Morgunblaðið - 25.11.2001, Page 1

Morgunblaðið - 25.11.2001, Page 1
MORGUNBLAÐIÐ 25. NÓVEMBER 2001 271. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Lífskraftur og léttleiki 20 Einstakt bræðralag 22 Sunnudagur 25. nóvember 2001 „Hann verður frægur – lifandi goðsögn. Það verða skrifaðar bækur um Harry, hvert einasta barn í okkar heimi mun þekkja nafnið hans,“ sagði McGonagall prófessor í fyrstu bókinni um galdrastrákinn. Ragnhildur Sverrisdóttir segir að spádómar prófessorsins hafi svo sannarlega ræst, enda Harry frægur um allan heim galdramanna jafnt sem Mugga. 2 Kvikmyndin um Harry og vini hans frumsýnd hér á landi á föstudag ferðalögNautaat á Spáni bílarCherokee skipt út börnAðventan bíóHúmor og hasarþörf Śælkerar á sunnudegi Einsetumenn og afgangar Í ísskápnum hrúgast upp dollur með afgöngum. Prentsmiðja Morgunblaðsins B Bakkavör í leik og starfi 10 ÍSLAMSKA Hamas-hreyfingin hót- aði í gær að hefna grimmilega fyrir dráp Ísraela á helsta leiðtoga hern- aðararms samtakanna. Töldu frétta- skýrendur hættu á að í vændum væri ný holskefla ofbeldis- og óhæfuverka í Ísrael og á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna. Hamas-leiðtoginn, Mahmoud Abu Hanoud, féll á föstudagskvöld ásamt nánasta undirsáta sínum og bróður hans þegar ísraelsk þyrla gerði eld- flaugaárás á bifreið þeirra þar sem þeir voru á ferð skammt frá bænum Nablus. Var árásin í samræmi við þá stefnu ísraelskra stjórnvalda að rétt- lætanlegt sé að drepa þá menn, sem bera ábyrgð á hryðjuverkum gegn hermönnum og óbreyttum borgurum. Ísraelar lýstu því yfir í gær að Hamas-foringinn hefði verið drepinn sökum þess að hann hefði staðið fyrir hryðjuverkum í Ísrael og hefði haft nýjar sjálfsmorðsárásir í undirbún- ingi. Lifði af tvö tilræði Dauði Abu Hanoud er talinn mikið áfall fyrir Hamas-hreyfinguna. Þótti sýnt strax á föstudagskvöld að hans yrði hefnt. Yfirlýsing í þá veru barst síðan frá Hamas-samtökunum í gær- morgun og var látið að því liggja að hefndarinnar yrði ekki lengi að bíða: „Hefnd fyrir píslarvotta okkar er nokkuð, sem heyrir undir hernaðar- arm okkar, en við vonum að svarið og hin hörðu viðbrögð við þessum við- urstyggilega glæp berist fljótt,“ sagði í yfirlýsingu Hamas. Lýst var yfir þriggja daga sorg og Palestínumenn voru hvattir til að mæta ekki til vinnu. Ísraelar höfðu áður reynt að ráða Mahmoud Abu Hanoud af dögum. Í fyrra voru þrír ísraelskir sérsveitar- menn drepnir þegar þeir hugðust handtaka hann á heimili hans skammt frá Nablus. Abu Hanoud komst und- an á flótta en var handtekinn af pal- estínskum yfirvöldum. Í maí í ár særðist hann þegar Ísraelar hefndu sjálfsmorðsárásar með því að gera loftárás á fangelsið þar sem hann var geymdur. Ísraelar sögðu að eftir árásina hefði honum verið sleppt. Spenna fer ört vaxandi í Ísrael og á svæðum Palestínumanna. Á föstudag féllu sjö Palestínumenn í árásum Ísraela og sama dag voru fimm ungir palestínskir drengir bornir til grafar. Sögðu fréttaskýrendur í gær að spennan nú boðaði ekki gott fyrir við- leitni Bandaríkjamanna til að hleypa nýju lífi í friðarviðræður, en von er á tveimur sérlegum fulltrúum banda- rískra stjórnvalda á næstu dögum. Hamas boðar hefndir Jerúsalem. AP. AP Palestínumenn skoða í gærmorgun flak bifreiðar sem ísraelsk herþyrla gerði eldflaugaárás á skammt frá borginni Nablus á Vesturbakkanum á föstu- dagskvöld. Í bílnum var Mahmoud Abu Hanoud, leiðtogi hernaðararms Hamas-samtakanna, ásamt næstráðanda sínum og bróður, og féllu þeir allir. EITT til tvö þúsund hermenn úr liði talibana í borginni Kunduz í norðurhluta Afganistans létu vopn sín af hendi til hersveita Norður- bandalagsins í gærmorgun. For- ingi í liði bandalagsins kvaðst bú- ast við að allir hermenn talibana hefðu gefist upp fyrir dagsetur. Kunduz var síðasta vígi talibana í norðurhluta landsins og hafði Norðurbandalagið setið um borg- ina í um tvær vikur. Fregnum bar ekki saman um hvort erlendir múslimar, hliðhollir hryðjuverka- foringjanum Osama bin Laden, hefðu verið meðal þeirra sem gáf- ust upp í gærmorgun. AP-frétta- stofan sagði að um sex hundruð erlendir hermenn hefðu gefist upp en fréttaritarar AFP og BBC sögðu að svo virtist sem aðeins væri um að ræða afganska talib- ana. Abdul Rashid Dostum, hershöfð- ingi í her Norðurbandalagsins, sagði á föstudagskvöld að samn- ingar hefðu tekist við leiðtoga tal- ibana í borginni um að þeir myndu gefast upp og láta hina erlendu hermenn af hendi. Tugir pallbíla, herflutningabifreiða og skriðdreka streymdu í gærmorgun út úr borg- inni með hundruð talibana sem samþykkt höfðu að láta vopn sín af hendi. Haft var eftir nokkrum þeirra að hundruð eða þúsundir erlendra hermanna væru enn í Kunduz og að þeir hygðust berjast til síðasta manns. Samkvæmt AP gekk nokkur fjöldi talibana til liðs við heri Norðurbandalagsins og hugðist taka þátt í árás á erlendu hermennina sem eftir eru í borg- inni. Erlendu hermennirnir, sem aðallega eru Pakistanar, arabar og Tsjetsjenar, eru flestir taldir liðs- menn al-Qaeda, hryðjuverkasam- taka Osama bin Ladens. Leiðtogar Norðurbandalagsins hafa oftsinnis lýst því yfir að þeim verði ekki gefin grið ef þeir nást á lífi og hafa ýmsar mannúðarstofnanir látið í ljósi áhyggjur af að fjöldamorð á þeim séu yfirvofandi. Talið er að um 100.000 óbreyttir borgarar séu enn í Kunduz en þús- undir hafa flúið borgina á síðustu dögum. Bangi, Kabúl. AFP, AP. Mörg hundruð talibanar gefast upp í Kunduz HÆSTIRÉTTUR Wisconsin-ríkis hefur staðfest úrskurð þess efnis að níu barna faðir fari í fangelsi geti hann fleiri börn. Dómurinn í máli mannsins, David Oakley, er endanlegur en það hefur farið í gegnum öll stig dómskerf- isins í þessu ríki Bandaríkjanna. Oakley var dæmdur vegna van- goldinna barnsmeðlaga, sem svara til rúmlega 2,5 milljóna króna. Átta ára fangelsisdómur var mildaður og honum breytt í fimm ára skilorð. Dómarinn tjáði Oakley að gæti hann fleiri börn meðan á skilorðinu stæði færi hann beina leið í „stein- inn“. Sagði dómarinn að brotavilji mannsins væri mjög einbeittur. Oakley á níu börn á aldrinum þriggja til sextán ára. Þau hefur hann eignast með fjórum konum. Fleiri börn þýðir fangelsisvist Madison. AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.