Morgunblaðið - 28.12.2001, Page 49
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 49
✝ Guðrún SigurlínEggertsdóttir
fæddist í Reykjavík
16. desember 1914.
Hún lést á Droplaug-
arstöðum 19. desem-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Sigríður Guðmunds-
dóttir f. á Skógtjörn
á Álftanesi 19.2.
1879, d. í Reykjavík
1.6. 1957, og Eggert
Brandsson, f. í Borg-
arfirði 29.11. 1877, d.
í Reykjavík 8.3. 1951.
Guðrún fluttist ung
með móður sinni til Hafnarfjarðar
og bjó þar í nokkur ár, en síðan
alla tíð í Reykjavík.
Guðrún giftist 1935 Sigurði
Guðmundssyni, f. 18.4. 1901, d.
29.9. 1981, og eignuðust þau sjö
syni og komust fimm þeirra á
legg. Synir þeirra eru: 1) Sigurð-
ur Eggert, f. 21.4. 1936, maki 1)
Soffía Felixdóttir, þeirra synir
eru: Felix Gunnar, Sigurður
Freyr og Jón Þór, maki 2) Lára
Haraldsdóttir, þeirra sonur er
Davíð Baldur, fyrir átti Lára fimm
börn, Brynjar, Margréti Þóru,
Smára, Halldóru
Magný og Láru. 2)
Garðar, f. 21.11.
1937, maki 1) Ásta
Halldórsdóttir, þau
slitu samvistum,
þeirra börn eru: Val-
gerður, Guðrún,
Bergur og Hrafn-
hildur. 3) Guðmund-
ur, f. 22.11. 1940,
maki 1) Aðalborg
Guttormsdóttir, þau
slitu samvistum,
þeirra börn eru: Sig-
ríður, Sigurður og
Þorsteinn. 4) Sverr-
ir, f. 23.5. 1942, maki Sonja Berg,
þeirra börn eru Sigurður, Þóra
Halldóra og Oddný Ósk. 5) Gunn-
ar, f. 3.4. 1945, d. í júní 1945. 6)
Gunnar, f. 11.7. 1947, ógiftur og
barnlaus. 7) Andvana drengur, f.
1.9. 1949.
Guðrún bjó í Reykjavík alla sína
búskapartíð og stundaði húsmóð-
ur- og ræstingastörf. Hún dvaldi á
Droplaugarstöðum síðan í sept-
ember 1998.
Útför Guðrúnar fór fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík 27. des-
ember.
Elsku Guðrún langamma, ég
skrifa þessa bæn vegna þess að ég
sakna þín svo mikið.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt
hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesú mæti.
Ég heimsótti þig á afmælisdaginn
þinn 16. des síðastliðinn og sá þig þá í
síðasta sinn.
Þitt langömmubarn,
María Ósk Felixdóttir.
GUÐRÚN SIGURLÍN
EGGERTSDÓTTIR
✝ Ásmundur Frið-rik Daníelsson
fæddist að Dalsá í
Gönguskörðum í
Skagafirði 4. septem-
ber 1919. Hann lést á
hjartadeild Landspít-
alans við Hringbraut
19. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Daníel Davíðsson frá
Gilá í Vatnsdal, fyrr-
um ljósmyndari á
Sauðárkróki og síðar
bóndi á Breiðsstöð-
um, Dalsá, Hróars-
stöðum, Neðra-Nesi og síðast á
Syðri-Ey í A-Hún., f. 4.5. 1872, d.
26.3. 1968, og Magnea Aðalbjörg
Árnadóttir húsmóðir, f. á Illuga-
stöðum í Austur-Fljótum 29.9.
1883, d. 18.12. 1968. Ásmundur var
yngstur sjö systkina. Hin eru:
Magnús, bóndi á Syðri-Ey, f. 28.6.
1909, d. 1.6. 1993, Árni Davíð,
bóndi í Eyjarkoti, f. 16.5. 1911, d.
28.6. 1970, Páll Kristján, stýrimað-
ur í Reykjavík, f. 1.11. 1913, Bald-
vina Ingibjörg, hjúkrunarkona í
Reykjavík, f. 7.5. 1915, Daði, húsa-
smiður í Reykjavík, f. 27.10. 1916,
og Helga Þuríður, húsmóðir á
Blönduósi, f. 22.11. 1917. Á heim-
ilinu á Syðri-Ey ólst einnig upp
systursonur Magneu, Björn Leví
Halldórsson, lögfræðingur í
Reykjavík, f. 8.10. 1931. Ásmundur
kvæntist 29.7. 1948 Þorbjörgu Elsu
Breiðsstöðum, og síðan að Stein-
holti og að lokum á Sauðárkróki.
Hann var einnig hjá þeim á Sauð-
árkróki á vetrum eftir að skóla-
ganga hófst. Hjá þeim eignaðist
hann þrjár fóstursystur, Ólínu hús-
freyju í Hátúni í Seyluhreppi, Sig-
ríði húsfreyju í Klambraseli í Þing-
eyjarsýslu og Lilju skrifstofustúlku
á Sauðárkróki, sem nú er látin.
Ásmundur ólst upp við almenna
sveitavinnu og sótti barnaskóla á
Sauðárkróki og gagnfræðapróf
tók hann frá Menntaskólanum á
Akureyri, að einhverju leyti utan-
skóla, vorið 1937. Á sumrum vann
hann við ýmis störf, t.d. vegavinnu
og símavinnu á Holtavörðuheiði og
Vatnsskarði, einn vetur var hann
vetrarmaður á Selsundi við rætur
Heklu, og eina vertíð var hann
landmaður á línubát í Höfnum á
Suðurnesjum. Settist síðan að í
Reykjavík og stundaði ýmsa verka-
mannavinnu. Vorið 1944 fór Ás-
mundur til náms í flugvirkjun til
Kaliforníu í Bandaríkjunum og
starfaði að námi loknu eitt ár ytra
hjá TWA í New Jersey. Kom hann
heim í janúar 1947 og hóf þá störf
hjá Flugfélagi Íslands og starfaði
þar sem flugvirki og flugvélstjóri
til 1960, er hann hóf störf hjá Loft-
leiðum (síðar Flugleiðum) sem
flugvélstjóri og starfaði við það svo
lengi sem lög leyfðu. Síðan vann
hann um árabil hjá þeim, m.a. við
uppfærslu tæknihandbóka. Ás-
mundur var einn af stofnfélögum í
Flugvirkjafélagi Íslands og starf-
aði mikið fyrir félagið, meðal ann-
ars sem gjaldkeri um árabil.
Útför Ásmundar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 10.30.
Magnúsdóttur úr
Skerjafirði, f. 1.9.
1928. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Magnús
Skúlason, frá Fossi í
Mýrdal og Valgerður
Pétursdóttir, frá
Stuðlum í Reyðarfirði.
Ásmundur og Elsa
eignuðust þrjú börn: 1)
Valgeir Már, vélstjóri í
Hafnarfirði, f. 2.12.
1948. Var kvæntur
Rósu Kristmundsdótt-
ur, f. 13.4. 1956. Þau
skildu. Dætur þeirra
eru a) Bryndís, f. 27.8.
1976, sambýlismaður Styrmir Geir
Jónsson, f. 22.9. 1976, b) Ása Björg,
f. 24.12. 1978, og c) Salvör, f. 24.4.
1985. 2) Magnea Þórunn, myndlist-
armaður og kennari í Reykjavík, f.
7.12. 1952. Giftist Pétri Hauk Guð-
mundssyni, f. 6.7. 1948. Þau skildu.
Dætur þeirra eru a) Ásdís Elva, f.
5.11. 1972, gift Hallgrími Ólafs-
syni, f. 23.4. 1970, börn þeirra eru
Ísabella Ýrr, f. 24.5. 1997, og Kor-
mákur Logi, f. 2.1. 2001. b) Árdís
Ösp, f. 21.4. 1981. 3) Friðrik Smári,
tölvunarfræðingur í Cambridge í
Bretlandi, f. 22.1. 1965. Sambýlis-
kona Vigdís Þórisdóttir bæklunar-
skurðlæknir, f. 7.3. 1965.
Ásmundur ólst upp í foreldra-
húsum, fyrir utan fyrstu 4 ár ævi
sinnar, sem hann var í fóstri hjá
hjónunum Guðrúnu Jónsdóttur og
Jóni Jóhannessyni, sem bjuggu á
Elsku afi. Hingað erum við nú
komin. Ég verð nú að viðurkenna að
ég er ekki alveg búin að átta mig á
því að þú sért farinn frá okkur. Þú
hefur svo oft orðið veikur áður en
ætíð náð bata á óskiljanlegan hátt,
jafnvel er læknarnir voru vonlausir
um að einhver von væri um að þú
næðir þér aftur á strik. Þetta voru
eins og lítil prakkarastrik að láta
þessa lækna hafa rangt fyrir sér.
Ég sagði við þig að þú færir
reglulega aðeins að tefla við dauð-
ann. En nú er sú staða komin upp
að dauðinn vann.
Langafastelpan þín litla veit að
þú ert hjá guði í himnaríki og hún
virðist sætta sig við þá staðsetningu
þína nú, en spurði hvort ekki væri
hægt að hringja í þig þar. Hún er
með margar spurningar sem hún
vill leggja fyrir þig eins og var áður,
er hún kom niður til þín að gæða sér
á rúsínum og ræða málin.
Ég veit að ég get sagt fyrir hönd
allra barnabarnanna sem og barna-
barnabarnanna að við munum sakna
þín mjög mikið. Sakna þess að
heyra ekki lagstúfana sem þú flaut-
aðir og fá ekki áfram litlu hlutina
sem þú týndir í okkur, hluti sem þér
þótti að gætu komið að góðum not-
um.
Ég skal vaka og gráta
af gleði yfir þér,
því guð átti ekkert betra
að gefa mér.
(Davíð Stefánsson.)
Takk fyrir að vera góður afi.
Þín afastelpa,
Ásdís Elva.
ÁSMUNDUR FRIÐ-
RIK DANÍELSSON
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.
Formáli
minning-
argreina
<9454
&F )GG
'
3 4' ' 1
4-
' 0/-' &
-
"#$$
8+:)+
) < /'*(8+)+
.(< )+ ;!
<
//*2
%
'
&
-8@H
-&( $
0::
' +
)
-
5
(
"++$
6
2
2
-
1
7
(&
: -2 ) :% ))+
( 2 )
-I+ ) 8F 3 &
((&)+
%; )+
)) 2
8
%
804
H9 :%!2:&!J)'+
+
.-
(
"++$
;<20)+
: 8+
/'*8+)+ 028+
8+8+
: ))
+!)+
08+ .(HJ
8+8+8+ +!8& /)+2
%
&
4
48 :% !
J)B
%&'!(&
3 4' .-
(
*: :)+
;0 )+ K) F
9J (-0 )+
;J ))+
- .(2)+
; )+ (
'+ 0) 0:.!
<> ;-
?%:)+
//* ///*2
4
H58 0' )"#
& %
' +
@ )+
./'*)+ ;
2-)&
J )+ ).')
.(()+ '+@+ ))
-%) : )+ /'*H '+)+
//* ///*2
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.