Morgunblaðið - 17.02.2002, Síða 6

Morgunblaðið - 17.02.2002, Síða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN10/2 –16/2 ERLENT INNLENT  VÍSITALA neysluverðs miðuð við verðlag í byrj- un febrúar lækkaði um 0,3%. Davíð Oddsson for- sætisráðherra sagði að þessi mæling yki líkurnar á að rauða strikið héldi sem aðilar vinnumark- aðarins settu sér. Undir þetta tóku talsmenn ASÍ og Samtaka atvinnulífs- ins.  FRUMVARP um að heimila ólympíska hnefa- leika að nýju hér á landi var samþykkt á Alþingi á mánudag. Boxáhugamenn fögnuðu mikið.  RAPPSVEITIN XXX Rottweiler-hundarnir fékk flest verðlaun þegar Íslensku tónlistarverð- launin fyrir árið 2001 voru afhent í Borgarleik- húsinu sl. sunnudags- kvöld. Jónas Ingimund- arson píanóleikari fékk sérstök heiðursverðlaun.  ÞRÍR ungir Danir voru handteknir í Leifsstöð á fimmtudag þar sem á tveimur þeirra fundust 5 kíló af hassi. Með sömu vél kom Þjóðverji sem synjað var um landvist vegna fyrri fíkniefna- dóms sem hann afplánaði hér í fyrra.  GREIÐSLUAFKOMA ríkissjóðs á síðasta ári versnaði um rúma 13 milljarða króna frá árinu 2000. Útgjöld jukust um 26 milljarða milli ára og tekjur urðu 14 milljörðum lægri en ætlað var, þar sem áform um sölu á hlut ríkisins í Landssímanum og ríkisbönkunum gengu ekki eftir í fyrra. Málefni Símans í brennidepli ENDURSKOÐANDA Landssímans hefur verið falið að kanna reikninga vegna gróðursetningar við sumarsbú- stað fyrrverandi forstjóra Landssím- ans, Þórarins V. Þórarinsson. Fram kom gagnrýni í vikunni, m.a. frá Hall- dóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra og Hreini Loftssyni, fv. formanni einkavæðingarnefndar, á ráðningar- samninginn við Þórarin. Samningur- inn var ekki lagður fyrir stjórn Sím- ans, að sögn formanns hennar. Hreinn gagnrýndi einnig stjórnun Landssímans og í kjölfarið taldi for- maður Samtaka fjárfesta að forsendur fyrir hlutafjárútboði Símans væru brostnar. Í lok vikunnar ákvað Verð- bréfaþing að setja Símann á svonefnd- an athugunarlista vegna framkominn- ar óvissu um sölu fyrirtækisins. Haft var eftir Halldóri Ásgrímssyni að hann teldi ólíklegt að Síminn yrði seldur á þessu kjörtímabili. Krafa um afsögn Sturlu Böðvars- sonar samgönguráðherra kom fram hjá formanni VG en Davíð Oddsson lýsti yfir trausti á störfum Sturlu. Flugumferðarstjórar með samning til 2005 YFIRVINNUBANNI flugumferðar- stjóra var aflétt á þriðjudag þegar nið- urstöður atkvæðagreiðslu um miðlun- artillögu ríkissáttasemjara lágu fyrir. Tillagan var samþykkt með 68% greiddra atkvæða og komst þar með á kjarasamningur við ríkið til loka apríl 2005. Hvorugur deiluaðili sagðist sáttur við samninginn, ríkið mat hækkanir flugumferðarstjóra á samningstíman- um 10% meiri en hjá öðrum ríkis- starfsmönnum en flugumferðarstjórar sögðu niðurstöðuna langt frá sínum kröfum. RÉTTARHÖLD hófust yfir Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgó- slavíu, fyrir Alþjóðastríðsglæpadóm- stóli Sameinuðu þjóðanna í Haag í vik- unni. Milosevic er sakaður um stríðsglæpi í Króatíu 1991–1992, Bosn- íu 1992–1995 og Kosovo 1998–1999. Carla del Ponte aðalsaksóknari fór í upphafi yfir ákæruatriðin á hendur Milosevic, en þau eru alls 66, ásamt að- stoðarfólki sínu. Á miðvikudag fékk Milosevic síðan tækifæri til að taka til máls og réðst hann harkalega að for- ystumönnum Atlantshafsbandalagsins, NATO. Sagði hann ásakanir á hendur sér „hafsjó lyga“ og dró í efa lögmæti dómstólsins. Sagði hann réttarhöldin hreinan farsa og að búið væri að ákveða niðurstöðuna fyrirfram. Hann réttlætti aðgerðir Serba í Kosovo með því að kalla þær baráttu gegn hryðjuverkum og sagði NATO hafa framið stríðsglæpi í Kosovo-stríðinu 1999. Bandaríkjamenn gagnrýndir MIKIÐ bar á gagnrýni í garð Banda- ríkjamanna vegna ummæla George W. Bush Bandaríkjaforseta í fyrri viku um að Norður-Kórea, Írak og Íran mynd- uðu „öxul hins illa“ í heimi hér. Vladím- ír Pútín, forseti Rússlands, varaði Bandaríkjamenn við að fara með hern- aði gegn Írökum og kvaðst andvígur því að dregnir væru upp „svartir list- ar“. Joschka Fischer, utanríkisráð- herra Þýskalands, varaði Bandaríkja- menn hins vegar við því að líta á bandamenn sína í Evrópu sem „fylgi- hnetti“. Þá sagði Amr Moussa, utanrík- isráðherra Egyptalands, að arabaríkin gerðu nú allt sem þau gætu til að koma í veg fyrir að Bandaríkjastjórn hæfi að- gerðir gegn Írak. Sagði hann að slíkur hernaður yrði til að magna mjög spennuna í Miðausturlöndum. Réttarhöld hafin yfir Milosevic  MINNINGARATHÖFN um Margréti Bretaprins- essu, yngstu systur El- ísabetar Englandsdrottn- ingar, fór fram á föstudag en hún lést um fyrri helgi, 71 árs að aldri.  EITT hundrað og nítján manns fórust með íranskri farþegaþotu sem hrapaði á þriðjudag nærri borginni Khorramabad í vesturhluta Írans. Þotan var af gerðinni Tupolev 154 og frá flugfélaginu Iran Air Tours. Ekki er vitað hvað olli slysinu.  LÖGREGLAN í Pak- istan handtók á þriðjudag hinn breskfædda sheikh Omar en hann hefur við- urkennt að tengjast hópi sem talinn er hafa rænt blaðamanni The Wall Street Journal, Daniel Pearl, fyrir þremur vik- um. Pearls er nú leitað dyrum og dyngjum en óttast er að hann hafi þegar verið líflátinn.  ENN er róstusamt í Miðausturlöndum og fórst á annan tug manna í þessari viku. M.a. féllu sex Palestínumenn á mið- vikudag í árásum Ísraela á Gazasvæðinu og þrír Ísraelar féllu á fimmtu- dag þegar sprengja sprakk undir skriðdreka á sömu slóðum.  FULLTRÚAR Banda- ríkjastjórnar neituðu á miðvikudag ásökunum um að bandarískir hermenn hefðu misþyrmt afgönsk- um föngum, sem voru teknir til fanga fyrir mis- tök 23. janúar. RANNSÓKNASTOFNUN landbún- aðarins hefur gert nýtt jarðvegskort af öllu Íslandi og var fyrsta kortið af- hent Guðna Ágústssyni landbúnaðar- ráðherra fyrir helgina. Höfundar kortsins eru Ólafur Arn- alds og Einar Grétarsson, í samvinnu við aðra starfsmenn umhverfisdeildar Rala. Ólafur segir að íslenskur jarð- vegur sé afar sérstakur. Hann sverji sig í ætt annars jarðvegs sem mynd- ast á eldfjallasvæðum jarðar, svoköll- uðum Andosol, en slíkum jarðvegi fylgi sérstæðir eiginleikar. Á Íslandi sé auk eldvirkninnar stöðugt áfok frá svörtum söndum og rofsvæðum landsins, en stærstu basalt-sandar jarðarinnar séu einmitt á Íslandi. Þetta áfok sé einstakt og geri íslensk- an jarðveg trúlega einstæðan í heim- inum. Að sögn Ólafs hafa til þessa verið til litlar upplýsingar um íslenskan jarð- veg á landsvísu. Slíkar upplýsingar séu þó afar mikilvægar. Jarðvegur- inn, sem fóstri lífríkið, sé án efa mik- ilvægasta auðlind jarðarinnar og Spánn, sem nú fari með forsæti í Evr- ópusambandinu, hafi sett verndun jarðvegs í öndvegi baráttumála sinna. „Þekking á eðli og myndun jarðvegs er nauðsynleg á mörgum sviðum nátt- úruvísinda, en þróun jarðvegsvísinda hefur verið hæg á Íslandi,“ segir Ólaf- ur. Að undanförnu hefur mjög verið kallað eftir upplýsingum um jarðveg- inn vegna loftslagssamnings Samein- uðu þjóðanna, þar sem hverju landi er gert skylt að efna til bókhalds fyrir kolefni í vistkerfum landanna. Ólafur segir að það hafi ekki verið unnt fyrr en nú, þegar jarðvegskortið komi böndum á kolefnið. Ólafur segir að önnur lönd hafi kallað hátt eftir þess- um upplýsingum frá Íslandi, enda hafi Ísland lengi vel verið eina land- svæðið á jarðvegskorti Evrópu sem hafi verið autt og þaðan engar upplýs- ingar að hafa. Þá hafi rannsóknahóp- ar sem vinni með heimskautasvæðin og jaðar þeirra vanhagað um þessar upplýsingar, en kolefni í jarðvegi á heimskautasvæðunum sé mjög við- kvæmt og gæti hæglega losnað og aukið hratt við koltvísýring í and- rúmsloftinu. Nýja jarðvegskortið byggist á viða- mikilli gagnasöfnun á undanförnum 15 árum, oft í tengslum við önnur rannsóknaverkefni, bæði á Rala og í samstarfi við aðrar stofnanir, en það er fyrst og fremst unnið fyrir starfsfé Rala auk þess sem Landsvirkjun hef- ur styrkt vinnuna. Ólafur segir að nauðsynlegt hafi verið að þróa nýtt flokkunarkerfi fyrir íslenskan jarð- veg og það hafi reynst erfiður starfi. Flokkunin byggist þó á alþjóðlegum hefðum og vinnu sem þegar hefur verið unnin hér, m.a. af Þorsteini Guðmundssyni við Landbúnaðarhá- skólann á Hvanneyri. Kortið byggist einnig á þeirri þekkingu sem var aflað við kortlagningu á rofi í landinu öllu á vegum Rala og Landgræðslu ríkisins, og að hluta er tekið mið af gróður- kortum sem gerð hafa verið á Nátt- úrufræðistofnun Íslands. Jarðvegskortið er fyrst og fremst gefið út á stafrænu formi. Íslensk út- gáfa kortsins er vistuð á www.rala.is/ ymir. Ólafur segir að ætlunin sé að kortið verði í stöðugri endurskoðun og á þessu ári verði jarðvegi safnað á Vestfjörðum og Austurlandi. Ólafur segir að eldfjallajörð sé yf- irleitt höfð rauð á alþjóðlegum jarð- vegskortum. „Hið nýja jarðvegskort fyrir Evrópu er nú komið með ein- kennilega slagsíðu, þegar risin er eld- rauð eyja í norðrinu, sem fangar at- hyglina, svo stórveldi Evrópu verða sviplaus smáríki í samanburði. Lík- lega breytir Jarðvegsstofnun Evrópu litum jarðvegsflokka á jarðvegskort- um sínum nú á næstunni,“ segir hann. Nýtt jarðvegskort af Íslandi gefið út Frá afhendingu jarðvegskortsins. Frá vinstri: Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra, Guðmundur B. Helgason ráðuneytisstjóri, Sigurður Þráinsson, stjórnarformaður Rala, Þorsteinn Tómasson, forstjóri Rala, og Ólafur Arnalds, náttúrufræðingur hjá Rala. Jarðvegskortið. BRÝN þörf er á breyttri löggjöf hér á landi þannig að samræmi verði milli dóma í málum þar sem annars vegar nauðgun hefur átt sér stað og hins vegar misneyting, þ.e. nauðgun á rænulausum konum. Endurskoðun sem þessi hefur m.a. farið fram í norskri löggjöf. Þetta er meðal þess sem kom fram á málþingi á vegum V-dagssamtak- anna á Íslandi sem haldið var á litla sviði Borgarleikhússins á föstudag. Eins og fram hefur komið í Morgun- blaðinu er markmið samtakanna, sem stofnuð voru í Bandaríkjunum árið 1998 í tengslum við uppfærslu á leik- ritinu Píkusögum, að binda enda á of- beldi gegn konum í heiminum. Frummælendur á málþinginu voru Siv Konráðsdóttir hæstaréttarlög- maður, Sólveig Anna Bóasdóttir, sið- og guðfræðingur, Guðrún Agnars- dóttir, læknir á Neyðarmóttökunni á Landspítalanum í Fossvogi, og Dís Sigurgeirsdóttir lögmaður. Að erind- unum loknum tóku þær þátt í pall- borðsumræðum ásamt Svani Krist- jánssyni, prófessor í stjórnmálafræði, Ingólfi V. Gíslasyni félagsfræðingi og Jóni Þór Ólafssyni lögfræðingi. Ólík viðhorf kölluð fram Markmiðið með málþinginu var að kalla fram viðhorf ólíkra fræðigreina til ofbeldis á konum og hvernig það er meðhöndlað í samfélaginu. Meðal þess sem kom fram var að orðræðan í fjölmiðlum og samfélaginu varðandi nauðganir væri farin að hafa áhrif og misræmi væri milli hennar og t.d. úr- skurða dómstóla í nauðgunarmálum og öðrum ofbeldismálum gagnvart konum. Þessi orðræða hefði m.a. haft þau áhrif að konur legðu ekki fram nauðgunarkærur. Einnig kom fram á málþinginu að tveir þriðju hlutar allra mála sem bærust Neyðarmóttökunni í Fossvogi féllu undir skilgreiningu um misneyt- ingu. Konur sem hefðu orðið fyrir slíku ofbeldi veigruðu sér við því að leggja fram kæru á hendur gerand- anum. Edda Jónsdóttir, einn stofnenda V- dagssamtakanna hér á landi, flutti lokaorðin á málþinginu og sagði m.a. að í dag stæði V fyrir vakningu, orð væru til alls fyrst. Málþing V-dagssamtakanna í Borgarleikhúsinu Þörf á breyttri löggjöf í nauðganamálum Morgunblaðið/Þorkell Siv Konráðsdóttir hrl. í pontu á pallborðsumræðum málþingsins á litla sviði Borgarleikhússins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.