Morgunblaðið - 17.02.2002, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 17.02.2002, Qupperneq 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 29 Um hvað snúast stjórnmál? Kynntu þér málið í Stjórnmálaskóla Sjálfstæðis- flokksins í Valhöll mánudags-, þriðjudags- og fimmtudagskvöld frá 18. febrúar til 7. mars. Fyrirlestrar og umræður, m.a. um: borgarmálin fjölmiðla og stjórnmál flokksstarfið hlutverk sveitarfélaga menntun og menningarmál heilbrigðisþjónustu áhrifaríkan málflutning listina að vera leiðtogi Ísland í samkeppni þjóðanna Dagskráin er kynnt á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is á hnapp Stjórnmálaskólans. Skráning og nánari upplýsingar í síma 515 1777/515 1700, einnig á netfangi disa@xd.is.          LAUGARNESKIRKJA verður vett- vangur tónleika þriggja kvenna í kvöld kl. 20.00. Konurnar eru Gerður Bolladóttir sópransöng- kona, Berglind María Tómasdóttir flautuleikari og Júlíana Rún Indr- iðadóttir píanóleikari. Þær flytja verk eftir frönsk og íslensk tón- skáld sem öll eiga það sameiginlegt að vera samin við ljóð þar sem nótt- in er vegsömuð í öllum sínum fjöl- breytileika. Gerður Bolladóttir segir að fyrst verði leitað í sjóði meistaranna Debussys og Faurés. „Þar verðum við með lög eins og Eftir draum og Stjörnubjört nótt. Þetta eru allt fallegar og grípandi laglínur og lýsa vel rómantískri næturstemmningu. Við brjótum prógammið upp með lögum eftir Albert Roussel, en lög hans hafa ekki verið mikið sungin hér á landi. Annað verkið, Næturgalinn, er ein- göngu fyrir rödd og flautu. Í því er mikill húmor og þar eru dregnar upp skemmtilegar andstæður, ann- ars vegar glaða og ástfangna næt- urgalans og óhamingjusama unga mannsins, sem er alltaf að bera sig saman við söng næturgalans. En í niðurlagi lagsins er komið að stúlk- unni sem ungi maðurinn elskar; hún heldur fyrir eyrun til að þurfa ekki að hlusta á hann syngja. Hitt verk Roussels er við ljóð eftir Rons- ard og heitir Himinn, loft og vind- ur. Það er falleg náttúrulýsing. Ungur maður horfir á fegurð nátt- urunnar og biður himininn, vind- inn, hæðirnar, slétturnar, runnana, árbakkana, hellana, skógana, túnin og blómin að bera ástinni sinni kveðju. Þetta er sem sagt mjög rómantísk og falleg landslagslýs- ing og í fornum þjóðlegum stíl.“ Gerður segir að þótt Roussel hafi verið samtímamaður Debussys og Faurés, sé tónlist hans gjörólík tón- list þeirra og stíll hans frekar ný- klassískur. Það verður ekki bara sungið á tónleikunum, því Berglind María leikur tvö flautuverk, annað eftir Roussel og hitt eftir Fauré. Þá syngur Gerður íslensk lög þar sem nóttin er enn í öndvegi. Þetta eru Vögguvísa og Þei, þei og ró, ró eft- ir Björgvin Guðmundsson, Nótt eft- ir Árna Thorsteinsson og Sofnar lóa eftir Sigfús Einarsson. Nóttin í öllum sínum myndum Morgunblaðið/Þorkell Júlíana R. Indriðadóttir, Gerður Bolladóttir og Berglind Tómasdóttir. LÍFIÐ er mótsagnakennt og margslungið. Tilbrigði þess eru fleiri en sandkorn á sjávar- strönd. Og trúin á svar við öllu. Svör Sig- urbjörns eru að sínu leyti einföld. Trúar- traustið eitt búi manni öruggan samastað í hörðum heimi. Aðeins þar muni skjól að finna fyrir lífsins hrakviðrum. Í trúnni finnurðu sannleikann og lífið. Eigi að síður ber að varast að leggja í trúna ein- hvers konar verald- legan skilning. Guð er staðreynd. En hver skilur almættið? Þessu svarar Sigur- björn svo: En þú getur skynjað hann, í náttúrunni, í náunganum, í sjálfum þér og í allri sköpuninni, allt í kringum þig. Það er sem sagt fagnaðarerindi trúarinnar og þar með trúin á lífið sem Sigurbjörn boðar í ljóðum sín- um. Trúarjátning hans er því jafn einföld og fáorð sem hún er auðskilin: Jesús er lífgjöfin þín og mín. Hvort heldur horft er til hvers ein- staks ljóðs fyrir sig eða bókar þess- arar í heild er ljóst að boðskapurinn verður til á undan ljóðinu. Ljóðform- ið er höfundinum aðeins farvegur eða tjáningarleið til að segja það sem honum liggur á hjarta. Það styrkir boðskapinn en veikir ljóðið. Þar við bætist að Sigurbjörn fer hefðbundn- ar leiðir í boðun sinni. Vanabundin orð og hugtök kristinna fræða eru honum meira mál en svo, að hann hætti á endurnýjun eða breytingar. Þar að auki er trúarvissa hans svo sterk að efi kemst naumast að. Krist- indómur Sigurbjörns einkennist af fyrirgefningartrú og farsældar- hyggju. Efasemdamanninum er bent á að einnig hann sé guðsbarn sem eigi í vændum náð og miskunn. Í samræmi við það lifir maður svo best, að hann festist ekki í fortíðinni heldur horfi fram á veg- inn. Sterk áhersla er lögð á jákvætt hugarfar og kærleika manna á meðal. Ennfremur er minnt á að ævi og líf séu tvö aðskilin hugtök. Æv- in sé skammvinn en lífið sé eilíft. Af þessu er ljóst að hugarheimur höfundar- ins er bjartur og friðsæll. Hann er ekki að glíma við andstæður og mót- sagnir. Hann veit af tog- streitu þeirri og mis- sætti, sem einatt kemur upp í daglega lífinu. En lausnin er jafnan einföld fyrir þann sem trúir. Í stöku ljóði er vikið að tómleika þeim sem hljóti að umlykja hinn vantrúaða sem »þumbast í gegnum daginn« í leiðindum og sljóleika. Og sá, sem fortakslaust hafnar ljósi trúarinnar, á þetta í vændum: Sú ógæfa er uppspretta, kulda, sjálfshöfnunar, ósigurs, ófullkomleika, eilífs dauða. Sigurbjörn Þorkelsson býr yfir ærinni mælsku og eindregnum vilja að koma boðskap sínum á framfæri. Stíll hans ber hvors tveggja merki. Að ytri gerð er bókin hin vand- aðasta. Kápuna prýðir mynd af skín- andi sól yfir blikandi haffleti. Myndin sú má vera táknræn fyrir leiðarljós trúarinnar eins og það birtist lesand- anum á síðum bókarinnar. Boðskapur ljóðs BÆKUR Ljóð Ljóðabók eftir Sigurbjörn Þorkelsson. 124 bls. Útg. Sigurbjörn Þorkelsson. Prentun: Offset ehf. 2002 LÍFIÐ HELDUR ÁFRAM Sigurbjörn Þorkelsson Erlendur Jónsson Á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050 Útsalan stendur yfir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.