Morgunblaðið - 25.11.2001, Síða 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Borghildur Hin-riksdóttir fædd-
ist á Tröllanesi í
Norðfirði 9. maí
1908. Hún lést á
Hrafnistu í Hafnar-
firði 17. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Hinrik Þorsteinsson,
útvegsbóndi á
Tröllanesi, og Jó-
hanna Ingibjörg
Björnsdóttir. Þor-
steinn faðir Hinriks
var sonur Hinriks
Hinrikssonar, sókn-
arprests á Skorrastað, en hann
fluttist þangað frá Bergsstöðum
árið 1858. Móðir Hinriks Þor-
steinssonar var Þórunn Þorleifs-
dóttir, Péturssonar. Faðir Jó-
hönnu móður Borghildar var
Björn Jónsson, sem kenndur var
við Grófina í Norðfirði og var
bóndi þar, en hann var af Skúla-
ætt. Móðir Jóhönnu Ingibjargar
var Helga Hildibrandsdóttir frá
Skógargerði í Fellum, en móðir
Þeir eru: 1) Jóhann Hinrik, hæsta-
réttarlögmaður, eiginkona Þórdís
Gústavsdóttir og eiga þau tvær
dætur, Steinunni, sambýlismaður
Jón Einarsson og eiga þau fjóra
syni; og Borghildi, eiginmaður
Tryggvi Þorsteinsson og eiga þau
þrjár dætur. 2) Ingvar, vélaverk-
fræðingur, eiginkona Anna
Hauksdóttir og eiga þau eina dótt-
ur, Borghildi, eiginmaður Sigur-
páll Jónsson og eiga þau fjórar
dætur. Borghildur og Níels ólu
einnig upp 3) Guðlaugu Ólafsdótt-
ur, systurdóttur Níelsar, en henn-
ar maður var Guðmundur Björns-
son, vélaverkfræðingur, sem lést
árið 1988. Þeirra börn eru Borg-
hildur, hún á tvær dætur með
fyrrverandi eiginmanni sínum Ro-
ger Stanton, Rannveig, eiginmað-
ur Bjarni Ólafsson, og eiga þau
einn son og einn sonarson, Björn,
eiginkona Sigrún Guðjónsdóttir,
og eiga þau tvær dætur og einn
son, Guðrún, sem á eina dóttur
með fyrrverandi sambýlismanni
sínum Rögnvaldi Sverrissyni, og
Ólafur, eiginkona Bryndís Birnir,
og eiga þau einn son og eina dótt-
ur.
Útför Borghildar verður gerð
frá Garðakirkju á morgun, mánu-
daginn 26. nóvember, og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Helgu var Jóhanna
Jónsdóttir frá Geira-
stöðum í Hróars-
tungu.
Systkin Borghildar
voru fjögur og ein
uppeldissystir, öll
kennd við Tröllanes.
Fjögur þeirra eru lát-
in þau Sigurður, Mar-
grét og Helga og upp-
eldissystirin Elísabet,
en yngsta systirin
Sveinbjörg býr á
Hrafnistu í Hafnar-
firði.
Árið 1928 giftist
Borghildur Níelsi Ingvarssyni, yf-
irfiskmatsmanni, en hann lést árið
1981. Foreldrar Níelsar voru Ing-
var Pálmason, alþingismaður frá
Ekru í Norðfirði, og Margrét
Finnsdóttir frá Tungu í Fáskrúðs-
firði. Borghildur og Níels áttu
lengst af heimili í Neskaupstað, en
fluttu til Reykjavíkur um 1970.
Borghildur og Níels eignuðust
fimm börn, þrjár stúlkur sem allar
létust í frumbernsku, og tvo syni.
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast tengdamóður minnar,
Guðrúnar Borghildar Hinriksdótt-
ur, sem látin er níutíu og þriggja
og hálfs árs að aldri.
Borghildur var falleg kona, en
ekki síður fyrirmannleg svo eftir
var tekið. Hún var listræn og arki-
tekt af náttúrunnar hendi. Hún bjó
fjölskyldu sinni fallegt og skemmti-
legt heimili. Allt sem hún tók sér
fyrir hendur, hvort sem um mat-
argerð, saumaskap eða hverskonar
handavinnu var að ræða, var gert
af miklum myndarskap, en sem
ung stúlka hafði hún gengið á hús-
stjórnarskóla. Ég man eftir að hafa
séð föt snilldarlega bætt eftir hana,
frá þeim tímum þegar börnin voru
lítil og ekki fengust tilbúin föt, en
erfitt að fá efni í ný. Skipulagning
var sérgrein Borghildar og það
auðveldaði alla þessa vinnu, en
margt var hægt að læra af henni.
Ég kom inn á heimili Borghildar
og Níelsar þegar ég var trúlofuð
Ingvari og gekk með dóttur okkar.
Þá kynntist ég Borghildi vel og
hefir hún verið fyrirmynd mín síð-
an. Við áttum margar góðar stund-
ir saman, við berjatínslu og á ferð-
um upp á Hérað á meðan við
bjuggum fyrir austan, en einnig
þegar hún og Níels heimsóttu okk-
ur Ingvar á meðan við bjuggum í
Svíþjóð. Þá ferðuðumst við heilmik-
ið saman, bæði þar og í Danmörku.
Og svo komu þær systur, Svein-
björg og hún, í heimsókn til Singa-
púr og voru hjá okkur í þrjá mán-
uði, en þá fórum við einnig til
Malaysíu.
Ég á tengdamóður minni mikið
að þakka. Ef ætti að telja allt upp
yrði það langt mál. Er mér efst í
huga þegar Ingvar var við nám og
við bjuggum í Þýskalandi. Þá veikt-
ist ég og þurfti að fara á heilsuhæli
og við þurftum að senda dóttur
okkar, Guðrúnu Borghildi, rétt
þriggja ára gamla, til tengdafor-
eldra minna heim til Íslands. Mín
eina huggun þá var að ég vissi að
barnið yrði í góðum og öruggum
höndum þangað til við kæmum
heim eftir nám Ingvars.
Borghildur fylgdist vel með
framförum barnabarna og barna-
barnabarna sinna, ekki þá síst
skólagöngu og einkunnum, og
mundi afmælisdaga þeirra allra.
Hún náði vel til unglinga og varð
vinur þeirra. Hún mundi símanúm-
er allra nánustu ættingja og vina
fram í andlátið.
Borghildur var merkiskona, gáf-
uð og háttvís. Hún hafði áhuga á
stjórnmálum og fylgdist vel með
öllum þjóðmálum. Ekki fór heldur
framhjá henni hvað var að gerast
úti í hinum stóra heimi. Það er erf-
itt að ímynda sér að nú er ekki
lengur hægt að fræðast af Borg-
hildi um sögu Norðfjarðar og fólk
og fjölskyldur ættaðar þaðan, því
allt fram á síðustu stundu mundi
hún nöfn og ættartengsl langt aftur
í tímann. Og allt sem hún hafði
heyrt einu sinni mundi hún alltaf.
Hún var hraust að upplagi og and-
lega mjög sterk, en nú undir það
síðasta var hún orðin gömul og
þreytt og því fegin hvíldinni. Af-
komendur í fjölskyldunni, jafnt
eldri sem yngri, hafa misst mikið.
Ég er stolt af því að hafa átt hana
fyrir tengdamóður og finn til tóm-
leika og saknaðar.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu’ og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósin kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir.)
Þakka þér fyrir allt.
Þín tengdadóttir
Anna.
Við fráfall ömmu minnar Borg-
hildar, langar mig einnig að minn-
ast ömmu minnar Kristínar, því
stutt er síðan hún lést. Þessar kon-
ur umvöfðu mig skilyrðislausri ást
og umhyggju og mér þykir afskap-
lega tómlegt nú þegar þær eru
gengnar.
Kristín Björnsdóttir fæddist að
Nolli í Höfðahverfi 6. október 1905
og lést á Kristnesspítala 21. októ-
ber 2000. Guðrún Borghildur Hin-
riksdóttir fæddist í Neskaupstað 9.
maí 1908 og lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 17. nóvember 2001.
Leiðir þeirra lágu saman þegar for-
eldrar mínir Anna Sigríður Hauks-
dóttir og Ingvar Níelsson kynntust.
Kristín giftist Hauki Frímanns-
syni útvegsbónda á Ytri-Vík á Ár-
skógsströnd og bjó með honum þar
þar til hann lagðist inn sem sjúk-
lingur á Kristneshæli. Til að vera
nálægt manni sínum fór hún að
vinna í þvottahúsi hælisins. Þegar
hann lést fluttist hún til Akureyrar
og vann í skógerðinni Iðunni. Hún
hélt heimili að Oddagötu 1 þar til
hún flutti fyrst að Skjaldarvík og
síðan á Kristnesspítala. Auk móður
minnar eignuðust Kristín og Hauk-
ur tvo syni, Frímann og Jóhann.
Borghildur giftist Níelsi Ing-
varssyni yfirmatsmanni í Neskaup-
stað. Þau byggðu sér hús á Ekru
og bjuggu þar þar til þau fluttu til
Reykjavíkur. Eftir að Níels dó hélt
Borghildur heimili með foreldrum
mínum á Tómasarhaga 29 þar til
hún flutti á Hrafnistu.
Kristín og Borghildur voru á
margan hátt ólíkar. Önnur var ljós
yfirlitum en hin var dökk. Önnur
var gefin fyrir handavinnu og ljós-
myndun en hin hafði áhuga á
stjórnmálum og heimsmálum. Önn-
ur hafði unun af að rækta blómin í
garðinum sínum en hin hafði meiri
áhuga á að fegra heimilið. Hjá ann-
arri bilaði minnið með aldrinum,
hjá hinni bilaði líkaminn. En þrátt
fyrir þetta voru ömmur mínar lík-
ar.
Þær voru ekki manneskjur sem
höfðu sig mikið í frammi en höfðu
hvor á sinn hógværa hátt sterk
áhrif á umhverfi sitt. Þær lifðu fyr-
ir fjölskyldur sínar og afkomendur,
það var dýrasta eign þeirra. Má
segja að þær hafi kennt lífsviðhorf
sín í verki. Alltaf var hægt að leita
ráða hjá þeim og þær kunnu þessa
list að hlusta. Báðar voru þraut-
seigar og úrræðagóðar, höfðu lært
að vera nýtnar og aldrei féll þeim
verk úr hendi. Þær sýndu að vilja-
styrkur var yfirleitt það sem til
þurfti til að koma hlutunum í kring.
Sem dæmi þá fótbrotnaði Kristín
sjötug og var negld 13 nöglum,
Borghildur mjaðmagrindarbrotn-
aði níræð, en hvorug lét þetta buga
sig.
Um leið og ég kveð ömmur mín-
ar, vil ég fyrir hönd fjölskyldunnar
þakka því starfsfólki sem vann við
umönnun á þeim stofnunum sem
þær dvöldu. Ég fann vel það blíða
andrúmsloft sem einkenndi staðina
og veit að þetta fólk gerði allt sem í
sínu valdi stóð til að gera þeim
vistina sem ánægjulegasta.
Borghildur Ingvarsdóttir.
Leikur í fjallshlíð við sjávarnið
og klið mávanna. Berjaferðir í fjall-
ið og gönguferðir með Níelsi niður
á bryggju að ná í fisk. Heimsóknir
til frændfólksins á Ekrunni. Minn-
ingar um gott sumar fyrir austan
hjá Boggu og Níelsi, sem voru
amma og afi í reynd. Síðar, ljúfar
samverustundir á notalegu og fal-
legu heimili þeirra á Tómasarhag-
anum, fullt af hlýju. Minningarnar
líða um hugann á kveðjustund og
lifa áfram með okkur hinum.
Nú hefur Bogga kvatt okkur, um
tuttugu árum á eftir Níelsi, tilbúin
til þess að fá hvíldina, ungleg fram
á síðustu ár.
Elsku Bogga, kæra þökk fyrir
heil ráð í gegnum árin og alla þína
gæsku og hlýju.
Guðrún Guðmundsdóttir.
BORGHILDUR
HINRIKSDÓTTIR
!
"
!
"#$
%
&' (
$
%
%)
$ $%
%
%)
#
!
"#$%&$'( )*+
!
""#
$
%
&
'
(
)* '+
,'- . /0(&((
$# /0(12
!""#
$
%
%
&
''( )
' *& +
' +"! ,-
!"#$ %
& ' (
)" *+
%," % $ -.
//.)///0
! !"#
!""#
!$ % !$ &&& $
' % & ()&*$
% '"# + $
* % &#$
+#!& ," $ !
" % %
&"# ," $
+ % - " ! $
(()%&((()
!"# $%& #
'( #
)#*
&!
+!
% #
,- # .
/ '/- # 0! '
#!&--$& 1
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Traust persónuleg
alhliða útfararþjónusta.
Áratuga reynsla.
Símar 567 9110 & 893 8638
utfarir.is