Morgunblaðið - 28.12.2001, Qupperneq 54
UMRÆÐAN
54 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AUK efnislíkamans
eru allir menn gerðir úr
orkusviði og sjö orku-
stöðvum, eða „chakra“.
Orkusviðið og „chakra“
endurspeglar og sýnir í
raun hvernig líkamleg,
tilfinningaleg, hugræn
og andleg líðan og
heilsa einstaklingsins
er. Fullkomin heilsa og
sú tilfinning að okkur
líði alveg frábærlega
vel, eins og við vildum
að okkur liði hvern ein-
asta dag sem okkur er
gefinn, fæst þegar við erum í orku-
ríku ástandi. Við öðlumst það með
fullkomnu samræmi líkama, tilfinn-
inga, hugar og sálar.
Heilun felst í því að hreinsa og leið-
rétta orkusviðið og „chakra“ líkam-
ans og fylla það krafti, en þá er
mögulegt að ná góðri heilsu og alls-
herjar lífsfyllingu. Við sjáum best
hvert mikilvægi heilunar er þegar við
gerum okkur grein fyrir því að at-
burðir í orkusviðinu eru bæði grund-
völlur og undanfari þess sem gerist í
líkamlegu tilliti. Með því að heila
brenglun í orkusviðinu getum við
komið í veg fyrir margvísleg líkamleg
og andleg vandamál. Á sama hátt
getum við ráðið bót á og læknað
mörg líkamleg og andleg vandamál
með því að heila bjögun í orkusviðinu.
Áhyggjur og kvíði er nokkuð sem
margir þjást af. Ein orkuskekkja,
sem kann að valda áhyggjum og
kvíða, er þegar orkan leitar upp á við
en við það minnka eða
rofna tengslin við móð-
ur Jörð. Öll orkan safn-
ast saman í efri hluta
líkamans, einkum í
huganum, og veldur
stöðugum straumi
hugsana á borð við
„Bara ef…“ og „Hvað
ef…“, sem flestar eru
neikvæðar í eðli sínu.
Ég hef sjálf verið kvíða-
gjörn og þurfti að læra
af reynslunni að allt
sem þarf til að hætta að
hafa sífelldar áhyggjur
er að ná sér niður á jörðina, að ná
orkunni niður. Þegar ég er komin
niður á jörðina er ég stödd hér og nú
(áhyggjurnar eru að mestu liðin
reynsla sem varpast inn í ókomna
framtíð). Ég finn að ég er full af orku,
yfirveguð og einbeitt og full sjálfs-
trausts. Mér hefur því lærst að þegar
ég hef ekki jarðsamband þá líður mér
illa en þegar ég er í sambandi við jörð
líður mér stórkostlega vel – valið er
mitt.
Meginmarkið heilunar er að finna
jafnvægi, endurheimta og hlaða
orkusviðið og „chakra“ og einnig að
fjarlægja alla orku sem ekki eykur
lífsþróttinn. Heilun er ávallt tengd
jarðsambandinu og því að leiðrétta
hvers kyns vandamál sem snerta
það. Tengslin við jörðina eru afar
mikilvæg okkur, sem lifandi jarðar-
verum, og jörðin er ein aðalupp-
spretta kraftsins í okkur. Við heilun
er t.d. mjög brýnt að ég sé tengd
jörðinni vegna þess að afl mitt til að
heila er miklu sterkara þegar ég er í
sambandi við jörðu.
Sérhver „chakra“ er tengd við sál-
ina. Hjartastöð (chakra) tengist t.d.
getunni til að gefa ást og meðtaka
hana. Ef hjartastöð er lokuð leiðir
það til sambanda án tengingar við
hjartað, án þess að hægt sé að gefa
og öðlast ást annarrar manneskju, en
það þráum við öll. Hjartastöð, sem er
lokuð eða bjöguð á einhvern hátt,
brenglar tilfinningar í garð annarrar
manneskju. Hálsstöð tengist sjálfs-
ákveðni og að segja sannleikann um
sjálfan sig. Fólk, sem á erfitt með að
segja „nei“, er sennilega með bjögun
í hálsstöð.
Þreyta, örmögnun, áhuga- og
gleðiskortur, lágt sjálfsmat og lítil
mótstaða gegn algengum sjúkdóm-
um getur allt verið bein afleiðing
þess að mjög lítil orka sé í orkusvið-
inu. Heilun hreinsar og hleður orku-
sviðið og færir ljós og jákvætt hug-
arfar gagnvart lífinu.
Líkamleg vandamál má oft leysa
með heilun. Kona ein þjáðist af
grindargliðnun eftir barnsfæðingu
nokkrum árum fyrr og hún þurfti að
takmarka athafnir sínar vegna sárs-
auka. Þegar ég athugaði konuna sá
ég þreytta og ofþanda vöðva. Eftir
um það bil þrjá heilunartíma gat hún
unnið í garðinum í nokkra tíma án
þess að finna fyrir sársauka, en það
hafði hún ekki getað um árabil.
Alls kyns líkamleg áföll hafa líka
áhrif á orkusviðið og þeirra sjást þar
merki. Þótt líkamlegi vandinn hafi
verið læknaður má oft finna leifar
hans í orkusviðinu, sem hindrar full-
an bata. Lækning líkamlega vandans
í orkusviðinu getur leitt til fullkomins
bata (þótt ég hafi ekki mikla beina
reynslu segir sú reynsla sem ég hef
mér að auðvelt sé að lækna „dular-
fulla“ sjúkdóma á borð við síþreytu
og vefjagigt með heilun).
Oft er einhver vandi í lífinu sem
hrjáir manneskjuna á öllum fjórum
sviðum samtímis, því líkamlega, til-
finningalega, hugræna og andlega.
Til mín leitaði kona sem þjáðist af
kvíðaköstum. Við heilunarmeðferð-
ina kom í ljós að kvíðaköstin orsök-
uðust af ýmsum samverkandi þátt-
um. Konan var uppgefin líkamlega
eftir nýafstaðna barnsfæðingu, fjöl-
skyldan gerði til hennar ofurkröfur,
hún óttaðist að fá ofsaköst vegna nið-
urbældrar reiði og hún hafði lifað
fyrra lífi þar sem hún dó vitandi það
að börn hennar myndu svelta til
dauða (fæðingin kom af stað minn-
ingum um fyrra líf). Heilunarmeð-
ferðin dró mjög úr kvíðaköstum
hennar og gaf henni aftur orku og
áhuga á lífinu. Þessi meðferð varð
líka til þess að hún fór að gefa sjálfri
sér meiri gaum og hún varð miklu já-
kvæðari gagnvart sjálfri sér og lífi
sínu.
Heilun virkar á öll svið manneskj-
unnar og einangrar aldrei líkamann
frá hinum sviðunum, það er því til-
finningalega, hugræna og andlega. Í
því er fólgin fegurð heilunarinnar og
styrkur.
Hvað er heilun og hvað
getur hún gert fyrir þig?
Gitte Lassen
Orkustöðvar
Ein orkuskekkja, sem
kann að valda áhyggjum
og kvíða, segir Gitte
Lassen, er þegar orkan
leitar upp á við en við
það minnka eða rofna
tengslin við móður jörð.
Höfundur er heilari, ráðgjafi og
miðill frá andlegum leiðbeinendum.
Í UPPHAFI byggð-
ist borgin út frá höfn-
inni. Þaðan kom það afl
sem gerði Reykjavík að
nútímaborg. Þess
vegna get ég ekki annað
en mótmælt fyrirætlun-
um meirihlutans í borg-
arstjórn Reykjavíkur
að leggja helst alla
starfsemi af við höfnina
til að koma þar fyrir
menningarhúsum. Þau
geta verið víða annars
staðar. Reyndar er
meirihlutinn ekki einn
um þessi áform. Þau
njóta stuðnings Sjálfstæðisflokksins.
Í stað þess að leggja hafnarsvæðið
undir menningarhús sem fáir sækja
þætti mér viturlegra að hafa þar sjó-
minjasafn, fiskmarkaði, veitingastaði
sem sérhæfa sig með mat úr hráefn-
um sem fást í hafinu og fleira má
nefna. Ég er sannfærður um að starf-
semi sem sú sem ég hef hér nefnt lað-
ar mun frekar að ferðamenn en ein-
staka söngsalir og önnur menning-
arhús og getur þess vegna glætt
miðborgina lífi.
Það er ekki við hæfi að gleyma því
að í eina tíð var Reykjavík mesta ver-
stöð landsins. Það er engin ástæða til
að það gleymist. Það er nauðsyn að
halda í söguna, varðveita hana, sýna
henni skilning og síðan ekki síst nota
hana sem hvatningu til að ná aftur
þeim glæsilega árangri sem við eitt
sinn náðum.
Það er staðreynd að hafnir eru háð-
ar því að vera við ströndina. Mér þyk-
ir stundum, sem þeir sem verst láta,
vilji helst losna við höfnina og koma
henni fyir á heiðum uppi. Það er
vandalaust að finna lausn sem allir
eiga að geta sæst á. Í stað þess að af-
leggja það starf sem fram fer við
höfnina verði það látið í friði, með
þeim breytingum sem ég nefndi. Tón-
listarhús og önnur punthús geta einn-
ig verið við ströndina. Það er nægt
pláss á Laugarnesi.
Ekki kom mér á óvart þegar for-
svarsmenn annarra sveitarfélaga hér
í grenndinni lýstu sig hamingjusama
með að menningarhús verði byggð
við höfnina. Þeir vita sem er að það
þýðir að til þeirra streyma atvinnu-
tækfæri sem eru öllum sveitarfélög-
um nauðsyn – nema ef vera skyldi
Reykjavík – þar sem stefnan virðist
vera að koma öllu slíku sem lengst í
burt. Sér í lagi ef störfin eru ekki unn-
in í jakkafötum eða drögtum.
Í Hafnarfirði er mikið líf við höfn-
ina. Þar hafa menn ekki misst trúna á
sjávarútveginn og gera sér grein fyr-
ir mikilvægi hans. Þeir virðast gera
út á að þjóna fiskiskipum og fisk-
vinnslum. Kópavogsbúar vita þetta
og gera sitt til að ná til sín sneið af
kökunni. Í þeim bæ hafa orðið til
hundruð nýrra fyrirtækja á síðustu
árum.
Það er vont til þess að
vita að vegna uppgerð-
ar fínheita, snobbháttar
og ráðaleysis stjórn-
enda hefur Reykjavik
misst frá sér fjölda
starfa og komið í veg
fyrir mörg ný. Það er
vonandi að þeir sem
bera ábyrgðina finni vel
til sín þegar þeir ganga
um salina og hreykjast
af bruðlinu og ósóman-
um. Hitt væri betra fyr-
ir borgina okkar, það er
að stjórnendur hennar sjái að það er
verið að breyta henni í draugaborg –
hér fækkar atvinnutækifærum með-
an þeim fjölgar hjá nágrönnunum.
Það er fleira sem við verðum að
gefa gaum. Áform Landsvirkjunar
um stórfelldar virkjanir á Austur-
landi snerta okkur Reykvíkinga mik-
ið. Við eigum 45 prósent í Landsvirkj-
un og það er ekki okkar hagur að
ráðist verði í virkjanir sem ekki er bú-
ið að sjá fram á að skili arði. Ef virkj-
að verður og illa fer skaðast Reykja-
vík verulega. Hlutur okkar í
Landsvirkjun mun verða verðminni
en ella. Helst vildi ég að borgin seldi
sinn hlut. Ég er ekki viss um að Aust-
firðingar, snéri málið á hinn veginn-
,væru reiðubúnir að taka slíka áhættu
til sköpunar starfa í Reykjavík. Ég er
alls ekki á móti virkjunum. Ég bara
vil ekki að áhætta af þessu verkefni
verði að stórum hluta á kostnað
Reykvíkinga. Best væri að selja hlut
Reykjavíkur í Landsvirkjun og nota
þá fjármuni til uppbyggingar at-
vinnulífs í borginni.
Ég bið þá sem þetta lesa að fylgjast
með nýrri rödd í málefnum Reykja-
víkur. Frjálslyndi flokkurinn ætlar
ekki að sitja aðgerðarlaus og horfa á
borgina breytast í monthús. Við mun-
um láta frá okkur heyra og við mun-
um bjóða upp á val í komandi kosn-
ingum. Þeir Reykvíkingar sem
ofbýður hvernig er verið að fara með
borgina fá val í kosningunum. Það er
von mín að fólk nýti sér það.
Til varnar
Reykjavík
Birgir Hólm
Björgvinsson
Höfundur er stjórnarmaður í
Sjómannafélagi Reykjavíkur.
Höfnin
Vegna uppgerðar fín-
heita, snobbháttar og
ráðaleysis stjórnenda,
segir Birgir Hólm
Björgvinsson, hefur
Reykjavík misst frá sér
fjölda starfa.