Morgunblaðið - 25.11.2001, Qupperneq 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 29
www.lipfinity.com
BYLTINGARKENND NÝJUNG
Helst á lengur en
nokkur annar varalitur
Förðunarfræðingur veitir faglega ráðgjöf í eftirtöldum verslunum Lyfju:
LÁGMÚLA mánudagur 26/11 kl. 14-18
LAUGAVEGI þriðjudagur 27/11 kl. 14-18
GARÐATORGI miðvikudagur 28/11 kl. 14-18
SETBERGI fimmtudagur 29/11 kl. 14-18
SMÁRATORGI föstudagur 30/11 kl. 14-18
SMÁRALIND laugardagur 1/12 kl. 12-16
GRINDAVÍK föstudagur 2/12 kl. 14-18
Kvikmyndir þar sem, Max Factor hefur séð um förðun, eru m.a. Bridget Jones’s Diary, Charlie’s
Angels, Anna and the King, Notting Hill, Titanic, The English Patient, Evita, Ever After, Bugsy Malone,
Alien, Interview with a Vampire, Midnight Express...
Ameríski draumurinn er þriðja bók
Reynis Traustasonar og geymir frá-
sagnir Íslendinga sem hafa haslað
sér völl í „landi tækifæranna“. Jón
Baldvin Hannibalsson, sendiherra í
Washington, skrifar formála,
Bjarni Tryggvason geimfari segir
hispurslaust frá ævintýrum drengsins
sem ólst upp í Bú-
staðahverfi í
Reykjavík; Hall-
fríður Schneider,
dóttir Guðbrands
Magnússonar for-
stjóra ÁTVR og
eins helsta for-
ystumanns Fram-
sóknarflokksins,
kynntist manns-
efni sínu á stríðsárunum í Reykjavík.
Hann var bandarískur hermaður sem
þar að auki var kvæntur; æv-
intýramaðurinn Jón Grímsson var ís-
firskur sjómaður þegar hann smit-
aðist af ameríska draumnum á
ferðalagi 1979; aðalræðismanns-
hjónin Kristín og Hilmar Skagfield
segja frá lífi sínu í Tallahassee á Flór-
ída. Hilmar er þar umsvifamikill iðn-
rekandi en Kristín þekktur tískuhönn-
uður.
Útgefandi er Nýja bókafélagið. Bók-
in er 248 bls. Kápu hannaði Sigurgeir
Orri. Verð: 4.490 kr.
Endurminningar
Feng shui – að láta ytra og innra rými
þitt ríma er eftir Zaihong Shen í þýð-
ingu Bryndísar Víglundsdóttur.
Bókin er sú fyrsta í bókaflokknum
Öðruvísi bækur sem Salka gefur út og
gefur innsýn í hina fornu kínversku list
sem fæst við að hanna lífsrýmið og
koma á jafnvægi í umhverfi manns-
ins.
Feng shui-sérfræðingurinn Zaihong
Shen sýnir hvernig skapa má virka og
jákvæða orku í umhverfinu.
Útgefandi er Salka. Bókin er 192
bls., prentuð í Portúgal. Verð: 3.480
kr.
Lífsstíll
Lakkrísgerðin er ljóðabók eftir Óskar
Árna Óskarsson. Hún hefur að geyma
örstuttar sögur og prósaljóð sem
bregða upp mynd-
um úr raunveru-
legum og ímynd-
uðum ferðalögum
höfundar um
landabréf bernsk-
unnar og gær-
dagsins.
Óskar Árni Ósk-
arsson hefur áður
sent frá sér ljóða-
bækur, smáprósa og þýðingar. Í kynn-
ingu segir m.a.: „Í Lakkrísgerðinni
tekur Óskar upp þráð sem finna má í
ýmsum fyrri bóka hans, þar á meðal
Veginum til Hólmavíkur (1997). Oft
skyggnist skáldið um í afmörkuðum
heimum – plötubúð, rakarastofu,
kaffihúsi, bíósal – og færir til bókar
minningaflökt og stemmningar sem
slíkir staðir vekja í huganum.“
Útgefandi er Bjartur. Bókin er 90
bls., prentuð í prentsmiðjunni Odda.
Kápu hannaði Snæbjörn Arn-
grímsson. Verð: 2.980 kr.
Ljóð