Morgunblaðið - 16.02.2002, Side 28
28 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
N
ÝBYGGING Íslenskr-
ar erfðagreiningar við
Sturlugötu 8 í
Reykjavík, nánar til-
tekið í Vatnsmýrinni,
sem er alls rúmlega 15 þúsund fer-
metrar að stærð, var reist á 12 mán-
uðum. Hún er nú nánast fullbúin og í
dag verður opnunarhátíð. Bygging-
arkostnaður er kringum þrír millj-
arðar króna og er um helmingur
kostnaðarins vegna margvíslegs
tækni- og lagnabúnaðar sem starf-
semin krefst og er þá tölvubúnaður-
inn ekki talinn með.
Starfsemi fyrirtækisins er nú öll
komin undir sama þak en síðast var
hún komin í hús á fimm stöðum, við
Lyngháls og Krókháls í Reykjavík
og í þremur húsum við Hlíðasmára í
Kópavogi.
„Byggingin sem slík gerir ekkert
en hún hefur þó það hlutverk að
draga fólkið saman. Þegar menn
ganga um miðjuskálann og sjá hvað
allt iðar af lífi fá menn eins konar
þorpstilfinningu. Öll starfsaðstaða er
nú gjörbreytt og ég er sannfærður
um að fyrirtækið verður allt ennþá
skilvirkara,“ segir Kári Stefánsson,
forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
um húsið. „Mér fannst ég hafa losnað
svolítið úr tengslum við fyrirtækið
síðustu misserin eftir að skrifstofan
var flutt í Kópavog en nú get ég byrj-
að daginn á að ganga um og ræða við
starfsmenn og mér finnst gott að
komast nú aftur í þessa nánu snert-
ingu.“
Hús ÍE er þrjár álmur, tvær hýsa
rannsóknastofurnar og sú þriðja er
skrifstofuálma. Á milli þeirra er
mikið miðrými og kemur góð birta
gegnum glerþakið. Í miðrýminu er
mötuneyti á jarðhæð og eru efri
hæðirnar síðan tengdar með brúm á
stálbitum. Þannig geta starfsmenn
gengið milli álmanna eftir brúnum
og veggirnir sem snúa að miðrýminu
eru að mestu úr gleri. Sést vel hvar
starfsmenn eru að sýsla og segir
Kári þetta meðal annars gefa
mönnum þá tilfinningu að þeir séu
hluti af stórri heild, jafnvel þótt
menn vinni að mjög afmörkuðum
verkefnum á litlum rannsóknastof-
um.
Lokuð samkeppni um hönnun
Efnt var til lokaðrar samkeppni
um hönnun hússins og varð Ingi-
mundur Sveinsson hlutskarpastur.
Samstarfsmenn hans voru Ólafur
Axelsson og Jóhann Einarsson.
Tvær aðrar tillögur voru keyptar.
Aðalverktaki byggingarinnar var
Eykt hf. auk allmargra undirverk-
taka sem verktakinn fékk til liðs við
sig.
Kári Stefánsson segir að ÍE hafi
lengi haft uppi áform um að byggja
yfir starfsemina. Þeim hafi verið
hrundið af stað fyrir alvöru með því
að efna til samkeppni og var Hjör-
leifur Stefánsson arkitekt ráðinn til
að vera hönnunar- og byggingar-
stjóri hússins. Segir Kári hann hafa
drifið verkið áfram af miklum krafti
og vakað yfir hverjum áfanga. „Það
skipti verulegu máli að hafa fagmann
til að fylgjast svo náið með verkinu
og tel ég það bæði hafa sparað fé og
orðið til þess að byggingin reis á
mettíma.“
Hjörleifur Stefánsson segir að
tvær aðalforsendur hafi legið fyrir
við hönnun hússins. Annars vegar að
það yrði sem auðveldast að breyta
því og hins vegar að innri skipan
þess myndi skapa hvetjandi vinnu-
anda og örva samskipti. „Ég tel
þetta hafa tekist því álmunum er
skipað kringum innra rýmið og
starfsmenn sjá vel hver til annars
gegnum glerveggina og þeir hittast
mikið í miðrýminu,“ segir Hjörleifur.
„Hvenær sem einhver fer frá starfs-
svæði sínu hittir hann samstarfs-
mann og þetta er hrein bylting frá
því að menn voru dreifðir á fimm hús
fyrirtækisins áður. Þannig fá menn
enn betur á tilfinninguna að þeir séu
hluti af stórri heild og þátttakendur í
sameiginlegu verkefni.“
Auðvelt að færa til innveggi
Húsið er að mestu úr járnbentri
steinsteypu en lítið er um steypta
innveggi. Innveggir eru úr verk-
smiðjuframleiddum einingum sem
Hjörleifur segir að veiti góða hljóð-
einangrun og sé auðvelt að færa til.
Mikill hluti veggjanna er klæddur
plasthúðuðum plötum en veggir á
þriðju hæð skrifstofuálmu eru
klæddir spónlögðum plötum. Gólf í
skrifstofuálmu, göngum í miðrými
og stigar í rannsóknastofuálmunum
eru lögð gegnheilu eikarparketi. Gólf
rannsóknastofa eru lögð gúmmídúk
og í miðrými eru sandsteinsflísar á
gólfi.
Byggingarkostnaður hússins er
um þrír milljarðar króna. Nálega
helmingur kostnaðarins er vegna
margs konar tæknibúnaðar, svo sem
Rúmlega 15 þúsund fermetra hús Íslenskrar erfðagreiningar
Kostnaður við
hús og tækni-
búnað um
þrír milljarðar
Í nýjum aðalstöðvum Íslenskrar erfða-
greiningar í Vatnsmýrinni í Reykjavík
starfa yfir 500 manns. Er þar bjartur og líf-
legur vinnustaður eins og Jóhannes
Tómasson komst að þegar hann gekk þar
um gáttir með forráðamönnum fyrirtæk-
isins.
Morgunblaðið/Þorkell
Hús Íslenskrar erfðagreiningar er þrjár álmur sem tengdar eru saman
með brúm. Á neðstu hæð í miðrýminu er veitingaaðstaða starfsmanna.
Morgunblaðið/Þorkell
Margar rannsóknastofur eru í álmunum tveimur og blasa þær við gestum og gangandi frá miðrýminu.