Morgunblaðið - 28.12.2001, Page 72

Morgunblaðið - 28.12.2001, Page 72
72 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                     BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÁGÆTU borgarfulltrúar. Ég ávarpa ykkur alla því mér er alveg hjartan- lega sama hvar í flokki þið eruð, en lít á það sem skyldu ykkar að bera hag borgarbúa allra fyrir brjósti. Oddviti íþrótta- og tómstundamála í Reykja- vík ritaði grein í Morgunblaðið um daginn þar sem hún dásamaði fram- tak borgarinnar varðandi æskulýðs- og íþróttamál undanfarin ár. Ég er því miður ekki jafn ánægður og borg- arfulltrúinn með afrekin í uppbygg- ingu og viðhaldi íþróttamannvirkja í Grafarvogi. Sem einn af frumbyggj- um þessa fagra borgarhverfis hef ég fylgst vel með allri uppbyggingu hér, allt frá haustdögum 1984. Fyrstu árin máttum við búa við algjört aðstöðu- leysi til íþróttaiðkana, en eftir að Ungmennafélagið Fjölnir var stofn- að, fjölmennasta íþróttafélagið í Reykjavík, fór aðeins að birta til. Íþróttahúsið við Dalveg var reist, einn keppnisvöllur fyrir fótbolta og tveir æfingavellir, og síðar kom sund- laug, ásamt aðstöðu fyrir tennis. Önnur íþróttaaðstaða er til staðar í örsmáum íþróttasölum við grunn- skólana, sem henta sæmilega fyrir leikfimi en engan veginn fyrir bolta- íþróttir. Þetta er nú öll aðstaðan fyrir 20 þúsund manna hverfi í Reykjavík og forsvarsmenn borgarinnar eru bara stoltir af. Við sem búum í hverfinu er- um afskaplega óánægð og ætlumst til þess að úr verði bætt hið allra fyrsta. Í Grafarvogi búa álíka margir og í Hafnarfirði. Í Hafnarfirði eru 3 stór íþróttahús, við Strandgötu, Kapla- krika og Ásvelli, ásamt fjölda fót- boltavalla, sundlaug og margvíslegri annarri íþróttaaðstöðu. Þegar þessi samanburður er skoðaður sjá allir, sem á annað borð vilja sjá, að brýnt er að bæta úr. Nýja fótboltahúsið er reist fyrir alla borgarbúa, en ekki sér- staklega fyrir Fjölni, ef einhver stendur í þeirri meiningu. Við teljum okkur eiga rétt á betri aðstöðu fyrir unga fólkið okkar og aðra þá er stunda líkamsrækt og minnum enn og aftur á forvarnargildi íþrótta. Flokks- pólitískur hanaslagur, kannski rétt- ara að segja hænuslagur, má ekki trufla svo dómgreind að saklausir borgarar þurfi að líða fyrir. Rekstur borgarsamfélags og flokkspólitísk átök eiga enga samleið og því væri best að eyða slíkum átökum. En lík- lega verður sú ósk mín ekki uppfyllt. Á mótum Hverafoldar og Funa- foldar er lítill sparkvöllur, sem börnin í hverfinu hafa notað til leikja und- anfarin ár. Síðastliðin þrjú ár hefur völlurinn verið í algjörri niðurníðslu, mölin að mestu farin, holurnar dýpka og dýpka og engin net í mörkunum. Börnin og foreldrar þeirra hafa ítrekað reynt að fá völlinn bættan, og ekki vantar loforðin þar um hjá ÍTR, en efndirnar eru engar, því miður. Í dag er völlurinn stórhættulegur því hættan á því að börnin misstígi sig er mikil. Ég spyr því forsvarskonu íþrótta- mála í Reykjavík: Hvenær ætlið þið að laga þennan sparkvöll og aðra sparkvelli í Grafarvogi? FRIÐBERT TRAUSTASON, Hverafold 72, Reykjavík. Íþróttamannvirki Frá Friðberti Traustasyni: ÞAÐ vita það allir sem hugsa um fleira en eigin hag, að síðan markaðs- hyggjan lagði stóran hluta af þjóðinni í sálarfjötra peningalegrar græðgi hafa félagsleg viðhorf verið á undan- haldi í samfélaginu. Mannlegi þáttur- inn í samskiptum hefur verið snið- genginn og almennt talað hefur kærleikurinn kólnað. Það leiðir af sjálfu sér að svo fari í þjóðfélagi sem stöðugt fjarlægist meira þá hugsun að sinna beri náung- anum. Það kannast allir við orðtak markaðsstrákanna sem kallaðir eru með reglubundnum hætti í fjölmiðla til að útskýra fjármálalega þróun mála. „Markaðurinn ræður,“ segja þeir glaðbeittir, en í raun og veru gætu þeir alveg eins sagt „Mammon ræður“. En þó að mannlegi þátturinn sé sveltur í veruleikanum er sífellt meira spilað á slíka strengi í áróðurs- og auglýsingaherferðum alls kyns söluaðila. Áður þurfti ekki að taka það fram sem lá í augum uppi og var til staðar í þjóðfélaginu. Þá voru hin góðu gildi áþreifanleg í samskiptum manna á meðal. Nú er hins vegar öld- in önnur. Mannlegi þátturinn er dásamaður í áróðursauglýsingunum og umhyggj- an þar fyrir velferð náungans er ólýs- anlega mikil. En í veruleika þess þjóð- félags sem vill að markaðurinn, þ.e.a.s. Mammon, ráði er frumskóg- arlögmálið í gildi í öllum viðskiptum. Þar er það harkan sex sem ræður og ekkert annað. Markmiðið er að ráða yfir öðrum, verða ríkur, eiga jeppa, vera sigur- vegari! Og áfram hljómar formúlan með hörðum áherslum frá munni hins gráa innherja markaðarins: „Ef þér er kalt á tánum, sparkaðu þá í rassinn á næsta manni.“ En jafnhliða slíkri markaðssetningu glymur „mannkær- leika“áróðurinn frá þeim sem vilja komast sem lengst niður í vasana okkar. Við heyrum í sífellu þaulhugs- aðar áróðurssetningar: „Hjá okkur snýst allt um fólk“, „Láttu okkur bera ábyrgðina með þér“, „Við hjálpum þér“, „Við komum til móts við þarfir þínar“ o.s.frv., o.s.frv. Og svo eru það lífeyrissjóðirnir sem eru með linnulaus gylliboð til að fá fólk til að leggja meira í sparnað til elliáranna – svo þeir geti valsað með meiri fjármuni í núinu. En auðvitað veit enginn hver ávöxtunin verður á þeim fjármunum til lengri tíma litið, enda er það víst aukaatriði. Þeir hafa kannski verið lánaðir í gjaldþrota flugfélag löngu áður en kemur að líf- eyrisgreiðslum. Breytum um hugsun- arhátt, hreinsum til í þjóðfélaginu og sendum þessa gegndarlausu Mamm- onsdýrkun til fjandans – þar sem hún á heima. Hefjum mannlega þáttinn aftur til vegs og virðingar í öllum sam- skiptum okkar, látum hann vera lif- andi og raunverulegan í samfélaginu. Eflum traust og stefnum að því að handsöl geti gilt í viðskiptum manna eins og var áður en dansinn í kringum gullkálfinn lagði stóran hluta af þjóð- inni í ánauð peningalegrar græðgi. RÚNAR KRISTJÁNSSON, Bogabraut 21, Skagaströnd. Markaðurinn ræður Frá Rúnari Kristjánssyni:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.