Morgunblaðið - 16.02.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Nýtt félag um Afríku sunnan Sahara
Töfrar Afríku
eru óendanlegir
STOFNFUNDUR fé-lagsins Afríka 20:20– félag áhugafólks
um málefni Afríku sunnan
Sahara verður haldinn
næst komandi þriðjudag,
19. febrúar, í Alþjóðahús-
inu, Hverfisgötu 18 í
Reykjavík. Hefst hann
klukkan 19.30.
Jónína Einarsdóttir
mannfræðingur er ein
þeirra sem unnið hefur að
undirbúningi stofnfundar-
ins. Hún svaraði nokkrum
spurningum Morgunblaðs-
ins.
Hver eru þín tengsl við
Afríku?
„Ég hef sinnt málefnum
tengdum Afríku á einn eða
annan hátt í rúma tvo ára-
tugi. Ég hef stundað nám,
unnið með verkefni tengd Afríku
og starfað og búið þar í nær átta
ár. Ég sat um árabil í stjórn
sænsku félagasamtakanna Afr-
ikagrupperna og vann fyrir þau
við ráðningar og fræðslustörf, en
samtökin hafa fjölda sjálfboðaliða
í álfunni og standa þar fyrir þró-
unarverkefnum. Þá hef ég skrifað
doktorsritgerð í mannfræði um
barnadauða og viðbrögð mæðra
við honum, en hún byggist á rann-
sóknum í Gíneu-Bissá. Ég var
einnig virkur meðlimur í vináttu-
félagi Svíþjóðar og Gíneu-Bissá á
þeim tíma sem ég bjó í Stokk-
hólmi.“
Hvers vegna Afríkufélag?
„Við sem stöndum að stofnun
þessa félags eigum það öll sameig-
inlegt að hafa á einn eða annan
hátt tengsl við Afríku sunnan
Sahara. Við teljum að umfjöllun
um álfuna sé bæði takmörkuð og
einhliða þar sem nánast eingöngu
er fjallað um stríðsátök, volæði og
eymd.“
Hvers konar félagsskapur á
Afríkufélagið að vera?
„Við viljum skapa okkur sjálf-
um og öðrum sem hafa áhuga á
málefnum Afríku sunnan Sahara
vettvang til að fylgjast með því
sem er að gerast þar, skiptast á
skoðunum og samtímis stuðla að
því að auka þekkingu um fjöl-
breytilega menningu álfunnar.“
Hverjum er félagið ætlað?
„Rétt til aðildar að félaginu á
allt áhugafólk um málefni Afríku
sunnan Sahara. Það er því á eng-
an hátt skilyrði fyrir þátttöku að
hafa verið í Afríku eða hafa á ann-
an hátt tengsl við álfuna. Félagið
er því öllum opið, jafnt Afríkönum
sem eru búsettir á Íslandi og Ís-
lendingum sem aldrei hafa komið
þangað.“
Á að efna til Afríkuferða, halda
myndakvöld, fyrirlestra og árshá-
tíð?
„Félagið á ekki að vera ferða-
klúbbur. Aftur á móti stefnum við
að því að halda fundi og málþing
um málefni Afríku sunnan Sahara
og stuðla að menningarlegum
samskiptum. Þó árshátíð sé ekki á
dagskránni segir mér svo hugur
að tækifæri gefist til að skemmta
sér og krydda tilveruna
með góðri afrískri
danstónlist.“
Hver telurðu að
hljómgrunnurinn sé
hér á landi fyrir svona
félag?
„Við höfum fundið fyrir áhuga á
stofnun félagsins. Samskipti Ís-
lands og Afríku sunnan Sahara
hafa aukist verulega á síðasta ára-
tug, að hluta til vegna starfsemi
Þróunarsamvinnustofnunar Ís-
lands, Rauða krossins, Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar og skipti-
nemasamtaka, svo eitthvað sé
nefnt. Auk þess eru viðskipti við
álfuna vaxandi. Afrískir háskóla-
nemar stunda hér einnig nám í
auknum mæli og fjöldi nýinn-
fluttra Afríkana býr hér á landi.“
Afríka virðist fremur róstusöm
heimsálfa þar sem er mikil fátækt
og heilbrigðisvandamál, sumir
hafa talað um að því minna sem
samneytið væri, því betra... hvað
segirðu um það?
„Stríðsátök eru ekki aðeins í
Afríku þó að þar sé af nógu að
taka. Þegar ég fór í frí til Evrópu
spurðu nágrannar mínir í Gíneu-
Bissá hvort mér og fjölskyldu
minni væri nokkur hætta búin
vegna Balkanstríðsins. Á Íslandi
var ég hins vegar spurð hvort ég
byggi í nágrenni Rúanda, en þá
var stríðið þar í fullum gangi.
Vissulega er fátækt meiri og heil-
brigðisvandamálin erfiðari í Afr-
íku en gengur og gerist annars
staðar. Það mætti kannski segja
að einmitt þess vegna ættum við
að efla tengslin, ekki að minnka
þau. Mannleg samskipti sem
byggjast á gagnkvæmri virðingu
eru ávallt af hinu góða. Þau eru
forsenda umburðarlyndis, friðar
og mannréttinda.“
Allir vita um það sem aflaga
hefur farið í Afríku, en hverjir eru
helstu töfrar álfunnar?
„Töfrar Afríku eru ótæmandi.
Það sem hefur heillað mig er mjög
tengt persónulegri reynslu minni.
Það er m.a. að vakna upp við
hanagal og heyra taktfastan slátt-
inn þegar konur steyta
hrísgrjón. Að finna ilm-
inn af kolagrillinu og
borða velkryddaðan
mat úr sameiginlegri
skál meðal vina. Það er
líka kæfandi hitinn og síðan að
finna svalann sem fylgir hitabelt-
isrigningunni og heyra vatnið
berja bárujárnsþakið. Það er hár-
fínn húmorinn og myndmálið. Svo
er það iðandi mannlífið þar sem
tunglið er eini ljósgjafinn og
trommusláttur í fjarska. Þessa
töfra er ekki hægt að endurskapa
á Íslandi, en við munum gera okk-
ar besta...“
Jónína Einarsdóttir
Jónína Einarsdóttir er fædd í
Reykjavík 1954. Stúdent frá ML
1974, BS í efnafræði 1978 og
kennsluréttindanám 1980 frá HÍ.
Próf um málefni þróunarlanda
frá Uppsalaháskóla 1987 og
doktorspróf í mannfræði frá
Stokkhólmsháskóla vorið 2000.
Kenndi innanlands 1978–81, og
við Meinatækniskóla Gíneu-Bissá
1982–85. Vann við mann-
fræðideild Stokkhólmsháskóla
1988–93 og við mannfræðirann-
sóknir í Gíneu-Bissá 1993–98.
Starfar nú við rannsóknir og
kennslu. Maki er Geir Gunn-
laugsson barnalæknir og eiga
þau þrjá syni.
Stríðsátök
eru ekki að-
eins í Afríku
Má Hjörvar litli koma út og leika, frú borgarstjóri?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
1
68
38
02
/2
00
2
Verið róttæk
Verð frá 199 kr.
Pottatilboð
Reykjavík sími 580 0500
Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
Nú er rétti tíminn til að umpotta
5 L 149 kr.
10 L 259 kr.
Gróðurmold
1 lítri 499 kr.
Græna þruman
Áburður