Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 22
ERLENT
22 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRAMÓTA
TILBOÐ
AFSLÁTTUR
AF
KÁPUM
MADE IN ITALY
S M Á R A L I N D
86
6
/
TA
K
T
ÍK
SÁDÍ-Arabinn Osama bin Laden
sneri aftur í sviðsljósið í gær en þá
sýndi sjónvarpsstöðin Al-Jazeera í
Katar nýtt myndband með bin Lad-
en. Hafði það í för með sér miklar get-
gátur um hvort bin Laden sé lífs eða
liðinn en á myndbandinu, sem talið er
að minnsta kosti tveggja vikna gam-
alt, er bin Laden nokkuð tekinn í and-
liti, grár og gugginn.
Fulltrúar bráðabirgðastjórnarinn-
ar í Afganistan, sem tók við völdum
22. desember sl., fordæmdu í gær þau
ummæli sem bin Laden lætur falla í
myndbandinu en þar segir hann að
loftárásir Bandaríkjamanna á Afgan-
istan staðfesti illan vilja þeirra í garð
íslamstrúar, og að hernaðaraðgerð-
irnar teljist árás gegn íslam.
„Hryðjuverk okkar gegn Bandaríkj-
unum ber að halda í heiðri því þau
voru andsvar við miklu óréttlæti,“
segir bin Laden í myndbandinu.
„Markmið þeirra var að neyða
Bandaríkin til að binda enda á stuðn-
ing sinn við Ísraelsríki, sem stundar
fjöldamorð á okkar fólki.“
Myndbandið með bin Laden er 33
mínútur í heild sinni og sýndi Al-Jaz-
eera það í gærkvöldi. Áður hafði stöð-
in gefið forsmekkinn er hún sýndi um
fimm mínútna brot úr því. Forráða-
menn stöðvarinnar sögðu að mynd-
bandið hefði borist „fyrir nokkrum
dögum“ frá óþekktum aðila í Pakist-
an. Sögðu þeir myndbandið hafa ver-
ið tekið upp á afar gamla kvikmynda-
tökuvél sem hefði valdið því að það
tók þá nokkurn tíma að koma því í
birtingarhæft form.
Þerrar í sífellu varirnar
Í myndbandinu er bin Laden grár
og gugginn, með bauga undir augum.
Sögðu bandarískir erindrekar að yf-
irbragðið væri allt annað en á mynd-
bandi af bin Laden sem sýnt var 7.
október og öðru, sem gert var opin-
bert um mánuði síðar. Sádí-Arabinn
virtist svefnvana og veiklulegur. Enn
fremur bentu sumir á að hann hreyfði
einungis hægri handlegg sinn í því
myndbroti, sem Al-Jazeera upphaf-
lega gerði opinbert, en það gæfi til
kynna að hann væri e.t.v. særður á
þeim vinstri.
Bin Laden er sem fyrr klæddur
grænbrúnum hermannajakka og með
Kalashnikov-riffil við hlið sér. Hann
þerrar í sífellu varir sínar, milli þess
sem hann mælir til myndatöku-
mannsins, sem fréttaskýrendum þyk-
ir benda til að myndbandið hafi verið
tekið upp einhvern tíma í ramadan-
mánuði, heilögum föstumánuði músl-
ima, en honum lauk 15. desember sl.
Fulltrúar Al-Jazeera segja mynd-
bandið sýna að bin Laden hafi verið á
lífi fyrir u.þ.b. tveimur vikum en flest-
ir fréttaskýrendur telja þó að mynd-
bandið sé eldra en það. Þykir líklegt
að það hafi verið tekið upp öðru hvor-
um megin við 7. desember, tveimur
mánuðum eftir að Bandaríkin hófu
hernaðaraðgerðir sínar í Afganistan.
Arabablaðið Asharq al-Awsat bendir
t.a.m. á að fram komi í máli bin Lad-
ens að hann sé að tala „þremur mán-
uðum eftir hinar guðdómlegu árásir
gegn heimsins heiðingjum og leiðtog-
um þeirra, Bandaríkjunum, og um
tveimur mánuðum eftir að hinar hat-
römmu árásir voru hafnar gegn ísl-
am.“
Bin Laden lætur þess einnig getið
að „fyrir nokkrum dögum“ hafi
Bandaríkjamenn varpað sprengjum á
vígstöðvar al-Qaeda skæruliðanna í
Khost í Austur-Afganistan og m.a.
hafi ein þeirra lent á mosku, þar sem
múslimar sátu við bænir.
Er hér væntanlega átt við atburð
sem Bandaríkjamenn greindu frá 16.
nóvember sl. en ein af sprengjum
þeirra hafði þá geigað á því svæði sem
bin Laden ræðir um. Eyðilagði hún
mosku í stað þess að falla á vel valin
skotmörk í Khost.
Asharq al-Awsat komst að öllu
þessu sögðu að þeirri niðurstöðu að
myndbandið með bin Laden hlyti að
hafa verið tekið upp einhvern tíma á
bilinu 30. nóvember til 15. desember.
Dáinn úr lungnasjúkdómi?
Sé það rétt að myndbandið með bin
Laden sé frá 7. desember eða þar um
bil, staðfestir það að bin Laden hafi
verið á lífi þegar leiðtogar talibana,
sem héldu hlífiskildi yfir bin Laden í
Afganistan, flúðu sitt helsta vígi í
Kandahar og um það leyti sem
Bandaríkjamenn hófu harðar árásir á
Tora Bora-svæðið í Austur-Afganist-
an þar sem talið er að bin Laden hafi
leynst.
Lítið hefur spurst til bin Ladens
frá því um miðjan desember og fer sú
staðreynd ágætlega saman við þá
kenningu að myndbandið sé frá því
snemma í mánuðinum. Eftir þennan
tíma hafi bin Laden annaðhvort látist
eða horfið í felur.
Hafa reyndar verið á lofti ýmsar
kenningar um afdrif hans undanfarn-
ar tvær vikur. M.a. segja sumir lík-
legt að bin Laden hafi fallið í árásum
Bandaríkjamanna á Tora Bora-hell-
ana, annaðhvort í árásunum sjálfum
eða þá úr lungnasjúkdómi sem sagt
er að hann hafi sýkst af. Var hið síð-
arnefnda haft eftir einum liðsmanna
al-Qaeda sem nú situr í fangelsi í Pak-
istan.
Aðrir segja að bin Laden hafi
sloppið til Pakistans og leynist þar
nú. Enn aðrir segja bin Laden í fullu
fjöri og á ferli í Afganistan.
Gefa lítið fyrir ummæli
bin Ladens
Á myndbandinu segir bin Laden að
Bandaríkjamenn hafi með loftárásum
sínum sýnt, eins og vænta hefði mátt,
ótrúlega grimmd gegn múslimum.
Bandaríkin hefðu „þurrkað út“ heilu
þorpin án þess að hugsa sig tvisvar
um og neytt „milljónir“ til að flýja
Afganistan í miklum frosthörkum til
þess eins að „búa í tjöldum í Pakist-
an“.
„Bandarísk stjórnvöld líta svo á að
það sé réttur þeirra að eyða fólki af
yfirborði jarðar svo lengi sem það
fylgir íslam og er ekki af bandarísku
bergi brotið,“ segir bin Laden.
Bandarískir stjórnarerindrekar
gerðu hins vegar lítið úr ummælum
bin Ladens í gær og sögðu þau í stíl
við annað sem frá honum hefði komið.
Myndbandið væri fánýtt að öðru leyti
en því að það gæfi til kynna að bin
Laden hefði enn verið á lífi fyrir
nokkrum vikum.
Nýtt myndband af Osama bin Laden sýnt í heild sinni á arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera
Grár og gugg-
inn en á lífi
fyrir 3 vikum
AP
Osama bin Laden í myndbandinu sem sjónvarpsstöðin Al-Jazeera birti í heild sinni í gær.
Dubai, Washington. AFP, The Washington Post.