Morgunblaðið - 28.12.2001, Síða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL viðskipti voru með hlutabréf í Kaup-
þingi í gær eða fyrir 1.043 milljónir króna. Til-
kynnt hefur verið um kaup starfsmanna á
hlutabréfum í fyrirtækinu og nema þau tæpum
helmingi þessarar upphæðar.
Í tilkynningu til Verðbréfaþings Íslands kem-
ur fram að Sigurður Einarsson, forstjóri Kaup-
þings, keypti 8 milljónir að nafnverði á genginu
12,2 og er eignarhlutur hans í Kaupþingi eftir
viðskiptin 9,7 milljónir að nafnverði eða um
118,3 milljónir að markaðsvirði. Tilkynnt hefur
verið um viðskipti níu annarra yfirmanna hjá
fyrirtækinu sem eru á innherjalista en þeir
keyptu fyrir samtals 32 milljónir að nafnverði
og fóru viðskiptin fram á genginu 12,2. Þarna á
meðal var Hreiðar Már Sigurðsson aðstoðarfor-
stjóri sem keypti fyrir fimm milljónir að nafn-
verði og er eignarhlutur hans eftir kaupin 5,7
milljónir að nafnverði eða 69,5 milljónir að
markaðsvirði. Aðrir yfirmenn keyptu hlutabréf
fyrir 3–4 milljónir að nafnverði.
Sparisjóður Keflavíkur hefur tilkynnt um
sölu á alls um 23 milljóna hlut í Kaupþingi á
genginu 12,2 í tveimur hlutum. Eignarhlutur
Sparisjóðsins eftir söluna er um 66,4 milljónir
að nafnverði. Sparisjóðurinn í Keflavík hefur
jafnframt kauprétt að hlutunum, annars vegar
til 18. janúar og hins vegar til 15. febrúar nk.,
að því er fram kemur í tilkynningum til Verð-
bréfaþings.
Í dag verður haldinn hluthafafundur í Kaup-
þingi þar sem breytingar á samþykktum félags-
ins eru á dagskrá. Breytingarnar lúta m.a. að
því að skeyta heitinu banki við nafn félagsins í
tilefni umsóknar félagsins um viðskiptabanka-
leyfi og að fá heimild til hækkunar á hlutafé
vegna kaupa á hlutum í finnska fjármálafyr-
irtækinu Sofi og í Frjálsa fjárfestingarbank-
anum. Þessi félög verða gerð að dótturfélögum
Kaupþings.
Viðskipti með bréf Kaup-
þings fyrir rúman milljarð
Morgunblaðið/Ásdís
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra afhenti bræðrunum
Ágústi og Lýði Guðmundssonum
viðurkenningu Frjálsrar versl-
unar í móttöku á Hótel Sögu í
gær. Frjáls verslun útnefndi
bræðurna menn ársins 2001 í at-
vinnulífinu. Ágúst er stjórn-
arformaður Bakkavarar og Lýður
forstjóri, en bræðurnir hljóta
þennan heiður fyrir framúrskar-
andi athafnasemi „sem ekki að-
eins hefur fært Bakkavör í
fremstu röð fyrirtækja á Íslandi
heldur er það orðið vel metið og
þekkt í sinni grein erlendis.“
Þetta er í fjórtánda sinn sem
Frjáls verslun útnefnir menn árs-
ins í íslensku atvinnulífi. Bakka-
vör er metin á 14 milljarða króna
og búist er við að hagnaður þess
nemi 2.300 milljónum króna fyrir
skatta á næsta ári.
Bræðrunum í
Bakkavör afhent
viðurkenning
Morgunblaðið/Þorkell
HORFUR eru á að velta í upplýs-
ingatæknigreinum verði 70 millj-
arðar króna á þessu ári, en í fyrra
var velta greinanna 62 milljarðar
króna. Þetta kemur fram í yfirliti
sem Þjóðhagsstofnun hefur tekið
saman um virðisaukaskattskylda
veltu í upplýsingatæknigreinum
með fyrirvara um skilgreiningu og
skráningu fyrirtækja í þessum
greinum.
Í Hagvísum Þjóðhagsstofnunar
kemur fram að heildsalan er með
um 40% af veltunni en hugbún-
aðargerð og ráðgjöf hefur vaxið
mest, eða 2,7 faldast frá ársbyrjun
1998.
Gert er ráð fyrir að velta í hug-
búnaðargerð og ráðgjöf muni
verða um 20 milljarðar króna á
þessu ári en velta í framleiðslu
tækja muni verða um 1,2 millj-
arðar króna. Velta síma- og fjar-
skiptaþjónustu óx um 42% frá
1998–2001. Á þeim tíma lækkaði
síma- og fjarskiptaþjónusta um 3%
í neysluverðsvísitölu og er því
magnaukning 47% á tímabilinu.
Áætluð velta greinarinnar er 20
milljarðar króna.
Aukin velta upplýs-
ingatæknigreina
ÚTGÁFA alþjóðlegra skuldabréfa
jókst um 15% á milli áranna 2000 og
2001 og hefur aldrei verið meiri, sam-
kvæmt könnun markaðsfyrirtækisins
Dealogic. Í ½5 fréttum Búnaðarbank-
ans í gær kemur fram að útgáfa al-
þjóðlegra skuldabréfa er talin nema
1.680 milljörðum Bandaríkjadala í ár,
eða 170 þúsund milljörðum króna, og
er aukningin rakin til erfiðra að-
stæðna á hlutabréfamörkuðum og
vaxtalækkana, sem ætlað var að
vinna á móti veikleikum í efnahagslíf-
inu.
Á þriðja ársfjórðungi 2001 var
skuldabréfaútgáfa lítil og þarf að líta
aftur til ársins 1998 til þess að sjá
sambærilega útgáfu. Strax á fjórða
ársfjórðungi jókst skuldabréfaútgáfa
hins vegar mikið og var 36% meiri en
á sama ársfjórðungi í fyrra. Hagstæð
efnahagsleg skilyrði leiddu til þess að
skuldabréfaútgáfa gekk vel, þrátt fyr-
ir óvissu í kjölfar hryðjuverkanna í
byrjun september, fall bandaríska
orkurisans Enron og lækkandi láns-
hæfismat alþjóðlegra greiningarfyr-
irtækja á skuldabréfum fyrirtækja.
Útgáfuaukning alþjóðlegra fyrir-
tækjaskuldabréfa er talin vera 32% á
þessu ári og er hún einkum rakin til
aukinnar útgáfu bandarískra bréfa.
Ástæðan er m.a. ellefu vaxtalækkanir
bandaríska seðlabankans á árinu. Nú
lítur út fyrir að slakinn í peningamála-
stjórninni sé að ná hámarki og því
gera sumir erlendir greiningaraðilar
ráð fyrir að útgáfa skuldabréfa í
Bandaríkjunum muni dragast saman
á næstunni. Gert er ráð fyrir að sam-
einingar, yfirtökur og fjárfestingar
verði í minna lagi en það dregur úr
fjárþörf fyrirtækjanna. Hins vegar
eru væntingar um útgáfu evrópskra
fyrirtækjaskuldabréfa meiri, sam-
hliða væntingum um auknar samein-
ingar og yfirtökur, að því er fram
kemur í ½5 fréttum Búnaðarbankans.
Útgáfa alþjóðlegra
skuldabréfa aldrei meiri
LANDSBANKI Íslands hf. og Vá-
tryggingarfélag Íslands hf. hafa
aukið við eignarhluti sína í Líf-
tryggingafélagi Íslands hf. og
minnkar hlutur Eignarhaldsfélags-
ins Andvöku gf. í félaginu að sama
skapi. Þá hefur Líftryggingafélag
Íslands hf. selt allan hlut sinn í Vá-
tryggingafélagi Íslands hf. Með söl-
unni innleysir félagið verulegan
hagnað og mun hluti hagnaðarins
koma fram sem hlutdeildartekjur
hjá Landsbanka Íslands hf.
Í tilkynningu frá Landsbanka Ís-
lands kemur fram að eftir viðskipt-
in sé eignaraðild að Líftrygginga-
félagi Íslands hf. þannig háttað að
Landsbanki Íslands hf. á 50%
hlutafjár, Vátryggingafélag Íslands
hf. á 25% hlutafjár og Eignarhalds-
félagið Andvaka gf. á 25% hlutafjár.
VÍS búið undir skráningu
Að mati Landsbankans er hér
um að ræða mikilvægt skref í und-
irbúningi fyrir skráningu Vátrygg-
ingafélags Íslands hf. á Aðallista
Verðbréfaþings Íslands hf., sem nú
er stefnt að á fyrri helmingi næsta
árs.
Breyting á eign-
arhlut í Líftrygg-
ingafélaginu