Morgunblaðið - 17.02.2002, Side 40

Morgunblaðið - 17.02.2002, Side 40
MINNINGAR 40 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ingólfur Krist-inn Eyjólfsson fæddist á Buðlungu í Grindavíkursókn 24. júlí 1915. Hann lést á Hjartadeild Land- spítalans við Hring- braut 11. febrúar síð- stliðinn. Foreldrar hans voru Eyjólfur Jónsson útvegsbóndi á Buðlungu í Grinda- vík, f. 8. júlí 1866, d. 13. október 1932, og Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 25. júní 1874, d. 2. maí 1962. Ingólfur var yngstur fimm systk- ina sem voru, auk hans, Albert, Jón, Guðbjörg og Margrét. Ingólf- ur kvæntist Fjólu Benediktsdóttur f. 17. janúar 1921, þau slitu sam- vistir, dóttir þeirra er Ingibjörg E., f. 26. nóvember 1940, gift Pétri Þórarinssyni. Ingólfur hóf sam- búð 1955 með Ingigerði Guðjóns- dóttur, f. 9. apríl 1923, d. 24. ágúst 1986. Fóstursynir Ingólfs eru Karl I. Karlsson, f. 25. október 1942, kona hans er Kristrún Sam- úelsdóttir, f. 7. apríl 1944, Sigurður Karlsson, f. 19. jan- úar 1945, kona hans er Hjördís Ólafsdótt- ir, f. 5. júní 1949, og Rúnar Karlsson, f. 1. maí 1953, kona hans er Ingibjörg Þór- hallsdóttir, f. 13. febrúar 1953. Ingólfur sleit barnsskónum í Grindavík, en fluttist eftir vélstjóranám til Keflavíkur og var á sjó í nokkur ár, síðar vélstjóri í Hraðfrystihúsi Kefla- víkur og síðan verkstjóri hjá Ís- lenskum aðalverktökum á Kefla- víkurflugvelli. Hann var ráðsmaður við húsmæðraskólann á Staðafelli í Dölum 1962-1975 og fluttist þá til Keflavíkur og vann hjá Keflavíkurbæ þar til hann hætti störfum 71 árs gamall. Útför Ingólfs fer fram frá Keflavíkurkirkju á morgun, mánudaginn 18. febrúar, og hefst athöfnin klukkan 14. Hann afi minn er dáinn. Einhvern veginn sá maður þetta ekki gerast í náinni framtíð, hann var alltaf svo heilsugóður. Samt, þegar ég hugsa um það eftir á, þá var það andlega hliðin sem var við svona góða heilsu og var hann alltaf með eindæmum jákvæður og bjartsýnn. Það gerði það kannski að verkum að maður gleymdi því hvaða líkamlegu erfið- leika hann hafði þurft að berjast við undanfarin ár. En í staðinn fyrir að vera sorg- mæddur langar mig að rifja nokkrar af þeim fjölmörgu góðu stundum sem við afi áttum saman. Ég gerði mér kannski ekki grein fyrir því, en hann afi minn hefur kennt mér mjög margt í gegnum tíðina, og hef ég verið einstaklega lánsamur að hafa eytt mörgum stundum með honum og fengið að þekkja hann vel. Á mínum yngri árum í Keflavík var afi minn besti vinur. Ég fór nær daglega heim til afa og ömmu eftir skóla og spilaði við ömmu eða fór í bíltúr með afa víðsvegar um Suð- urnesin. Ég fór oft í „helgarferð“ til afa og ömmu, gisti þar og eyddi helginni með þeim, þó ég ætti heima í sama bæjarfélagi. Ég var svo mikið hjá þeim að ég átti orðið marga vini sem bjuggu í sömu götu og þau. Afi flutti í minna húsnæði eftir að amma dó, og nokkrum árum seinna flutt- um við til Reykjavíkur. Ég hélt hins- vegar áfram að heimsækja afa um helgar og gisti hjá honum. Um helg- ar gerðum við síðan margt saman. Við fórum oft út á bryggju að veiða, fórum ýmist til Grindavíkur, út í Hafnir eða út á bryggju í Keflavík. Það var síðan venjan að skreppa á pulsuvagninn í Keflavík eftir að hafa sleppt þeim fáu fiskum sem við veiddum. Það var þá sem ég vandi mig á að fá mér eina með öllu „og mikið sinnep“, alveg eins og afi. Það var fleira sem við afi gerðum saman. Þau voru nokkur skiptin sem við fór- um út i Grindavík á skytterí á Buðl- ungu, gamla bóndabænum þar sem hann fæddist og ólst upp. Það var einnig þar sem ég fékk að keyra bíl í fyrsta skipti. Ég er feginn að afi fékk að hitta barnabarnið sitt, hann Sebastian Frey, þó að þau kynni hafi ekki ver- ið löng og Sebastian hafi ekki áttað sig á hversu mikilvægur langafi var fyrir pabba hans. En ég vona að son- ur minn og pabbi minn verði jafn miklir félagar og ég og afi vorum, því þetta eru afar dýrmæt kynni. Það eina sem ég sé eftir nú þegar ég á ekki eftir að hitta afa aftur er að ef til vill var ég ekki nógu dugleg- ur að segja honum hvað mér þætti vænt um hann og að þakka honum fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman, því geri ég það nú. Þinn Kári. INGÓLFUR KRISTINN EYJÓLFSSON ✝ Rune VernerSigurðsson vél- stjóri fæddist í Vir- um í Danmörku 27. apríl 1961. Hann fórst með Ófeigi VE hinn 5. desember síðastliðinn. For- eldrar hans eru Sol- vejg Bisballey, f. 26.3. 1941, og Sig- urður Karlsson, f. 9.3. 1931. Systur hans eru Linda Laufey, f. 23.8. 1954, Minný Ber- nódía, f. 2.5. 1963, d. 11.1. 1966, Halla María, f. 20. 3. 1965. Eftirlifandi eigin- kona Rune er Theo- dóra Einarsdóttir, f. 2.9. 1961. Börn þeirra eru: Sigrún Ósk, f. 7.10. 1996, látin sama dag, Sig- urberg Óskar, f. 21. 10. 1999. Fyrir átti Rune dótturina Tönju Rut, f. 16. 1. 1986. Útför Rune fer fram frá Áskirkju á morgun, mánudag- inn 18. febrúar, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Það er undarleg staða að sitja einn inni í stofu seint á sunnudagskvöldi þegar allir eru að fara að sofa og skrifa minningargrein um mann sem var fullur af lífskrafti, hugmyndum og draumum og var duglegur að láta hlutina verða að veruleika, mann sem hvarf af sjónarsviðinu án nokk- urs fyrirvara. Að morgni 5. desember síðastlið- inn hringdi faðir minn í mig og sagði að báturinn sem Rúni væri á, Ófeigur VE, hefði farist um nóttina og Rúna væri saknað. Óteljandi hugsanir komu í kollinn: Af hverju hann? Hvað kom fyrir? Hans var mikið leit- að og biðin var erfið, okkur dreymdi um að fá hann til okkar og við lifðum í voninni. Nú í byrjun febrúar fáum við þær fréttir að Rúni sé fundinn, það er eins og hann hafi verið að koma heim eftir langa fjarveru. Nú þegar hann verður lagður í hinstu hvílu langar mig að minnast mágs míns. Það var í Ólafsvík að Rúni kom með trillu sína „Kalla á Litla landi“ og reri þaðan. Hann kynntist þar systur minni Theodóru S. Einars- dóttur. Það var strax greinilegt að þarna var kraftmikill drengur á ferð, hann var eldklár í öllu sem við kom vélum og bílum, hann var fljótur að finna bilanir í vélum og það var hrein unun að horfa á vélarnar í bílunum hans, þær glönsuðu alltaf eins og þær væru glænýjar. Það var hans sérgrein að finna fallega og vel með farna bíla, stundum varð maður yfir sig hissa hvað hann fann. Ég velti því oft fyrir mér hvað hann var handlag- inn, hvort sem um var að ræða járn eða timbur, það virtist ekkert vefjast fyrir honum. Heimili þeirra hjóna hefur alltaf verið hlýtt og fallegt og handbrögðin hans voru alls staðar og gaman að skoða og til að mynda nú síðast svalirnar á húsi þeirra í Vest- mannaeyjum, mjög falleg smíð. Allir sem þekkja Rúna vita að þar var meistarakokkur á ferð, hann var alltaf yfirkokkur á jólasteikinni í Stekkjarholtinu hjá mömmu og pabba, við gátum alltaf treyst á hann þegar matur var annars vegar. Þeg- ar hann var að elda var eins og full- lærður kokkur væri á ferð. Það er margs að minnast um Rúna, hann var hjálpsamur og ég gat alltaf leitað til hans þegar mig vant- aði aðstoð við bílinn eða eitthvað ann- að, við áttum margar góðar stundir saman að pæla í hinu og þessu. Nú hugsa ég með sjálfum mér: Af hverju var hann tekinn frá okkur? Svona kraftmikill maður, sem var í blóma lífsins. Það huggar mig þó að nú er hann kominn til litlu dóttur þeirra, hennar Sigrúnar Óskar, þau eru hérna einhvers staðar með okkur og þau fylgjast með og vernda saman Dóru, Sigurberg og Tönju. Þegar við Rúni höfðum spjallað saman í síma kvaddi hann mig alltaf eins: „Ókey, Maggi minn, við sjáumst.“ Þess vegna vil ég kveðja Rúna með þessum sömu orðum og vona að Guð geymi hann vel: Ókey, Rúni minn við sjáumst.“ Elsku Dóra, Sigurberg, Tanja og aðrir aðstandendur, Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Magnús Einarsson og fjölskylda. Þetta getur ekki verið. Það hugs- aði ég þegar ég frétti að Rúni væri týndur. Þótt að kynni okkar hafi ver- ið stutt hitti ég hann oft þegar ég var lítil og man sérstaklega eftir því þeg- ar ég kom einu sinni með pabba til hans á Kirkjuveginn. Á þjóðhátíðinni 2000 hittumst við svo aftur eftir langan tíma. Það var svo gaman að hitta hann og Dóru. Ýmislegt sem Rúni sagði við mig þá geymi ég í hjarta mínu. Síðastliðið sumar kom ég oft inn í þjóðhátíðar- tjaldið hjá honum og Dóru og við skemmtum okkur hreint konung- lega. Ég bjóst samt ekki við því að það væri í síðasta sinn sem að ég myndi hitta hann. Ég veit að pabbi, amma og fleiri hafa tekið á móti honum. Elsku Dóra, Tanja, Sigurberg, Siggi, Solveig og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Arna Huld Sigurðardóttir. RUNE VERNER SIGURÐSSON                                                !"#$ #  "% %&%% !"#$ ' ((# #& )& "% #& *% !"#$ "% #&  + , - ' ((# #  !"#$ "% ).   /' % %'# 0 %  1 %   2 )&# +#&#  # !   % )% "&  # 3                                    !"             "  "      #$ " $ %&& &$ '"  $ %%(    )   && *+    $ %%(   , + & -  .  . ( .  .  . "                                             !   #    $"% &! "     !"  # $$ % &'     #  ( )( (  )(  & '( $$*                                                  !" #  $  %&' "    (')"#" #('*(                             !"      #$  % & '$  ($) * +%)"                                         !

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.