Morgunblaðið - 16.02.2002, Page 43

Morgunblaðið - 16.02.2002, Page 43
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 43 ÞAÐ er augljós ávinningur fólginn í því fyrir Hafnfirðinga að fá jafn- ágætan athafnamann og Harald Þór Ólason í bæjar- stjórn. Hann hefur rekið fyirtæki sitt Furu hf. með mikl- um glæsibrag svo eftir hefur verið tek- ið. Haraldur er mað- ur hógvær eins og títt er um þá, sem nokkurs eru megn- ugir. Haraldur breytir járnarusli í gull og leggur þjóðinni til drjúgan skerf af gjaldeyri um leið og hann leggur því lið að fegra landið. Undirritaður hefur þekkt Harald til margra ára, en efst er í huga hversu öruggur og traustur hann er í öllum viðskiptum svo viðbrugðið er. Það er fátítt að menn, sem reka einkafyrirtæki með góðum árangri, gefi kost á sér til starfa fyrir það op- inbera. Nú gefst gott tækifæri, sem Hafnfirðingar ættu að nýta sér, enda fátt til meiri prýði á lista Sjálf- stæðisflokksins en að hann skipi maður einkaframtaksins. Haraldi er vel treystandi, því hann mun ekki frekar en Kolskeggur forðum „níð- ast á neinu því, sem honum er til trú- að“. Nú gefst Hafn- firðingum gott tækifæri Árni M. Emilsson, Garðabæ, skrifar: Árni M. Emilsson Meira á mbl.is/Prófkjör MARGUR kann að spyrja sig að því til hvers fólk er að leggja út í prófkjörsat. Þessum prófkjörum fylgja vissulega bæði kostir og gallar. Kostirnir geta verið þeir að þau vekja athygli á flokkum, stefnumálum þeirra og frambjóðendum sem kynna skoðanir sínar, áherslur og kosti. Framtíðarborgin Í stjórnmálum er gott að setja sér mark- mið og finna svo leiðir að því marki. Framtíð- arsýn mín fyrir Reykjavíkurborg er sú að hér við innanverðan Faxaflóa, frá Esjurótum og suður fyrir Straum muni mótast heildstætt byggðarsam- félag, ein skipulagsheild sem samsett er af nokkrum byggðarkjörnum, með sterkri miðborg með aðsetri stjórn- sýslu- og menningarmiðstöðva. Þetta á að vera tiltölulega þétt byggð, þar sem fólk þarf ekki að verja miklum tíma til að komast frá heimili og fjöl- skyldu í vinnu, þjónustu eða skóla. Huga þarf vel að samgöngumann- virkjum, þar sem ódýrar og aðgengi- legar almenningssamgöngur gegna veigamiklu hlutverki, enda eru þær bæði þjóðhagslega hagkvæmar og umhverfisvænar. Hin nýja Reykjavík á að vera for- ystuborg á alþjóðavísu í atvinnumál- um, þar sem lögð er áhersla á að skapa aðstöðu fyrir nýjar greinar og ýmsar hátæknigreinar – jafnframt því sem hlúð er að hefðbundnum und- irstöðuatvinnugreinum og þjónustu- greinum sem hafa átt þátt í að byggja upp þá velferð sem við búum við. Á þessu svæði á að vera tryggð fjölbreytt at- vinna fyrir alla sem vilja og geta unnið, því at- vinna og verðmæta- sköpun er grundvöllur velferðar. Forgangsmál Hið nýja borgarsam- félag á að huga sérstak- lega að þörfum yngstu og elstu íbúanna. Margt gott hefur verið gert, en ýmislegt má efla. Í því samfélagi sem ég sé framundan er hugað að þörfum fjölskyldna og minnstu barna fyrir góða dagvist, þar sem skólagangan hefst. Skólakerfið á að gera fólk að dugandi einstaklingum fyrir atvinnu- líf framtíðarinnar, jafna hugsanlegan aðstöðumun, mennta nemendur í besta skilningi þess orðs og leiðbeina þeim í umgengni hver við annan og við sitt nánasta umhverfi, að kenna þeim umburðarlyndi gagnvart því eða þeim sem kann að virðast framandi og forða þeim frá þeim hættum sem kunna að leynast handan við hornið í borgarsamfélaginu. Í þessu skóla- kerfi á að huga að þörfum hvers og eins, hvort sem nemandinn er gædd- ur framúrskarandi gáfum eða hæfi- leikum eða sé ekki jafnvel skapaður á einhverja lund og meðal-Jóninn eða -Gunnan. Fleiri hjúkrunarrými Í okkar borgarsamfélagi þarf að huga mun betur að þörfum aldraðra en gert hefur verið, og þá einkum þeirra er hafa lágar tekjur eða geta ekki vegna sjúkleika notið lengur þeirra lystisemda sem lífið hefur upp á að bjóða. Í þessu samfélagi þurfa kynslóðir að standa saman og vinna saman, en þegar hallar verulega und- an fæti þarf hið opinbera að grípa inn í með virkari hætti en gert hefur ver- ið. Hversu margar dætur og hversu margir synir hafa ekki lent í því hér í Reykjavík að hafa þurft að eiga í miklu stríði af ýmsu tagi með öldr- uðum og sjúkum foreldrum sínum eða ættingjum til þess að þeir fái notið þeirrar þjónustu sem nútímaþjóð- félag á að geta boðið upp á? Öldruðum sjúklingum er vísað inn og út af sjúkrahúsum þar sem hjúkrunarrými eru ekki næg. Í þessu hefur byggða- þróunin haft sitt að segja og reyndar ber ríkisvaldið meginábyrgðina, en í mínu framtíðarborgarsamfélagi verð- ur þrýst á um verulegar úrbætur í þessum efnum. Þetta var eilítið um hina æskilegu framtíð. Hvað fortíð og nútíð varðar er ljóst að við sem stöndum að Reykjavíkurlistanum erum eins og langflestir borgarbúar ákaflega sátt við Reykjavíkurborg undir stjórn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og viljum að hún stýri borginni á næsta kjörtímabili. Borgarstjórinn þarf sér til liðveislu öfluga borgarfulltrúa. Af þeim er nægt framboð. Þeir vilja halda áfram á þeim grunni sem mark- aður hefur verið. Til þess er prófkjör- satið. Ég býð mig fram í 3. sæti í próf- kjöri Samfylkingarinnar. Til hvers allt þetta at? Stefán Jóhann Stefánsson Höfundur er hagfræðingur og for- maður Kjördæmafélags Samfylking- arinnar í Reykjavík. Reykjavík Reykjavík, segir Stefán Jóhann Stef- ánsson, á að vera for- ystuborg á alþjóðavísu í atvinnumálum. VIÐ Hafnfirðingar höfum ávallt lagt ríka áherslu á að í bænum í hrauninu sé fjölbreytt mannlíf, lifandi um- hverfi og öflug atvinnu- starfsemi. Framtíð íbú- anna byggist fyrst og fremst á þeim einstak- lingum sem munu móta samfélagið á komandi árum. Til þess að æska bæjarfélagsins megi búa við hin bestu skil- yrði blómlegs félags- og tómstundastarfs til þroska, náms og árang- urs, er ekki síst árangursríkt skóla- starf brýn nauðsyn. Fjölskyldan er kjarni hvers bæj- arsamfélags og sannar- lega er heimilið sá hornsteinn sem mótar góða og virka einstak- linga. Það er hvetjandi að stutt sé við frum- kvæði einstaklinga sem starfa í áhugamanna- félögum óeigingjarnt sjálfboðastarf á sviði al- mannaheilla, það er íþrótta- og tómstunda- starf fyrir unglinga og stuðla að virkri þátt- töku aldraðra í sam- félaginu. Hefja ætti til vegs gildi fjölskyldunnar og stuðla að for- gangi framkvæmda og athafna sem lúta að því að efla manngildi og fjöl- skyldulíf. Ég tel markvissa upp- byggingu í atvinnumálum brýnt verkefni og að Hafnarfjörður verði ennfrekar efldur sem menningar- og ferðamannabær. Ágæti Hafnfirðing- ur, ég hvet þig til þátttöku og óska jafnframt eftir stuðningi í prófkjöri sjálfstæðismanna í dag, laugardag, sem fram fer í Víðistaðaskóla. Fjölbreytt mannlíf Helga R. Stefánsdóttir Höfundur er varabæjarfulltrúi, í menningarmálanefnd og formaður ferðamálanefndar og tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Hafnarfjörður Stuðla þarf að forgangi framkvæmda og at- hafna, segir Helga Ragnheiður Stef- ánsdóttir, sem lúta að því að efla manngildi og fjölskyldulíf. Reykjavíkurlistinn er tákn margs þess besta sem jafnaðar- menn geta fengið áorkað. Með samstöð- una að vopni unnum við borgina úr klóm Sjálfstæðisflokksins. Síðan þá hafa verkin talað og við höfum lyft grettistaki á fjöl- mörgum sviðum borg- arlífsins. Nú býður Reykjavíkurlistinn fram í þriðja sinn og æskir umboðs borgar- búa að halda frum- kvöðulsstarfi sínu áfram. Að halda áfram að breyta valdastofnun íhaldsins í þjónustu- stofnun við borgarbúa. Á heimsmælikvarða Reykjavík er samkeppnishæf við það besta sem gerist erlendis. Uppbygging atvinnulífs og lífsgæði borgarbúa til framtíðar byggjast á því að Reykjavík tryggi enn betur sess sinn sem heimsborg sem standist samanburð við hvað sem er. Reykjavík hefur nú þegar sterka samkeppnisstöðu á alþjóða- vísu. Borgin hefur aðdráttarafl fyrir afburðafólk á mennta, rann- sókna, viðskipta og menningar. Þessa alþjóðlegu stöðu verður að treysta enn frekar. Ekki með því að gera upp á milli þessara ólíku burðarása, held- ur með því að búa þeim öllum góð vaxt- arskilyrði og styðja fjölbreytileika í at- vinnulífi jafnt sem listum. Fólkið fær að velja Nú stendur yfir op- ið prófkjör Samfylk- ingarinnar til vals á fulltrúum okkar á Reykjavíkurlistann. Nú ríður á að velja öflugan og samhentan lista sem skilar okkur sigursælu og traustri liðsheild. Við í Samfylk- ingunni gefum fólkinu færi á að velja fulltrúa flokksins á Reykja- víkurlistann en felum það ekki í hendur lítillar klíku að hætti Sjálf- stæðisflokksins. Samfylkingin er breiðfylking jafnaðarmanna og félagshyggjufólks sem byggir alla sína tilveru á öflugu lýðræði. Það lýðræði sýnum við í verki með því að gefa stuðningsmönnum okkar kost á að kjósa þá fulltrúa sem þeir treysta best til verka í borg- arstjórn Reykjavíkur. Endurnýjað umboð Ég gef kost á mér í annað sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar vegna vals á Reykjavíkurlistann og óska eftir stuðningi þínum til að vinna áfram eftir hugsjónum jafn- aðarstefnunnar til að gera góða borg betri. Söguleg samstaða félagshyggjufólks Sigrún Elsa Smáradóttir Höfundur er varaborgarfulltrúi og er frambjóðandi í prófkjöri Samfylk- ingarinnar. Reykjavík Ég óska eftir stuðningi, segir Sigrún Elsa Smáradóttir, til að vinna eftir hugsjónum jafnaðarstefnunnar að gera góða borg betri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.