Morgunblaðið - 25.11.2001, Page 17

Morgunblaðið - 25.11.2001, Page 17
Ágæti Íslendingur! VEIST ÞÚ: -Að SÁÁ hefur byggt upp árangursríkt meðferðarprógramm fyrir alkóhólista og fíkniefnaneytendur sem vakið hefur athygli víða í Evrópu. - Að fyrirtæki og stofnanir hafa endurheimt starfsmenn sína tvíeflda til baka úr meðferð, sem þeir hafa þurft að fara í. - Að það er mikill fjárhagslegur hagnaður fyrir fyrirtæki, stofnanir og bæjarfélög að fá góða einstaklinga edrú til baka úr meðferð hjá SÁÁ. - Að það léttir mjög á heilbrigðiskerfinu ef einstaklingar eru allsgáðir. - Að það léttir á lögreglunni, fangelsunum og dómskerfinu almennt, ef einstaklingar hafa farið í meðferð, meðferð sem gefur góða raun og skilar árangri. - Að ein mesta hamingja sem fjölskyldunni hlotnast er þeg- ar sá sem fer út af sporinu vegna ofnotkunar á áfengi eða vímuefnum, kemst á rétta sporið að nýju. Nú um þessar mundir er vegið alvarlega að starfsemi samtakanna vegna fjársveltis. Þetta er málaflokkur sem snertir næstum hvern einasta Íslending beint eða óbeint. Nú dugar ekkert tómlæti eða sú hugsun að „mér komi þetta ekki við“, því sjúkdómur þessi fer ekki í manngreinarálit, spyr ekki að stétt, efnum o.s.frv. Hann er alltaf fyrir hendi „alls staðar“, ef ekki er unnið markvisst í að halda honum niðri. Til þess þarf mjög öflugt tæki, tæki eins og SÁÁ. „Ef þú ert sama sinnis og við, þá skorum við á þig, þinn vinnustað og/eða fyrirtæki, sveitarfélag þitt og síðast en ekki síst ríkisvaldið að STYÐJA FJÁRHAGSLEGA við bak- ið á SÁÁ, (Samtökum áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann), annað hvort með beinum framlögum á reikning Samtakanna í Búnaðarbanka - austurbæ (0303-26-58002), eða gerast félagi í SÁÁ, (sími 530 7600 á skrifstofutíma). Oft var þörf - nú er nauðsyn!“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.