Morgunblaðið - 16.02.2002, Page 53

Morgunblaðið - 16.02.2002, Page 53
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 53 MÁNUDAGINN 18. febrúar nk. kl. 20 verður helgistund á léttu nót- unum í Fella- og Hólakirkju. Talað orð verður í lágmarki en þeim mun meiri verður þáttur tónlistarinnar sem hinn landsþekkti Þorvaldur Halldórsson sér um ásamt org- anista kirkjunnar Lenku Mátéová. Sóknarprestarnir sr. Guðmundur Karl Ágústsson og sr. Hreinn Hjart- arson sjá um þjónustuna. Eftir helgistundina, sem er í tæpan klukkutíma, verður boðið upp á kaffi og djús í safnaðarheimilinu. Allir eru hjartanlega velkomnir en sérstaklega er vænst þátttöku fermingarbarna og fjölskyldna þeirra. Það er von okkar í Fella- og Hólabrekkusóknum að við getum átt notalega kvöldstund saman í kirkjunni okkar. Fella- og Hólakirkja. Gospel- og lúxuskvöld á Ömmukaffi LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 16. febr- úar verður gospel- og lúxuskvöld á Ömmukaffi. Ömmukaffi er staðsett í hjarta borgarinnar í Austurstræti 20. Kaffihúsið opnar kl. 21:00 og þá mun Kanga kvartettinn syngja fyr- ir gesti og gangandi. Í Kanga kvartettinum eru systurnar Ólöf og Heiðrún Kjartansdætur og Agla Marta og Helga Vilborg Sigurjóns- dætur. Það er frábært að koma á Ömmukaffi, vinalegt andrúmsloft og ljúfar veitingar. Ömmukaffi og Miðborgarstarf KFUM&K Kvöldmessa í Grensáskirkju KVÖLDMESSA verður í Grensás- kirkju annað kvöld, sunnud. 17. febr., kl. 20. Að venju ræður einfaldleikinn ríkjum í kvöldmessunni. Form at- hafnarinnar er sérlega aðgengilegt þeim sem ekki teljast til fastra kirkjugesta. Tónlistin er lífleg og ljúf. Kirkjukórinn leiðir almennan söng, auk þess að syngja sérstak- lega nokkur lög undir stjórn org- anistans, Árna Arinbjarnarsonar. Þá er líka bænagjörð og orð Guðs er lesið og íhugað. Altarisganga er í lok messunnar. Stundin í kirkjunni tekur tæpan klukkutíma. Eftir á verður á boð- stólum kaffi, djús og kex. Væri ekki alveg tilvalið að taka þátt í nota- legri stund í húsi Guðs í lok helgar- innar? Taize-messa í Seltjarnarneskirkju SUNNUDAGINN 17. febrúar verð- ur Taize-messa kl. 11. Kammerkór Seltjarnarneskirkju mun leiða stundina áfram í ljúfum Taize- tónum undir stjórn Vieru Manasek organista. Taize-söngurinn er nefndur eftir bænum Taize í Frakk- landi, þar sem þessi fagri íhugunar- söngur á sér langa hefð. Hér eru trúartextar íhugaðir í fögrum líð- andi tónum, þar sem textinn fær að njóta sín. Að þessu sinni mun Svan- hildur Blöndal guðfræðinemi lesa predikun. Linda Margrét Sigfús- dóttir flautuleikari spilar í guðs- þjónustunni. Sunnudagaskólinn er á sama tíma þar sem börnin eru hvött til að mæta með yngri og eldri systkini. Verið öll velkomin. Seltjarnarneskirkja. Góð heimsókn til Hallgrímskirkju SUNNUDAGINN 17. febrúar hefst kirkjustarfið í Hallgrímskirkju með fræsðslumorgni kl. 10. Lára V. Júl- íusdóttir hrl. flytur erindi um rétt- arstöðu ólíkra sambúðarforma. Messa og barnastarf hefst kl. 11. Þar munu koma fram tveir barna- kórar, þ.e. Barnakór Selfosskirkju undir stjórn Glúms Gylfasonar og Barnakór Hallgrímskirkju undir stjórn Magneu Gunnarsdóttur. Einnig verður öllum 5 ára börnum úr sókninni boðið til messunnar ásamt foreldrum sínum, en þeim verður afhent bók sem gjöf frá kirkjunni. Magnea Sverrisdóttir mun stýra barnastarfinu sem fer þannig fram, að fyrst koma allir til kirkju og taka þátt í messugjörð- inni, en þegar prédikun hefst fara börnin í safnaðarsalinn og fá fræðslu og söng við sitt hæfi. Organisti í messunni verður Lára Bryndís Eggertsdóttir, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Ævintýri Kuggs og Málfríðar Á MORGUN, sunnudag, kl. 11 mun Stoppleikhópurinn flytja leikritið „Ævintýri Kuggs og Málfríðar“ í Fríkirkjunni í Reykjavík. Leikritið segir frá Kugg litla sem er fluttur í nýtt hverfi. Þar býr bara gamalt fólk en engir krakkar. Þá kynnist hann Málfríði sem er gömul kona en ung í anda eigi að síður. Frá þessum degi gerist alltaf eitt- hvað nýtt, skrýtið og skemmtilegt og áður en þau vita af, eru þau dott- in inn í ævintýri þar sem allt getur gerst. Með hjálp barnanna (áhorf- enda) tekst þeim síðan m.a. að plata ævintýradrekann, frelsa prinsinn úr kastalanum og halda heim á leið. Þetta er hlý og falleg saga um vináttu barns og fullorðins, hvernig brúa má kynslóðabilið þar sem ímyndunaraflið finnur sameig- inlegan leikvöll. Leiksýningin hefur hlotið lofsam- lega dóma gagnrýnenda og áhorf- enda. Allir velkomnir. Aðgangur er ókeypis. Safnaðarstarf Fríkirkjunnar í Reykjavík. Námskeið um trúvörn BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg heldur námskeiðið „Talað um trúna“ næstu þrjú mánudagskvöld frá 18. febrúar. Markmið nám- skeiðsins er að hjálpa fólki að tala um trúna, vitna fyrir öðrum, svara erfiðum spurningum og stunda trú- vörn. Fjallað verður sérstaklega um ýmsar erfiðar spurningar varð- andi kristna trú og hverju sé til að svara. Fyrirlesarar verða Henning E. Magnússon guðfræðinemi, sr. Ír- is Kristjánsdóttir prestur og Ragn- ar Gunnarsson kristniboði. Innritun og nánari upplýsingar eru í síma 588 8899. Námskeiðsgjald er 2.200 kr. Hjónakvöld í Digraneskirkju Á MORGUN sunnudag kl. 20:30 mun Benedikt Jóhannson, sálfræð- ingur, reyfa efnið „Farsælt hjóna- band. Hvað þarf til?“ Eftir fram- sögu verður kaffihlé en síðan gefinn tími til fyrirspurna. Kvöld- inu lýkur með helgistund í kirkju. Kl. 11 árdegis, er messa þar sem fermingarbörnin leiða safnaðar- söng og lesa ritningarlestra. Org- anisti er Kjartan Sigurjónsson, en kór Digraneskirkju fær frí þennan dag. Sr. Magnús Björn Björnsson, mun þjóna fyrir altari og prédika. Á sama tíma verður sunnudaga- skólinn á fullri ferð í kapellunni á jarðhæð kirkjunnar. Barnasöngur í Háteigskirkju YNGRI barnakór Háteigskirkju syngur í Barnaguðsþjónustu í Há- teigskirkju í dag klukkan ellefu. Í kórnum eru yfir 35 börn sem hafa æft í allan vetur undir stjórn Birnu Björns- dóttur. Mikil uppsveifla hefur verið í barna- kórastarfi Háteigs- kirkju í vetur en þetta er sjötti veturinn sem Birna Björnsdóttir sér um barnakórana í Há- teigskirkju. Það eru Pétur Björgvin Þor- steinsson og Guðrún Helga Harðardóttir sem stjórna barna- guðsþjónustunni. Organisti er Douglas A Brotchie. ABC í Hafnar- fjarðarkirkju og tónlistarmessa KYNNING á ABC-hjálparstarfi fer fram í safnaðarheimili Hafnarfjarð- arkirkju, Strandbergi, sunnudag- inn 17. febrúar nk., fyrsta sunnu- dag í föstu, eftir guðsþjónustu í kirkjunni sem hefst kl. 11. Guðrún Margrét Pálsdóttir, framkvæmdastjóri hjálparstarfs- ins, mun gera grein fyrir skipulagi, markmiðum og árangri starfsins. Það miðar að því að liðsinna fátæk- um börnum í svokölluðum þriðja heims ríkjum með því að kosta skólagöngu þeirra og veita heim- ilislausum börnum heimili og skjól. Meðal annars er íslenskum fjöl- skyldum boðið að taka að sér fá- tækt erlent barn til framfærslu og stuðnings og bæta því þannig við fjölskylduna. Samstarfsaðilar ABC- starfsins eru áþekk samtök erlendis sem taka höndum saman við að miðla menntun og bæta þroskaskil- yrði barna víða um heim. Stofnað hefur m.a verið heimili fyrir götubörn í Madras og víðar á Indlandi og einnig í Kambódíu og skólabyggingar reistar þar og í Úg- anda og hefur starfsemin verið mjög árangurs- og blessunarrík. Þetta er fyrsta kynningin af þessu tagi í Hafnarfjarðarkirkju. En stefnt er að því að kynna þar mann- ræktarsamtök þegar tækifæri gefst til sem byggja á kristnum lífs- gildum og lífsvirðingu fyrir eða eft- ir árdegisguðsþjónstu á sunnudegi. Síðar um daginn kl. 17 fer fram tónlistarmessa. Þar syngur ung söngkona, Ragnheiður Sara Gríms- dóttir, einsöng. Gunnþór Þ. Ingason, sóknarprestur. Kvöldhelgistund í Fella- og Hólakirkju Fella - og Hólakirkja Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11. Neskirkja. Félag aldraðra kl. 14. Pálmi V. Jónsson, sérfræðingur í öldrunarlækning- um gefur góð ráð um listina að eldast vel. Borinn verður fram léttur málsverður. Allir velkomnir. Umsjón sr. Frank M. Halldórs- son. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45– 7.05 alla virka daga nema mánudaga. Mömmumorgunn kl. 10–12 í umsjá Hrund- ar Þórarinsdóttur djákna. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. Sálgæsl- unámskeið kl. 17.30–22. Teo van der Weele. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.) Kirkjuskólinn í Mýrdal. Samvera í dag, laugardag, kl. 11.15 í Víkurskóla. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9, Kópavogi. Samkoma í dag kl. 11–12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíufræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og svarað. Á laugardögum starfa barna- og unglingadeildir. Létt hressing eftir sam- komuna. Allir hjartanlega velkomnir. Biblíu- fræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu- fræðsla kl. 10.Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjón- usta kl. 11. Ræðumaður Eric Guðmunds- son. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs- þjónusta kl. 11. Ræðumaður Halldór Ólafsson. Samlestrar og bænastund á mánudagskvöldum kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmanna- eyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Gavin Anthony. Sam- lestrar og bænastund í safnaðarheimilinu á fimmtudögum kl. 17.30. Allir hjartanlega velkomnir. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11. Ræðumaður Guðný Kristjánsdóttir. Biblíu- rannsókn/bænastund á miðvikudags- kvöldum kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir. Safnaðarstarf FRÉTTIR NÁMSKEIÐIÐ Öflugt sjálfstraust verður haldið í Foreldrahúsinu í Vonarstræti 4b 21. febrúar kl. 18:00– 21:00 og 23 febrúar kl. 11:00–14:00. Þetta námskeið er fyrir alla for- eldra sem vilja styrkja sig í að verða sterkar fyrirmyndir fyrir börnin sín. Kenndar eru aðferðir til að efla sjálfstraust, hvað einkennir mikið/ lítið sjálfstraust. Fjallað verður um áhrif hugarfars, viðhorfa og hugs- unar á hegðun og líðan. Einnig verð- ur fjallað um leiðir til að byggja sig upp og taka ábyrgð á eigin lífi og heilsu. Höfundar námskeiðsins eru Jó- hann Ingi Gunnarsson og Sæmund- ur Hafsteinsson sálfræðingar. Þeir flytja námsefnið á myndbandi og hafa þjálfað starfsfólk Foreldra- hússins til að hafa umsjón með nám- skeiðunum. Námskeiðsgögn eru vönduð vinnubók og geisladiskur sem höfundarnir hafa lesið inná. Þetta námskeiðsform gefur foreldr- um tækifæri á að halda áfram þjálf- uninni þegar heim er komið. Allar nánari upplýsingar eru í Foreldrahúsinu. Forvarnar- námskeið í Foreldra- húsinu AÐSÓKN að Kringlunni í janúar á þessu ári var nánast sú sama og í janúar 2001. „Aðeins vantar 0,7% upp á að janúar núna sé sambæri- legur við sama mánuð í fyrra. Þessi góða aðsókn að Kringlunni er langt umfram væntingar, því fyrirfram hafði verið búist við að tilkoma Smáralindar mundi draga úr henni. Í síðustu viku fyrir jól var að- sókn að Kringlunni 6% meiri en í sömu viku árið á undan. Í heildina var desember mjög góður versl- unarmánuður í Kringlunni. Því virðist svo að áhrifa af opnun Smáralindar hafi fyrst og fremst gætt fyrstu tvo mánuðina, en þá minnkaði aðsókn í Kringluna að jafnaði um 6% miðað við sömu mánuði árið áður,“ segir í frétta- tilkynningu frá Kringlunni. Kringlan Aðsókn í janúar svipuð og 2001 FERÐAFÉLAG Íslands efnir til gönguferðar í Bláfjöll sunnudaginn 17. febrúar. Gengið verður frá skíða- skálanum í Bláfjöllum og gengið að Þríhnúkum, þar sem verður skoðað- ur dýpsti hraunhellir landsins. Síðan verður gengið niður í Grindaskörð þar sem rútan sækir fólk á Bláfjalla- veg. Áætlaður göngutími er um 3-4 klst. Fararstjóri er Björn Finnsson. Verð kr. 1.000/1.300. Lagt verður af stað frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6. Gönguferð í Bláfjöll OPIÐ hús Styrktarfélags krabba- meinssjúkra barna, SKB, verður haldið mánudaginn 18. febrúar kl. 20.30 í Hlíðasmára 14, Kópavogi. Umræðuefni kvöldsins verða niðurstöður tveggja rannsókna sem gerðar hafa verið á árangri meðferðar og síðbúnum afleiðing- um æxla í miðtaugakerfi í æsku annars vegar og síðkomnar og langvinnar aukaverkanir eftir hvít- blæðismeðferð í æsku hins vegar. Rannsóknirnar gerðu læknarnir Hilma Hólm og Valur Helgi Krist- insson og munu þau kynna niður- stöður sínar. Auk þeirra munu barnalæknarnir Jón R. Kristins- son, Guðmundur Jónmundsson, Ólafur Gísli Jónsson og Ásgeir Haraldsson svara fyrirspurnum gesta. Síðbúnar afleiðingar brenna mjög á foreldrum barna sem eru í eða hafa lokið krabbameinsmeð- ferð og því mjög þarft að fá tæki- færi til að fræðast um þessi mál, segir í fréttatilkynningu. Kaffiveitingar verða í boði og eru allir velkomnir. Opið hús hjá SKB NÆSTKOMANDI mánudag, 18. febrúar, kl. 15.30, verður haldin mál- stofa í Sölvhóli. Að þessu sinni verð- ur fjallað um BIS-reglur, áhættu- stjórnun og íslenska banka. Fram- sögumenn verða Guðmundur Magn- ússon, prófessor og fyrrum háskóla- rektor, og Saso Andonov. Málstofa í Seðla- banka Íslands NÝ stjórn Félags íslenskra fræða var kjörin á aðalfundi félagsins ný- lega. Dagný Kristjánsdóttir pró- fessor er nýkjörinn formaður Fé- lags íslenskra fræða en með henni sitja í stjórn Erna Erlingsdóttir ritari, Halldóra Björt Ewen gjald- keri og í varastjórn María Anna Garðarsdóttir, Þorgerður Þor- valdsdóttir og Soffía Auður Birg- isdóttir. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem aðeins konur sitja í stjórn Félags íslenskra fræða en það var stofnað árið 1947. Fráfarandi stjórn var fyrst kosin á aðalfundi árið 1999. Hana skip- uðu Ármann Jakobsson formaður, Steinunn Inga Óttarsdóttir ritari, Örn Hrafnkelsson gjaldkeri og í varastjórn sátu Sigríður Baldurs- dóttir, Guðrún Theódórsdóttir og Eiríkur Guðmundsson, segir í fréttatilkynningu. Ný stjórn í Félagi íslenskra fræða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.