Morgunblaðið - 17.11.2001, Page 66

Morgunblaðið - 17.11.2001, Page 66
FÓLK Í FRÉTTUM 66 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ THALÍA, LEIKFÉLAG Mennta- skólans við Sund, frumsýndi á dög- unum hrollvekjuna Drakúla. Leikritið var skrifað af Bram Stoker snemma á 19. öld og segir frá greifynjunni Drakúla, knyttum hennar og kænskubrögðum til að verða sér út um það sem hún þráir mest, mannsblóð. Leikstjóri verksins er Agnar Jón Egilsson, en þetta er í annað sinn sem hann setur upp leikrit í sam- vinnu við Thalíu. Drakúla er sýnt í Tjarnarbíói og eru sýningar í kvöld sem og annað kvöld. Miðaverð er 1.000 krónur og hefjast sýningarnar klukkan 20. Leikfélag Menntaskólans við Sund sýnir Drakúla Dreypt á blóði í Tjarnarbíói Í höll Drakúla greifynju. Gunnar Örn Heimisson og Guðrún Ösp Sigmundardóttir í hlutverkum sínum. Brynja Björnsdóttir fer með hlutverk Renfield, sem þykir gott að gæða sér á pöddum og fuglum. Morgunblaðið/Ásdís Leikarar í hrollvekjunni Drakúla bregða sér í teboð. FYRSTA hljómsveit á sviðið í Nasa síðastliðið fimmtudagskvöld var Lúna sem leikur naumhyggjulegt sveim- kennt popp og þegar best tekst upp eru lögin verulega skemmtileg, til að mynda fyrsta lagið sem byggðist á lágstemmdri klifun. Önnur lög sveit- arinnar voru ekki eins vel heppnuð, þ.e. í þeim sumum voru mjög góðir kaflar, til að mynda stuðkaflinn í þriðja laginu, en uppbygging virtist of oft tilviljunarkennd og sum lögin hljómuðu fyrir vikið tilfinninga- og til- gangslaus. Dæmi um það er lokalag sveitarinnar, endurtekið stef með lít- illi framvindu og síðan hraðaaukning uppúr þurru og hápunktur sem skildi eftir sig fleiri spurningar en svör. Náttfari, sem var næst á svið, er spennandi sveit og skemmtileg þegar henni tekst vel upp. Sveitin hóf leik- inn þó ekki vel, því heldur hallæris- legt var að heyra framsækna íslenska rokksveit syngja á ensku. Það lag stakk reyndar verulega í stúf við það sem á eftir kom svo vonandi voru menn bara að sprella. Í öðru lagi Náttfara var hljómborð í aðalhlutverki og hljómaði vel þó lagið hafi verið snubbótt. Bestu lög sveit- arinnar voru þau tvö síðustu, sérstak- lega lokalagið sem byrjaði með látum og endaði með látum með ýmsum út- úrdúrum á leiðinni. Skemmtileg upp- bygging með traustri laglínu sem bar vel uppi hamaganginn í lokin. Ein for- vitnilegasta hljómsveit landsins nú um stundir. Tónleikar Low í Haskólabíói fyrir tveimur árum eru með eftirminnileg- ustu uppákomum, ekki síst fyrir þá sem voru að sjá sveitina í fyrsta sinn á tónleikum. Það var því mikil eftir- vænting fyrir tónleikunum og góð mæting í Nasa sem er frábær tón- leikastaður. Í Háskólabíói nutu menn þess aftur á móti að ekki var glasa- glaumur og skvaldur sem spillir óneitanlega nokkuð tónlist eins og þeirri sem Low (og Sigur Rós reynd- ar) leika. Þetta var sérstaklega áber- andi þegar liðið var á tónleikana og þeir sem komnir voru til að hlusta á tónlistina orðnir heillaðir, því sá hluti gesta sem kominn var til að drekka og ræða um hestarækt og bílaviðgerðir dró nokkuð úr ánægju hinna. Lög af síðustu skífu Low, Things We Lost in the Fire, voru að vonum áberandi í dagskránni og eftir lag sem ég ekki þekkti, hugsanlega nýtt, komu þrjú af skífunni í röð, „Sunflo- wer“, sem er frábært lag, „Embrace“ og stuðlagið „Dinosaur Act“. Næst þar á eftir kom gamalt óútgefið lag en engu að síður skemmtilegt, „John Prine“, með mögnuðum texta, og svo ein af perlunum af Secret Name, „Two Step“. Fyrir stuttu sendi Low frá sér smá- skífu með Smiths-laginu gamla „Last Night I Dreamt That Somebody Lov- ed Me“ og flutti það af því tilefni í framúrskarandi skemmtilegri útsetn- ingu. Enn komu afbragðslög af Secret Name, „Starfire“ og „I Remember“, en síðan enn lag sem hljómaði fram- andlega þó það væri gott, „Counting the Stars“. Þá var komið að Things We Lost in the Fire og flutt lögin „Like a For- est“, „Closer“ og lagið sem þau Mimi og Alan sömdu um dóttur sína ef marka má textann, „In Metal“. Sér- lega fallegt lag með áhrifamiklum texta sem fæstir skilja þó líklega nema foreldrar. Áheyrendur vildu meira og fengu, því eftir uppklapp flutti sveitin fjögur lög til, „Immune“ af Secret Name, „One Special Gift“ af jólaplötunni frá- bæru, „Over the Ocean“ af When the Curtain Hits the Cast og svo sama lokalag og í Háskólabíói á sínum tíma, „Soon“ af Secret Name. Aðal Low er það sem ekki er sagt, enda hermir sagan að þau Mimi Park- er, Alan Sparhawk og Zak Sally hafi verið í hávaðarokksveit áður en þau áttuðu sig á því að minna er meira; það er áhrifameira að leyfa áheyrend- um að ljúka við lögin, að geta í eyð- urnar og lita myndina. Algengt er að sveimhuga Low-áheyrendur kveinki sér yfir því hvað hljómsveitin sé leið- inleg og víst er hún það fyrir þeim sem aldir eru upp á skyndibitum og skammtímafróun. Þegar menn aftur á móti gefa sér tíma til að hlusta opn- ast fyrir þeim einkar fallegt og heillandi tónmál þar sem áheyrand- inn á í innilegum samræðum við flytj- endur. Þegar við bætast viðkvæmn- islegir heittrúarlegir textarnir verður úr ógleymanleg stund með listamönn- um. Eins og getið er í upphafi er Nasa framúrskarandi tónleikastaður, einn sá besti hér í bæ, og í raun óskilj- anlegt að í öllum hremmingum sem íslenskir tónlistarvinir hafa gengið í gegnum hafi annar eins salur verið notaður sem mötuneyti í áratugi. Ja svei! Tónlist Minna er meira TÓNLIST Nasa LOW Tónleikar bandarísku rokksveitarinnar Low í Nasa við Austurvöll 15. nóvember sl. Einnig komu fram íslensku hljómsveit- irnar Lúna og Náttfari. Árni Matthíasson Morgunblaðið/Ásdís Ef menn leggja sig eftir tónlist Low, að mati Árna Matthíassonar „opn- ast fyrir þeim einkar fallegt og heillandi tónmál þar sem áheyrandinn á í innilegum samræðum við flytjendur.“                    !"#$%#&'""()&'!"(* FJANDMAÐUR FÓLKSINS e. Henrik Ibsen Í kvöld kl. 20 - NOKKUR SÆTI Fi 22. nóv. kl. 20 - NOKKUR SÆTI Áskriftargestir munið valmöguleikann !!! BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson í leikgerð Hörpu Arnardóttur Í dag kl. 14 - NOKKUR SÆTI Su 18. nóv kl. 14 - NOKKUR SÆTI Su 25. nóv kl. 14 - LAUS SÆTI KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI e. Halldór Laxness Su 18. nóv. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Lau 24. nóv. kl. 20 - NOKKUR SÆTI Su 2. des kl. 20 - NOKKUR SÆTI MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fö 23. nóv. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Lau 8. des. kl. 20 - LAUS SÆTI ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN HAUST 2001 - 3 NÝ ÍSLENSK VERK "Da", eftir Láru Stefánsdóttur Milli heima, eftir Katrínu Hall Plan B, eftir Ólöfu Ingólfsdóttur Í kvöld kl 20 - LAUS SÆTI síðasta sinn BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett Su 18. nóv. kl. 20 - UPPSELT Lau 24. nóv. kl. 20 - NOKKUR SÆTI RÚSSIBANAR Gullregnið Su. 18. nóv kl. 16 Útgáfutónleikar PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler Fö 23. nóv kl. 20 - UPPSELT Lau 24. nóv leikferð Kirkjubæjarklaustur og Vík Sun 25. nóv kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Þri 27. nóv leikferð á Akranes Fi 29. nóv kl. 20 - LAUS SÆTI DAUÐADANSINN eftir August Strindberg í samvinnu við Strindberghópinn Lau 24. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI Lau 1. des. kl. 20 - LAUS SÆTI síðustu sýningar. Stóra svið 3. hæðin Nýja sviðið Litla sviðið Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is           ( 01( ( ( 2(3/      ( 0/( ( ( +3 ( 0,( ( ( +4   ( 05( ( ( +4    ( 06( ( ( +3  +6(14   ( 02( ( ( +4    ( 14( ( ( +4  +3    ( +(  ( ( +3   ( 0(  ( ( +3   ( 0(  ( ( +,   ( 1(  ( ( +4  +3    ( /(  ( ( +1(14  +5(+/   ( ,(  ( ( +4    ( 5(  ( ( +4(14  +3   ( 2(  ( ( +3           ( +6( ( ( +3            ( 04( ( ( ++  +0(14    ( /(  ( ( +4(14        ! ( 05( ( ( +4   " # $   %%%     &       7  +5( ( ( 04    ( 01( ( ( 04  ( 03( ( ( 04 ( 0/( ( ( 04    ' ! (  '     )   *+,*-       ./01*/22 %%%     Í HLAÐVARPANUM Veröldin er vasaklútur ICELANDIC TAKE AWAY THEATRE Leikstjóri: Neil Haigh, Leikmynd og búningahönnun Katrín Þorvaldsdóttir. 10. sýn. lau. 24.11 kl. 21 - síðasta sýning EVA bersögull sjálfsvarnareinleikur þri. 20. nóv. kl. 21 fim. 22. nóv. kl. 21 UPPISTAND Tveir Bretar frá Edinborgarhátíðinni fim. 29. nóv. kl. 21 fös. 30. nóv. kl. 21 — lau. 1. des. kl. 21         '34 4546 6'477*82+2 !#%%%        '9 +6( (  +5( ( ( +2 :; <= +2( (  01( ( ( 04 54>  <= 5  03( ( ( +2 54>  <= 455;4 63> => ?""4; 4= @A   . 8%  &    ( +/+2            ( &  ( +4+2   .7**/122

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.