Morgunblaðið - 17.11.2001, Síða 65

Morgunblaðið - 17.11.2001, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 65 DAGBÓK Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518 Ný sending af ódýrum pelsum - stuttir og síðir Hattar og húfur Opið laugardaga frá kl. 10-15 LAGERSALAN TUNGUHÁLSI 7 HELDUR ÁFRAM Opið föstud. frá kl. 11-18, laugard. og sunnud. 11-17. Tökum bæði debet- og kreditkort. Tunguháls 7 er fyrir aftan Sælgætisgerðina Kólus. Sími okkar er 567 1210 HEILDVERSLUN MEÐ JÓLA- OG GJAFAVÖRUR Í 35 ÁR Árnað heilla STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake SPORÐDREKI Afmælisbarn dagsins: Þú ert góðgjarn, glettinn og starfssamur og átt auðvelt með að leiða ólíka saman til samstarfs. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ættir að setjast niður og fara yfir sviðið og athuga hvort þú getur ekki fært eitt- hvað til betri vegar. Margar hendur vinna létt verk. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það eru ýmis tækifæri sem bíða þín. Vandinn er að vera ekki of fljótur á sér heldur kanna hvert og eitt vandlega og velja svo það sem best er. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú grípur tækifæri sem virðist of gott til að vera raunhæft. Það er einmitt oft svo, en stundum er um gull að ræða. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ættir að leggja lykkju á leið þína og gera eitthvað sem þú hefur aldrei gert áð- ur. Slík tilbreyting þarf ekki að vera stór en er holl. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Vinir og vandamenn munu stinga að þér óvæntum hlut- um. Það liggur í eðli þínu að hika við svoleiðis lagað og er í góðu lagi að hugsa sig um. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það er ekkert vit í að láta reka á reiðanum lengur. Settu þér einhver takmörk í lífinu og settu niður fyrir þér hvernig þú ætlar að ná þeim. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú þarft ekki að svara á stundinni því tilboði sem þér berst. Þótt eftir því sé geng- ið skaltu taka þér tíma til þess að skoða allar hliðar málsins. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er bara hollt að velta öðru hverju fyrir sér æðri til- gangi lífsins. Án slíkra vangaveltna verður lífið svo hversdagslegt og tilgangslít- ið. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Reiddu þig ekki um of á að- stoð annarra. Hún er ekki fyrir hendi fyrr en hún er komin á hendi og þú átt auð- vitað að leggja sjálfur þitt af mörkum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Svo virðist sem allir séu mjög hrifnir af áætlunum þínum. Hlustaðu samt vand- lega á það sem sagt er þann- ig að þú misskiljir ekki neitt. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Taktu allar uppástungur til greina en mundu að það ert þú sem ræður ferðinni og þarft því ekki að undirgang- ast hluti sem eru þér á móti skapi. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Geturðu ekki fundið þér ein- hverja örlitla tilbreytingu, þó ekki væri nema ný leið til og frá vinnu. Slíkt skerpir daginn og léttir lund. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 50 ÁRA afmæli. Nk.mánudag, 19. nóvem- ber, er fimmtug Jóhanna Gunnþórsdóttir. Eiginmað- ur hennar er Brynjólfur Lárentssíusson. Af því til- efni fagna þau með ættingj- um og vinum í kvöld, 17. nóvember, kl. 17-20 í Vals- heimilinu að Hlíðarenda. MAKKER opnar á 15-17 punkta grandi í suður og þitt er að velja leið með þessi stórglæsilegu spil á móti: Norður ♠ -- ♥ D732 ♦ ÁKG109653 ♣Á Keppendur á Íslandsmótinu í tvímenningi fengu margir þetta viðfangsefni og leystu það misjafnlega vel. Sumir byrjuðu á Stayman og fengu draumasvarið „tvö hjörtu“. Góð byjun, en hvernig á að halda áfram? Norður ♠ -- ♥ D732 ♦ ÁKG109653 ♣Á Vestur Austur ♠ 762 ♠ D109543 ♥ 10854 ♥ G ♦ 8 ♦ D7 ♣D10654 ♣K872 Suður ♠ ÁKG8 ♥ ÁK96 ♦ 42 ♣G93 Vissulega veltur það mikið á þeim kerfistólum sem menn búa yfir, en margir fylltust bráðlæti og stukku rakleiðis í fimm grönd til að spyrja um háspil í hjarta. Svarhönd ber að stökkva í sjö með tvo af þremur efstu og sú varð niðurstaðan á fimm borðum. En það var engin leið að komast framhjá hjartatí- unni fjórðu í vestur og al- slemman fór einn niður. Það er lítil tvímennings- reisn yfir sjö tíglum, en sjö grönd er glæsilegur samn- ingur og náðist á sjö borð- um, en auðvitað eftir ólíkar sagnir. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT STÖKUR Blessuð sólin elskar allt, allt með kossi vekur, haginn grænn og hjarnið kalt hennar ástum tekur. Geislar hennar út um allt eitt og sama skrifa á hagann grænan, hjarnið kalt: Himneskt er að lifa. Hannes Hafstein. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Dd7 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 b6 7. Dg4 f5 8. Dg3 Ba6 9. Bxa6 Rxa6 10. Re2 Rb8 11. O-O Rc6 12. a4 Ra5 13. Rf4 O–O–O 14. Rh5 g6 15. Rf6 Df7 16. Dd3 Rxf6 17. Da6+ Kd7 18. exf6 Dxf6 19. Bf4 Rc4 20. a5 g5 Staðan kom upp í minningar- móti Jóhanns Þóris Jónssonar. Magnús Örn Úlf- arsson (2.298) hafði hvítt gegn Páli Agnari Þór- arinssyni (2.202). 21. Bxc7! Kxc7 22. Dxa7+ Kd6 23. axb6 De7 24. Da4 e5 25. dxe5+ Ke6 26. Dc6+ Rd6 27. Hfe1 Kf7 28. Ha7 Hhe8 29. Hxe7+ Hxe7 30. Dxd5+ og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. FRÉTTIR Veistu ekki að reyk- ingar skaða heilsuna og menga umhverfið! Það er mömmu sjálfri að kenna að það leið yfir hana. Hún gat lát- ið vera að lesa dag- bókina mína. Smælki MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Ljósmynd/Jóh. Valg. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 2. júní sl. í Hafnar- kirkju af sr. Sigurði Kr. Sig- urðssyni Ragna Björk Sig- urðardóttir og Kristján Heiðar Sigurðsson. Heimili þeirra er að Fákaleiru 8c. GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 17. nóvember, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Karólína Kristinsdóttir og Sigvaldi Sigurðsson. Þau munu eyða deginum með dætrum sínum. Ef ég fer til nágrannans til að fá lánaðan flugna- spaða, ætlar þú þá að leggjast niður? Með morgunkaffinu AÐALFUNDUR Hjálparstarfs kirkjunnar var haldinn 3. nóvember í Reykjavík með fulltrúum prófasts- dæma. Kom þar fram að undanfar- in ár hefur ekki verið varið meira fé til verkefna en nú, eða 38,8 millj- ónum króna, sem var 30% meira en í fyrra. Stærstu upphæðinni var varið til menntunar- og mannrétt- indamála á Indlandi eða 14, 4 millj- ónum og 9,3 milljónum til innan- landsaðstoðar auk matar að verðmæti 5-6 millj. kr., segir í fréttatilkynningu. Tókust samningar milli HK og Þróunarsamvinnustofnunar um vatnsöflun í Mósambík þar sem hvor stofnun leggur til 10 milljónir á þremur árum. Skýrt var frá áformum um að efla innanlands- aðstoð stofnunarinnar með fé- lagsráðgjafa í fullt starf sem ásamt umsóknum sinni talsmannshlut- verki fyrir bættum kjörum hinna verst settu og annist tengsl og ráð- gjöf við presta. Í nýrri innanlandsaðstoð er gert ráð fyrir því að hver umsækjandi geti fengið aðstoð að hámarki þrisv- ar á ári með umsókn frá presti. Boðið verður upp á langtímaaðstoð fyrir þá sem vilja vinna sig út úr fjárhagsvanda og verður þá leitað samstarfs við aðrar stofnanir og fé- lög sem að þessum málum koma. Hjálparstarfið vill með þessu móti vera betur í stakk búið til að veita haldgóða aðstoð árið um kring enda er stærsti hópur umsækjenda ör- yrkjar sem búa við kröpp kjör að staðaldri. Neyðaraðstoð í desember Þannig verður tekið við umsókn- um í hverri viku í desember, sem annan tíma ársins, í stað ákveðins umsóknartíma áður. Fólk getur sótt um beint til stofnunarinnar án milli- göngu prests eins og krafist er alla jafna og fær afgreiðslu á grundvelli umsókna 2-3 dögum síðar. Aðstoðin verður í formi almennra matargjafa í stað jólamáltíðar. Er ætlunin að létta undir með fólki á þennan hátt og losa um aðra peninga sem fólk getur þá varið að vild. Aðstoð í desember er veitt í sam- vinnu við Reykjavíkurdeild Rauða krossins sem leggur til fjárframlag og aðstoð sjálfboðaliða. Hjálparstarf kirkjunnar eflir innanlandsaðstoð FRÆÐSLU- og kynningarfundur verður laugardaginn 17. nóvember kl. 15, í safnaðarheimili Fríkirkjunn- ar, Laufásvegi 13, á vegum foreldra og annarra aðstandenda samkyn- hneigðra sem starfa á vettvangi Samtakanna 7́8. Yfirskrift fundarins er: Samkyn- hneigð og fjölskyldan: Enginn er ey- land. Frummælendur eru: Harpa Njáls, Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, Felix Bergsson og Þorvaldur Krist- insson. Gospelsystur Reykjavíkur syngja undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Að lokum er efnt til pallborðsum- ræðna. Fundurinn er öllum opinn sem hafa áhuga á lífi og reynslu sam- kynhneigðra og aðstandenda þeirra, segir í fréttatilkynningu. Fræðslufundur Samtakanna ’78 UMHVERFIS- og útivistarfélag Hafnarfjarðar í samvinnu við Upp- lýsingamiðstöð Hafnarfjarðar efnir til fræðsluferðar að Kleifarvatni og í Krýsuvík sunnudaginn 18. nóvember kl. 10. Brottför er frá BSÍ, Umferðar- miðstöðinni í Reykjavík, með rútu Vestfjarðaleiðar kl.10 og áætluð heimkoma um kl. 15. Fyrir Hafnfirð- inga er brottför kl. 10.15 frá Upplýs- ingamiðstöð Hafnarfjarðar á Vestur- götu 8. Leiðsögn verður í höndum Kristjönu Eyjólfsdóttur og Jónatans Garðarssonar. Allir velkomnir. Verð 1.500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn 7-15 ára. Þátttakendur er hvattir til að mæta vel búnir til útiveru og með nesti. Fræðsluferð í Krýsuvík OPIÐ hús hjá verður vinstri græn- um í Reykjavík í dag, laugardaginn 17. nóvember, kl. 11-13 í aðsetri flokksins á Lækjartorgi. Fulltrúar vinstri grænna munu gera grein fyrir stöðunni í yfirstand- andi könnunarviðræðum við Fram- sókn og Samfylkingu vegna borgar- stjórnarkosninganna á næsta ári. Birna Þórðardóttir blaðamaður mun stýra umræðum. Opið hús hjá VG í Reykjavík ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.