Morgunblaðið - 16.02.2002, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 9
SKIPULAGS- og byggingarnefnd
Mosfellsbæjar vantaði lagastoð fyr-
ir ákvörðun sinni hinn 19. septem-
ber 2000 þegar hún synjaði húseig-
anda þar í bæ um leyfi til að
stækka hús sitt, að mati úrskurð-
arnefndar skipulags- og bygging-
armála, sem fellt hefur úr gildi
ákvörðunina. Jafnframt taldi úr-
skurðarnefndin að ekki hefði verið
gætt meðalhófs við meðferð máls-
ins af hálfu skipulags- og bygging-
arnefndar og lagði fyrir hana að
taka umsókn húseigandans til með-
ferðar að nýju.
Húseigandinn óskaði leyfis til að
stækka aukaíbúð á neðri hæð húss
síns í Höfðahverfi úr 100 m² í 138,8
m². Synjunarákvörðun skipulags-
og byggingarnefndar var m.a. rök-
studd með tilvísun til ályktunar
nefndarinnar frá 1999 þar sem
sagði, að nefndin liti á að aukaíbúð
væri töluvert minni en aðalíbúð, t.d.
minni en 100 m². Yrði ráðið af mála-
tilbúnaði Mosfellsbæjar að litið
væri á þessa ályktun sem einhvers
konar skipulagsákvörðun sem hefði
almennt gildi á skipulagssvæðinu.
Væri og af hálfu bæjarins vísað til
stjórnarskrárvarins sjálfsákvörð-
unarréttar sveitarfélaga og ákvæð-
is í skipulagsskilmálum um að
byggingarnefnd skæri úr um
ágreining sem rísa kynni um túlkun
einstakra ákvæða skilmálanna.
Hvað er aukaíbúð?
Úrskurðarnefndin taldi, að enda
þótt í sjálfsákvörðunarrétti sveitar-
félaga fælist víðtækur réttur þeirra
til forræðis í eigin málefnum væru
þau eftir sem áður bundin af lög-
mætisreglu stjórnsýslunnar og
þyrftu ákvarðanir þeirra að vera
reistar á ótvíræðum lagagrundvelli
og lögmætum sjónarmiðum. Úr-
skurðarnefndin taldi að húseigand-
inn hefði sem rétthafi samkvæmt
lóðarsamningi rétt til að byggja á
lóðinni og hagnýta sér eignina. Í
skipulagsskilmálum væri heimild til
að reisa einbýlishús með aukaíbúð
en hvergi væri í skilmálunum eða
öðrum heimildum skilgreint hvað
átt væri við með aukaíbúð. Yrði
ekki lagður annar skilningur í
ákvæði skilmálanna en að í húsi
hans mættu vera tvær misstórar
íbúðir.
Átti rétt á að stækka
aukaíbúð um 40 m²
ÝSAN sem Farsæll GK 162 kom
með til hafnar í vikunni og vó 12 kíló
reyndist vera ellefu ára gömul að
sögn Gunnars Jónssonar, fiskifræð-
ings hjá Hafrannsóknastofnun Ís-
lands.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í vikunni var ýsan 106 sm en
þetta er ein stærsta ýsa sem hefur
veiðst hér við land svo vitað sé. Að
sögn Gunnars vógu hrognin í ýsunni
800 grömm. Hafrannsóknastofnun
fékk ýsuna til skoðunar eftir að Far-
sæll kom með hana í land en nú hafa
skipverjar Farsæls fengið hana aftur
því til stendur að stoppa hana upp.
Veðmál um aldur ýsunnar
Áður en búið var að aldursgreina
ýsuna hjá Hafrannsóknastofnun
gekk á milli manna hjá stofnuninni
veðmál um hvað hún væri gömul.
Gunnar segir að menn hafi giskað á
að hún væri allt frá 11 ára til yfir 20
ára gömul. Það var Haraldur Ein-
arsson, sem nýlokið hefur meistara-
námi í líffræði í Noregi, sem gat rétt
til um það hvað hún væri gömul.
Ýsan
reyndist
ellefu ára
gömul
Allir fylgihlutir fyrir dömu og herra
Mikið úrval af samkvæmisfatnaði
Efnalaug og fataleiga Garðabæjar
Opið alla daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14.
Garðatorgi 3, sími 565 6680
Glæsilegir
brúðarkjólar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Síðasti
útsöludagur
Klárum allt!
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Lokað mánudag, þriðjudag og miðvikudag
Ný sending frá
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag frá kl. 10-14
Gallafatnaður!
Gallabuxur, gallajakkar,
gallakjólar, gallavesti
Nýtt kortatímabil
Pantið núna Kays sumarfötin
Argos vörurnar
Panduro föndrið
B. Magnússon
Austurhrauni 3, Gbæ/Hf. 555 2866
Nýjar vörur í versluninni
Smáskór sérverslun með barnaskó
í bláu húsi við Fákafen - Sími 568 3919 - Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Síðasti dagur útsölunnar
20% aukaafsláttur af öllum barnaskóm
Ljósakrónur Skrifborð
Skatthol Íkonar
www.simnet.is/antikmunir
Glæsilegir mahogny-skápar
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Ekta pelsar, mokkajakkar
og leðurflíkur 50% afsláttur.
20—50% afsláttur af öðrum vörum
Sigurstjarnan-Stórútsala
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugard. 11-15
Opi› í dag frá 10-16
Útsölulok
20% auka afslátturHatha yoga framhaldsnámskeið með Daníel Bergmannhefst 25. febrúar – Mán. og mið. kl. 18:30 í 3 vikur
Þróaðri útfærslur öndunar, ujjayi og bhastrika - höfuðstaða og aðrar eilítið
þyngri jógastöður - hugleiðsla með möntru - siðferðilegur grunnur hatha
yoga, yama og niyama - sex líkamshreinsanir, kriyas og margt fleira.
Tækifæri fyrir jógaiðkendur til að lífga upp á og dýpka ástundun sína.
Yoga Studio – Halur og sprund ehf., Auðbrekku 14, Kópavogi.
Sími 544 5560 og 864 1445. Netfang: yoga@yogastudio.is
Umboðsaðili fyrir Custom Craftworks nuddbekki og Oshadhi ilmkjarnaolíur
Daníel
www.yogastudio.is
Stofnun Dante Alighieri á Íslandi
Sópransöngkonan Arndís Halla Ásgeirsdóttir syngur
við undirleik Yvonu Jagla og skáldið Thor Vilhjálmsson
mun segja frá kynnum sínum af Kjarval
og veru hans á Ítalíu.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill,
félagsmönnum sem öðrum.
Sýning Kjarvalsstaða á verkum Kjarvals
verður opin þetta kvöld.
Ítölsk menningarhátíð
á Kjarvalsstöðum
sunnudaginn 17. febrúar kl. 20.00