Morgunblaðið - 16.02.2002, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 16.02.2002, Qupperneq 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 31 SIGUR! Prófkjör Samfylkingarinnar er opið fyrir þá sem vilja velja í sigurlið Reykjavíkurlistans. Kosið í Hótel Vík við Ingólfstorg laugardag og sunnudag frá kl. 10-17. Gamla góða Reykjavíkurlistastemmningin er komin Við vitum að sigur getur unnist í vor Komdu á kjörstað og veldu Stefán Jón Hafstein í fyrsta sæti ÖNNUR listafléttan sem Listráð Langholtskirkju gengst fyrir á þessu ári verður haldin í dag og hefst kl. 17.00. Þar verður tvinnað saman ýmsum listgreinum og er þjóðardrykkur Íslendinga, kaffið, rauði þráðurinn í gegnum dag- skrána. Listafléttan hefst með fyrirlestri Hauks Inga Jónssonar guðfræðings um kaffi og trú og að því búnu mun hópur tónlistarfólks flytja Kaffikant- ötuna eftir Johann Sebastian Bach, gamansamt tónverk sem talið er samið um 1735 til flutnings á kaffi- húsi. Margrét Bóasdóttir söngkona er einn flytjenda verksins og segir hún þar á ferðinni barokktónlist eins og hún gerist skemmtilegust. „Kaffi- kantatan er í raun nokkurs konar gamansöm, stutt ópera, sem segir frá áhyggjum föður af dóttur sinni,“ segir Margrét, en hún mun bregða sér í barokklegan búning við flutn- ing kantötunnar ásamt þeim Snorra Wium og Jóhanni Smára Sævars- syni. „Þetta er ein af þessum verald- legu kantötum eftir Bach og er hann þar að taka á vandamálum síns tíma þegar nýjungar í formi einhverra lystisemda og spillingar eru að halda innreið sína í menninguna. Á þessum tíma var kaffið að koma til sögunnar, og því fylgdi alveg nýtt samkomu- form, þ.e. kaffihúsamenningin. Ung- ar stúlkur fóru að sækja þessi kaffi- hús, feðrum mjög til skapraunar, sem gátu ekki haft á þeim gætur á meðan. Kaffikantatan dregur á gam- ansaman hátt upp mynd af slíkri við- ureign dóttur og föður og tilraun eldri kynslóðarinnar til að hafa hem- il á unga fólkinu.“ Margrét bendir á að sérstök barokksveit skipuð þeim Hildigunni Halldórsdóttur konsert- meistara, Martial Nardeau, Guð- rúnu Óskarsdóttur, Sigurði Hall- dórssyni, Richard Korn, Lilju Hjaltadóttur og Söruh Buckley leiki í kantötunni á sams konar hljóðfæri og notuð voru á dögum Bachs. Eftir að hafa hlýtt á Kaffikantötuna gefst gestum færi á að bragða á þeirri kaffitegund sem fyrst barst til Evr- ópu, þ.e. hinu sögufræga Jemen- mokkakaffi. Mun Birgir Finnboga- son frá kaffihúsinu Súfistanum kynna kaffitegundir og sögu þeirra og fá gestir að drekka kantötukaffi Bachs úr handunnum bollum sem tólf leirlistamenn sýna í tilefni dag- skrárinnar. Að lokum mun kvartettinn „Djúsí“ flytja nokkur verk, þar á meðal sönginn „Ég vil kaffi“, en texta hans hefur Þorsteinn Gylfason þýtt. Kvartettinn er skipaður fjórum ungum stúlkum sem allar sungu með Gradualekór Langholtskirkju og syngja nú í Graduale Nobili-kórnum. Myndlistarsýning þeirra Krist- jáns Davíðssonar og Ásgerðar Búa- dóttur, sem opnuð var í tengslum við listafléttuna, stendur enn og verður umgjörð hluta þess efnis sem boðið verður upp á á laugardaginn. Aðgangseyrir er kr. 1.500 og kr. 1.000 fyrir eldri borgara og skóla- fólk. Morgunblaðið/Sverrir Frá æfingu á Kaffikantötunni eftir J.S. Bach, sem hljóma mun innan um kaffiilm á listafléttu Langholtskirkju. Listaflétta með kaffikeimLeiðsögn áListasafni Íslands LEIÐSÖGN um sýninguna Huglæg tjáning – máttur litarins í Listasafni Íslands verður í dag og annan laug- ardag, kl. 14, báða dagana. Á sýningunni má sjá hvernig fjórir íslenskir listmálarar, Jóhannes S. Kjarval, Finnur Jónsson, Jóhann Briem og Jón Engilberts, máluðu í anda expressjónismans. Meðal mynda er Fjallamjólk, ein frægasta mynd Kjarvals sem er í eigu ASÍ en hefur ekki verið sýnd opinberlega á Íslandi um langt skeið. Í tengslum við heimsóknir skóla- nemenda stendur nú einnig yfir í safninu verkefnið „Ljósaleikur – lita- smiðja“ og lýkur því á mánudag. Sýningin Huglæg tjáning – mátt- ur litarins stendur til 14. apríl. Safn- ið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Aðgangur er ókeypis á miðvikudögum. Tónlistarnám- skeið í Salnum HVAÐ ertu tónlist? er yfirskrift námskeiðs sem hefst í Salnum á mánudagskvöld kl. 20, á vegum End- urmenntunar HÍ í samvinnu við Sal- inn og Kópavogsbæ. Jónas Ingimundarson er við slag- hörpuna og gestur kvöldsins er Guðni Franzson, klarinettuleikari. Fyrir hlé er dagskrá sem í tónum og tali er byggð á hugleiðingum um ljóðið Sigling (Hafið bláa hafið) eftir Örn Arnarson. Eftir hlé fjalla þeir Guðni og Jónas um valda kafla úr tónbókmenntum slaghörpunnar og klarínettunnar og leika verk eftir Mozart, Schumann, Brahms, Saint-Saëns, Jón Þórarins- son, Hauk Tómasson og Poulenc. Aukatónleikar með Kristni og Gunnari ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda aukatónleika með þeim félögum Kristni Sigmundssyni, Gunnari Guð- björnssyni og Jónasi Ingimundar- syni, en uppselt er á báða tónleika í Salnum í næstu viku. Þriðju tónleik- arnir verða 23. febrúar kl. 17. Á efnisskránni eru aríur og dúett- ar úr Töfraflautu Mozarts, Ástar- drykknum eftir Donizetti, Seldu brúðinni eftir Smetana, Faust eftir Gounod o.fl. óvænt. Tónleikum frestað PÍANÓTÓNLEIKUM Halldórs Haraldssonar sem vera áttu í Tíbrá Röð 1 í Salnum á þriðjudagskvöld er frestað til þriðjudagsins 12. mars kl. 20. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Prjónaaðferðir á Mokka ÍRIS Elfa Friðriksdóttir opnar sýn- ingu á Mokka á morgun, sunnudag. Hún opnar aðra einkasýningu í gryfju Listasafns ASÍ við Freyju- götu 23. febrúar. Kveikjan að verk- unum sem hún sýnir er sótt í prjóna- aðferðir og fatamerki. Hún hefur á undanförnum árum einbeitt sér að einföldu símynstri í verkum sínum. „Framleiðsluferlið í verkunum er oftar en ekki í höndum iðnaðarfólks. Þá skapast í verkin ófyrirsjánleg sérkenni sem gera hverja mynd ein- staka. Þannig má segja að símynstr- ið sé taktur verksins,“ segir í frétta- tilkynningu. Íris Elfa hefur áður haldið sex einkasýningar og tekið þátt í fjöl- mörgum samsýningum. Hún hefur verið búsett í Danmörku og mun á næstunni opna einkasýningu í Wind- ow Space í Kaupmannahöfn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.