Morgunblaðið - 28.12.2001, Side 71
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 71
Meðlagsgreiðendur!
Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta
og forðist vexti og kostnað
● ●
● ●
● !"#$
# ● #% &&
● ' (# ) ' &*+*,
VONANDI hafa margir haft
gaman af því að glíma við jóla-
skákþrautirnar, en lausnir þeirra
fylgja hér á eftir. Gleðilegt ár!
1. Hvítur á leik og vinnur
1. Wallis-Horseman, Notting-
ham 1954:
1. Db4! Da1+
(1. -- Dxb4 2. Rf6+ mát; 1. --
De5 2. Df8+ Hxf8 3. gxf8H +
mát)
2. Bd1! og svartur gafst upp.
(2. -- Dxd1+ 4. Kh2 og við hót-
uninni 5. Df8+, ásamt máti, er
engin vörn. Eina leiðin til að forð-
ast yfirvofandi mát er að fórna
drottningunni fyrir peðið á g7, en
sú staða er auðvitað gjörtöpuð)
2. Hvítur leikur og heldur jafn-
tefli
2. A. Selesnjev, 1918.
1. Kc6 Kd8 2. Kd5 Kxd7 3. Ke4
Kd6 4. Kf3 Ke5 5. Kg4 Kf6 6.
Kh5! Kxf5 patt!
3. Hvítur leikur og mátar í 6
leikjum
3. G. Bridgewater.
1. Bb1 b2 2. Ha2 b3 3. Ha3 b4 4.
Ha4 b5 5. Ha5 b6 6. Be4+ mát.
4. Hvítur leikur og vinnur
4. Hvítur leikur og vinnur
1. He1+ Kb2 2. Ha1! Kb3
(2. -- Kxa1 3. Kc2! a5 o.s.frv.)
3. Kd2 Kb2 4. Kd1 Kxa1 5. Kc2!
a5 6. b6 a4 7. b7 a3 8. Kd2! Kb2 9.
b8D+ og hvítur vinnur.
5. Hvítur leikur og mátar í 5
leikjum
5. Horowitz-Carrigan, fjöltefli í
Philadelphia, líklega milli 1950 og
60:
17. Dd5 e6 18. Dxe6! fxe6 19.
Bxe6+ Df7 20. Hxf6! Dxe6 21.
Hf8+ mát.
6. Hvítur leikur og mátar í 3
leikjum
6. „Denken und Raten“, 1931:
1. Hc5! dxc5 2. c4 dxc3 ep
(framhjáhlaup) 3. Rxc3+ mát.
Denken und Raten var þýskt viku-
tímarit uppfullt af efni fyrir þá
sem höfðu áhuga á hvers kyns
hugaríþróttum.
Jólamót Hellis á ICC
Taflfélagið Hellir heldur annað
Jólamót félagsins 30. desember í
samstarfi við ICC. Mótið fer fram
á Netinu á ICC-skákþjóninum og
hefst kl. 20 og lýkur um kl. 22:30.
Góð verðlaun eru í boði, peninga-
verðlaun og frímánuðir frá ICC.
Öllum er heimil þátttaka sem er
ókeypis. Veitt verða verðlaun í
fjórum flokkum, opnum flokki (all-
ir), undir 2.100 stigum, undir 1.800
skákstigum og stigalausir. Tefldar
verða 9 umferðir eftir Monrad-
kerfi. Umhugsunartími er 4 mín-
útur með tveggja sekúndna viðbót
eftir hvern leik.
Opinn flokkur: 1. verðlaun: kr.
5.000, 2. verðlaun: kr. 3.000, 3.
verðlaun: kr. 2.000.
Undir 2.100 stigum: 1. verðlaun:
Fjórir mánuðir frítt á ICC
Undir 1.800 stigum: 1. verðlaun:
Fjórir mánuðir frítt á ICC
Stigalausir: 1. verðlaun: Fjórir
mánuðir frítt á ICC
Það þarf að skrá sig inn á ICC
fyrir klukkan 19:55 og gefa síðan
skipunina „tell pear join“.
Stöðumynd 1 Stöðumynd 2
Stöðumynd 3 Stöðumynd 4
Stöðumynd 5 Stöðumynd 6
Lausnir jóla-
skákþrautanna
SKÁK
SEX SKÁKÞRAUTIR
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi
M O N S O O N
M A K E U P
lifandi litir
Í TILEFNI áramótanna sem fram-
undan eru tóku nokkrir aðilar
sem sinna vímuvörnum höndum
saman og hrintu af stað auglýs-
ingaherferð þar sem fjölskyldan
er hvött til að vera saman og
fagna komandi tímum. Hámarki
nær átakið með dreifingu póst-
korta inn á hvert heimili á land-
inu þar sem foreldrum er bent á
að leiða börn sín til móts við nýja
tíma á farsælan og gleðiríkan hátt
og vera með þeim á nýársnótt.
Áður hefur brunnið við að eftir
miðnætti hafi hver haldið í sína
átt til gleðskapar. Eftirlitslausir
unglingar á ráfi eiga á hættu að
lenda í alls kyns hremmingum og
vandræðum, sérstaklega ef áfengi
hefur verið haft um hönd.
Foreldrar hafa sýnt að með
samstöðu geta þeir breytt ýmsu
sem snertir börn og ungmenni til
betri vegar, t.d. hvað varðar úti-
vistartíma og ferðir á útihátíðir
um verslunarmannahelgi. Nú er
komið að áramótunum og eru for-
eldrar því hvattir til að safna góð-
um minningum frá þessum tíma-
mótum með börnunum sínum,
segir í fréttatilkynningu.
Samstarfsaðilar eru: SAMFOK,
Heimili og skóli, Rauði kross Ís-
lands, Vímulaus æska, Samstarfs-
nefnd Reykjavíkur um afbrota- og
fíkniefnavarnir, Íþrótta- og tóm-
stundaráð, Félagsþjónusta
Reykjavíkur, Akureyrarbær, Lög-
reglan í Reykjavík, Ísland án eit-
urlyfja og Áfengis- og vímu-
varnaráð. Átakið er styrkt af
Íslandspósti.
Send verða kort inn á heimili
landsmanna og fjölskyldan
hvött til að fagna tímamót-
unum saman.
Fjölskyldan saman
um áramót
ELLINGSEN ehf. og Slysavarna-
félagið Landsbjörg hafa gert með
sér samkomulag um yfirtöku SL á
flugeldasölu Ellingsen. Samkomu-
lagið kveður einnig á um að Ell-
ingsen taki yfir sölu á neyðarflug-
eldum og annarri neyðarvöru
sambærilegri þeirri sem Ellingsen
hefur haft til sölu. Aðilar munu
jafnframt starfa saman að vöruþró-
un sem lýtur að öryggis- og neyð-
arvörum.
Ellingsen hóf flugeldasölu hér á
landi á fyrstu áratugum síðustu ald-
ar og vann mikið brautryðjanda-
starf við að skapa þá flugeldahefð
sem er á Íslandi, segir í frétta-
tilkynningu.
Samkomu-
lag um flug-
eldasölu
T.v. Bjarni Th. Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Ellingsen, og
Kristbjörn Óli Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Slysavarna-
félagsins Landsbjargar (SL).
HINN 21.12 birtist á baksíðu
Morgunblaðsins frásögn af tónleik-
um Bjarkar og Sinfóníuhljómsveit-
ar Íslands í Laugardalshöll. Þar
láðist að geta um þátt 50 félaga
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í tón-
leikunum og skal það áréttað hér
með.
Árétting
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi sem
varð á gatnamótum Bústaðavegar og
Háaleitisbrautar sunnudaginn 23.
desember, Þorláksmessu, kl. 21.29.
Þar varð árekstur með grænni Ford
Fiesta-fólksbifreið, sem ekið var
austur Bústaðaveg og beygt áleiðis
norður Háaleitisbraut, og hvítri
Nissan Almera-fólksbifreið, sem ek-
ið var vestur Bústaðaveg. Ökumenn
greinir á um stöðu umferðarljósa.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um
málið eru beðnir að hafa samband
við lögregluna í Reykjavík.
Lýst eftir vitnum