Morgunblaðið - 17.02.2002, Page 4

Morgunblaðið - 17.02.2002, Page 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ HINN 31. desember 2001 áttu lög- heimili hér á landi 18.338 íbúar fædd- ir erlendis, eða 6,4% landsmanna. Erlendir ríkisborgarar voru 9.850, eða 3,4%. Árið 1991 voru 4,1% íbúa fæddir erlendis og 2,1% íbúa var með erlent ríkisfang, skv. upplýsingum Hagstofunnar. Í frétt frá stofnuninni segir: „Tala fólks með erlent ríkisfang hækkar árlega við flutning þess til landsins, en lækkar við brottflutning þess síð- ar og við það að því er veitt íslenskt ríkisfang. Það skal tekið fram, að er- lendir sendiráðsmenn og varnarliðs- menn eiga ekki lögheimili á Íslandi og koma því ekki í ofangreindar töl- ur, og að hluti þeirra sem eru fæddir erlendis, eru börn íslenskra foreldra er dvöldust þar við nám eða störf. Flestir erlendu ríkisborgaranir koma frá Póllandi (1.666), Danmörku (945), Bandaríkjunum (601), Þýska- landi (591), Filippseyjum (547) og Júgóslavíu (501). Af þeim sem fæddust annars stað- ar en á Íslandi, fæddust flestir í Dan- mörku, eða 2.476 (þ.a. 1.965 íslenskir ríkisborgarar), Póllandi 1.784 (þ.a. 187 íslenskir ríkisborgarar), Svíþjóð 1.679 (þ.a. 1.413 íslenskir ríkisborg- arar), Bandaríkjunum 1.513 (þ.a. 1.088 íslenskir ríkisborgarar), Þýskalandi 1.230 (þ.a. 654 íslenskir ríkisborgarar), Filippseyjum 838 (þ.a. 310 íslenskir ríkisborgarar), Bretlandi 820 (þ.a. 442 íslenskir rík- isborgarar), Júgóslavíu 784 (þ.a. 154 íslenskir ríkisborgarar) og í Taílandi 667 (þ.a. 193 íslenskir ríkisborgarar). Til samanburðar er fróðlegt að vita hve margir íslenskir ríkisborg- arar eða fólk fætt hérlendis býr í út- löndum. Þessar upplýsingar er að finna í manntölum viðkomandi ríkja og hjá ýmsum alþjóðastofnunum. Í Norrænu tölfræðihandbókinni birt- ast tölur um íbúa Norðurlanda eftir ríkisfangi samkvæmt tölum frá hag- stofum viðkomandi landa. Samkvæmt þessari heimild voru 5.873 íslenskir ríkisborgarar búsett- ir í Danmörku árið 2000, 126 í Finn- landi, 3.930 í Noregi og 4.057 í Sví- þjóð. Árið 1990 voru í Danmörku 3.031, í Finnlandi 78, í Noregi 2.202 og í Svíþjóð 5.275. Annars konar tölur, ófullkomnar en samt fróðlegar á sinn hátt, má fá úr töflum um fæðingarland og rík- isfang fólks, sem skráð er hjá þjóð- skrá með lögheimili erlendis. Sam- kvæmt þeim áttu 21.089 menn fæddir á Íslandi lögheimili erlendis 31. desember 2001, karlar 10.167 og konur 10.922. Á sama tíma voru ís- lenskir ríkisborgarar með lögheimili erlendis 25.909, karlar 12.657 og konur 13.252. Fyrir 1952 fengu kon- ur ríkisfang eiginmanns síns við gift- ingu, en eftir það hefur hjúskapur ekki áhrif á ríkisfang. Fyrir 1982 fékk barn fætt í hjónabandi ævinlega ríkisfang föður síns, en síðan þá fær það íslenskt ríkisfang ef annað hjóna er íslenskt. Með lagabreytingum frá 1998 öðlast nú börn, sem ógiftar er- lendar konur fæða hér á landi, ís- lenskt ríkisfang ef faðir þeirra reyn- ist íslenskur samkvæmt barnalög- um.“ 6,4% landsmanna eru fædd erlendis 9 -F í Digranesskóla í Kópavogi stóð sig best allra íslenskra bekkja í fyrstu lotu KappAbel stærð- fræðikeppninnar hér á landi. Í framhaldinu munu tvær stúlkur og tveir piltar úr bekknum fara til Noregs í apríl og keppa í undan- úrslitum við einn bekk frá hverju fylki í Noregi og einn danskan. KappAbel stærðfræðikeppnin er upprunnin í Noregi og hefur öðlast miklar vinsældir þar á fáum árum, en keppnin er fyrir nemendur í 9. bekk. Í þessari keppni eru það bekkir sem keppa en ekki ein- staklingar og er markmiðið með keppninni að vekja og viðhalda áhuga nemenda á stærðfræði. Nem- endur þurfa að leysa verkefnin í smáum hópum og síðan að rökræða um hverjar séu réttu lausnirnar. Keppnin er kennd við stærðfræð- inginn Niels Henrik Abel sem fædd- ist árið 1802 og varð heimskunnur fyrir afrek sín í stærðfræði, þótt hann hafi látist aðeins 26 ára. Níundi bekkur F í Digranesskóla náði í fyrstu lotunum 75 stigum réttum af 80. Alls hafa 29 íslenskir 9. bekkir, eða nálægt 600 nem- endur í 9. bekk, tekið þátt í fyrstu lotu og 24 bekkir luku einnig ann- arri lotu. Þessi þátttaka er hlut- fallslega svipuð og í Noregi. Nemendur 9-F í Digranesskóla ásamt Þórði Guðmundssyni kennara og Önnu Kristjánsdóttur, umsjónarmanni KappAbel-keppninnar. 9-F stóð sig best í stærðfræðikeppni ÞEGAR kólnar í veðri birtist mús- arrindillinn, þessi smávaxni fugl, sem virðist svolítið forvitinn. Hann leitar oft inn í gripahús þegar verulega kólnar í veðri. Þessi músarrindill sem fréttarit- ari rakst á var kominn út, enda stóðst það að farið var að hlýna í veðri og klakinn sem hann tyllti sér á þegar myndin var tekin er horfinn núna. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Músarrind- ill á köldum klaka ÓÁNÆGJA er meðal margra landsbyggðarþing- manna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks með þingsályktunartillögu Valgerðar Sverrisdótt- ur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um aðgerðir í byggðamálum á næstu árum. Beinist óánægjan einkum að því að Eyjafjörður sé nefndur sérstak- lega sem mótvægi við höfuðborgarsvæðið og aðrir landshlutar verði útundan. Einna hörðust virðist gagnrýnin vera hjá þingmönnum Vestfirðinga sem sætta sig t.d. ekki við að í greinargerð með til- lögunum sé talað beinum orðum um að ekki sé „ráðlegt að gera ráð fyrir að íbúum fjölgi á Vest- fjörðum á næstu árum“. Einar K. Guðfinnsson, Sjálfstæðisflokki, fyrsti þingmaður Vestfirðinga, segist hafa vonað að mál- ið fengi eðlilega umræðu innan þingflokkanna áð- ur en það var gert opinbert af hálfu ráðherra. „Yfirborðskennt snakk“ „Ég tel að mikið vanti á að í þessum tillögum séu lagðar fram úrlausnir sem duga þeim byggðum sem hafa orðið fyrir mestri fólksfækkun á und- anförnum árum. Ég tel einnig að margt í þeim for- sendum sem lagðar eru til grundvallar og birtast í greinargerð með tillögunum sé yfirborðskennt snakk og hreinlega rangt,“ segir Einar og tekur dæmi um að látið sé í veðri vaka að ekki sé hægt að snúa við neikvæðri byggðaþróun á Vestfjörðum og víðar á landinu. Það sé alrangt, ekki stutt neinum rökum og lýsi „ekki öðru en fordómum og sleggju- dómum höfunda þessa plaggs“. Einar segist hafa komið þessari gagnrýni sam- viskusamlega á framfæri við iðnaðarráðherra. Reiknar hann með frekari umfjöllun í þingflokk- unum og að tillögunni verði breytt töluvert áður en hún verður afgreidd frá Alþingi. „Fyrir liggur í athugunum sem hafa verið gerð- ar, að meginástæða búseturöskunar á lands- byggðinni er skortur á fjölbreyttum atvinnutæki- færum. Augljóslega þarf að bregðast þarna við og ríkið getur gert það m.a. með því að setja opinbera starfsemi niður á landsbyggðinni. Á það er minnst í tillögunum en með yfirborðskenndum og ótrú- verðugum hætti. Ekkert er þar handfast og því þarf að breyta,“ segir Einar. Beinskeyttari tillögur skortir Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, átti sæti í verkefnisstjórn sem vann að byggðaáætluninni. Hann er eigi að síður ósáttur við margt sem þar kemur fram og bendir á að tillögurnar hafi tekið breytingum í rík- isstjórninni eftir að verkefnisstjórnin skilaði af sér. Atvinnumálahópur verkefnisstjórnar hafi t.d. lagt til að áhersla yrði lögð á þrjá byggðakjarna á landinu; Ísafjörð, Akureyri og Mið-Austurland. Sú tillaga hafi átt að vera inni. Einnig skorti á bein- skeyttari tillögur um aðgerðir til að jafna búsetu- skilyrði og styrkja stoðkerfi atvinnulífsins. Krist- inn, sem er einnig stjórnarformaður Byggða- stofnunar, segir að tillaga um að koma ný- sköpunarmiðstöð á fót á Akureyri skjóti skökku við þegar ákvörðun liggi fyrir um uppbyggingu Byggðastofnunar á Sauðárkróki. Klaufalegt orðalag Vilhjálmur Egilsson, Sjálfstæðisflokki, fyrsti þingmaður Norðurlands vestra, segist almennt vera fylgjandi því að byggja Akureyri upp sem mótvægi við höfuðborgarsvæðið. Slík áform séu ágæt eins langt og þau nái. Meira hafi þó mátt vera af áþreifanlegum aðgerðum í tillögum iðn- aðarráðherra sem geti almennt komið öðrum land- svæðum til góða. Vilhjálmur segir ennfremur að orðalag í greinargerð með tillögunum sé klaufa- legt á sumum stöðum. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknar- flokksins á Vesturlandi, bendir á að tillögurnar séu almennt orðaðar nema hvað Eyjafjörð varðar og um það hnjóti menn. Hann segist hafa átt von á að fleiri byggðakjarnar á landinu yrðu nefndir á nafn. Í tillögunum sé talað um að „skoða hitt og þetta“ og „athuga“ þætti eins og búsetuskilyrði og greiningu á þeim. „Ég hélt reyndar að það væri búið að vinna svo mikið af skýrslum að þetta lægi allt fyrir,“ segir Magnús og býst við að málið fái frekari umfjöllun innan þingflokkanna. Tillögur iðnaðarráðherra um aðgerðir í byggðamálum 2002–2005 Óánægja meðal þing- manna stjórnarflokkanna HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm héraðsdóms um að ríkissjóði sé skylt að greiða lögreglumanni í námi í Lögregluskóla ríkisins vaktaálag, dagpeninga og ferðakostnað meðan á náminu stóð, í samræmi við ákvæði í kjarasamningi ríkisins og Lands- sambands lögreglumanna. Krafa lögreglumannsins var að fullu tekin til greina bæði af Héraðsdómi Reykjavíkur og með dómi Hæsta- réttar í gær, en hann fór fram á 710.000 kr. auk dráttarvaxta frá febrúar 1999. Að auki var ríkissjóður dæmdur til að greiða málskostnað hans í héraði og fyrir Hæstarétti, rúmlega 417.000 kr. Lögreglumaðurinn var á sínum tíma ráðinn tímabundið í starfsnám til lögreglunnar á Akureyri. Áttu laun hans að fara eftir gildandi kjarasamningi Landssambands lög- reglumanna frá 30. ágúst 1997. Í 1. gr. þessa kjarasamnings var kveðið á um að áður gildandi samningur ætti að framlengjast. Hæstiréttur segir því ákvæði fyrra samnings hafa gilt áfram. Ríkinu skylt að greiða nemanda vaktaálag HÁSPENNUSTRENGUR í Vest- urbæ Reykjavíkur bilaði rétt fyrir klukkan eitt aðfaranótt laugardags og var rafmagnslaust á stóru svæði í um klukkutíma. Sex spennistöðvar frá stöðinni við Meistaravelli að Árnagarði duttu út og tók um klukkutíma að finna bilunina, samkvæmt upplýs- ingum frá Orkuveitu Reykjavíkur, en viðgerð er ólokið. Hins vegar eru tvær tengingar í hverja stöð og því var aðeins rafmagnslaust á svæðinu meðan verið var að finna bilunina. Rafmagns- truflanir í Vesturbæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.