Morgunblaðið - 25.11.2001, Page 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Dýr
matvara
AÐ UNDANFÖRNU hefur
verið borið saman verðlag á
matvöru í hinum ýmsu lönd-
um. Af því tilefni er ekki
óeðlilegt að fólk spyrji sig
hvers vegna matvara skuli
vera rúmlega helmingi
ódýrari á Spáni, Írlandi eða
á Ítalíu en hér á landi.
Getur verið að verðlag
hér á landi sé með öllu
óraunhæft þegar hægt er að
fara út að borða mjög góða
máltíð á veitingastað í þess-
um löndum með allri þjón-
ustu, víni og meðlæti fyrir
innan við eitt þúsund krón-
ur? Í verslunum er matark-
arfan margfalt ódýrari.
Saltfiskurinn á Spáni er
helmingi ódýrari en hér
heima og þannig mætti
lengi telja. Það er skiljan-
legt að matvara gæti verið
eitthvað ódýrari þarna suð-
ur frá vegna nálægðar við
markaðinn og lægri flutn-
ingskostnaðar, en að mun-
urinn skuli vera jafn mikill
er raun ber vitni hlýtur að
liggja í einhverju öðru.
Of lítil samkeppni á inn-
anlandsmarkaði hér, hár
flutningskostnaður og fá-
mennt markaðssvæði geta
varla skýrt þennan mikla
mun. Einhvern veginn
finnst mér að það hljóti að
vera hægt að lækka mat-
vöruverð hér á landi um
a.m.k. þriðjung með tiltölu-
lega einföldum ráðstöfun-
um. T.d. með því að láta al-
menning njóta betur
ágóðans vegna hagstæðra
innkaupa, fækka milliliðum
og endurmeta alla flutn-
ingsmöguleika.
Fólk hér á landi getur
líka, ef það vill, haft veruleg
áhrif á verðlag matvöru
með því að sammælast um
að kaupa helst ekki vöru,
sem það er ósátt við verðlag
á.
Kveðja,
Ó.
Um gjafmildi
og lítillæti
HINN þrettánda nóvem-
ber síðastliðinn las ég á Ak-
ureyrarsíðu Morgunblaðs-
ins að Lionsklúbburinn
Hængur hefði fært vist-
mönnum á sambýli aldr-
aðra í Bakkahlíð tvo páfa-
gauka að gjöf. Vistmenn
munu hafa haft á orði að
þeir hefðu áhuga á að eign-
ast gæludýr og ljónamenn-
irnir voru fljótir að upp-
fylla þær vonir. Það er ekki
nema gott eitt um það að
segja eins og um aðrar
gjafir og störf Lionshreyf-
ingarinnar að mannúðar-
málum.
En verðskuldar þessi gjöf
þriggja dálka frétt í Morg-
unblaðinu, fimm dálka forsí-
ðufrétt í Vikudegi og eins
dálks frétt í DV að ekki sé
talað um myndir af fimm
gleiðbrosandi stjórnar-
mönnum ljónamanna? Hvað
varð um lítillæti hjartans?
Hvað nú ef einhvern langar
til að gefa vistmönnum kött
sem er líklegur til að sitja í
kjöltu þeirra og láta strjúka
sér og klappa meðan hann
malar og róar þandar
taugar þeirra eftir skvaldrið
í gaukunum? Kötturinn er
þó að minnsta kosti sömu
ættar og ljónamennirnir.
Undrandi
Akureyringur.
Tapað/fundið
Hálsmen í óskilum
HÁLSMEN fannst við
Bæjarhraun 18, Hafnar-
firði, fyrir framan húsnæði
Sýslumannsins í Hafnar-
firði. Uppl. í síma 863 9790.
Dýrahald
Páfagaukur í óskilum
PÁFAGAUKUR grænn og
gulur að lit fannst í Bú-
staðahverfi 20. nóv. sl. Eig-
andi hafi samband í síma
588 9179.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
AKUREYRINGAR hafa löngumátt ágætis íþróttamenn en nú
virðist mikil uppsveifla hafa átt sér
stað í bænum síðustu misseri.
Í nokkur ár hefur KA verið með
eitt besta handboltalið landsins og
Akureyringar verið nær ósigrandi í
íshokkíi og svo er enn. Þórsarar eru
einnig komnir með mjög gott hand-
boltalið, körfuboltalið Þórs virðist
einnig sterkara en oft áður og bæði
lið verða í úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu næsta sumar.
x x x
JAFNTEFLISLEIKUR Þórs ogKA í Essó-deildinni í handbolta,
efstu deild karla, á mánudaginn var
vakti mikla athygli enda ríflega
2.000 áhorfendur sem lögðu leið sína
í íþróttahöllina til að fylgjast með.
Ótrúlegt, en satt.
Þórsarar hafa verið gagnrýndir
fyrir að færa leikinn fram frá þriðju-
dagskvöldi á mánudagskvöld vegna
tveggja stórleikja í meistaradeild-
inni í knattspyrnu sem voru á dag-
skrá Sýnar á þriðjudagskvöldinu.
Þar sem vinsældir þeirrar keppni
eru gríðarlegar hér á landi hefur
það greinilega verið niðurstaða for-
ráðamanna handboltadeildarinnar
að þetta væri skynsamlegt og áhorf-
endafjöldinn á leiknum við KA
bendir til þess að það mat hafi verið
rétt.
Í stað þess að berja hausnum við
steininn, viðurkenna ekki vinsældir
fótboltans heldur halda sínu striki
og setja fólk í þá erfiðu aðstöðu að
þurfa að velja á milli meistaradeild-
arinnar og handboltaleiksins var
tekin skynsamleg ákvörðun. Vík-
verji tekur ofan fyrir Þórsurum.
Þorleifur Ananíasson, fyrrverandi
handboltamaður í KA, skrifar iðu-
lega pistla á heimasíðu félagsins og
fer þar mikinn. Honum virðist ekki
sérlega hlýtt til Þórs, enda kannski
engin ástæða til, en Víkverji
skemmtir sér oft konunglega við
lestur skrifa Þorleifs. Eftir áður-
nefndan leik skrifar hann eftirfar-
andi klausu á heimasíðuna:
„Ó … ó … ekki fór það vel hjá
Þórsurum á Anfield í gærkveldi.
Eins og menn muna var leik Þórs og
KA í handbolta flýtt vegna „beinnar
útsendingar“ á Sýn af leik Liverpool
og Barcelona í Meistaradeild Evr-
ópu í knattspyrnu í gærkveldi. En
viti menn, auðvitað var leikur Man.
Utd. gegn Bayern Munich sýndur í
beinni, Liverpool-leikurinn settur í
súr og sýndur síðar um kvöldið.
Blessaðir Þórsararnir fengu því
slátrið súrt en ekki nýtt frá Liver-
pool í gærkveldi og hefðu því hæg-
lega getað séð handboltaleikinn áður
en sparkið hófst. Það er hins vegar
ekki víst að þeir hefðu þolað báða
leikina sama kvöldið. Fyrst að sjá
handboltaliðinu sínu mistakast enn
einu sinni að sigra KA og sjá síðan
slátrunina á Anfield í kjölfarið.“
x x x
AÐ síðustu heggur Víkverji ísama knérunn og oft áður:
Hvetur hér með forráðamenn sjón-
varpsstöðvarinnar Sýnar til að sýna
fleiri leiki úr spænsku knattspyrn-
unni. Úrslit leikja í meistaradeild-
inni í vikunni ættu að opna augu
manna fyrir því hve frábær
spænsku félögin eru. Barcelona lék
Liverpool grátt á Englandi, Deport-
ivo valtaði yfir Arsenal á heimavelli
og Real Madrid fór á kostum í Prag,
þar sem liðið sigraði Sparta.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 svipað, 4 sveðja, 7
skyldmenni, 8 hrósar, 9
fugl, 11 horað, 13 púkar,
14 tryllast, 15 klöpp und-
ir sjávarmáli, 17 tala, 20
flana, 22 birtir yfir, 23
kjökra, 24 rannsaka, 25
þátttakenda.
LÓÐRÉTT:
1 trjátegund, 2 stór, 3 ein-
kenni, 4 vers, 5 kjáni, 6
lofar, 10 óleikur, 12 nes-
oddar, 13 stefna, 15 fjör-
mikil, 16 áin, 18 illvirki,
19 slétta, 20 nabbi, 21
duft.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 forkólfur, 8 labba, 9 kuggs, 10 góa, 11 riðla, 13
remba, 15 seggs, 18 snæða, 21 tók, 22 tafla, 23 eflir, 24
rumpulýðs.
Lóðrétt: 2 ofboð, 3 klaga, 4 lokar, 5 ungum, 6 klár, 7
Esja, 12 lag, 14 enn, 15 sótt, 16 giftu, 17 staup, 18 skell,
19 ætlað, 20 arra.
K r o s s g á t a
ÉG VIL koma á fram-
færi þakklæti mínu fyr-
ir skreytingakvöld sem
Blómaval hefur haldið
undanfarin ár. Voru
þeir með svona kvöld í
vikunni sem leið og
ríkti þar mikil stemmn-
ing og ánægja við-
staddra.
Á upphækkuðum
palli stóðu fjórir
skreytingarmeistarar
og sýndu þeir áhorf-
endum hvernig gera á
skreytingar, eins var
þar kynnir sem reytti
af sér brandara.
Ég hef mætt þarna
ár eftir ár og alltaf haft
jafn mikla ánægju af
þessum kvöldum.
Blómaval hefur boðið
upp á þetta án endur-
gjalds og í hléi er boðið
upp á kaffi og meðlæti.
Það er sama fólkið
sem kemur þarna ár
eftir ár og er þetta orð-
inn fastur liður í jóla-
haldinu hjá mörgum.
Ég hef aldrei séð
neitt á þetta minnst í
fjölmiðlum og vil ég
nota tækifærið hér og
þakka fyrir þetta fram-
tak sem er vel þegið.
Finnst þetta smart
hjá þeim í Blómavali.
Jólaunnandi.
Hinn rétti jólaandi
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Barbara og Florinda
koma á morgun. Selfoss
kemur á morgun til
Straumsvíkur.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
leikfimi og vinnustofa,
kl. 10 boccia, kl. 13
vinnustofa og bað, kl. 14
félagsvist.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handavinnu-
stofan, kl. 10.15 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13.30–
16.30 opin smíðastofan/
útskurður, kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 10 púttvöll-
urinn opinn, kl. 16
myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10 samveru-
stund, kl. 13.30–14.30
söngur við píanóið, kl.
13–16 bútasaumur.
Litlu jólin verða fimm-
tud. 6. des. Fagnaður-
inn hefst kl. 18. Salur-
inn opnaður kl. 17.30.
Skráning í s. 568-5052
fyrir 5. des. Allir vel-
komnir.
Eldri borgarar Kjalar-
nesi og Kjós. Félags-
starfið á Hlaðhömrum
er á þriðju- og fimmtu-
dögum kl. 13–16.30, spil
og föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 13.30. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í Mos-
fellsbæ á Hlaðhömrum,
fimmtudaga kl. 17–19.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Skrifstofan
Gullsmára 9 er opin á
morgun kl. 16.30–18, s.
554 1226.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 9 myndlist, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 versl-
unin opin, kl. 11.10 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska framhald.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Á
morgun kl. 9 böðun og
hárgreiðslustofan opin.
Félag eldri borgara
Garðabæ, Jólahlaðborð
verður í Kirkjuhvoli
föstud. 7. des. Húsið
opnað kl. 19. Allir vel-
komnir. Miðapantanir
og uppl. í s. 565-7826
eða 895-7826, Arndís og
á skrifstofu félagsins,
Kirkjuhvoli, s. 565-6627.
fyrir þriðjud. 27 nóv.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Fimmtud. 29.
nóv. Spilað í Holtsbúð
kl. 13.30. Föstud. 30.
nóv. Dansað í kjallaran-
um í Kirkjuhvoli kl. 11.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
morgun púttað í Bæj-
arútgerðinni kl. 10 og
félagsvist kl. 13.30. Á
þriðjud. tréútskurður í
Lækjarskóla kl. 13.
Saumar og brids í
Hraunseli kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Í dag sunnu-
dag. Félagsvist kl.
13.30. Dansleikur kl.
20, Caprí-tríó leikur
fyrir dansi. Á morgun
brids spilað kl. 13. Jóla-
fagnaður í Ásgarði,
Glæsibæ, miðvikudag-
inn 5. desember. Fagn-
aðurinn hefst kl. 20.
Hugvekju flytur sr.
Pétur Þorsteinsson,
söngur undir stjórn
Sigurbjargar Hólm-
grímsdóttur, ýmsir
skemmtikraftar, kaffi
og meðlæti, dansað á
eftir. Skrifstofa félags-
ins er flutt að Faxafeni
12, sama símanúmer og
áður. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar
á skrifstofu FEB. kl.
10–16 í síma 588-2111.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi. Á morg-
un kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, handavinna
og föndur, kl. 14 fé-
lagsvist.
Gerðuberg, félagsstarf.
Í dag myndlistasýning
Bryndísar Björnsdóttur
opin kl. 14–16 listamað-
urinn á staðnum. Á
morgun kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, súpa
og salatbar í hádeginu,
spilasalur opinn frá há-
degi, dansinn fellur nið-
ur. Upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun handavinnu-
stofan opin, kl. 9.30
gler- og postulínsmál-
un, kl 13 lomber, kl.
13.30 skák, kl. 20 skap-
andi skrif. Myndlistar-
sýning Seyðfirðinga-
félagsins stendur yfir í
Gjábakka á opnunar-
tíma kl. 9–17 til 30. nóv.
Gullsmári, Gullsmára
13. Á morgun kl. 9
vefnaður, kl. 9.05 leik-
fimi, kl. 13, brids, kl. 11
myndmennt, kl. 12
myndlist, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Hraunbær 105. Á
morgun kl. 9 perlu-
saumur, postulínsmálun
og kortagerð, kl. 10
bænastund. Föstud. 7.
des. jólahlaðborð, heið-
ursgestur, hugvekja,
söngur. Allir velkomn-
ir, uppl. í s. 587-2888.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 föndur, kl.
10 boccia, kl. 13 spilað
kl. 13.30 gönguferð.
Þriðjud. 27. nóv. verður
Félagsþjónustan í
Hvassaleiti 15 ára. Af
því tilefni verður morg-
unkaffi kl. 10. Kl. 17 til
19 verður opið hús,
með kaffiveitingum og
fáum við góðan gest í
heimsókn, Ágústu
Ágústdóttir söngkonu
og mun hún syngja
nokkur lög.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl.12
bókasafn.
Vesturgata 7. Á morg-
un kl. 9.15 handavinna,
kl. 10 boccia, kl. 13 kór-
æfing. Jólafagnaður
verður fimmtud. 6, des.
Húsið opnað kl, 17.30.
Allir velkomnir, uppl.
og skráning í s. 562-
7077.
Mánud. 26. nóv. verður
farið í Háskólabíó á ís-
lensku myndina Máva-
hlátur. Lagt af stað frá
Vesturgötu kl, 13.30
(Sýningin hefst kl. 14.)
Uppl.og skráning í síma
562-7077.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smíði, kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur,
morgunstund og sund,
kl. 13 handmennt, gler-
bræðsla, leikfimi og
spilað. Aðventu- og jóla-
fagnaður verður 6. des.
Jólahlaðborð, ýmislegt
til skemmtunar. Skrán-
ing í s. 561-0300.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12,45. Spil hefst kl.
13.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
Félag breiðfirskra
kvenna, jólafundurinn
verður sunnud. 2. des.
kl. 19. Jólamatur, jóla-
söngur, munið jólapakk-
ana. Skráning í s. 553-
2562, Ingibjörg, eða s.
568-1082, Svanhvít.
Kvenfélag Kópavogs,
vinnukvöld vegna bas-
ars mánudag kl. 20 í
Hamraborg 10.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar. Jólafundurinn
verður þiðjud. 4. des. kl.
20 í safnaðarheimilinu.
Tilkynna þarf þátttöku
sem fyrst í s. 553-6697,
Guðný, eða 588-8036,
Margrét. Munum jóla-
pakkana.
Kvenfélags Bústaða-
sóknar heldur jólafund í
safnaðarheimilinu
mánudaginn 10. desem-
ber kl. 19.30. Þátttaka
tilkynnist eigi síðar en
3. desember til Erlu
Levy, s. 897-5094, Guð-
ríðar, s. 561-5834 og El-
ínar, s. 553-2077.
ITC Harpa í Reykjavík,
deildarfundur í sal
Flugvirkjafélags Ís-
lands, Borgartúni 22,
þriðjudaginn 27. nóvem-
ber næstkomandi kl.
20–22.
Þjálfun í þína þágu. All-
ir velkomnir. Upplýs-
ingar gefur Lilja í s.
581-3737. Tölvupóstfang
ITC Hörpu er
itcharpa@hotmail.com
og heimasíðan er
http://www.life.is/itc-
harpa
Hríseyingafélagið.
Jólabingó verður í dag
sunndaginn 25. nóvem-
ber kl. 14. í Skipholti
70, 2. hæð. Allir vel-
komnir.
Í dag er sunnudagur 25. nóvember,
329. dagur ársins 2001. Katrínar-
messa. Orð dagsins: Ofmetnaður
hjartans er undanfari falls, en auð-
mýkt er undanfari virðingar.
(Orðskv. 18, 12.)