Morgunblaðið - 16.02.2002, Síða 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 19
Dæmi um
hvað vítamín
og steinefni
gera fyrir þig
Í DAG frumsýnir Leikfélag
Menntaskólans á Egilsstöðum
söngleikinn Gauragang, eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Áður hafa
Þjóðleikhúsið og nokkur áhuga-
leikhús sýnt verkið, sem töluvert
hefur verið sýnt í skólum. Efnivið-
urinn er gamansöm þroskasaga
ungs drengs, þó með alvarlegu
ívafi, þar sem unglingurinn Orm-
ur Óðinsson þroskast frá barni til
fullorðinnar manneskju.
Nítján leikarar taka þátt í sýn-
ingunni, en hlutverk eru nokkru
fleiri. Aðalhlutverk eru í höndum
Andra Bergmann Þórhallssonar,
Erlu Dóru Vogler og Elísabetar
Öglu Stefánsdóttur.
Unnar Geir Unnarson er leik-
stjóri verksins, en þetta er þriðja
leikhúsverkið sem hann stýrir.
Unnar er heimamaður og hefur
komið víða við í leikhúslífi á
Fljótsdalshéraði. Hann stundar nú
klassískt söngnám í Reykjavík.
Tónlistin í verkinu er eftir
hljómsveitina Ný danska og tón-
listarstjóri sýningarinnar er Haf-
þór Snjólfur Helgason.
Leikfélag Menntaskólans á Eg-
ilsstöðum hefur verið starfrækt
frá árinu 1988 og er formaður
þess Aldís Fjóla Ásgeirsdóttir.
Frumsýning Gauragangs hefst
kl. 20 í Fosshóteli Valaskjálf á Eg-
ilsstöðum. Aðgangseyrir er kr.
1.800. Ráð mun gert fyrir að
minnsta kosti 6 sýningum.
15. leikár Menntaskólans á Egilsstöðum
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Andri Bergmann Þórhallsson og Erla Dóra Vogler í hlutverkum Orms
og Höllu í leikritinu Gauragangi, sem frumsýnt verður í kvöld.
Frumsýna
Gauragang í kvöld
Egilsstaðir
Í SKOÐANAKÖNNUN Bæjarmála-
félagsins Hnjúka á Blönduósi vegna
prófkjörs sem haldið verður 16. febr-
úar nk. gefa sex einstaklingar kost á
sér. Þau eru í stafrófsröð:
Björgvin Þór Þórhallsson, aðstoð-
arskólastjóri Grunnskóla Blönduóss,
en hann gefur kost á sér í fyrsta sæti.
Gunnlaug S. Kjartansdóttir verka-
kona, hún gefur kost á sér í ótilgreint
sæti. Helga Jónína Andrésdóttir
bankastarfsmaður, hún gefur einnig
kost á sér í ótilgreint sæti. Jóhanna G.
Jónasdóttir leikskólastjóri, hún gefur
kost á sér í fyrsta sæti. Jón Ragnar
Gíslason verkamaður, í ótilgrein sæti.
Valdimar Guðmannsson verkamaður,
í fyrsta til þriðja sæti.
Sex gefa
kost á sér
Bæjarmálafélagið
Hnjúka
„Það gerist ekki á hverjum degi
að þessir menn eru samtímis á
landinu og í okkar huga verða
þetta auðvitað algjörir túrbó-tón-
leikar, sagði Bryndís Brynjólfs-
dóttir, einn stjórnarmanna í Skála-
félaginu.
Forsala aðgöngumiða fer fram í
Lindinni, tískuverslun, Eyravegi 7,
hjá versluninni Írisi í Miðgarði og
á skrifstofu Sjóvár-Almennra á
Austurvegi 36. Miðaverð er 1.500 í
forsölu og 1.800 við innganginn.
SKÁLAFÉLAGIÐ, sem stendur
að endurbyggingu Tryggvaskála á
Selfossi, stendur fyrir stórtón-
leikum í Fjölbrautaskóla Suður-
lands þriðjudaginn 19. febrúar
klukkan 20,30. Á tónleikunum
koma fram stórsöngvararnir
Kristinn Sigmundsson bassi og
Gunnar Guðbjörnsson tenór ásamt
Jónasi Ingimundarsyni píanóleik-
ara.
Kristinn Sigmundsson
og Gunnar Guðbjörns-
son syngja saman
Selfoss
Í HAUST var söfnun á vegum
sóknarnefndar Skeggjastaðakirkju
vegna kaupa á nýju orgeli í kirkj-
una, gamla orgelið var fótstigið
harmoníum frá árinu 1949, þriggja
radda.
Nýja orgelið var vígt hinn sex-
tánda desember 2001 af séra Sig-
fúsi J. Árnasyni. Nýja orgelið var
keypt hjá Hljóðfæraverslun Pálm-
ars Árna ehf. og að sögn Pálmars
Árna er orgelið hollenskt af Cont-
ent-gerð, stafrænt tuttugu radda
með píputóni, tveggjaborða með
petala og þarfnast það ekki still-
ingar eins og pípuorgel þurfa að
minnsta kosti einu sinni á ári.
Sóknarnefnd Skeggjastaða-
kirkju vill koma á framfæri inni-
legu þakklæti til þeirra fjölmörgu
sem gerðu þeim kleift að kaupa
þetta nýja orgel og biður þeim
guðs blessunar.
Vegna mistaka birtist gömul
frétt um orgelið í blaðinu á þriðju-
dag og er beðist velvirðingar á því.
Nýtt orgel komið í
Skeggjastaðakirkju
Morgunblaðið/Áki Guðmundsson
Orgelið í Skeggjastaðakirkju.
Bakkafjörður