Morgunblaðið - 28.12.2001, Side 62
UMRÆÐAN
62 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
getraun
Áramótagetraun Morgunblaðsins birtist í blaðinu sunnudaginn 30. desember
og verður hún þrískipt; barnagetraun, unglingagetraun og fullorðinsgetraun.
Barnagetraun
5-12 ára
Áskrift að Andrési Önd í heilt ár (52 blöð).
Útgefandi Vaka-Helgafell.
Tónlist að eigin vali frá Skífunni að andvirði 10.000 kr.
Boðsmiðar fyrir tvo á kvikmynd að eigin vali frá Smárabíói.
Unglingagetraun
13-17 ára
Áskrift að Syrpu í heilt ár (12 bækur).
Útgefandi Vaka-Helgafell.
Tónlist að eigin vali frá Skífunni að andvirði 10.000 kr.
Boðsmiðar fyrir tvo á kvikmynd að eigin vali frá Smárabíói.
Fullorðinsgetraun
18 ára og eldri
Gjafabréf með ferð fyrir tvo til Evrópu á
einhvern af áfangastöðum Flugleiða.
Tónlist að eigin vali frá Skífunni að andvirði 10.000 kr.
Íslenskar eldstöðvar eftir Ara Trausta Guðmundsson.
Bókin er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
2001. Útgefandi Vaka-Helgafell.
1
2
3
1
2
3
1
2
3
GREINARHÖFUNDUR telur
það skyldu sína að setja niður á blað,
hvað fjárfestar í sjókvíaeldi eiga í
vændum þegar þeir íhuga svo miklar
fjárfestingar sem fiskeldið krefst. Frá
árinu 1985 og til ársins 1991 starfaði
greinarhöfundur við fiskeldiskvíar,
aðallega sem kafari og eftirlitsmaður
fyrir hönd tryggingafélags, jafnframt
því sem öll önnur störf sem fylgdu
sjókvíaeldinu voru innt af hendi, eins
og fóðrun, sjómennska, viðhald, nóta-
skiptingar, slátrun, o.m.fl.
Staðarval
Þetta er höfuðatriði, vegna sjávar-
kulda við Íslandsstrendur er erfitt að
benda á heppilegan stað fyrir eldið,
líklega er þetta hin eina sanna skýr-
ing á hamförum fyrri ára, ásamt því
að eldisferillinn er lengri og dýrari,
allt að 35%. Meðalsjávarhiti hringinn
í kringum landið er frá 1 gráðu og upp
í 12 gráður við bestu skilyrði, kaldast í
janúar og hlýjast í ágúst. Bestu vaxt-
arskilyrði, t.d. eldislax, eru við um 12
gráður og yfir, þ.e. kannski í 2–3 mán-
uði. Á veturna borðar jafnvel fiskur-
inn ekkert dögum saman vegna
kulda.
Meðhöndlun og eftirlit með kvíun-
um. Sjókvíar eru til í öllum stærðum
og gerðum, eftir staðarvali og tegund
eldis, eingöngu sterkustu kvíar sem
völ er á í heiminum eru gjaldgengar
hér við land, ísingar, ölduhæð, veð-
urofsi og þörunga- og skeljamyndun
eru daglegt brauð sem starfsmenn
kvíanna þurfa að kljást við ásamt
vargfugli, sel og hvölum og ekki má
gleyma höfuðskepnunni sjálfri,
manninum, sem gerir
mistök en ekki hinir.
Meðhöndlun og eftirlit
þarf að vera í höndum
sérfróðra manna sem
kunna til verka og vita
hvernig best er að búa
um eldið, alveg frá upp-
hafi. Eftirlit frá hinu op-
inbera með rekstri sjó-
kvíaeldis verður að vera
öflugt og skilvirkt
vegna þeirrar ábyrgðar
sem leyfunum fylgir,
hagsmunaaðilar í um-
hverfisvöktun og eig-
endur laxveiðiáa munu
fylgjast með starfsem-
inni og höggva við
minnsta óhapp.
Ábyrgðir og tryggingar
Framleiðendur sjókvía setja mikla
ábyrgð á hendur eigendum þeirra
hvað varðar viðhald og eftirlit og
tryggingafélög fylgjast mjög náið
með að þeim sé fullnægt, a.m.k. eru
þeir fljótir til ef viðhaldinu er ábóta-
vant og kippa þá tryggingunum út, en
því stærri sem eldisstöðvarnar eru
því meira tjón þegar það gerist. Net
skulu skoðuð einu sinni í viku og ból-
færi einu sinni í mánuði, netin þarf að
mála og hreinsa á 6 mánaða fresti.
Þessar kröfur voru skilyrði þá og eru
það enn. Öll net eiga að vera hnúta-
laus. Allar fiskeldisstöðvar við Ís-
landsstrendur hafa orðið fyrir ein-
hverskonar tjónum frá því að þær
hófu rekstur, nætur hafa rifnað og
fiskur sloppið út, girðingar og hopp-
inet kubbast af í ísing-
um og fiskurinn kastast
úr kvíunum, vargfugl
eins og skarfur sargar
göt á nætur undir sjáv-
armáli til að komast í
fiskinn, selir og hvalir
skemma nætur án telj-
andi vandræða, öldu-
hæð og veðurofsi slíta
hreinlega festingar frá
bólfærum, sjómenn
skera á bólfæri með
veiðarfærum sínum,
sýkingar og mengun
hafa verið skæður tjón-
valdur og síðast en ekki
síst mannleg mistök í
meðhöndlun á fiskinum.
Þegar vond veður og sterkir yfir-
borðsstraumar verka á kvíarnar
minnkar eldisrýmið til muna í búrun-
um og hreistursskaði er mikill sem
niðurflokkar fiskinn til muna og fellir
þá jafnframt gæði hans og verðmæti.
Mengun nytjastofna
við fiskeldið
Það sem kom greinarhöfundi mest
á óvart og olli miklum vangaveltum
var hvernig nytjafiskurinn okkar,
þorskur, ýsa og ufsi, ánetjaðist fóðr-
inu í kringum búrin og át fóðurleifar
úr netunum jafnframt því sem hann
át leifar af sjávarbotni, fiskur sem var
veiddur við búrin var óætur vegna
þessa og þetta tel ég mesta ógnun við
ferskleika íslensks sjávarfangs, það
er ekki hægt að tala lengur um fræg-
ustu vörumerki okkar; hreinleika og
gæðafisk, samfara því sem fiskeldi er
stundað í sjókvíum, þetta hafa aðrar
þjóðir einnig orðið vitni að og reyna
að forðast eins og heitan eldinn að
tala um, en er engu að síður blákaldur
veruleiki. Lífkeðjur geta aldrei bland-
ast saman og það á einnig við í þessu
tilefni, einnig eru miklir flutningar á
lífverum sem lifa á botninum og
myndast alveg ný flóra þar. Hættan á
erfðablöndun við aðra laxastofna hef-
ur verið sönnuð af vísindamönnum
um allan heim, á Íslandi hefur eld-
isfiskur veiðst í mörgum veiðiám.
Skelja- og þörungamyndun er svo
mikil að þéttriðið net sem hýsir smolt-
ið verður það þétt að jafnvel hitastigs-
munur getur orðið um einhverjar
gráður í stillum og sól í búrunum.
Þaragróður sest á kvíarnar og þyngir
þær svo um munar og eru einu ráðin
að annaðhvort skipta um búr eða há-
þrýstiþvo með allskyns tilkostnaði og
látum. Dæmi eru um að búr hafi
hreinlega sokkið undan þara og
skeljamyndun. Eitt dæmi um þyngd-
armun var net í stórri eldiskví sem
var um 500 rúmmetrar að flatarmáli
og vó 3 tonn nýtt og málað, eftir rúm
tvö ár í sjó án hreinsunar var þyngdin
18 tonn og allir öryggisteinar slitnir í
sundur vegna þyngsla.
Fjárfesting, framleiðsluverð
og afurðaverð
Hagnaðarvon hlýtur að vera mönn-
um efst í huga þegar stofnuð eru fyr-
irtæki. Norðmenn sem eru komnir
hvað lengst í heiminum í sjókvíaeldi
mega ekki við neinum skakkaföllum
og eingöngu neikvæð umræða setur
allt úr skorðum og lækkar verðið sb.
nýlega kvörtun Rússa út af menguð-
um eldisfiski frá þeim og verðið snar-
féll. Þetta fiskeldi er svo mikil fjár-
festing og hagnaðarvon svo mjög háð
markaðssveiflum að erfitt er að sjá
kostina við að setja á stofn fiskeld-
isfyrirtæki hér við land. Þegar fisk-
eldið fór af stað hér um árið tókst
mönnum að selja fjárfestum þá hug-
mynd að þetta væri það sem koma
skyldi, reiknað var út framleiðsluverð
og afurðaverð og mismunurinn var
gróðinn, en öll verð voru svo óraun-
hæf að fiskeldið dó, hvert fyrirtækið
af öðru.
Hvað hefur breyst frá fyrra fisk-
eldisævintýri? a) kuldinn er sá sami,
b) óveður þau sömu, c) mengun sú
sama, d) viðhald meira ef eitthvað er,
e) tryggingar strangari, f) eftirlit sér-
fræðinga meira, g) markaðurinn
langt í burtu og dýr flutningur á af-
urðum.
Greinarhöfundur telur að alltof
miklar væntingar og bjartsýni ein-
kenni þessa umræðu alla um sjókvía-
eldi okkar í framtíðinni og að betur
verði heima setið en af stað farið. Ís-
land er ekki skapað fyrir sjókvíaeldi.
Fiskeldi í sjókvíum,
hvað eiga þeir í vændum?
Tómas J.
Knútsson
Fiskeldi
Hættan á erfðablöndun
við aðra laxastofna hef-
ur verið sönnuð af vís-
indamönnum um allan
heim, segir Tómas J.
Knútsson, á Íslandi
hefur eldisfiskur veiðst
í mörgum veiðiám.
Höfundur er fyrrverandi
eftirlitsmaður með sjókvíum
við Íslandsstrendur.