Morgunblaðið - 17.02.2002, Page 28

Morgunblaðið - 17.02.2002, Page 28
LISTIR 28 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Nýr farði Silkimjúk, semi-mött áferð. 4 litir. BIODROGA Bankastræti 3, sími 551 3635. Snyrtist. Lilju, Stillholti 16, Akranesi. Hjá Laufeyju, Hjarðarlundi 1, Akureyri. Jurta - snyrtivörur Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Sigurður Skúlason, Sólveig Arnars- dóttir, Valdimar Örn Flygenring, Valur Freyr Einarsson og Þórunn Lárusdóttir. Aðstoðarmaður leik- stjóra er Helga E. Jónsdóttir og sýningarstjóri er Ingibjörg Elfa Bjarnadóttir. Veislan verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu um miðjan apríl. Veislan byggist á dönsku dogma- myndinni Festen. Hún fjallar um sextugsafmæli Helga en atburða- rásin tekur skyndilega óvænta og ógnvænlega stefnu. Frumsýning er fyrirhuguð um miðjan apríl á Smíðaverkstæðinu. Þýðandi er Ein- ar Kárason, leikgerð Bo Hansen. Tónlistarumsjón: Jóhann G. Jó- hannsson. Búningar: Þórunn S. Þorgrímsdóttir og Filippía Elísdótt- ir. Leikmynd: Þórunn S. Þorgríms- dóttir. Leikstjóri: Stefán Baldurs- son. Leikendur eru Arnar Jónsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Erlingur Gíslason, Friðrik Friðriksson, Hilmir Snær Guðnason, Inga María Valdimars- dóttir, Kjartan Guðjónsson, María Pálsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Stefán Jónsson, Tinna Gunnlaugs- dóttir, Þóra Friðriksdóttir og Achou Yapi Donatien. Aðstoðar- maður leikstjóra er Guðný María Jónsdóttir. Nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk Sím- onarson, Viktoría og Georg, verður frumsýnt á Litla sviðinu í vor. Sag- an lýsir ástarsambandi sænsku skáldkonunnar Victoriu Benedicts- son og danska bókmenntajöfursins Georgs Brandesar. Árið 1888 framdi Victoria sjálfsmorð á hót- elherbergi í Kaupmannahöfn. Leikmynd og búninga hannar Rebekka A. Ingimundardóttir, lýs- ingu Ásmundur Karlsson. Leik- stjóri er Hlín Agnarsdóttir. Leik- arar eru Guðrún S. Gísladóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. Aðstoð- armaður leikstjóra er Helena Stef- ánsdóttir. HJÁ Þjóðleikhúsinu standa nú yfir æfingar á fjórum leikritum.Þrjú eru eftir íslenska höfunda og eitt eftir erlendan höfund, en það er Veislan, Festen, eftir Thomas Vinterberg og Mogens Rukov. Íslensku verkin eru Jón Oddur og Jón Bjarni, byggt á sögu Guðrúnar Helgadóttur, Strompleikurinn eftir Halldór Lax- ness, en það er sýnt í tilefni af ald- arafmæli skáldsins og Viktoría og Georg eftir Ólaf Hauk Símonarson. Æfingar á leikritinu Jón Oddur og Jón Bjarni eru nú langt komnar og er frumsýning fyrirhuguð 3. mars. Í byrjun apríl er ætlunin að frumsýna Strompleikinn á Stóra sviðinu. Þetta er skopleikur með al- varlegan undirtón og segir frá mæðgunum frú Ólfer og Ljónu sem búa í niðurníddum bragga í Reykja- vík. Þær hafa hin ótrúlegustu ráð til að komast af. Leikmynd og búninga hannar Rebekka A. Ingimundardóttir, lýs- ingu Páll Ragnarsson. Tónlist er eftir Hilmar Örn Hilmarsson og leikstjórn er í höndum Kristínar Jó- hannesdóttur. Leikarar eru Atli Rafn Sigurðarson, Baldur Trausti Hreinsson, Edda Arnljótsdóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Jóhann Sig- urðarson, Kristbjörg Kjeld, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Linda Ás- geirsdóttir, Marta Nordal, Ólafía Fjögur leik- verk æfð í Þjóð- leikhúsinu Morgunblaðið/Þorkell Aðstandendur Veislunnar lesa verkið saman. Morgunblaðið/Ásdís Strompleikurinn samlesinn. Morgunblaðið/Ásdís Frá samlestri á Viktoríu og Georg. HINN árlegi boðberi Sögufélags Skagfirðinga, Skagfirðingabók, kom út fyrr á þessu ári í 27. sinn. Telst það vera lokahefti í IX. bindi, því að allt frá upphafi hafa ítarlegar manna- og staðanafna- skrár fylgt þriðja hverju hefti, svo og leiðréttingar fyrir þrjú hefti. Föst hefð er á fyrirkomulagi Skagfirðingabókar. Fremst er löng ritgerð um einhvern látinn Skag- firðing. Síðan koma ritgerðir og frásöguþættir. Allt fjallar efnið um liðna tíð eins og samir ársriti sögu- félags. Þetta ársrit hefst á langri rit- gerð um kunnan Sauðárkróksbúa, Jörgen Frank Michelsen, úrsmið. Ber ritgerðin heitið Danski úr- smiðurinn sem varð Skagfirðingur. Sagt frá Jörgen Frank Michelsen, úrsmið á Sauðárkróki. Höfundur er sonur þess sem ritað er um, Franch Michelsen, úrsmíðameist- ari. Michelsen kom til Sauðár- króks sumarið 1907, þá hálfþrítug- ur. Hann átti eftir að búa og starfa á Sauðárkróki til ársins 1945. Eftir það var hann í Reykjavík með stuttri viðkomu í Hveragerði, uns hann lést árið 1954, 72 ára að aldri. Michelsen var um margt hinn merkilegasti maður. Hann var prýðilegur fagmaður, en að öðru leyti athafnasamur dugnaðar- maður. Hann kom mikið við út- gerðarsögu Sauðárkróks og rak talsverðan búsakap af kaupstað- arbúa að vera. Dýrahald hans var fjölskrúðugt: Kýr, hestar, kindur, geitur, gæsir, endur, svín og geit- ur. Og verslun rak hann talsverða. Michelsen kvæntist eyfirskri ágætiskonu og eignuðust þau tólf börn, fimm dætur og sjö syni. Öll náðu þau fullorðinsaldri utan ein dóttir. Franch, sem ritgerðina skrifar, er elstur sonanna, fæddur 1913 og er því að verða 88 ára. Ekki verða þó ellimörk á ritsmíð hans séð. Hún er lipur og skýr í framsetningu og raunsönn, að ég hygg. Er þó ekki auðvelt að rita um nákomna vandamenn, svo vel fari á. Æviferill Michelsens er rak- inn skilmerkilega. Lesandinn fær góða innsýn í þetta stóra og starf- sama heimili og jafnframt birtist sýn yfir mannlíf á Sauðárkróki á þessu tímabili. Mér virðist, að Franch hafi verið öðrum færari að skrifa þessa ritgerð vegna þess hversu vel hann þekkti til. Næsta ritgerð er eftir Hannes Pétursson og nefnist Á fæðing- arstað Stephans G. Stephan fædd- ist á kotbýlinu Kirkjuhóli, skammt frá Víðimýri. Kirkjuhóll hefur fall- ið nokkuð í skugga Víðimýrarsels, þar sem Stephan dvaldist nokkr- um árum síðar. Er það að ósekju. Hannes gerir glögga grein fyrir því hvar Kirkjuhóll er og hvar bæjarhúsin muni hafa verið, en rústir þeirra hafa nú verið jafn- aðar við jörðu. Leggur hann til að staðurinn verði merktur eða það sem betra væri, að bærinn yrði endurreistur samkvæmt skýrum heimildum, sem til eru um bygg- inguna. Raunar telur hann að ann- að verkefni ætti að hafa forgang. Svo vill til að hjá Ytra-Skörðugili er ungmennafélagslundur. Konráð Gíslason, Fjölnismaðurinn og mál- fræðingurinn, fæddist á Löngu- mýri, en dvaldist um hríð í æsku sinni á Ytra-Skörðugili. Þar í lund- inum, sem hann vill nefna Kon- ráðslund, mælist hann til að reist verði minnismerki um Konráð. Það finnst mér vissulega góð ábending. Sigurjón Páll Ísaksson á hér grein, sem ber heitið Skriðan á Kjarvalsstöðum 30. maí 1994. Er þar lýst mikilli aurskriðu, sem féll á Kjarvalsstöðum í Hjaltadal. Er þessu mikla skriðufalli og afleið- ingum þess nákvæmlega lýst og er lýsingin studd góðum myndum. Séra Björn Jónsson á Akranesi (Blöndhlíðingur) skrifar hér grein er hann nefnir Komstu skáld í Skagafjörð. Þrjú vestur-íslensk ljóðskáld úr Skagafirði. Eru þar sögð deili á Kristni Stefánssyni, Magnúsi Markússyni og Stephani G. Stephanssyni. Tvö þau fyrr- nefndu munu flestum gleymd og er þarft að segja frá þeim og verk- um þeirra. Kannski hefði fjórði Skagfirðingurinn, Sveinn Símonar- son frá Gauksstöðum, mátt fljóta með. Múrinn rauði á Hólum er at- hyglisverð ritgerð eftir Ásgeir Jónsson hagfræðing frá Hólum í Hjaltadal. Hann færir rök að því að múr einn fagurlega gerður í kringum kór dómkirkjunnar á Hólum, úr rauðu mógrýti úr Hóla- byrðu, hafi verið gerður á 15. öld af Gottskálki biskupi Kenikssonar og hafi hann átt að vera til styrkt- ar dómkirkju þeirri, sem Pétur Nikulásson lét byggja. Fram til þessa hafa menn talið að múr þessi væri eldri eða frá tíð Auðunar rauða og átt að vera upphaf að nýrri kirkju. Það telur höfundur varla geta staðist. Múr þessi var brotinn um 1760 og steinarnir not- aðir í kirkju þá er nú stendur. Andrés H. Valberg á hér tvo frásöguþætti. Annar þeirra segir frá Áslaugu Sívertsen, sem fædd og uppalin var á Selnesi á Skaga, en fluttist síðar til Reykjavíkur. Hinn þátturinn nefnist Loðsilung- ur. Magnús H. Helgason ritar stutt- an þátt um framboðshugmyndir Indriða Einarssonar í Skagafirði árið 1883. Er þar stuðst við bréfa- skriftir. Ekkert varð úr framboði Indriða, enda varð honum fljótt ljóst, að stuðningur yrði lítill. Barnshvarf í Hornbrekku er stutt frásögn eftir Axel Þorsteins- son í Litlu-Brekku. Segir þar frá því er sex ára drengur hvarf frá nefndum bæ og fannst ekki fyrr en ári síðar. Í lok ritsins eru athugasemdir og leiðréttingar við tvö undanfar- andi hefti og að lokum skrár yfir nöfn manna og staða. Skagfirðingabók er nú eins og jafnan einkar læsilegt og fróðlegt rit og vandað í alla staði. Ársrit Sögufélags Skagfirðinga BÆKUR Þjóðfræði Rit Sögufélags Skagfirðinga, XXVII. árgangur Ritstjórn: Gísli Magnússon, Hjalti Pálsson, Sigurjón Páll Ísaksson, Sölvi Sveinsson Reykjavík 2001, 240 bls. SKAGFIRÐINGABÓK Sigurjón Björnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.