nýjar leiðir, reyna óhefðbundnar
lausnir.
Hetjudáð Georgs Þórs á enda-
spretti æviskeiðsins þegar sjúkdóm-
urinn grimmi var búinn að krækja í
hann var með ólíkindum. Hann var sú
hetja að kunna að bera sig þeim mun
betur sem verr gekk, því að tala við
hann undanfarna mánuði var í senn
hvetjandi, þroskandi og skemmtilegt.
Það var enginn barlómur og maður
skammaðist sín fyrir að vera að hafa
áhyggjur út af einhverjum smámun-
um, slúðri, ósanngirni, hlutum sem
skipta í raun engu máli miðað við
heilsuna og lífsandann góða.
Við Goggi lékum okkur að því við
hvert tækifæri með gesti í Eyjum að
spranga inni í Spröngu, báðir góðir í
ballest, en nú er vinurinn kominn í
spröngu eilífðarinnar og megi hann
hlúa að sem flestum á leið sinni. Í
þeim heimi mun hann einnig bæta og
græða, gefa gott af sér. Megi góður
Guð liðka spröngurnar svo riðin verði
góð. Megi góður Guð gæta ástvina
hans og eftirlifandi sem sækja styrk í
bæn og minningu um frábæran
dreng og félaga.
Árni Johnsen.
Fleiri minningargreinar
um Georg Þór Kristjánsson bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Smiðir og verkamenn
óskast í byggingavinnu, innanhússvinna.
Upplýsingar í símum 892 8413 og
892 8416.
FÉLAGSSTARF
Aðalfundur Félags
sjálfstæðismanna
í Bakka- og Stekkjahverfi
verður haldinn laugardaginn 24. nóvember kl. 11.00 í félagsheimili
sjálfstæðismanna, Álfabakka 14A, 3. hæð.
Dagskrá fundarins:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins verður Júlíus Vífill Ingvarsson,
borgarfulltrúi.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér nýja
félaga.
Stjórnin.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Hluthafafundur
Íslenska járnblendifélagið hf.
Hluthafafundur verður haldinn í Íslenska járn-
blendifélaginu hf. á skrifstofu félagsins á
Grundartanga, Skilmannahreppi, 27. nóvember
2001 kl. 10:00.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár félags-
ins úr kr. 1.762.900.000 í kr. 440.720.000.
Lækkunin verður framkvæmd með færslu
á kr. 1.322.180.000 á yfirverðsreikning hluta-
fjár. Hefur lækkunin þannig engin áhrif á
eigið fé félagsins.
2. Tillaga um heimild til handa stjórn félagsins
til að skrá hlutabréf í félaginu með rafrænum
hætti í verðbréfamiðstöð í samræmi við lög
nr. 131/1997 um rafræna eignarskráningu
verðbréfa.
3. Önnur mál.
Tilgangur tillögu um lækkun hlutafjár er að
undirbúa hlutafjárhækkun, sem taka á fyrir á
stjórnarfundi í félaginu er haldinn verður
í beinu framhaldi af hluthafafundinum.
Gert er ráð fyrir að boðið verði út hlutafé fyrir
kr. 650.000.000 að nafnverði. Hugmyndir að
sölugengi hlutabréfanna verða kynntar fyrir
hluthafafundinn, en bréfin verða eingöngu
boðin hluthöfum í félaginu.
Frá og með 20. nóvember 2001 mun dagskrá og
endanlegar tillögur fyrir fundinn liggja frammi
á skrifstofu félagsins.
Stjórn Íslenska járnblendifélagsins hf.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboði
Hafnarfjörður
Jólafundur
Hinn árlegi jólafundur Vorboða verður haldinn
í Sjálfstæðishúsinu Strandgötu sunnudaginn
25. nóvember nk. kl. 18.00.
Dagskrá:
Hátíðarkvöldverður.
Upplestur: Súsanna Svavarsdóttir les úr bók
sinni um ævi Sigrúnar Hjálmtýsdóttur
(Diddúar).
Jólahugvekja flutt af Árna Grétari Finnssyni.
Jólahappdrætti
Konur, fjölmennum og tökum með okkur gesti.
Jólanefndin.
ATVINNA
mbl.is