Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 59
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 59 Faxafeni 14 568 9915 www.hreyfing.is Þuríður Aradóttir, 38 ára, læknaritari „Ég fór á námskeið í september og hef æft upp á eigin spýtur eftir að því lauk. Búin að léttast um 8 kíló. Námskeiðið hjálpaði mér að gera þjálfunina að föstum þætti í mínu lífi.“ Steinunn Lilja Gísladóttir, 22 ára, nemi „Ég er búin að fara á tvö námskeið og hef lést um 14 kíló. Aðhaldið á námskeiðunum er frábært, akkúrat það sem ég þurfti til að koma mér af stað aftur eftir meðgönguna.“ Emilía Fannbergsdóttir, 46 ára, húsmóðir „Ég fór á tvö námskeið í röð í haust og vetur og ætla að halda áfram á námskeiði eftir áramót. Ég hef náð markmiði mínu að styrkjast og bæta líðan. Einnig hafa sentimetrarnir fokið, mittismálið er 14 sm minna! Mér finnst frábært að vera hluti af hóp sem stefnir að svipuðum markmiðum.“ 8-vikna námskeiðin okkar eru löngu búin að sanna ágæti sitt. Stöðugt bætist í þann hóp kvenna sem náð hafa markmiðum sínum og bætt eigið líf með reglubundinni hreyfingu. Nú er komið að þér! Næstu námskeið hefjast 7. janúar og skráning er í síma 568-9915. Námskeið fyrir vinnu Stórglæsileg næringarfræðibók Ólafs Sæmundssonar næringarfræðings er innifalin í öllum byrjendanámskeiðum Verðmæti bókarinnar er 3.900 kr. NÝTT NÝTT Námskeið í stöðugri þróun Þrefaldur árangur nú er komið að þér! RÖSKVA hefur lagt mikla áherslu á húsnæðismál stúdenta og baráttuna fyrir stúdentavænna hús- næðiskerfi. Erfitt ástand á leigu- markaði hefur komið illa niður á stúdentum og húsaleigubótakerfið hefur ekki veitt þeim nægilegan stuðning. Þrátt fyrir kröftuga upp- byggingu Stúdentagarða á undan- förnum árum anna þeir engan veg- inn vaxandi eftirspurn nemenda eftir ódýru leiguhúsnæði. Kröfur Röskvu hafa verið skýrar og á að- eins einu ári höfum við náð miklum árangri í húsnæðismálum stúdenta með markvissri baráttu. Fleiri fá húsaleigubætur Röskva háði öfluga baráttu fyrir því að námsmenn sem leigja her- bergi hlytu rétt til húsaleigubóta. Sífellt fleiri námsmenn leigja stök herbergi enda er mikill skortur á leiguhúsnæði og leiguverð hátt. Eft- ir mikinn þrýsting á félagsmálaráð- herra fékkst það í gegn í vor að stúdentar sem leigja einstaklings- íbúðir á stúdentagörðum fá rétt til húsaleigubóta. Það var mjög mik- ilvægur áfangasigur og veitti stórum hópi stúdenta aukinn stuðn- ing. Breytingin er mikilvæg fyrir stúdenta enda eru þeir um fjórðung- ur þeirra sem fá húsaleigubætur. Skattfrjálsar húsaleigubætur Röskva hefur ítrekað bent á ósanngirni þess að leigjendur borga skatt af húsaleigubótum á meðan húseigendur hljóta skattfrjálsar vaxtabætur. Sýnt þykir að þeir sem búa í leiguhúsnæði eru yfirleitt tekjuminni og hafa því ekki efni á að kaupa eigið húsnæði. Forystumenn Stúdentaráðs hafa margsinnis fundað með ráðherrum félagsmála og fjármála til að krefjast afnáms skattlagningar og síðast var fundað með ráðherra í lok ágúst. Ríkisstjórnin kynnti nýverið viða- miklar breytingar í skattamálum. Þar er meðal annars gert ráð fyrir að húsaleigubætur verði skattfrjáls- ar frá og með næstu áramótum. Skatturinn hefur verið um 40% þannig að þetta er í raun ígildi mik- illa hækkana á húsaleigubótum. Skattfrjálsar húsaleigubætur koma sér vel fyrir stóran hluta stúdenta þar sem meirihluti þeirra er í leigu- húsnæði. Afnám skattlagningar húsaleigubóta kemur einnig í veg fyrir að húsaleigubætur skerði námslán og kemur því til með að hækka námslán margra stúdenta. Nýr stúdentagarður með kjörbúð Félagsstofnun stúdenta fékk í lok ágúst byggingaleyfi fyrir byggingu langstærsta stúdentagarðsins til þessa. Í húsinu verða 124 einstak- lingsíbúðir auk kjörbúðar sem lengi hefur verið beðið eftir. Garðsbúar þurfa nú að leita langt út fyrir há- skólasvæðið til að sækja sér nauð- synjar og því er kjörbúðin kærkom- in. Byggingin mun rísa hratt þar sem næsta haust mun helmingur íbúðanna verða tekinn í notkun. Þetta er mikið kappsmál fyrir stúd- enta þar sem mikil aðsókn hefur verið í íbúðir á stúdentagörðum. Svo mikil að nú í haust fengu aðeins 40% þeirra sem sóttu um vist á stúdenta- görðum FS. Þrátt fyrir mikla og góða uppbyggingu stúdentagarð- anna hefur hún engan veginn annað eftirspurn og kemur þar inn í sú mikla vöntun á góðu og ódýru leiguhúsnæði sem hrjáð hefur íbúa höfuðborgarsvæðisins. Tölurnar sýna að áfanginn er stór þar sem íbúðum í stúdentagarðahverfinu mun fjölga úr 511 í 635. Stúdentagarðar hafa gríðarlegt félagslegt gildi þar sem ljóst er að þeir gera mörgum kleift að stunda nám við Háskóla Íslands, nám sem þeir hefðu annars ekki möguleika á að stunda. Röskva hefur því ávallt lagt mikla áherslu á kröft- uga uppbyggingu stúd- entagarðahverfisins og hefur mikill árangur náðst undanfarin ár. Nýja húsið verður byggt á síðustu lóðinni sem FS hefur til ráðstöfunar og hef- ur Röskva lagt mikla áherslu á að FS fái fleiri lóðir til að uppbygging stúdentagarðahverfis- ins geti haldið áfram. Röskva krefst einnig að stjórnvöld veiti FS byggingastyrki til að koma til móts við auk- inn byggingakostnað eftir að ríkið ákvað að hækka vexti á bygg- ingalánum úr einu pró- senti í fjögur. Þessar vaxtahækkanir stjórn- valda setja FS í mikinn vanda og gera áfram- haldandi uppbyggingu erfiðari. Stúdentavænna húsnæðiskerfi Við í Röskvu höfum lagt mikla áherslu á aðgerðir til að bregðast við húsnæðisvanda stúdenta. Á allra síðustu mánuðum hefur tekist að ná fram mikilvægum úrbótum á húsa- leigubótakerfinu þannig að það veitir stúdentum mun meiri stuðning en áður. Afnám skatt- lagningar húsaleigubóta er einn stærsti sigurinn í húsnæðismálum stúdenta í mörg ár. Kröftug uppbygging stúdentagarða mun sömuleiðis koma stórum hópi stúd- enta til góða en mikilvægt er að tryggja að FS geti haldið áfram á sömu braut. Það er eindregin von Röskvu að FS verði með bygginga- styrkjum gert mögulegt að halda áfram markvissri uppbyggingu Stúdentagarða. Röskva skilar árangri í hús- næðismálum Olav Veigar Davíðsson HÍ Afnám skattlagningar húsaleigubóta, segir Olav Veigar Davíðsson, er einn stærsti sigurinn í húsnæðismálum stúd- enta í mörg ár. Höfundur situr í Stúdentaráði fyrir hönd Röskvu og er formaður hags- munanefndar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.