Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 46
MINNINGAR 46 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ N útíminn er málið. Það sem er nútíma- legt er gott og það sem er gamaldags er slæmt, um það þarf enginn að efast. Ja, að minnsta kosti ef marka má al- mennar umræður, því þar nægir oft að færa þau rök fyrir máli sínu að þau sjónarmið sem fram eru færð séu nútímaleg. Og ef gagn- rýna þarf sjónarmið annarra er að sama skapi nóg að benda á að þau séu gamaldags. Þannig er sett jafnaðarmerki á milli þess sem er gamaldags og þess sem er úrelt. Segja má að með slíkri hugsun séu menn nánast að hafna því að nokk- urt gagn sé í því sem ekki var fundið upp í dag og jafnvel að af sögunni sé meiri byrði en gagn- semi. Slík hugsun nær ef til vill frekar tökum á fólki um aldamót, að ekki sé talað um ár- þúsundamót, og þess vegna var það líklega sem fjölmargir sannfærðust um það um síð- ustu aldamót að fram undan væri „nýtt hagkerfi“ í krafti áður óþekktrar upplýsingabyltingar. „Gamla hagkerfið“ var úr sér gengið hró og til fárra hluta nyt- samlegt og menn fjárfestu sem mest þeir máttu í hinu nýja. Verð- mæti nútímalegu fyrirtækjanna rauk um tíma upp úr öllu valdi en hefur svo hrapað á ný og það hefur sýnt sig að gamla „úrelta“ hag- kerfið stenst hinu nýja snúning. Og þau af nútímalegu fyrirtækj- unum sem standa best eru einmitt þau sem tileinkuðu sér helst gömlu gildin. Þeir sem ekki álíta allt sem gerðist í fortíðinni marklaust og til trafala hefðu út af fyrir sig getað séð þetta fyrir, og sumir gerðu það reyndar. Segja má að þeir menn sem vöruðu sig hafi haldið í heiðri „gamaldags“ hugsun við verðmat fyrirtækja og haft í huga sögur af álíka sápukúlum úr fortíðinni. Þeir voru minnugir þess að nútímaæðið hafði áður gripið um sig á hluta- bréfamarkaðnum og menn höfðu áður ætlað að gera þar reyf- arakaup í rándýrum fyrirtækjum. Þeir sem ekki höfðu sérstakan áhuga á sögu hlutabréfamarkaðar- ins eða verðmati fyrirtækja hefðu út af fyrir sig líka átt að geta varað sig á þessu glænýja hagkerfi sem svo mjög var rætt um. Þeir sem veltu fyrir sér fyrri upplýs- ingabyltingum hlutu að efast um að upplýsingabylting dagsins í dag væri miklu merkilegri en fyrri byltingar af því tagi. Menn gátu til að mynda velt því fyrir sér hvort Netið og það sem því fylgir er merkilegri bylting en uppgötvun prentlistarinnar fyrir um hálfu ár- þúsundi. Með prentlistinni fóru menn að geta fjöldaframleitt rit- aðar upplýsingar og dreifa þeim miklu víðar en áður var mögulegt. Ritsímann má kalla aðra upplýs- ingabyltingu, en með honum gátu menn á augabragði sent upplýs- ingar um langa vegu. Meðal þess- ara upplýsinga var verð á vörum og verðbréfum á fjarlægum mörk- uðum og hin nýja upplýsinga- miðlun auðveldaði viðskipti. Þrátt fyrir að bæði prentlistin og ritsím- inn væru byltingarkenndar upp- finningar breyttu þær þó ekki gömlum lögmálum efnahagslífsins sem ævinlega hafa verið í gildi, svo sem að fyrirtæki verði að skila hagnaði og að króna í dag er meira virði en króna eftir ár. Þetta hefðu menn getað haft í huga, en auðvit- að verður að viðurkenna að bæði er auðvelt og áhættulítið að vera vitur eftir á. En nútímalega sápukúla upplýsingatækninnar, sem í fyrra sprakk með svo miklum hvelli, mætti þó vera áminning til manna um að ganga framvegis hægar um gleðinnar dyr í þessum efnum. Hér má taka eitt dæmi um það sem orðið hefur mikið áhugamál þeirra sem ekkert gamalt mega sjá án þess að vilja breyta því, og það er kosningakerfi landsmanna. Við kosningu til Alþingis og sveit- arstjórna er beitt gamaldags að- ferð sem reynst hefur ótrúlega vel. Þessi aðferð er býsna skilvirk, því hún gerir landsmönnum kleift bæði að kjósa og fá niðurstöður kosningarinnar á einum sólarhring eða svo. Engar umtalsverðar bið- raðir eru eftir því að fá að kjósa og engin bið sem heitið getur er eftir úrslitum. En það sem meira er um vert er að þessi gamla aðferð hefur verið algerlega yfir tortryggni haf- in. Menn hafa deilt hart um margt í stjórnmálum hér á landi, en ekki um það að einhver hafi haft rangt við í kosningu eða náð að svindla í henni. Ástæðan er einföld, nefni- lega það hve aðferðin er einföld. Hvert barn getur skilið hvernig kosningin gengur fyrir sig og hvernig atkvæði sem greitt er skil- ar sér rétta leið. Fjöldi manna kemur að eftirliti og talningu og til að tryggja að allt fari rétt fram er frambjóðendum einnig gert kleift að hafa fulltrúa sína til staðar til að fylgjast með framkvæmdinni. Allt er kerfið byggt upp með það fyrir augum að kjósendur hafi á því traust, enda er frumskilyrði að menn treysti niðurstöðu kosn- ingar. Ef rafrænt og „nútímalegt“ kosningakerfi yrði tekið upp í stað gamla kerfisins myndu fæstir skilja til hlítar hvernig atkvæða- greiðslan færi fram og allt eftirlit með því að rétt niðurstaða fengist yrði afar erfitt, ef ekki útilokað. Hugsanlegt er að sá tími komi að allir treysti tölvum jafnvel og mannfólki til að sjá um kosningar, en ólíklegt verður að teljast að sá tími sé kominn. Ekki þarf annað en minna á öryggisvandamál sem kom nýlega upp í glænýju kerfi hjá einu öflugasta tölvufyrirtæki ver- aldar, Microsoft, til að menn sjái hve erfitt er að tryggja algert ör- yggi tölvukerfa. Vissulega er oft freistandi að breyta öllu strax, því nýjungar eru alltaf spennandi. Menn verða þó að varast að hlaupa fram úr sjálfum sér í kapphlaupinu um að vera sem nútímalegastir. Nýju gildin og nýju aðferðirnar verður að vega og meta með tilliti til þeirra gömlu og tryggja verður að nýjungarnar hafi eitthvað umfram það sem eldra er. Vel má vera að nýjung- arnar séu raunverulegt framfara- skref og þá á vitaskuld ekki að hika við að taka þær upp. En þær geta líka verið sápukúlur sem byggjast á tómum misskilningi. Sé svo er betra að vera gamaldags aðeins lengur. Ótímabær „nútími“ Hugsanlegt er að sá tími komi að allir treysti tölvum jafnvel og mannfólki til að sjá um kosningar, en ólíklegt verður að teljast að sá tími sé kominn. VIÐHORF Eftir Harald Johannessen haraldurj @mbl.is ✝ Fríða Guðmunds-dóttir fæddist í Reykjavík 4. septem- ber 1967. Hún lést á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi 20. desember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar eru Lilja Viktors- dóttir, f. 23. maí, 1936, dáin 11. apríl, 1997, og Guðmundur Einarsson verkfræð- ingur, f. 22. ágúst, 1925. Systkini Fríðu, samfeðra, eru: Jón, f. 4. ágúst 1949; Einar, f. 28. febrúar 1953, maki Hulda Jó- hannesdóttir; Karólína, f. 28. jan- úar 1955, maki Guðmundur Elías Níelsson; Guðmundur, f. 28. janúar 1955, maki Ruth Sigurðardóttir og Guðlaug, f. 11. október 1956, maki Brynjólfur Sigurðsson. Fríða giftist 11. maí 1996 Sævari skyldu sinni til West-Hartford í Connecticut-fylki í Bandaríkjunum vorið 1997. Þar var hún í sérnámi í barnalækningum við University of Connecticut. Hún útskrifaðist vor- ið 2000 og seinna það sama ár stóðst hún bandaríska barna- læknaprófið með glæsibrag. Þá fluttust Fríða og Sævar til Rising Sun í Maryland-fylki og Fríða hóf framhaldsnám í gigtsjúkdómum barna við Children’s Hospital of Philadelphia í Fíladelfíu-borg í Pennsylvaníu-fylki. Þó Fríða hafi aðeins náð að stunda nám og starf í rúmlega sex mánuði við barnaspítalann í Fíla- delfíu, hefur stjórn spítalans ákveðið að stofna verðlaunasjóð, sem veitir árlega peningastyrki í nafni Fríðu, til unglækna sem þykja skara framúr. Í Rising Sun starfræktu Fríða og Sævar hesta- búgarð með íslenskum hestum og tóku þátt í fjölda sýninga og móta víðsvegar í Bandaríkjunum. Kynn- ing á íslenska hestinum erlendis var Fríðu hjartans mál. Útför Fríðu fer fram frá Hall- grímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Leifssyni húsasmíða- meistara, f. 15. mars 1963. Foreldrar hans eru Sigríður Guð- mundsdóttir, f. 27. febrúar 1929 og Leif- ur Kristleifsson, f. 9. nóvember 1926. Börn Fríðu og Sævars eru: Birta Rún, f. 11. febr- úar 1992, Viktor, f. 22. maí 1995 og Leifur, f. 30. október 1996. Fyr- ir átti Sævar dótturina Vöku Ýri, f. 24. febr- úar 1982. Fríða ólst upp í for- eldrahúsum á Gimli í Garðabæ, lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum í Reykjavík 1987 og prófi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1993 með fyrstu einkunn. Eftir útskrift vann Fríða sem aðstoðar- og deildarlæknir á Landspítalan- um þar til hún fluttist ásamt fjöl- Elsku Fríða mín. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Þú ert fyrirmynd mín í einu og öllu. Það var sama hvað þú tókst þér fyrir hendur, þú gast alltaf fundið lausn á öllu. Það var sama í hverju þú varst, þú leist alltaf svo vel út. Þú varst svo dugleg og full af orku. Ég hef alltaf litið upp til þín en samt fundist þú vera jafningi minn. Alltaf leið mér vel í návist þinni. Ég er viss um að þér hefur verið ætlað æðra verkefni því yndislegri manneskju en þig er varla hægt að finna. Vonandi líður þér vel á nýja staðnum og ég óska þess að við hitt- umst á ný þegar minn tími er kominn. Vaka Sævarsdóttir. Drottinn gaf og Drottinn tók. Hann gaf okkur systkinunum yndislega gjöf þegar Fríða litla systir okkar bættist í hópinn og hann tók svo mikið þegar hún féll frá langt um aldur fram. Fríða greindist með illkynja heila- æxli í janúar á þessu ári og 11 mán- uðum síðar er hún öll. Fríða bjó þá ásamt fjölskyldu sinni í Bandaríkjun- um og var í framhaldsnámi í barna- lækningum, en stuttu áður hafði hún staðist próf sem sérfræðingur í þeirri grein. Fríða fór strax í aðgerð í janúar sem gekk vel en síðan komu áföllin þegar leið á sumarið og í ágúst fór hún í seinni aðgerðina sem reyndist henni mjög erfið. Eftir sex vikna erf- iða legu náðist að flytja hana fársjúka heim til Íslands. Það var mikil gleði að hún næði að koma heim en jafnframt mikil sorg sem tók við þegar ljóst var hvert stefndi. Heima beið fjölskyldunnar yndis- legt heimili sem hún hafðí tekið fullan þátt í að undirbúa, Fríða náði að fara heim tvo dagsparta og það var henni mikilvægt að sjá hvernig var búið að börnum hennar og eiginmanni. Það var erfitt en samt erum við þakklát fyrir að hún náði þessum áfanga. Ýr, vinkona Fríðu, studdi hana í gegnum erfiða tíma í Bandaríkjunum, sá um að flytja hana til landsins og kom hún sérstaklega yfir helgi til að aðstoða við að flytja Fríðu á heimili sitt. Það var yndislegt að kynnast slíkri ein- stakri vináttu sem þær vinkonurnar áttu. En það sem einkenndi Fríðu ekki hvað síst var hvað hún var góður vinur og hve vel hún ræktaði alla vini sína og fjölskyldu. Það hefur oft runnið í gegnum huga okkar undanfarna mánuði hvað þetta líf getur verið óréttlátt, en hver lofaði okkur réttlæti? Þannig horfir það við okkur á þessari sorgarstundu. Við munum aldrei skilja tilgang þess að Fríða er tekin burt frá eiginmanni og þremur litlum börnum, sem voru henni allt. Það var sérstakt hve mikla áherslu Fríða lagði á að vera öllum stundum með börnum sínum, en hún vildi hafa þau með í öllu sem hún tók sér fyrir hendur og tíma varið án þeirra var sóað. Eftir að veikindi hennar komu upp skipti ekkert annað máli en að vera með þeim og Sævari. Erfitt er að skrifa um Fríðu án þess að það hljómi sem oflof, hún var fal- leg, góð, greind, já, hún hafði allt til brunns að bera og lífið blasti við henni, hún var að ljúka við erfitt nám og var komin í undirsérgrein í gigt- lækningum barna en enginn slíkur sérfræðingur starfar hér á landi og beið hennar því ærið starf. Alltaf var gaman að vera í návist Fríðu, hún var svo orkumikil að ekk- ert var henni ómögulegt. Það var al- veg sama hvað hún var beðin um, svarið var alltaf „já ekkert mál“, eða hvað hún ætlaði sér, hún áorkaði því öllu, sannkallaður dugnaðarforkur. Hún var einstaklega afkastamikil og skipulögð og við undruðumst oft hvað hún gat gert marga hluti í einu eins og þegar hún var í læknadeildinni, þá lá hún kannski uppi í sófa og las skóla- bækur með útvarpið og sjónvarpið á fullu, þessi óbilandi orka og hæfileiki sem hún bjó yfir nýttist henni mjög vel í námi og starfi og það var eins og maður fylltist af orku og krafti við að vera í návist hennar. Hún hafði rólegt fas, var frekar hlédræg og hógvær, hafði ekki mörg orð um hlutina og illt umtal var henni ekki að skapi. Einnig var ótrúlega gaman að fara með Fríðu í verslunarferðir, hún fann alltaf eitt- hvað ódýrt og sniðugt og nutum við systurnar og ýmsir aðrir góðs af því. Það var mikil tilhlökkun hjá okkur að fá hana heim til Íslands en því miður varð heimkoma hennar á annan veg en vonir stóðu til. Fríða var sólargeisli foreldra sinna og eina barn móður sinnar, Lilju, en hún lést fyrir fjórum árum. Fríða erfði bestu eiginleika foreldra sinna og í okkar huga var hún ímynd heil- brigðis og hreysti. Nú þarf aldraður faðir okkar að sjá á eftir elskaðri dótt- ur sinni, sem er honum þungbært. Sorg Sævars og barnanna er mikil en það er erfiðara en orð fá lýst að kveðja móður sína tveimur dögum fyrir jól, hátíð ljóss og tilhlökkunar. Við biðjum góðan Guð að styrkja Sævar, Birtu Rún, Viktor og Leif til að lifa með sorg sinni. Einnig viljum við þakka Sævari fyrir hve hann stóð eins og klettur við hlið Fríðu frá fyrsta degi veikinda hennar og vék ekki frá henni þar til yfir lauk. Minningarnar um yndislega systur og vinkonu munu hjálpa okkur að takast á við sorgina. Við kveðjum Fríðu hinstu kveðju með þakklæti og virðingu. Guðlaug og Karólína. Ég trúi því að öll verk drottins séu fullkomin, öll hafi þau sinn tilgang og boðskap fyrir okkur mennina til að draga lærdóm af. Ég trúi því einnig að við sjálf séum ekki aðeins þolendur í atburðarás lífsins, heldur einnig áhrifavaldar á okkar eigin líf með hugsunum og athöfnum okkar. En svo gerast allt í einu atburðir í lífinu, sem maður fær ekki til að ganga upp, skyndilega er eins og stoðum sé kippt undan öllu og manni finnst lífið vera tilviljanakennd og samhengislaus at- burðarás, sem skilur mann eftir í tómarúmi og maður spyr „hvers vegna“? Fráfall elskulegrar systur minnar Fríðu er slíkur atburður. Fyr- ir réttu ári vorum við fjölskyldan í heimsókn hjá henni og Sævari á heimili þeirra í Maryland í Bandaríkj- unum. Allt lék í lyndi, Fríða nýlega búin með erfitt próf í barnalækning- um og byrjuð í sérnámi í gigtarlækn- ingum barna. Hún og Sævar voru að byggja upp hestabúgarð og á stuttum tíma búin að ávinna sér álit og virð- ingu sem einstakt fagfólk með ís- lenska hestinn. Framtíðin blasti við björt, þrjú yndisleg börn, starfsframi, fallegt heimili, við dáðumst að hversu miklu þessi samhenta unga fjölskylda hafði áorkað. Svo kom reiðarslagið, illkynja sjúkdómur sem á innan við ári tók líf þessarar ungu heilbrigðu og athafnasömu konu, eftir situr sökn- uður og tómarúm. Elsku systir, ég trúi því ekki að frá- fall þitt sé samhengislaus tilviljun, ég veit að þér eru ætluð stór verkefni á nýjum vettvangi. Myndin er stærri en við fáum skilið, en von okkar og hugg- un liggur einmitt í orðum spámanns- ins sem sagði: „Þegar þú ert sorg- mæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín“. (Kahlil Gibr- an.) Minningin um þig er huggun okk- ar og fyllir huga okkar þakklæti. Fríða systir var eins og gangverk al- mættisins, allt sem hún gerði varð einhvernveginn fullkomið. Yfirvegun og æðruleysi gagnvart öllum verkefn- um, vel gefin, markviss í athöfnum, látlaust náttúrubarn sem elskaði börn og öll dýr. Hún hafði alltaf mikið að gera, en alltaf var tími fyrir börnin, hestana, ættingja og vinina, alltaf var hún til í að „skella sér“ í ferðalag, heimsókn eða í bara í búðaráp, það var eins og hún hefði ávallt nógan tíma til að vera með þeim sem henni þótti vænt um og bara að gera eitt- hvað skemmtilegt. Hún var einstak- lega yndisleg manneskja að umgang- ast, hlý, skemmtileg, einlæg og hrein og bein. Sést það best á því að þrátt fyrir stutta búsetu í Bandaríkjunum, hver viðbrögð þeirra sem kynntust henni hafa verið við veikindum henn- ar. Fyrrverandi starfsfélagar hennar í Connecticut hófu söfnun og sendu henni og fjölskyldunni miða til Flór- ída, í frí sem hún og fjölskyldan nutu ríkulega sl. sumar. Í Maryland eign- uðust þau Sævar fljótt stóran hóp vina, vinir þeirra í hestaíþróttunum hafa verið með söfnun þeim til hjálpar á hestamótum og á veraldarvefnum, þar sem ótrúlega margir hafa óskað eftir að fá að leggja eitthvað af mörk- um. Þó Fríða hafi aðeins unnið á barnaspítalanum í Fíladelfíu í rúm- lega hálft ár þegar hún veiktist, þá hefur nú þegar verið ákveðið af stjórn spítalans að stofna verðlaunasjóð í hennar nafni, sem mun árlega veita peningaverðlaun til unglækna, sem þykja skara fram úr. Slík var sú virð- ing sem hún ávann sér á ekki lengri tíma. Við, fjölskylda Fríðu, getum seint þakkað öllum þeim er studdu hana og fjölskyldu hennar í veikind- unum, en þannig var Fríða, hún snart hjarta allra sem kynntust henni. Elsku systir, ég þakka þér sam- fylgdina, það sem mun fylla tóma- rúmið og hjálpa okkur að yfirvinna sorgina, felst í því að minnast þín með gleði og þakklæti. FRÍÐA GUÐMUNDSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.