Morgunblaðið - 17.02.2002, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 25
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til að dveljast við frábærar
aðstæður á suðurströnd Spánar í 3 eða 4 vikur á ótrúlegum kjörum.
Beint flug til Benidorm og Costa del Sol þar sem þú nýtur þjónustu far-
arstjóra Heimsferða allan tímann og getur valið um spennandi kynnis-
ferðir á meðan á dvölinni stendur. Vorin eru fallegasti tími ársins á suð-
ur-Spáni og hvergi er betra að dvelja en í þessum yndislega heimshluta
og á báðum áfangastöðum bjóðum við þér okkar bestu íbúðarhótel með
frábærri aðstöðu fyrir farþega.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 37.400
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, Flug-
sæti eingöngu. Alm. verð kr. 39.270.
Verð kr. 51.900
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, El
Pinar, 3 vikur, 7. apríl með 8.000 kr.
afslætti. Skattar ekki innifaldir.
Alm. verð kr. 54.495.
Verð kr. 69.000
M.v. 2 í stúdíó, Timor Sol, 7. apríl, 3
vikur, með 8.000 kr. afslætti. Völ
um aukaviku. Skattar kr. 3.350, ekki
innifaldir. Almennt verð kr. 72.450.
Vorferðir Heimsferða til
Costa del Sol
og Benidorm
7. og 10 apríl
frá kr. 37.400
Costa del Sol
Verð kr. 41.000
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára El
Faro, 2 vikur, 8. maí með 10.000 kr.
afslætti. Alm. verð kr. 43.155.
Verð kr. 56.100
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára El
Faro, 10. apríl, 4 vikur með 10.000
kr. afslætti. Alm. verð kr. 58.905.
Verð kr. 76.900
M.v. 2 í íbúð, El Faro, 4 vikur, 10.
apríl með 10.000 kr. afslætti. Skattar
kr. 3.350, ekki innifaldir. Alm. verð
kr. 80.745.
Benidorm
ÞRÖSTUR Magn-
ússon, grafískur
hönnuður, var nýver-
ið heiðraður af sam-
tökum frímerkjasafn-
ara í Kanada,
Canadian Study Unit,
fyrir hönnun á ís-
lensku frímerki fyrir
árið 2000. Fékk hann
af því tilefni sent
heiðursskjal frá sam-
tökunum, þar sem
segir að umrætt frí-
merki þyki best
hannaða frímerkið á
árinu 2000.
„Heiðursskjalið var
sent Íslandspósti en síðan hefur
Íslandspóstur sent skjalið til
mín,“ segir Þröstur í samtali við
Morgunblaðið. Hann kveðst því
lítið vita um þessa viðurkenningu
en telur líklegt að valið hafi stað-
ið á milli frímerkja sem tengdust
Kanada á einhvern hátt. Frímerk-
ið er gert eftir málverki Árna
Sigurðssonar frá árinu 1950 og
sýnir íslenska landnema við
Winnipegvatn í Kanada.
„Frumgerð frímerkisins er
handunnin með svo-
kallaðri stálstungu
sem er óhemju tíma-
frek aðferð. Er það
svipuð aðferð og er
notuð við prentun
peningaseðla. Það
var sænski stál-
stungumeistarinn
Martin Mörck sem sá
um stálstunguna.“
Þröstur hefur
hannað frímerki í um
tuttugu og fimm ár.
„Ég hef sennilega
hannað um 200 ís-
lensk frímerki á þess-
um tíma,“ segir hann.
Þröstur bendir á að þótt frímerki
séu notuð í æ minna mæli haldi
þau ávallt gildi sínu sem góð
landkynning.
Hannaði
íslensku myntina
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn
sem hönnun Þrastar á frímerkj-
um vekur athygli, því sömu sam-
tökin, Canadian Study Unit,
veittu frímerki hans frá árinu
1992 viðurkenningu. „Það frí-
merki tengdist fundi Ameríku.
Var á því mynd sem minnti á
Kristófer Kólumbus og Leif Ei-
ríksson.“ Þá voru frímerki hönn-
uð af Þresti valin fallegustu frí-
merki ársins árið 1992, af
franska tímaritinu Timbroloisirs.
Auk þess sem Þröstur hefur
hannað frímerki fyrir Íslandspóst
hefur hann unnið fyrir Seðla-
banka Íslands. Hann hannaði m.a.
myntina sem notuð er í dag sem
og fjöldann allan af minnispen-
ingum.
Hlýtur viðurkenn-
ingu fyrir hönnun
á íslensku frímerki
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Frímerki sem valin voru fallegustu frímerki ársins 1992 af franska
tímaritinu Timbroloisirs.
Frímerki sem Þröstur Magnús-
son hannaði fyrir árið 2000.
Frímerki sem Þröstur Magnús-
son hannaði fyrir árið 1992.
Þröstur Magnússon
Í GALERI 19rouge í miðborg
Lúxemborgar stendur nú yfir
sýning Erlu Þórarinsdóttur.
Verkin eru frá undanförnum
tveimur árum, unnin með olíu-
litum og silfurlaufum á striga.
Titill sýningarinnar er „Tim-
ings“ og skírskotar til tilurðar-
tíma verkanna og birtingar-
form tímans í oxunarferli
silfurs.
Sýningin stendur til 23. febr-
úar.
Verk eftir Erlu
Þórarinsdóttur.
Íslensk
myndlist í
Lúxemborg
Norræna húsið Tvær kvikmyndir
verða sýndar til minningar um rit-
höfundinn Astrid Lindgren. Lína
Langsokkur í Suðurhöfum, Pippi
Långstrump på de sju haven verð-
ur sýnd kl. 14 og Bræðurnir ljóns-
hjarta, Bröderna lejonhjärta kl.
15.45. Myndirnar eru ekki text-
aðar. Aðgangur ókeypis.
Kennsluráðgjafar Norræna húss-
ins bjóða nú nemendum í 5. bekk
að koma í heimsókn í Norræna
húsið og kynnast nokkrum verka
Astrid Lindgren. Unnin verða
margvísleg verkefni byggð á verk-
um skáldkonunnar auk þess sem
sýnt verður brot úr einni af þeim
fjölmörgu kvikmyndum sem gerð
hafa verið eftir sögum hennar.
Kennarar geta bókað tíma hjá
kennsluráðgjöfum Norræna húss-
ins.
Bíósalur MÍR Kvikmyndin Sannir
vinir verður sýnd kl. 15. Myndin
var gerð í Moskvu fyrir 48 árum
og er þar sagt frá fullorðnum
mönnum, sem rifja upp atvik úr
bernskunni. Leikstjóri er Mihaíl
Kalatozov, en hann leikstýrði
kvikmyndinni Trönurnar fljúga.
Tónlistin er eftir Tikhon Khrenni-
kov, en meðal leikenda eru Vasilíj
Merkúríjev, Boris Andrejev og
Alexei Batalov. Skrýningar eru á
ensku og er aðgangur ókeypis.
Húnabúð, Skeifunni 11 Hún-
vetningafélagið í Reykjavík gengst
fyrir menningardegi og hefst dag-
skráin kl. 14. Fram koma kunnir
hagyrðingar að norðan; Pétur frá
Höllustöðum, Jóhann í Holti, Gísli
á Mosfelli, Óskar í Meðalheimi og
Páll í Sauðanesi. Ágúst á Geita-
skarði stjórnar þessum þætti dag-
skrárinnar. Þá syngur Húnakór-
inn, ungt fólk í söngnámi syngur
ein- og tvísöng og tvítug stúlka
leikur á píanó.
Kynnir er Vilhjálmur Pálmason
frá Holti á Ásum.
Skriðuklaustur Einar Már Guð-
mundsson rithöfundur heldur
sögustund kl. 15. Þar mun hann
segja gefa fólki innsýn í verk
sín með upplestri og spjalli. Einar
Már dvelst um þessar mundir í
gestaíbúð Gunnarsstofnunar.
Mánudagur
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
Carlos Sánchez frá Perú og Al-
berto Sánchez Castellón frá Kúbu
sýna dans kl. 20.30. Þeir hafa báð-
ir stundað dans frá unga aldri.
Þeir kenna báðir salsa í Kramhús-
inu.
Í nokkur ár starfaði Alberto með
kunnu götuleikhúsi í Habana á
Kúbu, „La gigantería“ (Risunum),
þar sem hann lék listir sínar á
stultum. Hann mun taka á móti
klúbbgestum fyrir utan Þjóðleik-
húsið á stultum.
Í DAG
Astrid Lindgren