Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Flugeldagerð á Íslandi Er dauðhrædd- ur við flugelda NÚ LÍÐUR að ára-mótum og hvernigsem viðrar, verð- ur himinninn yfir þétt- býliskjörnum landsins upptendraður af flugelda- skothríð sem vart á sinn líka um víða veröld. Landsmenn eyða ótöldum milljónum í flugelda og sjálfsagt brenna Íslend- ingar aldrei meira af pen- ingum á stuttum tíma en einmitt á gamlárskvöldi og kalla þeir þó ekki allt ömmu sína í þeim efnum. Á Íslandi er starfandi ein fjölskylda „fýrverka“, eða flugeldasmiða. Fyrir henni fer Þórarinn Símonarson sem rekur Flugeldaiðjuna í Garðabæ ásamt syni sín- um Baldvin. – Hvað hefurðu verið lengi í flugeldagerð, Þórarinn? „Ég er búinn að vera meira og minna í púðri síðan 1938, en þá fórum við Jónas Bjarnason að framleiða púðurkerlingar og kín- verja eftir að Jónas hnaut um púðuruppskrift í einhverri bók. Kínverjar voru nú alveg nóg í þá daga, en þeir voru síðan bannaðir árið 1948.“ – En hvar lærðir þú flugelda- smíði? „Fyrir tilstilli tveggja móður- systra í Danmörku og fleira góðs fólks, komst ég að til að læra við Tívolíverksmiðjurnar í Dan- mörku. Það var snemma vors 1958 og ég var þar fram á sumar. Þar lærði ég að framleiða blys og flugelda, lauk prófi hjá þeim og er með það uppáskrifað. Ég er lærð- ur „fýrverker“. – Ertu með einhverja sérgrein í flugeldasmíði? „Nei, það eru ekki sérgreinar í þessu. Ég er bara alhliða flug- eldasmiður. En þó maður sé ekki með sérgrein þá þarf maður að til- einka sér allar nýjungar, þannig gæti svo farið að ég færi utan á næstunni til að kynna mér nýj- ustu bombuna hjá þeim í Dan- mörku. Hún heitir bara luftbomb og er mikil bomba. Ég fer alltaf utan öðru hvoru, það er mikið samband milli fjölskyldnanna okkar annars vegar og þeirra hjá Tívolí. Góður vinskapur.“ – Það hefur væntanlega mikið breyst í flugeldagerð á öllum þessum árum eða hvað? „Ákveðin grundvallaratriði breytast lítið eða ekki en það er oft bryddað upp á nýjungum. Hins vegar hefur sölukerfið sjálft breyst mikið frá því sem var. Einu sinni voru heildsalar og smásalar og afgreiðslustaðir voru jafnvel bara sjoppur. Heildsalinn tapaði oft mikið á viðskiptunum. Nú eru þetta félög og sambönd sem fjár- magna starfsemi sína og hef ég einkum haft gaman af því að vinna fyrir björgunarsveitirnar. Þær eru langstærsti kaupandinn hjá mér og hafa lengi verið. Samstarf- ið hefur verið svo mikið og náið svo lengi að mér finnst ég eiga pínulítið í því mikla og góða starfi sem félögin vinna.“ – Er þetta ekki stór- hættulegt starf? „Ef farið er eftir settum reglum og ekki flanað að hlutunum þá þurfa ekki að verða óhöpp. Þegar slys eiga sér stað við flugeldagerð þá er það ævinlega hjá þeim sem hafa farið geyst og ætlað að gera mikið á stuttum tíma. Eitt slys sem varð í Bandaríkjunum varð rétt fyrir þjóðhátíðardaginn þeirra, 4. júlí, og verksmiðjan átti mikið eftir að framleiða á stuttum tíma. Það var einu sinni spreng- ing hjá Lars vini mínum í Dan- mörku. Það gerðist eldsnemma að morgni. Tilfellið er, að slysin verða helst milli 8 og 10 á morgn- ana, þegar menn eru ekki al- mennilega vaknaðir. Þess vegna hef ég það fyrir reglu að byrja ekki að vinna fyrr en klukkan tíu á morgnana og vera þá frekar eitt- hvað lengur fram á daginn. Þann- ig er maður með höfuðið í lagi. Það hefur aldrei komið neitt fyrir hjá okkur.“ – Eru nágrannarnir í rónni? „Já, þeir eru í rónni. Við erum með þó nokkuð afgirt svæði og vinnum samkvæmt stífustu reglu- gerðum og skynsemi.“ – Hefurðu sjálfur gaman af því að skjóta upp flugeldum? „Nei, ég er dauðhræddur við flugelda og hef alltaf verið og ég held að það sé þess vegna sem þeir féllust á að kenna mér hjá Tívolíverksmiðjunum. Það var þannig að þegar ég kom fyrst til þeirra, þá stilltu þeir mér upp í návígi við skotsvæði flugeldasýn- ingar. Svo byrjuðu þessar líka djöfuls bombur og ég varð svo hræddur að ég hljóp í skjól. Þeir dönsku hlógu mikið að þessu, en sögðu sem svo, að sá sem væri svona hræddur við flugelda væri ólíklegur til að vera með flumbru- gang og óaðgæslu við gerð þeirra.“ – En hvernig er að sjá ársverk- ið brenna upp, bókstaflega á nokkrum mínútum á hverjum áramótum? „Sannleikurinn er sá, að það er sérkenni- leg upplifun. Ég er í rótaríklúbbi í Garða- bænum og hélt einu sinni ræðu um flug- eldagerð. Þar vakti það mikla kát- ína þegar ég setti dæmið þannig upp að ég væri allt árið að fram- leiða flugeldana, heildsalarnir væru síðan tvo mánuði að koma þessu út og suður, kaupmennirnir væru síðan eina viku að selja vör- una, en almenningur væri síðan kortér að fýra öllu saman á loft og brenna því! En það er þess virði, því málefnið er gott.“ Þórarinn Símonarson  Þórarinn Símonarson er fædd- ur í Hafnarfirði 23. desember 1923 og varð því 78 ára síðast liðna Þorláksmessu. Eins og fram kemur í viðtalinu nam hann flugeldagerð hjá Tívolíverk- smiðjunum í Danmörku árið 1958. Eiginkona hans er Ingunn Ingvadóttir frá Hliðsnesi og börn þeirra tvö eru Bryndís, sem er handavinnukennari í Garðabæ, og Baldvin, sem sjálfur er orðinn útskrifaður flugeldasmiður og starfar með föður sínum. …ég myndi ekki gera neina vitleysu BJARNI Björnsson, fyrrverandi forstjóri, lést í Reykjavík 23. des- ember síðastliðinn, 81 árs að aldri. Foreldrar hans voru Björn Sveinsson og Ólafía Bjarnadóttir. Bjarni var atkvæða- mikill í íslensku at- vinnulífi í áratugi. Hann átti og rak fata- verksmiðjuna Dúk hf. frá miðjum sjötta ára- tug síðustu aldar. Hann sat í stjórn Fé- lags íslenskra iðnrek- enda, lengst af sem varaformaður, og var fyrsti formaður Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins, forvera nú- verandi Útflutnings- ráðs. Bjarni var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyr- ir störf sín í þágu ís- lensks iðnaðar. Þá gegndi Bjarni ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Bjarni kvæntist árið 1943 Kristjönu Brynj- ólfsdóttir, sem lést árið 2000. Þau eignuðust fjóra syni. Andlát BJARNI BJÖRNSSON HLUTFALL kvenna í undanfara- flokki Hjálparsveitar skáta í Reykjavík hefur aukist umtalsvert frá því fyrsta konan var tekin inni í flokkinn fyrir fáeinum árum og eru þær nú orðnar fjórar á móti átta körlum. Að auki er sú fimmta í þjálfun og er búist við henni í flokk- inn á næsta ári. Konur eru komnar í undanfaraflokka nokkurra hjálp- arsveita á landinu, en hvergi er hlutfall þeirra jafnhátt og í HSSR. Undanfara mætti kalla þá hjálp- arsveitamenn sem eru sérþjálfaðir til að mæta mestu kröfum, sem gerðar eru til björgunarfólks, með því að þeim er falið að fara fyrstir til leitar að týndu fólki, og/eða slös- uðu og sinna alvarlegustu útköll- unum. Það eru því undanfararnir sem verða að vera undir það búnir að mæta aðstæðum á vettvangi fjallaslysa sem venjulegum manni væri ofviða að takast á við. Þá eru ónefndar kröfur um líkamlega getu til að ferðast fótgangandi um hættuleg landsvæði og margt fleira. Að sögn Brynju Bjarkar Magn- úsdóttur, eins undanfara í HSSR, reyndist þetta karlavígi fremur auðunnið, og í ljós kom að það voru ekki alvarlegar hindranir í veg- inum fyrir því að konur yrðu und- anfarar. Það er á henni að skilja að það hafi verið á valdi kvennanna sjálfra að ákveða hvenær tími þeirra rynni upp sem undanfarar, auk þess sem líklega er um að ræða sjálfsagðan fylgifisk aukinnar þátt- töku kvenna í björgunarsveitum al- mennt. Áralöng reynsla í HSSR „Það kemur fyrir að nýliðum í hjálparsveitinni þyki undarlegt að konur séu að kenna t.d. ísklifur og meðferð ísaxa, en það heyrir til undantekninga,“ segir Brynja. „Sú staðreynd að konur eru komnar í hóp undanfara hefur ekki leitt af sér nein vandræði. Við höf- um allar verið starfandi í 7–8 ár í HSSR og staða okkar í undan- faraflokknum er eðlileg afleiðing þess, auk mikils áhuga á fjalla- mennsku og starfseminni almennt. Við höfum ekki þurft að yfirstíga neina þröskulda á leið okkur inn í undanfaraflokkinn af þeirri ástæðu einni að við erum konur. Það er bara lítil hefð fyrir þátttöku kvenna í undanfaraflokkum, en hún er hins vegar að skapast um þessar mundir, bæði í okkar sveit og annars staðar.“ Undanfari þarf að geta mætt í út- kall á um 20 mínútum, hvenær sem er sólarhringsins. Allur búnaður hvers undanfara er geymdur í húsakynnum hjálparsveitarinnar, tilbúinn til notkunar, enda er gerð sú krafa að undanfari geti brugðist við útkallsbeiðni tafarlaust án þess að koma við heima hjá sér og útbúa sig. Brynja segir að lokum að sér- stakar ráðstafanir séu gerðar hjá hjálparsveitum til að passa upp á andlega velferð björgunarfólks sem fer í erfið útköll. „Innan björg- unarsveitanna eru starfandi áfalla- hjálparhópar og við höfum fengið þá til að undirbúa okkur fyrir að mæta hinu versta, en björgunarfólk gerir sér samt almennt grein fyrir því hvað við er að eiga. Tilfellin sem þarf að sinna geta verið mjög alvarleg og í því tilliti þarf að gæta að aldri björgunarfólks. Til dæmis var enginn undir 25 ára aldri send- ur í Súðavíkurslysið 1995, hvort sem hann var undanfari eður ei, þannig að það er að mörgu að hyggja í þessum efnum.“ Fara fyrstar í öll alvarlegustu útköllin Morgunblaðið/Árni Sæberg Undanfararnir, frá vinstri talið: Brynja Björk Magnúsdóttir, Helga Björk Möller, Magnea Magnúsdóttir og Hildur Nílsen. NÚ ER unnið dag og nótt við að ljúk byggingu Íslenskrar erfða- greiningar í Vatnsmýrinni í Reykjavík, að sögn Hjörleifs Stef- ánssonar hjá Íslenskri erfðagrein- ingu, en gert er ráð fyrir því að húsnæðið verði formlega afhent fyrirtækinu fyrstu vikuna í janúar. Áætlanir varðandi bygginguna hafa staðist í öllum aðalatriðum en framkvæmdir hófust fyrir um ári. Byggingin stendur sunnan við nýtt Náttúrufræðihús Háskóla Íslands og er um 15.000 fermetrar að stærð. Áætlaður heildarkostnaður við verkið er um 2 milljarðar króna. Morgunblaðið/Golli ÍE í nýtt húsnæði Sigmund í fríi SIGMUND Jóhannsson verður í fríi í dag og á morgun. Næsta teikning hans verður í blaðinu sunnudaginn 30. desember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.