Morgunblaðið - 17.02.2002, Side 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 39
! "
#$!%!
&&
#$!%!
'"() * +
!"
!
#$% &" % '(
) $ '(
% #$ *
+ * , - + '(
%
*'( *+# %+
% . *+- $ +"+
*
$ *+% /( *
*+ 0'% $ "
!"#
!
"
! " #
" $
% &
$
$
$%
$ $" &$'$"%()$
*+,-
$ ()$ $,$# *+,%+(
$ ()$
. $ /01$'
$ (+$ 2
3)()$
'
1 $ 14$
! "#
! "
# $" %
& ! "
' ! "
& #! ($"
)*+ ! "
,-
,- $"
$" .+/0( & ! "
1( ' ! "
&
+($"
)0+ ! " ! '- $"
**1$***1
! "
!"#$%&&
!"'## (!" ) #$%&&
) '## *#&+ $%&&
%(' ,'#$%&&
-+##
!"'## % * $%&&
!" '#$%&&
##
.'#$%&&
)$ / #&##
%&0($ '#$%&& -
( ##
1!"(#($
við fórum á bakvaktir saman, en það
var eitt það skemmtilegasta sem við
gerðum á þeim tíma. Þegar við fórum
á Gamla Brún niður í Sundahöfn og
settum vatn á lyftarana.
Seint gleymast þeir laugardagarn-
ir sem við fórum í klippingu saman,
alltaf á sömu gömlu góðu rakarastof-
una í Vesturbænum og svo má auðvita
ekki gleyma að bland í poka fyrir 100
kall varð að fylgja með á eftir.
Það verður alltaf ofarlega í minn-
ingunni þegar ég gisti hjá ykkur
ömmu, þá sátum við lengi að tafli og
var verst hvað þú varðst fúll þegar ég
náði heimaskítsmáti. Okkur leiddist
ekki þegar ég, þú og pabbi horfðum á
Arsenal vinna og stundum tapa leikj-
um. Þessir dagar ásamt öðrum góð-
um dögum með þér voru þeir ánægju-
legustu í lífi mínu.
Afi, þú varst mér góður vinur og við
gátum sagt hvor öðrum allt, t.d. þegar
þú byrjaðir aftur að reykja þá var ég
fyrstur til að vita það.
Þegar ég var orðinn nógu gamall til
að læra á bíl og fékk æfingarleyfi
varst það þú sem varst fyrstur til að
leyfa mér að keyra og hlakkaðir þú
jafnvel meira til en ég. Því þú baðst
mig sérstaklega um að spyrja öku-
kennarann hvort það væri eitthvert
mál að þú fengir að leiðbeina mér. Að
sjálfsögðu var það ekkert mál. Það er
verst að við getum ekki farið á rúnt-
inn saman í eiginlegri merkingu en ég
veit að þú átt auðvitað ávallt eftir að
fylgja mér.
Það er mér dýrmætt vegarnesti að
eiga allar góðu minningarnar um þig.
Ég mun ávallt hugsa til þín.
Þinn
Sigurður Sveinn.
Elsku afi minn. Að hugsa til þess að
þú sért ekki hér hjá okkur lengur,
nema í hjartanu, er erfitt. En minn-
ingarnar eru margar og þær ylja um
hjartarætur og eiga eftir að gera það
svo lengi sem við lifum.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Guð geymi þig, elsku afi minn.
Þín
Guðleif Edda.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sig.)
Elsku bróðir. Nú ert þú búinn að
kveðja, þú sem varst svo ákveðinn í að
komast yfir þessi veikindi. Útlitið var
gott þegar áfallið kom aðfaranótt
föstudags og um hádegi á laugardag
var allt búið. Það er svo erfitt að sætta
sig við þetta en enginn ræður við al-
mættið. Minningar hlaðast upp. Lítill
drengur sem ég þóttist vera að passa,
þú varst jú litli bróðir minn og ég að-
eins þremur árum eldri. Ungur
drengur, í fótbolta öllum stundum á
gamla Melavellinum og síðar mikill
Framari sem spilaði í meistaraflokki
um árabil. Unglingur í Reykjaskóla í
Hrútafirði sem ég sendi pakka. Síðar
að læra rennismíði í Héðni, ungur
maður sem fann ástina sína hana
Hebbu og saman byrjuðu þau brauð-
stritið. Hann í Vélskólanum en hún að
vinna úti. Þau eignast þrjá drengi og
síðan komu tengdabörn og barna-
börn. Þið voruð hamingjusöm hjón
með stóra fjölskyldu. Svo komstu al-
kominn í land, elsku bróðir, eftir
langa útiveru og þú varst svo ham-
ingjusamur.
Ég á eftir að sakna þín og ég mun
minnast allra yndislegu stundanna,
gamlárskvöldanna góðu og matarboð-
anna hjá þér og þinni fjölskyldu. Þú
hafðir svo gaman af að bjóða fólki í
veislur og auðvitað stóð Hebba þér
við hlið, þið gerðuð einfaldlega allt
saman.
Elsku Hebba, synir, tengdadætur
og afabörn. Ykkar missir er mikill,
góður drengur er búinn að kveðja en
minning hans mun lifa. Guð blessi
ykkur öll.
Guðlaug systir.
Þá er komið að kveðjustund. Fall-
inn er frá Lárus mágur minn og vin-
ur. Þegar kallið kom, kom það snöggt.
Lalli eins og hann var alltaf kallaður
af vinum sínum var fljótur að gera það
sem hann var beðinn um og var um-
talað hvað hann var snöggur að skora
mörkin fyrir Fram í knattspyrnunni.
Kynni okkar hófust þegar hann fór að
vera með Hebbu systur.
Eftir giftingu hófu þau búskap í
Bergstaðastræti 71, í húsi foreldra
okkar. Sem unglingur naut ég góðs af
að vera í návíst þeirra. Lalli var góður
kokkur og kynntist ég þar mikilli
matarmenningu. Lalli sagði oft hlæj-
andi að hann hefði bjargað mér frá
stjórnsemi systra minna. Er ég sjálf-
ur kvæntist og byrjaði að búa í Berg-
staðastrætinu áttu Hebba og Lalli
strákana sína þrjá, Þórð Georg, Hall-
dór og Lárus Hrafn. Var mikill sam-
gangur á milli heimilanna og fór svo
að fjölskyldurnar ákváðu að nema
land fyrir austan læk.
Árið 1967 hófum við að byggja
saman raðhús í Hellulandi í Fossvogi
og nutum við og börnin okkar Lillýjar
góðs af nálægð þeirra, og oft kom það
fyrir að Tóti og Dísa settust til borðs
eins og þau væru hluti af fjölskyld-
unni og enn í dag tala þau um fransk-
brauðið og spægipylsurnar hjá Lalla.
Það má segja að fjölskyldan í Hellu-
landi 1 og 5 hafi verið eins og ein stór
fjölskylda.
Á þessari stundu streyma fram
minningabrotin, þær stundir sem við
höfum átt saman svo margar að það
yrði að skrifa bók um allt sem við höf-
um brallað. Ég veit að þér fannst gott
að vita af okkur í næsta húsi til að líta
eftir Hebbu og drengjunum þínum
þau ár sem þú varst á sjónum. Aldrei
þessi 50 ár hefur okkur orðið sundur-
orða, þó helst þegar Fram og Víking-
ur voru að keppa að við vorum ekki al-
veg sammála. Það varð mikill
söknuður þegar þið fluttuð héðan úr
Helló en eftir standa minningarnar
sem oft eru rifjaðar upp hjá okkur.
Elsku Hebba systir, synir og fjöl-
skyldur ykkar, við fjölskyldan í Hellu-
landi 5 viljum þakka allar samveru-
stundirnar í gegnum árin.
Minningarnar lifa
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Hjörleifur Þórðarson.
Fleiri minningargreinar um Lár-
us Hallbjörnsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892
www.utfararstofa.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður, í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284