Morgunblaðið - 16.02.2002, Side 62

Morgunblaðið - 16.02.2002, Side 62
FÓLK Í FRÉTTUM 62 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ SÍMI 564 0000 - www.smarabio.isSÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir Miðasala opnar kl. 13 Sýnd kl. 2, 6 og 10. Sýnd í LÚXUS kl. 4 og 8. B.i. 12. DV Mbl ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.coml i i . Gwyneth Paltrow Jack Black  SV Mbl  DV Sýnd kl. 10.20 og 12.10. B.i 14. Dúndrandi gott snakk með dúndrandi góðri gamanmynd Sýnd kl. 3, 5.40 og 8. Sýnd kl. 2 og 4. Ath! síðustu sýningar á Lord of the Rings í Lúxussal. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og 12 á miðnætti. B. i. 14 ára. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i.16 ára. Spennutryllir ársins Dóttur hans er rænt! Hvað er til ráða? Spennutryllir ársins með Michael Douglas. tilnefningar til Óskarsverðlauna13 il i ill Glæný leysigeislasýning í sal-1 á undan myndinni FRUMSÝNING Powersynin g kl. 12. á miðnættil. . á i t ti Drepfyndin mynd sem gerir miskunnarlaust grín af öllum uppáhalds unglingamyndunum þínum! Fílaðir þú „Scary Movie“...Hverjum er ekki skítsama! Fyndnasta mynd ársins og rúmlega það! EINS og fram kom í gær í Morg- unblaðinu lést sveitasöngvarinn Waylon Jennings síðasta miðviku- dag, 64 ára að aldri. Fullyrða má að með fráfalli Jenn- ings sé einn af risum sveitatónlist- arinnar fallinn í valinn. Hann byrjaði kornung- ur að fást við tónlist, var plötusnúður aðeins 12 ára gamall og var undirleikari hjá Buddy Holly um skeið. Þá átti hann þátt í að skapa og móta hið svokallaða útlaga-kántrí, ásamt þeim Johnny Cash, Willie Nelson og Kris Kristoffer- son – tónlistar- stefna sem hefur í raun og veru meira að gera með hugarfar fremur en hljóma, en í því felst andstaða við það tangar- hald sem höf- uðborg sveitatón- listar- innar, Nash- ville, hefur á tónlist- arforminu. Jennings fór ávallt eigin leiðir og verður framlag hans til þróunar sveitatónlistarinn- ar seint vanmetið en hann hljóðritaði yfir 60 plötur. Hann var fyrsta flokks laga- höfundur, um margt van- metinn gítarleikari og sagði Kris Kristofferson hann vera dæmigerðan Amer- íkana: „Hann er frakkur fýr með stórt hjarta.“ „Í honum sá ég alla þá þætti sem ég tel að eigi að prýða heila manneskju og sannan lista- mann,“ segir Travis Tritt sveita- söngvari. „Hann gerði hlutina eftir eigin sannfæringu og stóð á sínu og var sama um afleiðingarnar,“ sagði Rodney Crowell lagahöfundur. „Hann var einn af fyrstu Nashville listamönnunum sem flutti lögin eins og um ljóðabálka væri að ræða. Hann og Johnny Cash hafa náðar- gáfu sögumannsins.“ „Hann var yndislegur vinur, og einn sá besti sem ég átti,“ segir Cash um fall- inn félaga, „ég mun sakna hans mjög.“ Þá hefur George Jones lýst því yfir að fráfall Jennings sé sveitatónlistinni harmdauði og Emmylou Harris sagði hann hafa nálgast tónlistina „á einstakan hátt“. Plötuheiti eins og Lonesome, On’ry and Mean, Ladies Love Outlaws og I’ve Always Been Crazy segja kannski sitthvað um þennan litríka mann. En hann tók þessa út- lagaímynd aldrei alvar- lega sjálfur. „Að vissu leyti er ég þannig,“ sagði hann. „Ef þú ruglar í tón- listinni minni þá verð ég illskeyttur. En svo framar- lega sem þú ert heiðarlegur er ég það líka. En ég geri þó allt- af hlutina eftir mínu höfði.“ Frakkur fýr með stórt hjarta Waylon Jennings 1937–2002 arnart@mbl.is Reuters RAKEL Sif Sigurðardóttir er nýja söngkonan í Buttercup. Hún seg- ist hvergi bangin að stíga á svið með sveitinni í fyrsta sinn í kvöld á Gauknum. Enda hefur Rakel svo sem verið á sviði áð- ur, tók þátt í nemendasýn- ingum Versl- unarskólans. Nú er hún hins vegar komin með stúd- ents- próf og stundar undirbúningsnám fyrir arkitektúr í FB. Rakel segist sjálf semja tónlist og að í sameiningu muni hún og strákarnir í Butter- cup semja ný lög. Það verður þó ekkert nýtt efni frumflutt í kvöld á Gauknum, heldur munu gömlu góðu lögin fá að hljóma. „Ég fíla strák- ana rosalega vel, þetta er góður hópur og við náum mjög vel saman,“ sagði Rakel, nýja söngkonan í Buttercup. Hvernig hefurðu það í dag? Ég hef það bara ofboðs- lega fínt. Hvað ertu með í vösunum í augnablikinu? Hmm, ég er með c-vítamín- töflu og teygju. Góð samsetn- ing. Ef þú værir ekki söngkona hvað myndirðu vilja vera? Ég myndi vilja vera hann þarna Arne í Adrenalín og strætóauglýs- ingunum, hann er þokkalega flipp- aður. Nirvana eða Pearl Jam? Já, þú segir nokkuð ... má maður segja bæði? Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem þú fórst á? Ég fór á David Bowie tónleika. Hvaða hlut myndir þú fyrst bjarga úr eldsvoða? Ég myndi bjarga tígrisdýrinu mínu, bréfunum mínum og albúmunum. Hver er þinn helsti veikleiki? Ég er stundum aðeins of viðkvæm. Hefurðu tárast í bíó? Já, ég hef oft tárast í bíó, eins og ég sagði þá er ég viðkvæm. Finndu fimm orð sem lýsa per- sónuleika þínum vel. Einlæg, hrifnæm, rómantísk, frek og upptekin... Hvaða lag kveikir blossann? How does it feel med D’Angelo, ég held ad það sé ekki til meira sexí lag. Hvert er þitt mesta prakkara- strik? Ég og Hildur vinkona erum alltaf eitthvað að prakkarast, ég man reyndar ekki eftir neinu sérstöku í augnablikinu... Hver er furðulegasti matur sem þú hefur bragðað? Súrir hrútspungar eða eitthvað álíka. Hvaða plötu keyptirðu síðast? Nýju plötuna med Mary J. Blige. Hvaða leikari/leikkona fer mest í taugarnar á þér? Julia Roberts fer stundum í taug- arnar á mér. Hverju sérðu mest eftir í lífinu? Ég trúi ekki á það að sjá eftir hlut- unum. Trúir þú á líf eftir dauðann? Já, tvímælalaust. C-vítamín og súrsaðir pungar Rakel Sif Sigurðardóttir SPURT & SVARAÐ SOS Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.