Morgunblaðið - 17.02.2002, Síða 24

Morgunblaðið - 17.02.2002, Síða 24
LISTIR 24 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ veturinn 1998. Eins og nafnið ber með sér er verkið samið með ensku- mælandi flautuleikara í huga. Þetta verk er einskonar rapsódía, byrjar í eftirhermuformi, léttu og lipru, þá tekur við flókin tilraun til að ná fram margskonar hugblæ og hrynmynstr- um í samspili sem rennur inn í hressi- legan kafla. Verkið endar með ein- faldri raddsetningu á þekktu íslensku þjóðlagi,“ segir Eiríkur Árni um fyrra verk sitt. Um Aldarsól segir hann: „Aldarsól var samið í Keflavík á vordögum 1999. Verkið byrjar í mik- illi birtu á efsta hluta píanósins, og eftir mikið ferðalag endar verkið á dýpstu nótum þess. Á ferðalaginu birtast margs konar músíkmyndir í formi íslenskra þjóðlaga, pólyfóníu, mjúks flautudúetts, píanósóló sem rennur aftur inn í þrenndarleikinn. Þá tekur við smáblús, svo endar allt í þrástefsleik sem deyr smám saman út.“ FIMM verk fyrir flautu verða frum- flutt á tónleikum Myrkra músíkdaga í Listasafni Íslands á morgun, mánu- dag, kl. 20. Eftir Eirík Árna Sig- tryggsson verða flutt tvö verk, Ice & fire fyrir tvær flautur og Aldarsól fyr- ir tvær flautur og píanó, Dropaspil fyrir flautudúó eftir Þorkel Sigur- björnsson, Þættir ’01 fyrir flautu og píanó eftir Finn Torfa Stefánsson og Afagull fyrir flautudúó eftir Mist Þor- kelsdóttur. Flytjendur eru flautuleik- ararnir Martial Nardeau og Guðrún S. Birgisdóttir. Þeim til fulltingis er Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari. „Afagull er samið fyrir Guðrúnu og Martial sl. vor. Það er númer 3 í röð þriggja flautuverka sem tengjast börnunum mínum þremur. Afagull er skemmtileg blanda af systkinum sín- um en er þó alveg einstakur,“ segir Mist um Afagull. Um verk sitt Þættir ’01 fyrir flautu og píanó segir Finnur Torfi: „Ég hafði um hríð haft hug á því að semja verk fyrir hinn ágæta flautuleikara Martial Nardeau og lét verða af því í lok árs 2000. Verkinu lauk ég í byrjun 2001 og er nafnið af því sprottið. Þættirnir eru tveir. Sá fyrri er frekar hægur með fjörugri sprettum. Sá síð- ari er allur hægur.“ „Ice and Fire er samið í Keflavík Fimm flautuverk frumflutt á Myrkum músíkdögum Morgunblaðið/Sverrir Martial Nardeau, Guðrún Birgisdóttir og Snorri Sigfús Birgisson ásamt tónskáldunum Eiríki Árna Sigtryggs- syni og Finni Torfa Stefánssyni. nema í allra víðtækustu merkingu orðsins. Við blasir að „Uppgufaðir vatns- litir á pappír“ Sólveigar – vatnslit- aðar arkir í plastsvuntum sem teygja sig óreglulega eftir endi- löngum veggnum á miðgangi Kjar- valsstaða – er röð vatnslitamynda og þar af leiðandi meir í ætt við tví- víðar, litaðar teikningar og málverk en höggmyndir. Með því að vísa til þeirra sem „Uppgufaðra vatnslita“ fær hún þó áhorfandann til að gæla með sér við þá hugmynd að verkin séu þrívíð. Litarefnið er alltént þrí- vítt, eins og vel má sjá í smásjá. Hitt er látið liggja milli hluta að samkvæmt þessari skilgreiningu eru allar vatnslitamyndir að stofni til úr uppgufuðum vatnslitum því varla er það nokkurn tíma til siðs að sýna blautar vatnslitamyndir. Sól- veigu hefur þó tekist ætlunarverk sitt með ágætum, sem er að fá okk- ur til að hugsa skilgreiningu efni- viðarins upp á nýtt og efast um óskorað réttmæti fyrri flokkunar. Að þessu leyti er hún í ætt við Der- rida, sem hafnar ekki viðteknum skilgreiningum en leyfir sér þó að afhjúpa takmarkanir þeirra. Níels hafnaði snemma viðteknum forsendum höggmyndarinnar, þótt hann hafi sýnt sig vera fæddur verkmaður á því sviði. Ólíkt end- urreisnarmönnum fimmtándu aldar sem yfirgáfu unnvörpum gullsmíð- ina til að gerast myndhöggvarar eða arkitektar, nema hvort tveggja væri, nálgaðist Níels æ meir sýn- ingarkassana eftir því sem á feril hans leið. Að hann skyldi enda uppi sem safnstjóri, Safnasafnsins á Svalbarðsströnd, ætti ekki að koma svo mjög á óvart. Raðtækni hans, eða seríalismi, og rík tilfinning fyrir möguleikaleik með einfaldar form- breytur, tilbrigði og útúrdúra hent- ar afbragðsvel fyrir sýningarkassa. Hins vegar er Níels einnig málari eins og Sólveig. Sýningarkassinn með penslunum í regnbogans litum, eða marglit kubbabyggðin í öðrum kassa, undir gleri, ber vott um lit- ræna þörf í meiri mæli en gerist og gengur meðal myndhöggvara. Svartur litur verkanna í enn einum kassanum – sum þeirra eru úr gúmmíi – dugar ekki til að draga fjöður yfir málarann sem Níels fóstrar með sér. Eins og Adorno hélt fram þá er svart raunlitur nú- tímans. Litagleðin sem brýst fram sem andstæða svarta litarins felur einungis kolað eðli nútímahyggj- unnar. Þessir þættir virðast aug- ljósir þegar sýningarkassar Níelsar eru bornir saman. Þannig er sýning Níels Hafstein og Sólveigar Aðalsteinsdóttur í til- efni af þrjátíu ára afmæli Mynd- höggvarafélagsins í Reykjavík frá- bær vottur um útvíkkun hugtaksins höggmynd í listþróun á síðustu ára- tugum. MYNDHÖGGVARAFÉLAG Reykjavíkur er þrjátíu ára. Af því tilefni hefur sýningarstjórn þess – skipuð þeim Pétri Erni Friðriks- syni, Ólöfu Nordal og Helga Hjal- talín – valið sex listamenn – tvo og tvo í senn – til að halda sýningar í miðrými Kjarvalsstaða. Það eru þau Sólveig Aðalsteinsdóttir og Níels Hafstein sem ríða á vaðið með yfirlætislausa sýningu, sem þó leynir á sér, ekki síst vegna þess hve þeim starfsfélögunum þykir augljóslega gaman að vinna saman. Þau Sólveig og Níels eru bæði af þeim skóla sem álítur list vera ein- lægustu tegund sjálfstjáningar, hafna yfir allt veraldlegt þras á borð við smekkvísi, markaðsgildi eða aðra ytri verðleika. Það þýðir að verk þeirra verða ekki metin eft- ir forskrift um það hvernig góð myndlist á að vera. Það skondna við val sýninganefndarinnar á þeim Níels og Sólveigu er sú staðreynd að hvorugt þeirra er myndhöggvari Höggmyndin vítt skilgreind Verk eftir Níels Hafstein. MYNDLIST Kjarvalsstaðir Til 24. febrúar. Opið daglega frá kl. 10–18. HÖGGMYNDALIST NÍELS HAFSTEIN & SÓLVEIG AÐALSTEINSDÓTTIR Halldór Björn Runólfsson Á miðgangi Kjarvalsstaða er röð vatnslitamynda eftir Sólveigu. KATRI Vala (1901–1944) lést ung á heilsuhæli. Hún hefur verið talin í fremstu röð finnskra skálda og er jafnvel skipað við hlið Edith Söder- gran. Skáldsystir Vala og vinkona, Helvi Hämäläinen (1907–1998), á grein um hana í Books from Finland 4/2001 og er greinin þáttur endurminninga hennar. Hún minnir á að þrátt fyrir fátækt, erfiðleika og veikindi hafi Vala verið trú einkunnarorðunum Memento viv- ere! Mundu að lifa! Þjóðfélagsgagnrýni og bölsýni setja svip á verk Vala, en hún til- heyrði hópi svokallaðra Kyndilbera í finnskum skáldskap og hún orti á finnsku. Eitthvað hefur verið þýtt á íslensku eftir hana. Meðal þess er þýðing eftir Jóhannes úr Kötlum sem birtist í Annarlegum tungum (1948). Hvíta hjartað nefnist ljóðið. Það hefst á þessu erindi: Einhver hefur grátið í sífellu. Dag og nótt hef ég heyrt ekkann. Til einskis hef ég hlaupið burt: ég fékk ekki umflúið hann. Lokaerindið er ástríðufyllra, myndmálið ríkt: „Úr hverju hefur hún dáið?“ Aftureldingin beygði roðnandi ásjónu sína yfir hvítt hjarta sem lá útflennt innan um smárana. Einhver hafði drukkið úr því. Hämäläinen segist strax hafa heillast af Katri Vala og þótti hún snemma bera af öðrum samtíma- skáldum. Sjálf var hún stundum í vafa um skaldskap sinn, var ekki alltaf viss um hvort hún væri gott skáld eða vont. Sjálf var hún ekki viss um pólitískt gildi verka sinna en það hafði sín áhrif að eiginmaður hennar var eindreginn kommúnisti og sat lengi í fangelsi fyr- ir Sovétvináttu. Berklarnir lögðu Katri Vala að velli og hún dó áður en hún fékk viður- kenningu að ráði. Harmleikir voru allt í kringum hana og mannlegur harmleikur varð hlutskipti fjölskyldu hennar. Hún gladdist þó yfir litlu í fá- tækt sinni og var trú vinum sínum og velunnurum. Eftir lát hennar gerðist enn einn harmleikurinn. Eiginmaður hennar myrti hjúkrunarkonu, gamlan vin fjölskyldunnar, sem hann hafði boðað heim til sín og sonur hennar framdi sjálfsmorð í Svíþjóð, 29 ára að aldri. Bréf frá henni sem birtast í tímarit- inu sýna persónugerð hennar vel. Alltaf er hún jákvæð og vongóð þrátt fyrir allt. Ljóð Katri Vala eru óvenju kraft- mikil og full af lífsvilja. Hún gleðst yf- ir náttúrunni og tilfinningar hennar eru sterkar. Þetta eitt og sér nægði ekki ef vantaði skáldlegt myndmál. En af því hefur Katri Vala nóg og það skipaði henni meðal brautryðjenda í finnskum skáldskap. Mundu að lifa! var kjörorð sem hún fór eftir þótt dauðinn væri ávallt í ná- munda við hana. Á berklahælinu í Svíþjóð eygði hún sem áður von, en þangað hafði hún komist fyrir hjálp sænskra skáldbræðra. Dvölin varð aftur á móti ekki löng því að dauðinn tók í taumana og hún sá ekki Finn- land aftur. Það var kannski eins gott vegna þess að von hennar um skáldabústað og viðurkenningu var tekin frá henni en án vitundar hennar sem betur fer eins og vinkona hennar, Hämäläinen, minnir á. MUNDU AÐ LIFA! Finnska skáldkonan Katri Vala hefur verið talin meðal helstu skálda Finna. Jóhann Hjálmarsson bendir á nýleg skrif um hana eft- ir skáldsystur hennar og vinkonu. johj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.