Morgunblaðið - 17.11.2001, Síða 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 63
Tilboðsdagar
Ferbox
Zenith hurðir og hliðar
Handklæðaofnar
Hvítir og krómaðir
Handlaugar
IFÖ-IDO-Sphinx
Einnar handar tæki
Neve - Feliu - Kludi
Mora-Grohe
Hitastillitæki
Huber - Mora - Grohe
WC
Ifö - Ido
Macro
Heilir klefar
Macro
Rúnnaðar hurðir
Ferbox - Adria
Sturtuhorn
Hert gler - segullokun
Hurðir, stærðir 70-112 cm
Tilboð frá kr. 17.666
Hliðar, stærðir 68-90 cm
Tilboð frá kr. 9.692
Hæð 76.5-120-181
Breidd 50 og 60 cm
Tilboð frá kr. 10.896
Sturtutæki frá kr. 9.206
Baðtæki frá kr. 12.557
Handl.tæki frá kr. 5.270
Eldhústæki frá kr. 6.036
Rúnnaðir eða hornopnun
72x92, 82x82,
82x92, 92x92
Rúnnaðir
Tilboð frá kr. 56.482
Hornopnun
Tilboð frá kr. 45.893
M. hurð að framan
82x82, 92x92
Tilboð frá kr. 49.031
Hert gler - segullokun
Stillanleg stærð
70-80 cm
Tilboð frá kr. 18.774
80-90 cm
Tilboð frá kr. 19.596
Á vegg - tilboð frá kr. 4.446
Í borði - tilboð frá kr. 8.359
Hert gler - segullokun
70x90, 80x80,
80x90, 90x90
Tilboð frá kr. 36.755
Rúnnaðir botnar m. svuntu
Tilboð frá 15.127
• WC IFÖ án setu
frá kr. 19.752
• WC setur
frá kr.1.527 til 7.563
• WC IDO gólfstútur
með setu kr. 24.929
Ármúla 21 - sími 533 2020
Einnig tilboð
á öðrum
klefum og
hreinlætis-
tækjum.
• Baðkör frá kr. 10.973
• Sturtubotnar frá kr. 4.385
• Stálvaskar frá kr. 4.777
Opið laugardag frá kl. 10 - 16
VIÐ gaflarar gefumst ekki svo
auðveldlega upp þó á móti blási,
heldur göngum aftur undir gafl og
hugsum málin í nýju ljósi.
Fyrir nokkrum mánuðum birti
Morgunblaðið bréf frá mér, þar
sem ég reifaði hina stórbrotnu og
frumlegu hugmynd mína í bundnu
og óbundnu máli, um nýjan flug-
völl í Reykjavík. Ég get ekki neit-
að því að það olli mér sárum von-
brigðum að fá engin viðbrögð við
þessari snjöllu hugmynd.
En ég hef lúmskan grun um að
öll kurl séu ekki enn komin til
grafar í þessu máli. Við þekkjum
það öll að það tekur dauðlega
menn langan tíma að brjóta til
mergjar og átta sig á svo bylting-
arkenndri hugmynd sem þessari.
Þó tel ég að hún hafi orðið til
þess að kveða niður þær hörðu
deilur sem geisuðu um flugvöllinn.
Ei skal láta deigan síga, heldur
undir gafl ganga og kryfja önnur
vandamál til mergjar sem brenna á
þjóðinni.
Einn kyrrlátan septemberdag
gekk ég undir minn eigin gafl og
fór að hugleiða hvílíka fórnfýsi og
óeigingirni, ásamt stjórnkænsku,
ráðamenn þjóðarinnar sýndu með
því að bjóðast til að taka að sér
mengunarhlutverkið á stórum
hluta álframleiðslu heimsins og
flytja mengun hennar frá löndum
hinna glæstu iðnríkja og til okkar
fámenna og strjálbýla lands.
Með því að slá þeir tvær flugur í
einu höggi: bjarga heilum lands-
fjórðungum frá héraðsflótta og vol-
æði og öðlast um leið þakklæti og
blessun hinna ríku þjóða.
Ég varð svo hrærður að þessar
ljóðlínur komu fyrirhafnarlaust í
hugann:
Landsfeðurnir út í geiminn gáðu,
glöggir litu fúlan dauða eiminn.
Viskufullir veröldinni tjáðu:
vorar orkulindir frelsa heiminn.
Blessun er að bjarga öðrum þjóðum,
bæta heimsins gróðurhúsa vanda,
flytja lífsins ógn af eiturmóðum
yfir landsins fjöll og beru sanda.
Píslarvættis prís og lof við hljótum
og prestar allra þjóða munu blessa
leiðtoga sem stóð svo föstum fótum
að fjöldinn þráði að styðja björgun
þessa.
Þar sem raforkuframleiðsla okk-
ar er takmörkunum háð, verður
fljótlega að finna önnur bjargráð
en álið, til að koma á móts við hin-
ar óseðjandi kröfur landsbyggðar-
innar.
Þess vegna fannst mér tímabært
að hlaupa undir bagga hjá okkar
langþreyttu ráðamönnum og koma
með ferskar hugmyndir, sem gætu
létt þeim róðurinn.
Ég braut heilann góða stund áð-
ur en kviknaði á perunni: Kjarn-
orkan! Auðvitað kjarnorkuúrgang-
urinn! Það er óþrjótandi tekju-
brunnur og blessunarlind sem
seint mun tæmast, fjársjóður sem
mun endast á meðan land er bú-
setuhæft.
Auðvitað taka kjarnorkuveldi
heimsins okkur fagnandi, þar sem
þau eiga í hinu mesta basli með að
losna við þennan úrgang og standa
í endalausu þjarki við illvíg nátt-
úruverndarsamtök sem láta þessar
þjóðir aldrei í friði.
Við erum örsmátt eyríki út í reg-
in hafi, langt frá ströndum annarra
þjóða, sem einhvert mark er á tak-
andi og eigum nóg af grjótdyngj-
um sem við köllum fjöll, til að hola
innan og geyma í þessa gullmola
kjarnorkuveldanna og forða þeim
frá þeirri mengun sem þeim getur
stafað hætta af. Þá sé ég ekki bet-
ur en það opnist stórkostlegt tæki-
færi fyrir okkur Íslendinga, þar
sem Sellafield-kjarnorkuendur-
vinnslustöðin í Bretlandi er.
Írar eru að heimta að henni
verði lokað og Siv hefur tekið und-
ir það sjónarmið.
Kæru landsfeður! Bjóðið Bret-
um að flytja stöðina til Íslands og
setja hana niður á Vestfjörðum.
Með því sláið þið enn og aftur tvær
flugur í einu höggi og sameinið
flestalla Vestfirðinga um eitt bar-
áttumál og losnið við smábáta-
þvargið í þeim.
Og blessun hinna voldugu ríkja
mun fylgja hverjum úrgangsfarmi.
ÁSGEIR J. JÓHANNSSON,
Lyngbarði 5,
Hafnarfirði.
Óþrjótandi tekjubrunnur?
Frá Ásgeiri J. Jóhannssyni: