Morgunblaðið - 17.02.2002, Page 38

Morgunblaðið - 17.02.2002, Page 38
MINNINGAR 38 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                 !  "        !"                                                    !!"  ! "# !#"$$%#  # !&'  '(##)  !$%# * ! +  %,  !$%#-                            !                 !   ""#    "  # "!"$   % "  &"   % " '"" (" )" !   %" *   % " )*+"*   %, "    "     # "!"$  '"% " ,"  # " )*+"% "-                                              !"   #$$" %       &        &  &'  (               !    "   #$%   && '  () ' #    *'  & && $%+  && &'+  (%! ' ,  ,% ,  ,  , - ✝ Lárus Hallbjörns-son fæddist í Reykjavík 26. ágúst 1929. Hann lést á líkn- ardeild Landakots 9. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Hallbjörn Þórarins- son trésmiður, látinn, og Halldóra Sigur- jónsdóttir húsfrú, lát- in. Lárus var yngstur sjö systkina. Hin voru: Þórarinn, Sig- urjón, Ingi, Sigurður, Ólafur og Guðlaug en hún lifir bræður sína. Lárus kvæntist Hrafnhildi Þórð- ardóttur bókaverði 10. október 1953. Foreldrar hennar voru Þórð- ur Georg Hjörleifsson skipstjóri, látinn, og Lovísa Halldórsdóttir húsfrú, látin. Lárus og Hrafnhildur eignuðust þrjá syni. Þeir eru: 1) Þórður Georg, rafvirki og sölu- maður, kvæntur Unni Kristínu Sig- urðardóttur og eiga þau þrjú börn, Hrafnhildi Láru, Guðleifi Eddu og Sigurð Svein. 2) Halldór Randver auglýsingahönnuður, í sambúð með Guðlaugu Jónasdóttur og eiga þau tvö börn, Jónas og Ásdísi Lovísu. 3) Lárus Hrafn kaupmað- ur, kvæntur Rósu Hallgeirsdóttur og eiga þau tvö börn, Hildi Dag- nýju og Tinnu Gná, og eitt barnabarn, Aron Örn. Lárus lauk námi frá Héraðsskólanum á Reykjum í Hrúta- firði 1946, Iðnskólan- um í Reykjavík 1952, iðnnámi frá Vél- smiðjunni Héðni 1953 og vélstjóra- prófi frá Vélskólan- um í Reykjavík 1955 og rafmagnsdeild 1956. Hann vann hjá Togaraafgreiðslunni og á hvalbát að námi loknu, síðan hjá Eimskipafélagi Ís- lands hf. Hann var vélstjóri á skip- um Hafskips hf. frá upphafi til enda þess félags, þ.e. árin 1959 til 1985, og var eini starfsmaðurinn sem náði því. Eftir það vann hann hjá Eimskip við eftirlit og viðhald frystigáma í Sundahöfn þar til hann lét af störfum fyrir aldurs- sakir árið 1997. Lárus var sæmdur gullmerki knattspyrnufélagsins Fram og var meðlimur í Oddfellow-stúkunni nr. 11, Þorgeiri. Útför Lárusar fer fram frá Bú- staðakirkju á morgun, mánudag- inn 18. febrúar, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Pabbi var mín stærsta hetja þegar ég var lítill. Hann var fyrsti vélstjóri hjá Hafskipum, þéttur á velli, bursta- klipptur og eini pabbinn, sem ég vissi um, sem var með tattú; það var mynd af skútu og nafni mömmu. Pabbi var á sjó þegar við bræður vorum að vaxa úr grasi svo að uppeld- ið lenti mest á mömmu. En þegar pabbi kom í land þá voru jólin (og úr því að ég minnist á jólin þá vorum við bræður einu börnin í hverfinu sem fengum útlenskt gott í skóinn og ein- hverra hluta vegna fannst okkur bræðrum það ekkert skrítið). Geymslan heima var oft eins og lítill stórmarkaður á meðan pabbi var í siglingum. Þegar pabbi kom heim héldu þau mamma oft partí. Þá komu vinir í heimsókn og það var gleði fram undir morgun. En þegar við bræður vökn- uðum um morguninn var ekki að sjá að neitt hefði verið um að vera. For- eldrar okkar höfðu þann sið að laga alltaf til í húsinu áður en þau fóru að sofa. Við bræður sigldum allir með pabba og það nokkuð oft. Fyrsta ferð- in var farin á sjöunda ári og síðan þeg- ar við vorum níu ára og svo ellefu og þrettán. Ég var svo til sjós með pabba sem dagmaður í vél sumarið 1974. Þá fannst mér ég vera maður með mönn- um. Ég hafði hugsað mér að vinna næsta vetur en pabbi sagðist gefa mér steríógræjur ef ég drifi mig í 5. bekk í Reykjaskóla í Hrútafirði. Hann hafði sjálfur verið þar á stríðsárunum og átti þaðan góðar minningar. Ég sló til og fékk þessa fínu Toshiba sam- stæðu með öllu. Og ekki var skólinn slæmur, langt í frá. Þar kynntist ég afbragðs fólki, þar á meðal konunni minni þó svo að það tæki okkur rúm tuttugu ár að ná saman. Pabbi var alltaf boðinn og búinn að rétta hjálparhönd og átti það ekki bara við um okkur bræður. Það var gott fyrir svona skussa eins og mig að hafa pabba sem gat leyst öll vanda- mál. Hann hafði gaman af að búa til góð- an mat, var afbragðskokkur og gilti þá einu hvaða matur það var sem hann tók að sér að elda. Hann var svona „smakksjeff“, smakkaði sig áfram, þar sem hann stóð yfir pott- unum, þar til honum fannst rétturinn tilbúinn. Vegna veikinda pabba var engin rjúpnaveisla um síðustu jól. Lalli bróðir útvegaði rjúpur og átti að halda veislu þegar hann kæmi heim. En úr því varð ekki. Fljótlega mun- um við bræður setjast niður og rífa í okkur rjúpurnar. Sósumeistarann vantar en við munum gera okkar besta. Pabbi hafði alla tíð gríðarlegan áhuga á fótbolta og var Framari alla ævi þó svo að hann væri fæddur í Vesturbænum. Arsenal var hans lið í ensku deildinni. Pabba tókst að smita báða bræður mína af þessu fótbolta- klikki en ekki mig. Mínum knatt- spyrnuferli lauk í 5. flokki. En kvik- myndaáhuga áttum við feðgar sameiginlegan og fórum oft saman í bíó. Pabbi var yndislegur afi og var börnum okkar bræðra afar góður. Dóttir mín hefur alltaf haft mikið gaman af að fá að sofa hjá afa og ömmu því að þar var þjónustan í lagi, farið í bakarí og á skyndibitastaði og annað í þeim dúr. Ég trúi því að pabbi hafi verið að bæta sér það upp að hafa verið svona mikið fjarri okkur bræðr- um á meðan við vorum að alast upp. Þegar pabbi lagðist inn á Borgar- spítalann 2. október s.l. grunaði ekk- ert okkar í fjölskyldunni að hann kæmi ekki heim aftur. En hann reyndist fársjúkur og óvíst með bata- horfur. Næstu tvo mánuði var pabba haldið sofandi á gjörgæslu þar sem hann naut frábærrar umönnunar yndislegs fólks. Hann var loks vakinn um miðjan desember. Hann var fljótur að ná sér andlega en hægar gekk að koma skrokknum í lag. Vel horfði með bata allt fram í janúarbyrjun en þá varð ljóst að hverju stefndi. Eftir skamma dvöl á sjöundu hæð Borgarspítalans var pabbi fluttur á Grensás þar sem hann var settur í endurhæfingu. Hann gat gengið með aðstoð göngugrindar en ekki lengi í einu. Þróttinn vantaði þó gamli keppnisandinn úr boltanum væri til staðar. Allan þennan tíma heyrði ég hann aldrei kvarta eða bera sig illa. En 8. febrúar var svo af pabba dregið að hann var fluttur á líknar- deild Landakots þar sem hann lést um hádegisbil laugardaginn 9. febr- úar, á vetrardegi sem var yndislega bjartur og fallegur eins og minningar mínar um pabba. Eftir að hafa fylgst með þessu stríði pabba áttaði ég mig á því að pabbi minn var og er ennþá stærsta og mesta hetja mín. Ég vil að lokum þakka öllum þeim er komu að umönnun pabba í erfiðum veikindum hans. Megi Guð vera með ykkur öllum. Halldór. Elskulegur pabbi minn og kær vin- ur er látinn. Pabbi var alltaf til taks fyrir mig og studdi mig í öllu. Við nafnarnir höfum átt samleið í hinum ýmsu félögum, t.d. báðir miklir Framarar og Oddfellowar. Pabbi var gífurlegur Framari og lék með Fram og gekk undir nafninu „Lalli pot“ og var hann stoltur af þeirri nafngift. Í einu félagi vorum við þó bara tveir, en það var félagsskapurinn „tveir Lall- ar“. Í hvert skipti sem pabbi kom í land fórum við á flakk, niður í skip, oft út í Sæbjörgu að ná í nýja ýsu, á skrif- stofuna hjá Hafskip og alltaf var kom- ið við í Lúllabúð og fengið sér Malt og Prins Polo. Pabbi var góður pabbi og ótrúlegur fjölskyldumaður. Hann tók okkur strákana oft með sér í siglingar en það var ekki algengt á þessum árum. Það var pabba mikið áfall þegar Hafskip var dæmt á hausinn á ein- hvern óskiljanlegan hátt. Hjá Hafskip eignaðist hann marga af sínum bestu vinum, ótrúlegum ævifélögum sem hafa alltaf haldið sambandi og látið vita af sér síðustu daga. Hann var þó heppinn að komast að hjá Eimskip í Sundahöfn og á rafmagnsverkstæð- inu þar eignaðist hann góða félaga sem honum þótti vænt um. Sem afi var hann stórkostlegur og skipti þá ekki hvaða barnabarn um var að ræða. Sérstakt var þó samband hans og Sigga, bróðursonar míns, en þeir voru eins og samlokur síðustu ár- in enda hafði pabba ásamt Þórði bróð- ur tekist að innræta honum trúna á Arsenal, þótt ég sem „United-maður“ gefi ekki mikið fyrir þá trú. Takk fyrir mig og mína. Þinn sonur, Lárus. Ástkæri afi minn og vinur. Allt frá því að ég var pínulítill hefur þú verið einn af mínum bestu vinum og ég naut góðs af því að vera þinn eini sonarson- ur. Alla tíð höfum við verið mjög góðir vinir og aldrei hefur skugga borið á þá vináttu. Alltaf þegar ég mun minnast þín á ég eftir að hugsa til þess þegar LÁRUS HALLBJÖRNSSON                                     !     "     #    ! "# $#  "#  %&'$$%" () *"! #   ) %&'$# +"   ( % $$%" ,  -! %&'$# " . "$ " / " /"!% !/ " / " / "  &  ! %"  0 , 1            !             "# $" %"&"#''(# #)%*" +'',$%" " '%"&"#''(# " )(""#'#- Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson útfararstjóri Traust persónuleg alhliða útfararþjónusta. Áratuga reynsla. Símar 567 9110 & 893 8638 utfarir.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.