Morgunblaðið - 16.02.2002, Page 18
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
18 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„ÉG er elstur, 74 ára, í fyrirtækinu
og svo erum við með nokkra ung-
linga um fimmtugt,“ segir Jóhann
Jóhannsson í Fiskiveri á Eyr-
arbakka í gamansömum tón en
hann hefur verkað fisk á staðnum
síðan 1964. Jóhann átti og rak fyr-
irtækið ásamt Bjarna bróður sínum
en á fyrirtækið einn núna.
„Það er mikil breyting á þessu
starfsumhverfi sem maður hefur
verið í. Áður var unnið til miðnættis
á vertíðinni en nú eru allir komnir
heim klukkan fimm á daginn. Það
var mikið um að fólk kom á kvöldin
til vinnu og það þurfti engan verk-
stjóra, fólkið kunni þessi verk sem
unnin voru og gekk í þau,“ segir Jó-
hann.
„Það tollir hjá honum, fólkið“
Hann vísar með nokkrum sökn-
uði til verðtíðaráranna þegar
keppst var við að ná sem mestum
verðmætum að landi og í gegnum
verkunina á meðan á vertíðinni
stóð, frá áramótum og fram í maí.
„Svo var alltaf farið á ball í vertíð-
arlok á Hótel Sögu, til hátíð-
arbrigða. Þetta var mjög líflegur
tími og hérna hjá okkur var hörkul-
ið, alltaf sama fólkið,“ sagði Jó-
hann.
„Já, það er alveg á hreinu að það
tollir hjá honum, fólkið, margir
hafa verið í tugi ára hjá Jóhanni,“
sagði Óskar Magnússon, fyrrver-
andi skólastjóri, sem starfar nú í
Fiskiveri.
Áður fyrr var Fiskiver með 20–
30 manns í vinnu og gerði út tvo
báta. Nú vinna hjá fyrirtækinu 8–10
manns í verkuninni og 7 eru á bátn-
um Álaborg sem er 138 tonn og
gerður út frá Þorlákshöfn. Auk
þess að taka fiskinn af bátnum
kaupir Fiskiver nokkuð af fiski á
mörkuðum þegar það gefst. Nú
fara í gegnum húsið um 400 tonn á
ári en að sögn Jóhanns væri hægð-
arleikur að taka 2 þúsund tonn í
gegnum húsið en vandinn við það
væri bara að það vantaði fisk.
„Það hefur verið mjög gott og
gaman að starfa við þetta þótt það
sé leiðinlegra núna eftir að þessi
kvótavitleysa var sett á. Ég hef haft
gaman af þessu og ætla að halda því
áfram. Mér finnst ekki koma til
greina að loka þessari vinnslu
hérna,“ sagði Jóhann sem hefur
staðið að rekstri Fiskivers á Eyr-
arbakka í gegnum allar þær breyt-
ingar og öldurót sem sjávarútveg-
urinn og fiskvinnslan hafa farið í
gegnum. Fyrirtæki í fiskvinnslu á
Eyrarbakka og Stokkseyri hafa
komið og farið en Fiskiver hefur
alltaf verið á sínum stað eins og
klettur í hafinu.
Jóhann í Fiskiveri við fiskvinnslu á Eyrarbakka í tæp 40 ár
„Ég ætla
að halda
áfram að
hafa gaman
af þessu“
Selfoss
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Unnið af kappi í vinnslusalnum í Fiskiveri á Eyrarbakka.
HEILSUGÆSLUSTÖÐ Þorláks-
hafnar tók fyrir skömmu í notkun
nýtt röntgentæki. Tækið er ítalskt af
gerðinni Top 28. Bræðurnir Ormsson
fluttu það inn. Samsvarandi tæki eru
fyrir á tveimur stöðum á landinu og
hafa gefist vel. Tækið kostaði um fjór-
ar milljónir króna. Framköllunar-
tæki, sem er nauðsynlegt með, kost-
aði 500 þúsund. Heildarverð er um
fimm milljónir þegar teknar hafa ver-
ið með í reikninginn ýmsar rekstrar-
vörur tengdar tækinu og kostnaður
við útboð. Ríkiskaup önnuðust útboð
vegna kaupanna og bárust fimm til-
boð frá fjórum aðilum.
Kiwanisklúbburinn Ölver í Þor-
lákshöfn ákvað að gera eitthvað sem
tekið væri eftir í tilefni af 25 ára af-
mæli klúbbsins. Kiwanismenn
ákváðu að leggja fram 1,5 milljónir til
kaupa á röntgentæki og fá aðra með.
Fjárveitingarvaldið lagði til tvær
milljónir og sveitarfélagið Ölfus
reiddi fram 300 þúsund krónur. Sam-
tals eru þetta 3,8 milljónir og lagði
stöðin fram 1,2 milljónir af uppsöfn-
uðum sparnaði.
Af þessu tilefni bauð stjórn heilsu-
gæslunnar öllum viðkomandi til kaffi-
samsætis og voru tækið og stöðin til
sýnis. Í ræðu Baldurs Kristjánsson-
ar, stjórnarformanns stöðvarinnar,
kom fram að fyrirtæki og félagasam-
tök hafa lagt hátt í 800 þúsund til
stöðvarinnar á sl. þremur árum á nú-
virði. Þetta er fyrir utan höfðinglegt
framlag félaga í Kiwanis.
Sjálfstæð heilsugæslustöð
Eina af ástæðunum taldi hann vera
þá að þetta væri lítil, sjálfstæð heilsu-
gæslustöð sem íbúar litu á sem sína.
Sameining í stórar einingar væri því
ekki alltaf sjálfsögð. Baldur þakkaði
öllum sem lagt hefðu kaupunum lið og
sérstaklega Kiwanisfélögum, sem
hrundu málinu af stað með myndar-
legri peningagjöf og auðsýndum
áhuga á verkefninu. Ægir E. Haf-
berg, forseti Kiwanisfélagsins, flutti
ávarp og það gerðu einnig Hjörleifur
Brynjólfsson oddviti og Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra. Heil-
brigðisráðherra skoðaði síðan stöð-
ina. Í ræðu ráðherra kom fram að
komugjald, sem nýverið var hækkað,
myndi nú lækka verulega og yrði
lægra en það var fyrir hækkun.
Læknir við heilsugæslustöðina í Þor-
lákshöfn er Helgi Hauksson og hjúkr-
unarforstjóri Bergdís Sigurðardóttir.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Frá vinstri: Ægir E. Hafberg, forseti Kiwanisklúbbsins Ölvers, Baldur
Kristjánsson, formaður heilsugæslustjórnar, Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra, Helgi Hauksson læknir, Hjörleifur Brynjólfsson odd-
viti og Bergdís Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri.
Kiwanismenn komu
boltanum af stað
Þorlákshöfn
BÍLSKÚR við býlið Stuðla í Ölf-
usi, í nágrenni Selfoss, brann til
grunna á miðvikudagskvöld.
Skúrinn stendur rétt við íbúðar-
húsið en vindátt stóð af íbúðar-
húsinu þannig að það var ekki í
bráðri hættu þó mikill eldur væri
í skúrnum. Reykinn lagði af
skúrnum og milli næstu húsa.
Eigandi hússins, Páll Stefánsson
dýralæknir, náði með snarræði
tveimur bílum úr skúrnum og
forðaði þeim frá eyðileggingu.
„Um leið og ég varð var við
eldinn hljóp ég út og inn í bíl-
skúrinn. Önnur hurðin var opin
og ég gat bakkað öðrum bílnum
út en á meðan opnaðist hin hurð-
in og ég gat náð þeim bíl út líka.
Þegar ég hljóp inn í skúrinn var
talsverður eldur kominn en síðan
varð skúrinn alelda á skömmum
tíma og eitt eldhaf sem ekkert
varð við ráðið,“ sagði Páll Stef-
ánsson.
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Slökkviliðsmenn frá Selfossi vinna við að slökkva eldinn í bílskúrnum.
Páll Stefánsson er hér framan
við brunninn bílskúrinn.
Náði
tveimur
bílum úr
brennandi
bílskúr
Selfoss
GESTIR Sundhallar Selfoss voru alls
150.385 á síðasta ári en aðsókn að
Sundhöllinni jókst um 20% milli ára.
Að meðaltali komu í sundlaugina 419
gestir á degi hverjum en laugin var á
síðasta ári opin í 359 daga í samtals
4.760 klukkustundir. Frá því Sund-
höll Selfoss var opnuð var heildar-
fjöldi gesta um áramót orðinn
2.928.089 og má því gera ráð fyrir að
þriðji milljónasti gesturinn komi í
laugina um mitt árið. Að sögn Sig-
mundar Stefánssonar verður þeim
tímamótum fagnað með viðeigandi
hætti.
Sundhöll Selfoss nýtur greinilega
mikilla vinsælda en laugin státar af
innilaug, 25 metra útilaug, renni-
braut, vaðlaug fyrir börn og þremur
heitum pottum ásamt gufubaði á úti-
svæði og innandyra auk ljósabekkja. Í
rannsókn sem unnin var árið 2000
komu fram þau viðhorf gesta í Árborg
að 37% nefndu sundlaugina sem eft-
irsóknarverðustu afþreyinguna í Ár-
borg.
Einnig kom fram að fólk með börn
er tvisvar sinnum líklegra til að fara í
sund en þeir barnlausu. Þá voru 71%
Íslendinga og 58% erlendra gesta
mjög ánægð með þjónustu laugarinn-
ar.
Sigmundur Stefánsson hefur starf-
að við Sundhöll Selfoss síðan 1977 og
verið forstöðumaður síðan 1984.
„Sundið er orðið meiri almenn-
ingsíþrótt hin síðari ár. Það hafði mik-
il áhrif á aðsóknina þegar útilaugin
kom hér 1978 og heitu pottarnir.
Þetta gerði að verkum að sundlaugin
varð skemmtistaður og félagsmiðstöð
í þeim skilningi að fólk hittist hér og
sækir í það. Síðan þegar núverandi
útisvæði var byggt upp 1997 varð enn
ein breytingin og aðsóknin tók kipp.
Við fáum mikið af barnafólki enda er
hér gott að vera og auðvelt að hafa yf-
irsýn yfir svæðið,“ sagði Sigmundur.
Framtíðaráform varðandi Sund-
höllina sagði Sigmundur vera að
stækka búningsklefana og þjónustu-
aðstöðuna með hliðargreinum í
tengdum rekstri, líkamsrækt, ljósa-
böðum og veitingaaðstöðu. Útfærsla á
þessu kom fram við framkvæmdirnar
1997 og liggur þegar fyrir.
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Hluti starfsfólks Sundhallar Selfoss á útisvæðinu í blíðviðrinu á dög-
unum. Sigmundur Stefánsson, Svala H. Steingrímsdóttir, Högni Guð-
mundsson og Sigríður E. Sigmundsdóttir.
Gestir Sund-
hallarinnar nálg-
ast 3 milljónir
Selfoss
Heilsugæslan fær röntgentæki