Morgunblaðið - 16.02.2002, Qupperneq 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 55
Nýjar vörur
Nýjir litir
Barnavagnar og barnarúm
Hlíðasmára 17,
Kópavogi, sími 564 6610
verslun.strik.is/allirkrakkar
FLUGLEIÐIR kynna nýjung fyrir
þá sem kaupa farmiða í gegnum
heimasíðu fyritækisins. Þessi ný-
breytni er falin í því að 4. hvers
mánaðar verða dregnir út vinn-
ingar fyrir þá sem hafa keypt sér
ferð með netklúbbnum eða net-
flugi í mánuðinum á undan.
Vinningshafinn í janúarmán-
uði er Hildur Helgadóttir, en
hún fékk í verðlaun eins árs
áskrift að Stöð 2 og fimm miða í
Sam-bíóin, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Hannes Páll Guðmundsson úr sölustjórn Flugleiða afhendir Hildi
Helgadóttur vinninginn.
Vinningshafi í Net-
klúbbi Icelandair
„LÁNASJÓÐSMÁLIN eru eitt
stærsta hagsmunamál stúdenta við
Háskóla Íslands, enda eru námslán-
in forsenda náms hjá fjölmörgum
stúdentum. Árlega ganga forystu-
menn stúdenta til viðræðna við
Lánasjóðinn um kjör námslána á
komandi námsári. Í rúman áratug
hefur Röskva setið í meirihluta í
Stúdentaráði og því samið fyrir hönd
stúdenta.
Vaka hefur nú tekið saman tölur
sem sýna hve mikið grunnfram-
færslan hefur hækkað undanfarinn
áratug. Vaka hefur tekið saman upp-
lýsingar um hækkun grunnfram-
færslu á valdatíma Röskvu og sett í
samhengi við almenna þróun verð-
lags á þessu tímabili. Ljóst er að
mjög miklar hækkanir hafa orðið í
samfélaginu á þessum tíma, almennt
verðlag hefur hækkað; námsbækur
og leikskólagjöld eru mun dýrari og
matvara hefur rokið upp úr öllu
valdi.
Frá árinu 1990 hefur verðlag
hækkað um 51%. Á tímabilinu frá
1990 hefur grunnframfærsla hækk-
að úr 48.832 kr. í 69.500 kr., sem er
hækkun upp á 42,3%.
Ein og sér gæti þessi tala litið vel
út, en þar sem almennt verðlag hefur
á sama tíma hækkað um 51% þýðir
þetta í raun og veru að kjör náms-
manna á námslánum hafa versnað
um heil 8,7% í tíu ára stjórnartíð
Röskvu,“ segir í fréttatilkynningu
frá Vöku.
Segja kjör námslána
hafa versnað um
8,7% í tíð Röskvu
Sjálfstyrkingarnámskeið eru að
hefjast á vegum Sálfræðistöðvar-
innar, Þórsgötu 24.
„Markmið námskeiðsins er að
auka sjálfstyrk einstaklinga bæði í
einkalífi og starfi og byggist á við-
urkenndum sálfræðilegum aðferð-
um sem hafa reynst vel til að efla
sjálfstyrk fólks.
Meðal efnis sem tekið er fyrir er
pesónuleg framkoma, greining á
eigin jákvæðum og neikvæðum hlið-
um, ásamt því hvernig byggja megi
upp góð samskipti, minnka ágrein-
ing og deilumál. Áhersla er lögð á
sjálfstyrk, sveigjanleika og öryggi í
samskiptum þannig að þátttakandi
finni að hann ráði vel við samskipti
hvort sem álag er lítið eða mikið,"
segir í fréttatilkynningu.
Höfundar námskeiðs og leiðbein-
endur eru sálfræðingarnir Álfheiður
Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Vinnusálfræðinámskeið
Námskeið í vinnusálfræði eru
einnig að hefjast á vegum Sálfræði-
stöðvarinnar. Námskeiðin eru ætluð
þeim sem í starfi sínu þurfa að tak-
ast á við samskipti og samskipta-
vanda sem oft kemur upp á vinnu-
stöðum.
Kennt er samskiptalíkan til að
auka samstarfshæfni þátttakenda
og þjálfun við að leysa ágreining og
auka vinnugleði. Gert er ráð fyrir
að þátttakendur geti notað sam-
skiptalíkanið og aðferðir jafnt í
starfi sem einkalífi.
Námskeiðið er í formi erinda,
verkefna og umræðna. Höfundar og
leiðbeinendur eru sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guð-
finna Eydal.
Nánari upplýsingar og skráning
fer fram á Sálfræðistöðinni, Þórs-
götu 24, segir í fréttatilkynningu.
Sjálfstyrkingarnámskeið
Röng mynd
með stuðningsgrein
Röng mynd birtist með grein Guð-
rúnar Jónsdóttur hjúkrunarfræð-
ings í blaðinu sl.
miðvikudag í
gær, þar sem
hún mælti með
Haraldi Þór Óla-
syni í prófkjöri
sjálfstæðis-
manna í Hafnar-
firði.
Rétt mynd
birtist hér og
biðst Morgunblaðið velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
HELGARSKÁKMÓT Kópavogs-
bæjar, Smáralindar og Skáksam-
bands Íslands verður haldið í dag,
laugardaginn 16. og sunnudaginn 17.
febrúar í Smáralind í Kópavogi.
Tefldar verða 9 umferðir eftir Monr-
ad-kerfi. Tímamörk 25 mínútur.
Skákmótið hefst kl. 10 laugardag-
inn 16. febrúar og sunnudaginn 17.
febrúar kl. 11. Þetta er síðasta mótið
í helgarmótasyrpu sem hófst á síð-
asta ári í samvinnu Skáksambands-
ins við ýmsa aðila. Mótið er einnig 50
ára afmælismót Tímaritsins Skákar
og um leið uppskeruhátíð fyrir helg-
armótasyrpuna þar sem heildarverð-
laun verða veitt fyrir samanlagðan
árangur á mótunum.
Auk verðlauna fyrir samanlagðan
árangur mótanna fimm verða veitt
fleiri verðlaun á mótinu. Skráning
fer fram hjá Skáksambandi Íslands.
Netfang: siks@simnet.is, segir í
frétt frá Skáksambandi Íslands.
Skákmót í Smáralind
Lokaútkall
Verslunin hættir
eftir helgina
K r i n g l u n n i - S í m i 5 8 8 8 0 8 0
70% afsláttur
af öllum vörum
NÁMSKEIÐ um meðvirkni verður
haldið 23.–24. febrúar kl. 9.30–
16.30 báða dagana.
Helstu einkenni meðvirkni eru
lágt sjálfsmat, að vera upptekinn
af að stjórna öllum í kringum sig,
og að fólki finnast það bera ábyrgð
á hamingju annarra.
Á námskeiði verður kynnt um
hvað meðvirkni snýst, hvernig hún
virkar eyðileggjandi á líf fólks.
Námskeiðið, sem fer fram á
ensku, verður haldið í Heilsuhvoli,
Flókagötu 65. Síðasti frestur
skráningar á námskeiðið er 19.
febrúar. Nánari upplýsingar og
skráning hjá Gitte Lassen, segir í
fréttatilkynningu.
Námskeið um
meðvirkni
FYRIRLESTRARÖÐ á vegum
Karuna, samfélags Mahayana
búddista, hefst þriðjudaginn 19.
febrúar og stendur yfir þrjú
þriðjudagskvöld. Þar mun Búdda-
nunnan Gen Nyingpo kenna
hvernig hægt er að halda ró sinni
þegar hlutir fara úrskeiðis.
Kennslan fer fram í stofu 101 í
Odda, Háskóla Íslands og hefst kl.
20. Gjald er kr. 1.000 fyrir hvert
skipti. En kr. 500 fyrir nema, at-
vinnulausa og öryrkja. Allir eru
velkomnir.
Kennslan fer fram á ensku og er
hvert skipti sjálfstæð eining, segir
í fréttatilkynningu.
Fyrirlestur
um búddisma
BIRGITH Grundberg sérkennari í
Örnsköldsvik í Svíþjóð kemur til Ís-
lands 18. mars á vegum Símenntun-
armiðstöðvarinnar á Vesturlandi og
verður í rúma viku. Birgith verður
með námskeið í notkun aðferðar til
að örva fólk með skerta líkamsstarf-
semi á Akranesi vikuna 18. til 22.
mars.
„Skynörvun með snertingu er
meðvituð og skipulögð aðferð sem
örvar stærsta líffæri líkamans, húð-
ina. Hún er skilgreind sem þjálfun
hugans og meðferð í daglegri um-
önnun og þjálfun.
Þörfin fyrir snertingu eykst við
veikindi, slys og fötlun. Aðferðin hef-
ur verið þróuð fyrir bæði börn og
fullorðna og nýtist þroskaheftum,
hreyfihömluðum og einhverfum og
auk þess fólki með heilaskaða eftir
slys og heilablóðfall. Í Svíþjóð er að-
ferðin mikið notuð með þroskaheft-
um börnum og fullorðnum. Á síðustu
árum hefur hún einnig nýst börnum
með sértæka námsörðugleika og æ
fleiri nýta sér hana innan öldrunar-
þjónustunnar. Aðferðin nýtist einnig
við að draga úr streitu og við vinnu-
vernd í fyrirtækjum,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Ennþá eru laus pláss á námskeið-
inu sem verður í mars og fer skrán-
ing fram hjá Símenntunarmiðstöð-
inni á Vesturlandi í síma eða á
www.simenntun.is.
Námskeið í skynörvun
með snertingu
NÁMSKEIÐ í Zen-hugleiðslu verð-
ur haldið laugardaginn 2. mars kl.
10–12 í Skátaheimilinu við Gerðu-
berg. Zen-iðkun byggist á öndun og
vakandi huga. Þjálfunin fer aðallega
fram í hugleiðsluæfingum sem kall-
ast zazen. Eru þær grunnurinn að
Zen-iðkun.
Námskeiðið kostar kr. 3.000 og
gildir sem mánaðargjald að loknu
námskeiði, segir í fréttatilkynningu.
Námskeið í
Zen-hugleiðslu
♦ ♦ ♦