Morgunblaðið - 25.11.2001, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 11
afar mikilvægt. „Þá höldum við þekk-
ingunni. Þessir menn stofnuðu fyrir-
tækið og þekkja alla hluti út og inn.
Þeir verða með okkur í áframhald-
andi uppbyggingu og það léttir auð-
vitað af okkur ákveðinni pressu. Gerir
okkur kleift að vera rólegri og minnk-
ar líkurnar á því að við gerum mis-
tök.“
Lýður bætir við að miklu máli
skipti að þarna sé um að ræða eina
fjölskyldu. „Stundum koma fjárfestar
inn í svona fyrirtæki í dag, reyna að
græða strax á morgun og vilja svo
selja sinn hlut hinn daginn. Hér er
ekki um slíkt að ræða. Fjölskyldan
fjárfestir í Bakkavör fyrir tvo millj-
arða og menn hafa nú lyft brúnum yf-
ir minni erlendri fjárfestingu á Ís-
landi en það! Jafnvel beygt sig í duftið
og gefið mönnum afslátt af hinu og
þessu.“
Bræðurnir segja breytinguna sem
orðið hefur á viðskiptaumhverfinu
hérlendis undanfarin ár mjög þýðing-
armikla. „Ríkisstjórnin hefur gert
umhverfið miklu betra og meira að-
laðandi. Tillögur að breytingum á lög-
um um gerð ársreikninga sem liggja
fyrir, að við megum gefa upp í er-
lendri mynt og fáum líka vonandi að
færa hlutafé okkar í erlendri mynt,
eru til dæmis mjög mikilvægar.“
Þeir nefna einnig verðbólgureikn-
ingsskil „sem er nánast ómögulegt að
útskýra fyrir Íslendingum hvað þá út-
lendingum“. Og svo fjármagnstekju-
skatt. „Hér borga menn hvorki of lág-
an né háan fjármagnstekjuskatt.
Hann er sanngjarn. Þess vegna er
undarlegt að sumir vaði fram á sviðið
og heimti að skattleggja eigi fjár-
magnstekjur um 40%, hvort sem
menn búa hér á landi eða ekki. Það er-
lenda fólk sem á í Bakkavör borgar
skatta af arði sínum á Íslandi því hann
er greiddur út hér. En ef menn eiga
að fara að borga 40% skatt, eins og
þeir búi í landinu og njóti allrar þjón-
ustu, mun aldrei neinum detta í hug
að fjárfesta hérlendis,“ segir Lýður.
Hvaða kreppa?
Þeir bræður undrast krepputalið á
Íslandi um þessar mundir. „Menn
geta talað sig inn og út úr kreppu,“
segir Ágúst og bætir við: „Í dag eru
verðmæti í sjávarafla meiri en nokkru
sinni; þetta er aðalatvinnugrein þjóð-
arinnar. Hér er metár í ferðaþjónustu
– að vísu bara til 11. september, og ál-
ver hafa aldrei skilað meiri hagnaði.“
Lýður botnar: „Norðurálsmenn
bíða eftir að fá að fjárfesta meira,“ og
þeir spyrja nánast einum rómi: „Af
hverju erum við að fara inn í kreppu?
Þetta er bara spurning um tilfinn-
ingu! Það er búið að segja mönnum að
það eigi að vera kreppa.“
Þeir nefna að þó ýmsir hafi tapað á
hlutabréfamörkuðunum sé efnahagur
á Íslandi alveg glimrandi góður í
grundvallaratriðum. „Hér var ofsaleg
bjartsýni, menn græddu ekki eins og
þeir ætluðu og hafa tapað á hlutabréf-
um. En menn verða bara að læra af
þessu.
Vissulega hefur hér verið við-
skiptahalli, háir vextir, krónan veik og
of mikil verðbólga, en samt sem áður
eru undirstöðuatriðin góð. Þetta er
ekki eins og 1967 þegar síldarstofninn
hrundi. Þá hvarf grunnurinn; fiskur-
inn fór,“ segir Ágúst.
Samningurinn sem þeir voru að
gera um kaup á KFF byggist á göml-
um, góðum gildum eins og þeir orða
það: „Að framleiða vöru og selja hana
á hærra verði en það kostar að fram-
leiða hana.“
Þær raddir hafa heyrst í þjóðfélag-
inu síðustu daga að fall krónunnar
tengist samningi bræðranna um kaup
á KFF en þeir vísa því á bug. „Við
sverjum allt slíkt gjörsamlega af okk-
ur. Við vorum búnir að verja okkur og
selja krónur fyrir pund áður en við
sögðum frá þessum samningi,“ segir
Lýður og Ágúst ítrekar að þetta sé á
misskilningi byggt: „Á föstudeginum
vorum við búnir að ganga frá öllum
gjaldeyrisviðskiptum út af þessum
kaupum og það var áður en nokkur
hafði spurnir af þessu. Það var ein-
mitt gert til þess að þetta myndi síður
koma krónunni við. Við viljum ekki
verða til þess að fella hana.“
50% fjölgun í höfuðstöðvunum!
Höfuðstöðvar Bakkavör Group eru
í Kaupmannahöfn og búa þeir bræður
þar og í Reykjavík en kusu að hafa að-
setur í Kaupmannahöfn því það er
landfræðilega hentugt. „Það að fara
að morgni frá Íslandi og koma aftur
að kvöldi er frekar erfitt en þarna
náum við að keyra til Svíþjóðar og
Hamborgar eða fljúga til Parísar og
koma heim aftur sama dag,“ segir
Lýður og þeir eru sammála um að
þetta fyrirkomulag sé gott fyrir fjöl-
skyldulífið.
Fjórir starfsmenn hafa til þessa
verið í höfuðstöðvum Bakkavör
Group í Kaupmannahöfn, að bræðr-
unum meðtöldum. Því er vart hægt að
segja að yfirbyggingin hafi verið mik-
il, en Lýður upplýsir að nú hyggist
þeir fjölga um heil 50% á skrifstof-
unni. Starfsmönnum muni fjölga úr
fjórum í sex! „Það er aðallega vegna
þess hve erlendu bankarnir, sem við
sömdum við vegna kaupanna á KFF,
gera miklar kröfur til upplýsingagjaf-
ar.“
Bankarnir sem hér um ræðir eru
tveir þeir stærstu í Evrópu, HSBC og
Royal Bank of Scotland, auk Bank of
Scotland, sem ku vera sá sjöundi
stærsti í álfunni. Þeir lána Bakkavör
Group alls 12,3 milljarða króna og
endurfjármagna jafnframt allar
skuldir fyrirtækisins, hvar sem er í
heiminum. „Við segjum þar með upp
viðskiptum við alla banka á Íslandi,
nema hvað Bakkavör Ísland verður
vitaskuld áfram í viðskiptum hér.
Dótturfélögin eru í viðskiptum við
banka hvert í sínu heimalandi.“
Þeir bræður segjast mjög stoltir af
því að hafa náð samningum við um-
rædda banka. „Það eru að sjálfsögðu
engin veð eða fasteignir til fyrir þess-
um lánum en bankarnir sjá bara að
reksturinn gefur vel af sér; þess
vegna treysta þeir sér til að lána okk-
ur þessa 12,3 milljarða til sjö ára,“
segir Ágúst.
Þeir telja það merkilegan áfanga að
íslenskt fyrirtæki hafi náð að semja
við þessa banka. „Þegar við viljum
gera eitthvað meira ættum við að
njóta trausts bankanna. Núna löbb-
uðum við inn – einhverjir tveir guttar
– og enginn þekkti okkur neitt! Enda
var nánast farið í persónunjósnir um
okkar hagi til að kanna hverjir við
værum!“
Skömmu fyrir hryðjuverkin í
Bandaríkjunum 11. september voru
þeir nálægt því að ganga frá samningi
við Commerzbank í Þýskalandi um
fjármögnun kaupanna á KFF. Það
var í gegnum útibú bankans í London,
en Þjóðverjarnir drógu sig algjörlega
út úr verkefninu eftir tíðindin hörmu-
legu vestan hafs. „Þeir voru með 300
starfsmenn í turnunum og lokuðu
Lundúnaútibúinu sínu í kjölfarið. Við
vorum þar með aftur á byrjunarreit.“
Samrýndir
Þeim finnst starfið mjög skemmti-
legt og segja raunar að annars gengi
dæmið ekki upp hjá þeim. „Þetta er
þess eðlis að menn verða að gefa sig
alla í verkefnið til að reksturinn
gangi. Annaðhvort eru menn á fullu í
þessu eða alls ekki,“ segir Ágúst og
segir viðskiptin ekki frábrugðin öðru
þar sem menn vilja ná árangri. „Ann-
aðhvort setja menn sér markmið til
langs tíma eða verða aldrei í fyrsta
sæti. Þetta er alveg eins og í íþrótt-
unum. Menn verða aldrei í toppformi
ef þeir leggja ekki hart að sér.“
Blaðamaður lýsir þeirri skoðun
sinni að bræðurnir virðist í toppformi!
„Já, við eigum svo góðar fjölskyld-
ur, sem leyfa okkur að standa í öllu
þessu brölti,“ segir Lýður. Eiginkona
hans er Guðrún Eyjólfsdóttir og eiga
þau soninn Alexander, sem varð
tveggja ára í fyrradag. Eiginkona
Ágústar er Þuríður Reynisdóttir og
eru þau barnlaus.
Hvað með frístundir; þekkja þeir
bræður það orð?
Ágúst segist hafa verið mikið til
fjalla, var leiðsögumaður „í gamla
daga“ og fer reyndar ennþá eina bak-
pokaferð á ári sem slíkur fyrir vini
sína sem reka fyrirtæki, „til þess að fá
loft í lungun.“
Þau Þurí, eins og hann kallar kon-
una sína, hafa auk þess talsvert verið
á gönguskíðum og stundað fjalla-
mennsku.
Lýður nefnir einnig ferðalög þegar
frístundir ber á góma, „en við konan
mín höfum frekar lagt land undir fót
og ferðast um framandi álfur; Suður-
Ameríku og Asíu.
Enda segjum við það stundum
bræður að þegar við eigum frí er gott
að vera langt hvor frá öðrum! Við
bjuggum í sömu blokkinni í Grafar-
vogi í sex ár, alveg þar til við fluttum
til Danmerkur fyrr á þessu ári.“
Bræðurnir hafa forðast sviðsljósið
til þessa. Segjast hafa lítinn áhuga á
að vera áberandi – kjósi þess í stað að
láta verkin tala. „Eftir samninginn í
vikunni verður fyrirtækið okkar með-
al fimm stærstu á landinu, hvort sem
litið er á hagnað, veltu eða starfs-
mannafjölda, og því fylgir að vera í
umræðunni núna en það sem skiptir
mestu máli er að ég tel samninginn
koma sér mjög vel fyrir Ísland,“ segir
Lýður.
Íslenska starfsmenn Bakkavör
Group erlendis má telja á fingrum
annarrar handar; það eru bræðurnir,
skrifstofustúlka í Danmörku og tveir
starfsmenn í Svíþjóð. Stefna þeirra er
nefnilega að reka staðbundin fyrir-
tæki á hverjum stað, lókal-fyrirtæki
eins og það er kallað á útlensku.
„Bakkavör France er ofboðslega
franskt fyrirtæki, og Bakkavör Swed-
en svakalega sænskt.“ Mikilvægt sé
að fyrirtækin séu staðbundin, því við-
skiptamenningin sé svo misjöfn milli
landa.
Í lagi fyrst Íslendingar stjórna
Bræðurnir funda með stjórnendum
allra dótturfyrirtækja Bakkavör
Group fjórum sinnum á ári. „Kann-
astu við brandarana um Bandaríkja-
manninn, Rússann og svo framvegis?
Fundirnir eru nokkurn veginn svo-
leiðis! Rígurinn á milli landanna er
mikill og við segjum stundum að eina
ástæðan fyrir því að dæmið gangi sé
að Íslendingar stjórni. Það væri von-
laust ef Frakki ætti að stjórna Þjóð-
verja og Breta,“ segir Ágúst en Lýður
segir að þrátt fyrir þetta fljúgi brand-
arar á fundunum og stemmningin sé
góð.
Þannig að íbúum stórra þjóða á
borð við Þýskaland, Frakkland, Pól-
land og Bretland finnst ekkert at-
hugavert við að tveir ungir menn frá
Íslandi skuli vera að stjórna þeim?
„Maður þarf að sanna sig í þessu
eins og öllu öðru,“ segir Ágúst. „Þeg-
ar við keyptum fyrirtækið í Svíþjóð,
sem var miklu stærra en okkar,
mættum við heilmikilli tortryggni;
fólk skildi ekki hvernig einhverjir
jólasveinar ofan af Íslandi ætluðu að
fara að stjórna þarna. Svo ávinnur
maður sér bara traust.“
Bræðurnir sem slógust sem hund-
ur og köttur í æsku standa nú eins og
klettar saman í fyrirtækinu. „Við
kláruðum slagsmálin vel fyrir tvítugt
og samstarfið hefur verið einstaklega
gott síðan. Við lærðum að tala út um
hlutina á sínum tíma og gerum það
enn,“ segir annar bróðirinn. Þeir
leggja áherslu á að stundum greini þá
á um leiðir en aldrei um markmið.
„Velgengni okkar byggist ekki á
göldrum, ekki á tilviljunum og ekki á
heppni. Hún byggist á seiglu, góðu
starfsfólki, því að hafa markmiðin í
lagi og á mikilli vinnu,“ segir Ágúst.
og starfi
Morgunblaðið/Þorkell
skapti@mbl.is
’ „Velgengni okkarbyggist ekki á göldr-
um, ekki á tilvilj-
unum og ekki á
heppni. Hún byggist
á seiglu, góðu starfs-
fólki, því að hafa
markmiðin í lagi og á
mikilli vinnu.“ ‘