Morgunblaðið - 17.02.2002, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 31
SÝNINGIN Hús í hús í vestursal
Kjarvalsstaða er í rökrænu framhaldi
af öðrum verkum Hannesar Lárus-
sonar frá síðustu árum. Skipanin er
samsett úr ellefu módelhýsum, kof-
um eða skálum, sem minna töluvert á
smáhýsi þau sem prýddu einmitt
þennan sama sal fyrir ári eða svo,
þegar heimsþekktum arkitektum var
boðið að hanna lítil hús í anda alþýð-
legra sumarskála í útjaðri evrópskra
stórborga á 19. öld.
Skálarnir ellefu eru tengdir með
köplum eftir hverjum upplestur
Hannesar hleypur hús úr húsi. Orð,
setningar, hendingar og stuttir
textar berast innan úr einu húsi í
senn. Til að fylgjast með upplestrin-
um þurfa gestir að ramba á réttan
skála og opna dyrnar að honum. Inn-
gangurinn er þrengsti hluti vistar-
veranna og sá hinn eini sem sker sig
úr því hver hurð er í sínum sérstaka
lit. Eins og ætíð blandar Hannes
sjálfur litina sem hann notar. Fyrir
honum er blöndun lita ein af grund-
vallarathöfnum myndlistarmannins.
Grunnform skálanna er ekki ósvip-
að lögun hylkis þess sem hýsir geim-
fara sem skotið er út fyrir gufuhvolf-
ið. Innandyra er stigi upp á svefnloft,
en hurðarhúnarnir eru í formi hnúaj-
árns. Af svefnloftinu sést út um kúpt-
an plastglugga, en þakið er gert að
því er virðist úr álþynnum, ekki
ósvipuðum þeim sem notaðar eru í
offset-prentun dagblaða. Þá er fram-
an á hverju húsi steypt málmausa
með hreyfanlegu skafti í formi púka-
hauss. Upp úr þakinu gægjast spjóts-
oddar sem tákna eiga vafurloga. Önn-
ur húshlið hvers skála er máluð líkt
og um grófan krossvið væri að ræða,
en hin hliðin er líkust hlöðnum múr-
steinum. Og hvað skyldi þessi skipan
svo fyrirstilla?
Næsta auðvelt er að geta sér til um
það hvað tala skálanna táknar. Í
knattspyrnuliði eru ellefu manns svo
líkast til er um liðsheild sé að ræða.
Klefaform skálanna bendir þó til þess
að liðsheildin sé ekki mjög mann-
blendin. Í hverjum þeirra eru ástund-
aðar klifkenndar einræður fjarri öll-
um félagsskap. Varla er hægt að
verjast þeirri hugsun að um þjóð-
félagsgagnrýni sé að ræða þar sem
okkur Íslendingum er líkt við ein-
angraða liðsheild þar sem hver þenur
sig í sínu horni. Eins mætti skoða
skipanina sem allegoríu, eða tákn-
rænt ígildi íslenska listaheimsins.
Annar veggur skálanna heldur
varla vindi, ekki frekar en kofa-
ræksni lötu grísanna sem úlfurinn
blés um koll. Hinn veggurinn er eins
rammgerður og steinhús atorkusama
grísabróðurins sem bjargaði letingj-
unum tveim frá því að lenda í gini
vargsins. Um ausuna og vafurlogann
er erfiðara að spá. Þessi postmódern-
íski skrautauki er ofhlæði eða lang-
sótt viðbót án nokkurra viðhlítandi
skýringa; eða hvað?
Styrkur Hannesar opinberar
gjarnan veikleika hans. Rismikilli
skálaþyrpingunni í vestursal Kjar-
valsstaða, með áleitnum textaflutn-
ingi listamannsins – óborganlega
áþekkum hreintunguþáttum Út-
varpsins – sem gefur gestum meira
en nægilegt fóður til heilabrota þar
sem þeir þjóta frá einni hurð til ann-
arrar, er ógnað af litlum, merking-
arrýrum útúrdúrum. Þannig geldur
hið markvissa fyrir fremur ólöguleg-
ar ausur og loga sem ógna sprengi-
krafti heildarinnar. Sem betur fer
eru þessar viðbætur ekki nægilega
áleitnar til að draga úr ágæti þorps-
ins sem heildar en þar er tilviljuninni
ef til vill meira fyrir að þakka en
ásetningi listamannsins. Alltént má
fínstillt sjón starfsbræðra Hannesar
ekki við svona samræmisskelfi.
Þeir geta þó skekið úr sér hrollinn
yfir ágætri sýningarskrá sem rekur
feril Hannesar í prýðilegum texta
Gunnars J. Árnasonar, fagurfræð-
ings, og endar á nokkur konar rúsínu
í pylsuendanum; dúkkulísuskála í
smækkaðri mynd með öllu tilheyr-
andi. Þar er meira að segja listamað-
urinn sjálfur íklæddur sérkennileg-
um fangabúningi með fjórdera
derhúfu; bráðsmellinni táknmynd
ístöðulauss eltingarleiks okkar við
skyndilausnir og einnota frelsunar-
kenningar. Af þessu má ráða að sýn-
ing Hannesar er alltof margræð til að
framhjá henni verði gengið.
Litlir kassar…
allir eins?
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Til 1. apríl. Opið daglega frá kl. 10–18.
BLÖNDUÐ TÆKNI
HANNES LÁRUSSON
Morgunblaðið/Sverrir
Skálaþorp Hannesar Lárussonar í vestursal Kjarvalsstaða.
Halldór Björn Runólfsson
ENSKA ER OKKAR MÁL
Innritun
í fullum
gangi
Ensku talnámskeið
Einnig önnur
fjölbreytt enskunámskeið
Susan Taverner
Hringdu í síma
588 0303
FAXAFENI 8
www.enskuskolinn.is
enskuskolinn@isholf.is
Julie Ingham Sandra Eaton Edward Rickson Susannah Hand Joon Fong
Kennsla í Reykjavík, Selfossi og á Akureyri
Opið í dag
sunnudag kl.1-5
ÚTSALA
Enn meiri verðlækkun á útsölunni
Allt að
70%
afsláttur
Þú getur gert góð kaup á þessari útsölu...
...enn er mikið til af vönduðum og
spennandi vörum á miklum afslætti.
Nýtt kortatímabil
eva
Laugavegi 91,
2 hæð, sími 562 0625
Dæmi:
Ozone trékylfur ....kr. 3.000
ZO-ON barnaregngalli
jakki + buxur ........kr. 8.500
Loksins loksins - GOLF - útsala
Allt að 50% afsláttur
Dæmi:
PING TiSI dræver...kr. 39.000
Footloy skór .............kr. 5.900
Titleist 990 golfsett kr. 69.000
GOLFBÚÐIN, Strandgötu 28, Hafnarfirði, símar 565 1402, 898 6324