Morgunblaðið - 17.11.2001, Síða 58
KIRKJUSTARF
58 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRLEGUR Kirkjudagur Önfirð-
ingafélagsins í Reykjavík verður
sunnudaginn 18. nóvember kl. 14 í
Neskirkju, Reykjavík. Prestur að
þessu sinni verður prestur Önfirð-
inga heima í héraði, séra Stína
Gísladóttir í Holti, Önundarfirði.
Organisti verður Reynir Jónasson
og kirkjukór Neskirkju mun leiða
söng. Á eftir guðsþjónustu kl. 15–
17 verður síðan kirkjukaffi Ön-
firðingafélagsins í safnaðarheim-
ili Neskirkju. Allir velkomnir.
Æðruleysismessa
í Dómkirkjunni
ÆÐRULEYSISMESSA, tileinkuð
fólki sem leitar bata eftir tólf-
sporaleiðinni verður sunnudaginn
18. nóvember kl. 20.30. Einhver
mun segja af reynslu sinni úr bar-
áttunni.
Miriam Óskarsdóttir og Anna
Sigríður Helgadóttir syngja,
Birgir og Hörður Bragasynir sjá
að öðru leyti um tónlist. Sr. Karl
V. Matthíasson prédikar, sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir leiðir og sr.
Jakob Hjálmarsson leiðir fyr-
irbæn.
Æðruleysismessurnar eru jafn-
aðarlega haldnar þriðja hvern
sunnudag. Þær eru einkum sóttar
af þeim sem hafa átt við fíkn að
berjast hjá sjálfum sér eða sínum
nánustu og hafa eða vilja nota
trúna í baráttu sinni. Allir þeir
sem vilja eiga einlæga tilbeiðslu-
stund við létta tóna eru velkomn-
ir.
Lifandi tónlist í
Grensáskirkju
KIRKJUKÓR Grensáskirkju flyt-
ur létta, trúarlega tónlist í kvöld-
messu annað kvöld, sunnudags-
kvöldið 18. nóv., kl. 20.
Efnisskráin er fjölbreytt; allt
frá sænskum þjóðlögum til negra-
sálma og léttleikinn í fyrirrúmi
enda boðskapur kristinnar trúar
fagnaðarerindi, gleðiboðskapur.
Einsöngvarar með kórnum eru
Ingibjörg Ólafsdóttir og Geir Jón
Þórisson en stjórnandi og píanó-
leikari Árni Arinbjarnarson.
Kvöldmessur eru í Grens-
áskirkju þriðja sunnudag í mán-
uði yfir vetrartímann. Að þessu
sinni var ákveðið að kirkjukórinn
bæri hana uppi með tónlist-
arflutningi sínum enda fátt eins
uppbyggilegt og tónlist sem kem-
ur frá hjartanu og nær til hjart-
ans.
Þótt hin sungna lofgjörð ein-
kenni stundina verður líka bæna-
gjörð og ritningarlestur.
Eftir á verður á boðstólum
kaffi, djús og kex. Við væntum
þín.
Tengsl ríkis og
kirkju rædd
Á FRÆÐSLUMORGNI í Hall-
grímskirkju verða tengsl ríkis og
kirkju rædd. Tengsl ríkis og
kirkju hafa verið nokkuð í um-
ræðunni undanfarin ár og sýnist
þar sitt hverjum. Ný lög um
tengsl ríkis og kirkju voru sett ár-
ið 1997 og marka á margan hátt
tímamót í aldalangri samfylgd
þessara stofnana, þar sem sjálf-
stæði kirkjunnar gagnvart rík-
isvaldinu var aukið til muna. Þá
hefur verið gerður samningur
milli ríkis og kirkju um afgjald af
kirkjueignum sem ríkisvaldið yf-
irtók á sínum tíma. Á fræðslu-
morgni í Hallgrímskirkju nk.
sunnudag kl. 10 mun dr. Páll Sig-
urðsson prófessor gera grein fyr-
ir hvernig tengslum ríkis og
kirkju er háttað nú og svara fyr-
irspurnum um efnið.
Hjónamessa í
Hafnarfjarðarkirkju
NK. sunnudag, 18. nóvember,
verður haldin tónlistarmessa í
Hafnarfjarðarkirkju, helguð
hjónabandi og sambúð. Hefst
messan kl. 17.
Sérstök áhersla verður lögð á
fyrirbænir og íhugun og tónlist-
arflutningur verður einnig með
vandaðasta móti í tilefni dagsins.
Kór kirkjunnar leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Natalíu
Chow en Kristján Helgason syng-
ur einsöng.
Hugleiðing messunnar fjallar
um kærleikann. Eftir alt-
arisgöngu gefst kirkjugestum
kostur á að tendra bænakerti fyr-
ir sér og fjölskyldu sinni.
Prestur hjónamessunnar er sr.
Þórhallur Heimisson.
Kópamessa
BOÐIÐ er upp á þá nýbreytni í
starfi Kópavogskirkju í vetur að
svokallaðar Kópamessur eru einu
sinni í mánuði. Í þeim er tónlistin
léttari en í hefðbundnum messum
og yfirbragð þeirra nokkuð ann-
að. Lögð er áhersla á þátttöku
kirkjugesta bæði í söng og öðrum
þáttum helgihaldsins.
Með Kópamessunum, sem eru
viðbót við hinar hefðbundnu
guðsþjónustur, vill sóknarnefnd
og starfsfólk kirkjunnar auka
fjölbreytni í helgihaldinu.
Næsta Kópamessa verður
sunnudaginn 18. nóvember kl.
20.30.
Sóknarnefnd – sóknarprestur.
Suðrænir tónar
í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
ÞAÐ verður suðræn stemning í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði á
morgun, sunnudaginn 18. nóv-
ember. Við guðsþjónustu sem
hefst kl. 13 (ath. breyttan messu-
tíma) verða fluttir og kynntir
sálmar frá fjarlægum löndum,
m.a. Brasilíu og El Salvador. Þau
sem leiða tónlist og söng eru Örn
Arnarson tónlistarmaður og
hljómsveit hans ásamt Þóru V.
Guðmundsdóttur organista og
kór Fríkirkjunnar.
Það fer vel á því í mesta
skammdeginu hér á norðurhjara
að laða fram sumar og sól með
suðrænum sambatakti enda kom-
um við til kirkjunnar til þess að
taka á móti boðskap birtu og
gleði. Á síðustu árum hefur verið
unnið markvisst að því í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði að skapa meiri
fegurð og léttleika í helgihaldi
kirkjunnar sem hefur verið afar
vel tekið og kemur best fram í
vaxandi kirkjusókn. Þessi stund í
kirkjunni á morgun er þáttur í
þessari viðleitni. Verið öll vel-
komin. Starfsfólk Fríkirkjunnar í
Hafnarfirði.
Barnakór í
Dómkirkjunni
Á SUNNUDAGINN syngur
Barnakór Dómkirkjunnar við
guðsþjónusturnar. Við morg-
unguðsþjónustuna kl. 11 syngur
yngri kórinn tvö lög en við fjöl-
skylduguðsþjónustu kl. 13 ber
eldri kórinn sönginn uppi. Kristín
Valsdóttir er kórstjóri og sr. Jak-
ob Ágúst Hjálmarsson leiðir guðs-
þjónusturnar og prédikar. Org-
anisti er Marteinn H. Friðriksson.
Barnakórnum er sem óðast að
vaxa fiskur um hrygg og prýðir
guðsþjónustur og safnaðarlíf í
Dómkirkjunni. Það er vel til fund-
ið að koma til guðsþjónustu, eink-
um að koma með börnin. Fjöl-
skylduguðsþjónustur eru líflegar
samkomur og frjálslegar og þar
er vettvangur alls barna- og ung-
lingastarfsins í söfnuðinum sem
nýtur nú leiðsagnar Þorvaldar
Víðissonar, æskulýðsfulltrúa.
Eftir guðsþjónusturnar er boð-
ið upp á hressingu á kirkjuloftinu.
Gerum okkur glaðan dag á sunnu-
daginn í Dómkirkjunni.
Að njóta foreldra-
hlutverksins
BOÐIÐ verður upp á fræðslu-
kvöld fyrir foreldra ungra barna
þriðjudaginn 20. nóvember á veg-
um Kópavogskirkju. Fræðsluna
annast Hertha W. Jónsdóttir,
barnahjúkrunarfræðingur og
hjúkrunarkennari, og Kristín
Guðmundsdóttir, barnahjúkr-
unarfræðingur og nuddari, en
báðar hafa þær mikla reynslu og
þekkingu á umönnun barna sem
þær geta miðlað til foreldra.
Fræðslunámskeiðið er hugsað
fyrir foreldra sem eru með sitt
fyrsta barn á aldrinum 0–12 mán-
aða. Markmið þess er að veita for-
eldrum fræðslu og leiðsögn svo að
þeir geti notið foreldrahlutverks-
ins sem best.
Upplýsingar um námskeiðið og
innritun á það fást hjá kirkjuverði
í síma 554 1898.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Kirkjudagur
Önfirðinga
Sr. Stína Gísladóttir fyrir altari í Flateyrarkirkju.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra laugard.
17. nóv. kl. 14. Farið verður í kynnisferð
í heilsuræktarstöðina Planet Pulse í
Austurstræti. Allir velkomnir. Sr. Frank
M. Halldórsson.
Hvammstangakirkja. Barnamessa kl.
11.
Safnaðarstarf
MESSUR
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kór Áskirkju syng-
ur. Organisti Kári Þormar. Kaffi eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Skjól: Guðsþjón-
usta kl. 15.30. Árni Bergur Sigurbjörns-
son.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11.
Foreldrar hvattir til þátttöku með börn-
um sínum. Organisti Pálmi Sigurhjart-
arson. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Guðný Hallgrímsdóttir. Laugvetningar
sérstaklega boðnir velkomnir.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Jakob Ág. Hjálmarsson prédikar. Dóm-
kórinn syngur, en auk þess syngur yngri
deild barnakórs Dómkirkjunnar undir
stjórn Kristínar Valsdóttur. Organisti
Marteinn H. Friðriksson. Barna- og fjöl-
skyldumessa kl. 13 í umsjá sr. Jakobs
Ág. Hjálmarssonar og Þorvaldar Víð-
issonar. Barnakórinn syngur. Marteinn
H. Friðriksson leikur á orgel. Æðruleys-
ismessa kl. 20. Sr. Karl V. Matthíasson
prédikar. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leið-
ir messuna, en sr. Jakob Ág. Hjálm-
arsson leiðir fyrirbæn. Bræðrabandið og
Anna Sigríður Helgadóttir sjá um tónlist-
ina, einnig syngur Miriam Óskarsdóttir.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11.
Messa kl. 11. Altarisganga. Gídeon-
félagar kynna starfsemi félagsins. Tekið
við fjárframlögum til starfs Gídeon-
félagsins. Kirkjukór Grensáskirkju syng-
ur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Kvöld-
messa kl. 20. Kirkjukór Grensáskirkju
syngur létt, trúarleg lög. Stjórnandi Árni
Arinbjarnarson. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Messa kl. 14. Organisti Kjartan Ólafs-
son. Prestur sr. Sváfnir Sveinbjarn-
arson. Félag fyrrverandi sóknarpresta.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorgunn
kl. 10. „Samband ríkis og kirkju – Hver
er staðan? Dr. Páll Sigurðsson, prófess-
or. Messa og barnastarf kl. 11. Umsjón
barnastarfs Magnea Sverrisdóttir. Org-
anisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Sr.
Sigurður Pálsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Umsjón sr. Helga Soffía Konráðs-
dóttir og Guðrún Helga Harðardóttir.
Messa kl. 14. Organisti Douglas A.
Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson.
LANDSPÍTALI, Hringbraut: Guðsþjón-
usta kl. 10.30. Sr. Ingileif Malmberg.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Krúttakórinn syngur. Börn og fullorðnir
eiga saman stund í kirkjunni. Kaffisopi
eftir stundina. Sýning á myndum eftir
Leif Breiðfjörð stendur yfir í kirkjunni.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kór Laugarneskirkju
leiðir messusönginn undir stjórn Gunn-
ars Gunnarssonar. Sunnudagaskólinn
heldur sínu striki undir handleiðslu sr.
Jónu Hrannar Bolladóttur miðborg-
arprests og hennar vaska liðs. Sr.
Bjarni Karlsson þjónar að orðinu og
borðinu. Fulltrúar lesarahóps Laug-
arneskirkju flytja ritningarlestra, Eygló
Bjarnadóttir er meðhjálpari og Sigríður
Finnbogadóttir annast messukaffið á
eftir. Messa kl. 13 í Dagvistarsalnum í
Hátúni 12. Gunnar Gunnarsson leikur á
píanó. Sr. Bjarni Karlsson og Guðrún K.
Þórsdóttir djákni þjóna ásamt hópi sjálf-
boðaliða. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.)
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr.
Frank M. Halldórsson. Organisti Reynir
Jónasson. Kirkjukór Neskirkju syngur.
Molasopi eftir messu. Sunnudagaskól-
inn kl. 11. 8–9 ára starf á sama tíma.
SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Sunnudagaskólinn á sama tíma.
Organisti Viera Manasek. Prestur sr.
Birgir Ásgeirsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Sigrún Óskarsdóttir. Org-
anisti: Pavel Manásek. Kirkjukórinn
syngur. Barnaguðsþjónusta á sama
tíma. Kaffi og djús eftir messu. Prest-
arnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson messar.
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Gísli Jón-
asson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digra-
neskirkju, B-hópur. Sunnudagaskóli á
neðri hæð kirkjunnar. Léttar veitingar í
safnaðarsal að messu lokinni. Hjóna-
kvöld kl. 20.30. Fyrirlestur: Hafliði Krist-
insson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi.
Hann fjallar um starfsval barna, „vand-
ann að velja“, og hvaða áhrif við höfum
sem foreldrar. Allir velkomnir.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson.
Organisti Smári Ólason. Kór Fella- og
Hólakirkju syngur. Fermingarbörn sér-
staklega velkomin. Sunnudagaskóli í
safnaðarheimilinu á sama tíma í um-
sjón Elínar Elísabetar Jóhannsdóttur.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju
syngur. Organisti: Hörður Bragason.
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Prestur sr.
Anna Sigríður Pálsdóttir. Umsjón: Ása
Björk, Jóhanna Ýr, Hlín og Bryndís. Und-
irleikari: Guðlaugur Viktorsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 13 í Engjaskóla. Prest-
ur: Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Umsjón:
Ása Björk, Jóhanna Ýr, Hlín og Bryndís.
Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson.
Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Eir
kl. 15.30. Sr. Vigfús Þór Árnason pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Kór Graf-
arvogskirkju syngur. Organisti: Hörður
Bragason. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Lofgjörðarguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar.
Barnakór Snælandsskóla kemur í heim-
sókn, syngur og leiðir safnaðarsöng.
Stjórnandi Heiðrún Hákonardóttir. Undir-
leikari Lóa Björk Jóelsdóttir. Barnaguðs-
þjónusta í Lindaskóla kl. 11 og í Hjalla-
kirkju kl. 13. Yngri kór Snælandsskóla
syngur undir stjórn Heiðrúnar Há-
konardóttur í kirkjunni. Barn borið til
skírnar. Orgelandakt kl. 17. Haukur
Guðlaugsson leikur á orgelið verk eftir
J.S. Bach, M. Reger. L. Bollmann o.fl.
Við minnum á bæna- og kyrrðarstundir á
þriðjudögum kl. 18. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
safnaðarheimilinu Borgum. Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Kór Kópavogskirkju
syngur og góðir gestir koma í heimsókn
frá félagsstarfinu í Gerðubergi og taka
virkan þátt í guðsþjónustunni. Kór það-
an syngur undir stjórn Kára Friðriks-
sonar. Gestirnir frá Gerðubergi annast
einnig ritningarlestra og flytja upphafs
og lokabæn. Organisti. Julian Hewlett.
Kópamessa kl. 20.30. Létt tónlist og
fermingarbörn taka virkan þátt í mess-
unni. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11.00. Sögur, límmiði og mikill söngur.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ágúst Ein-
arsson prédikar. Organisti er Gróa
Hreinsdóttir. Kvöldguðsþjónusta kl.
20.00 með nýrri tónlist. Ath. Nýjung í
safnaðarstarfinu sem boðið verður upp
á einu sinni í mánuði. Þorvaldur Hall-
dórsson söngvari leiðir almennan söng
og syngur. Sr. Ágúst Einarsson flytur
hugvekju. Sóknarprestur.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morg-
unguðsþjónusta kl. 11. Dagskrá fyrir
börn og fullorðna. Friðrik Schram kennir
um efnið: Hvernig eigum við að skilja
Gamla testamentið? Samkoma kl. 20 í
umsjá ungs fólks í kirkjunni. Einsöngur.
Allir velkomnir.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Bænastund kl. 19.
Samkoma kl. 20, Högni Valsson prédik-
ar. Lofgjörð og fyrirbænir. Allir hjart-
anlega velkomnir.
KLETTURINN: Sunnudagur: Kl. 11 al-
menn samkoma fyrir alla fjölskylduna.
Mikil lofgjörð og tilbeiðsla. Fimmtudag-
ur: Kl. 19 Alfa-námskeið. Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11.
Ræðumaður Vörður L. Traustason. Al-
menn samkoma kl. 16.30. Lofgjörð-
arhópur Fíladelfíu leiðir söng. Ræðu-
maður G. Theodór Birgisson. Allir
hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Kl.
19.30 bæn, kl. 20 hjálpræðissamkoma
Majór Elsabet Daníelsdóttir talar. Sam-
komurnar verða í Herkastalanum, Kirkju-
stræti 2.
KFUM&K, Holtavegi 28: Samkoma kl.
17 sunnudag. Yfirskrift: Baráttan og
persónulegar árásir. Upphafsorð: Sigrún
Gísladóttir. Ræðumaður sr. Sigurður
Pálsson. Barnastarf. Matsala eftir sam-
komuna. Vaka kl. 20.30. Hjarta sem
gleðst. Ástríður Haraldsdóttir talar. Mikil
lofgjörð og fyrirbæn. Allir innilega vel-
komnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti:
Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30. Messa
á ensku kl. 18. Laugardaga: Barna-
messa kl. 14. Alla virka daga: Messa
kl. 18. Einnig messa kl. 8 suma virka
daga (sjá nánar á tilkynningablaði á
sunnudögum).
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Sunnudaginn
18. nóv. Messa kl. 15 á pólsku. Laug-
ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka
daga: Messa kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
17. Miðvikudaga: Messa kl. 20.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudag-
inn 18. nóv. Messa kl. 14, basar kl. 15.
Miðvikudaga: Skriftir kl. 17.30. Messa
kl. 18.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi
38: Sunnudaga: Messa kl. 14. Fimmtu-
daga: skriftir kl. 19.30. Bænastund kl.
20.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Sunnu-
daga: Messa kl. 10. Skriftir eftir sam-
komulagi. Laugard. 17. nóv. Messa kl.
18.30 á pólsku.
Grundarfjörður: Sunnudaginn 18. nóv.
kl. 19.
Ólafsvík: Messa sunnud. 18. nóv. kl.
16.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.
Guðspjall dagsins:
Skattpeningurinn.
(Matt. 22.)