Morgunblaðið - 17.02.2002, Side 10

Morgunblaðið - 17.02.2002, Side 10
10 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ hefur ekki verið neinlognmolla í kring umSturlu Böðvarsson sam-gönguráðherra síðustumisseri. Upp hafa komið umdeild mál í hans ráðuneyti og margir hafa gagnrýnt hann. Nú síðast krafðist Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri- hreyfingarinnar, þess að sam- gönguráðherra segði af sér. Sturla sagðist ekki kveinka sér undan gagnrýninni. Hann sagðist hafa gert sér grein fyrir því þegar hann settist í stól samgönguráð- herra fyrir tæpum þremur árum að hann væri að taka að sér viða- mikið en jafnframt áhugavert verkefni. Stjórnmálamenn mættu eiga von á því að lenda í mótbyr í einstökum málum. Það hefði hann lært á þeim tæpum 30 árum sem hann hefði verið í stjórnmálum, sem bæjarstjóri, alþingismaður og ráðherra. Aðspurður um sitt bak- land, segist Sturla finna fyrir öfl- ugum stuðningi, bæði í kjördæm- inu og innan flokksins. Umfjöllun fjölmiðlanna um einstök mál kæmi sér heldur ekkert á óvart. Hún væri af hinu góða og veitti stjórn- málamönnum jákvætt og nauðsyn- legt aðhald. Sturla sagðist lítið gefa fyrir kröfur Steingríms J. enda væri eftirtektarvert að Samfylkingin tæki ekki undir þær. „Það eru allir sem til þekkja sammála um það að þessi krafa um afsögn er fráleit. Hún var auðvitað hugsuð sem póli- tískt útspil og upphrópun, en flest- ir eru sammála um að í þetta skiptið hafi verið hrópað of hátt yfir of litlu. Þessi krafa formanns Vinstri grænna er að mínu mati fullkomið klámhögg.“ Unnið að sölu Landssímans við erfiðar aðstæður Áform ríkisstjórnarinnar um stærstu einkavæðingu til þessa, þ.e. sölu Landssímans hafa ekki gengið eftir og í vikunni sagði ut- anríkisráðherra að ekkert benti til þess að Síminn yrði seldur á þessu kjörtímabili. Sturla var spurður hvers vegna svona hefði til tekist. „Stóra ástæðan fyrir þessari framvindu er óróleikinn í veröld- inni. Í fyrravor þegar við vorum að undirbúa sölu leit þetta allt bæri- lega út en með atburðunum í Bandaríkjunum 11. september fór allt á annan endann á öllum mörk- uðum. Samhliða höfðu fjarskipta- fyrirtæki og tölvu- og margmiðl- unarfyrirtæki lent í niðursveiflu. Símafyrirtæki út um allan heim höfðu fjárfest ótæpilega, m.a. í þriðju kynslóð farsíma. Við vorum því að vinna að sölunni við erfiðar aðstæður. Það skipti ekki síður máli að margir hér heima töluðu mjög gegn því verði sem sett hafði verið á fyrirtækið og ég tel að það hafi haft mikil áhrif á hvernig til tókst. Engu að síður gerðist það að yfir 600 starfsmenn Símans keyptu hluti í fyrirtækinu. Þetta voru þeir einstaklingar sem þekktu þetta fyrirtæki best og báru greinilega mikið traust til þess. PriceWaterhouseCoopers vann mjög vandað verðmat á Símanum. Við treystum á þessa vinnu og trú- um því að fyrirtækið sé þess virði sem það hefur verið verðmetið á. Ég vek athygli á því að Price- WaterhouseCoopers endurskoðaði verðmat sitt á fyrirtækinu í fyrra- haust, m.a. í ljósi breyttra mark- aðsaðstæðna frá upphaflega verð- matinu sem lá fyrir í upphafi sumars, en niðurstaðan varð óbreytt. Ekkert bendir til annars en að afkoma síðasta árs og horfur þessa árs verði í samræmi við áætlanir.“ Getur þú lýst því fyrir mér í stórum dráttum hvernig viðræður við mögulega kjölfestufjárfesta hafa gengið? „Þessar viðræður fóru af stað af mikilli bjartsýni. Það voru 17 að- ilar sem sýndu því áhuga að kaupa ráðandi hlut. Samkvæmt upplýs- ingum frá einkavæðingarnefnd gengu viðræðurnar bærilega en mál þróuðust á þann veg að ekki náðist samkomulag um verð. Það er hins vegar áfram unnið að þessu máli, nú undir forystu Ólafs Davíðssonar, ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu, sem ég ber mikið traust til.“ Hefur eitthvað verið rætt við bandaríska fjárfestingasjóðinn Providence sem einnig sýndi því áhuga að kaupa í Landssímanum? „Einkavæðingarnefnd er að stokka upp spilin og endurmeta málið. Nefndin hefur verið í við- ræðum við TDC og Providence og þeim viðræðum hefur ekki enn verið slitið. Stundum gerast hlut- irnir hratt í svona viðræðum þann- ig að ég tel ekki útséð um hver niðurstaðan verður þó vissulega hafi dregið úr líkum á að þær leiði til jákvæðrar niðurstöðu.“ Framganga Hreins óforsvaranleg Það hafa ýmsir bent á að það hafi verið mistök að fresta sölunni til hausts. Halldór Ásgrímsson segir að framsóknarmenn hafi hvatt til þess að gengið yrði frá sölunni sem fyrst. Hvers vegna var þessi tímasetning valin? „Mér finnst það broslegt að heyra framsóknarmenn halda því fram að ekki hafi verið farið nægi- lega hratt í einkavæðingu Símans. Menn verða að muna að það var ekki fyrr en undir lok vorþingsins sem tókst að ná lendingu í málið á Alþingi. Þingið afgreiddi heimild til sölu Símans á grundvelli til- lagna einkavæðingarnefndar og í meðförum þingsins voru ekki gerð- ar breytingar á frumvarpinu. Hins vegar voru undirstrikaðar þær kröfur sem ég hafði áður sett fram um að fyrirtækið tryggði áfram- haldandi uppbyggingu fjarskipta- kerfisins, að símaþjónusta yrði áfram boðin á hagstæðu verði og að jöfnuður yrði í verðlagningu á gagnaflutningum og þjónusta tryggð um allt land. Þegar menn ræða um tímasetn- ingar í sambandi við söluna mega menn ekki gleyma því að Síminn var kærður til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna þess að gerðar voru athugasemdir við stofnefnahags- reikning fyrirtækisins. Það var mat okkar að það væri mjög hæpið að hefja sölu á meðan þessi kæra væri óafgreidd. Við áttum á hættu að fá niðurstöðu um að efnhags- reikningur Símans væri rangur og menn geta séð í hendi sér í hvaða stöðu við hefðum þá verið. Við hefðum getað lent í þeirri stöðu að þurfa að taka fjármuni út úr fyr- irtækinu eða jafnvel bæta inn í það fjármunum eftir að við vorum bún- ir að selja það. Auk þess var það mat okkar í ráðuneytinu og einkavæðingar- nefndar að undirbúningurinn væri ekki nægilega langt kominn. Allt tal manna núna um að við hefðum getað farið fyrr af stað, stenst ein- faldlega ekki.“ Hreinn Loftsson, fyrrverandi formaður einkavæðingarnefndar, hefur gagnrýnt Landssímann harðlega og m.a. haldið því fram að honum hafi verið illa stjórnað. Hvað finnst þér um yfirlýsingar Hreins? „Ég undrast mjög yfirlýsingar hans, og átta mig í raun ekki á því hvaða tilgangi þær eiga að þjóna. Þær skaða bæði hann sjálfan og fyrirtækið. Þeir sem þekkja til til- lagna einkavæðingarnefndar og skýrslu hennar, sjá að fullyrðingar hans síðustu daga stangast í veiga- miklum atriðum á við fyrrnefndar tillögur nefndarinnar og skýrslu um sölu Símans. Slík framganga er óforsvaranleg, ekki síst af manni sem hefur gegnt jafnmik- ilvægum trúnaðarstörfum fyrir ríkisstjórnina.“ Hver er kostnaður við einka- væðingu Símans? „Ég hef ekki handbærar upplýs- ingar um það á þessari stundu. Þær hafa eftir því sem ég best veit ekki enn verið teknar saman. Einkavæðingarnefnd mun væntan- lega gera grein fyrir þessum kostnaði.“ Þórarinn með mjög háar launakröfur Hvers vegna tókst þú ákvörðun um að ráða forstjóra að Landssím- anum til fimm ára þegar fyrir lá að Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segist ekki kveinka sér undan gagnrýni Krafan um afsögn er klámhögg Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra segir kröfu um afsögn fráleita. Hann segist í viðtali við Egil Ólafsson hafa náð miklum árangri í samgönguráðu- neytinu á mörgum sviðum. Stjórnmálamenn megi hins vegar búast við að lenda í mótbyr í einstökum málum. Aðalatriðið sé að verkin standist skoðun. Morgunblaðið/Sverrir Sturla Böðvarsson segir að óróleikinn í veröldinni sé stærsta ástæðan fyrir því að áform um sölu hlutabréfa í Landssímanum hafi ekki enn gengið eftir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.