Morgunblaðið - 17.02.2002, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 51
DAGBÓK
Meðvirkni
Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjáskipti
og tilfinningar verður haldið föstudagskvöldið
1. mars og laugardaginn 2. mars
í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafiNánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Þorra tilboð
Garðar Ólafsson
úrsmiður - Lækjartorgi
Sími 551 0081
Úr: Omega, Gucci,
Raymond Weil, Seiko,
Tissot, Pierpont o.fl.
Klukkur: Gólfklukkur,
veggklukkur,
vekjaraklukkur o.fl.
Skartgripir:
Demantshringar, gull-
lokkar, gullhálsfestar,
gullmen, gullkrossar,
gullarmönd o.fl.
20%
afsláttur
af öllum
vörum
Handverksfólk - Listamenn
Okkur bráðvantar íslenskar vörur
Keramik - tré - stein,
lopapeysur og smávöru úr ull
Upplýsingar í
verslun okkar Islandia Kringlunni,sími 568 9960
80 ÁRA afmæli. Átt-ræður verður á
morgun, mánudaginn 18.
febrúar, Stefán Bendikts-
son, Sjávargrund 4a,
Garðabæ.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert tilgerðarlaus, um-
hyggjusamur og hvetjandi.
Framtakssemi þín og metn-
aður munu skila þér árangri.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Einhver þér eldri vill gefa þér
góð ráð varðandi fjármálin.
Gleymdu því ekki að fólk er
sjaldnast sammála um það
hvernig verja eigi peningum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Fréttir sem tengjast ferðalög-
um eða öðrum löndum valda
þér vonbrigðum. Láttu ekki
vonbrigðin ná tökum á þér.
Enn er ekki öll von úti.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er útlit fyrir að áætlunum
þínum verði frestað eða aflýst.
Taktu það ekki of alvarlega.
Áætlanir þínar verða að öllum
líkindum að veruleika.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Náinn vinur gæti fundið til af-
brýðisemi vegna tilfinninga
þinna til einhvers annars. Þú
getur ekki borið ábyrgð á því
hvað vini þínum finnst um líð-
an þína.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert fæddur leiðtogi og því
mislíkar þér þegar aðrir
reyna að segja þér fyrir verk-
um. Ef þú lítur í eigin barm
sérðu að það er í raun stolt
þitt sem veldur óánægju
þinni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú færð tækifæri til að kenna
ungmennum eitthvað mikil-
vægt um framandi lönd og
ólíka menningu. Reyndu að
gera sem mest úr þessu tæki-
færi og dýpka þannig skilning
þeirra á lífinu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Viðbrögð ættingja þinna við
einhverju tengdu fjármálum
valda þér vonbrigðum. Veltu
því fyrir þér hvort vonir þínar
hafi verið raunsæjar eða hvort
þú hafir ætlast til of mikils.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Smávægilegar deilur við ást-
vin þinn ergja þig í dag. Þú
rekst á skeytingarleysi þar
sem þú átt von á samvinnu og
samþykki. Láttu kyrrt liggja.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú gætir orðið fyrir vonbrigð-
um með tekjur þínar í dag.
Þetta eru tímabundin von-
brigði. Framtíð þín er björt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú gætir orðið fyrir vonbrigð-
um í ástarmálum en sannleik-
urinn er sá að allir þjást af
svolítilli svartsýni eins og
stendur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Bíddu fram í næstu viku með
að ræða mikilvæga hluti við
maka þinn eða ættinga. Þá er
líklegra að fólk taki vel í hlut-
ina.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Taktu það ekki nærri þér þótt
vinur þinn sé þegjandalegur í
dag. Hann þarf á samúð og
skilningi að halda en ekki
gagnrýni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. d4 e6 2. c4 b6 3. e4 Bb7 4.
Bd3 f5 5. exf5 Bb4+ 6. Kf1
Rf6 7. Be2 0-0 8. c5 bxc5 9.
a3 Ba5 10. dxc5 Rd5 11. Rf3
Df6 12. fxe6 Ra6 13. Dc2
Hae8 14. exd7
Svartur á leik
170202
Staðan kom upp í lokuðu
móti í Ljublana sem lauk
fyrir skömmu. Sigurvegar-
inn, Alexander Beljavsky
(2.649) hafði svart, gegn
Igor Jelen (2.374). Svartur
fórnaði þrem peðum fyrir
hraða liðskipan og sá sig til-
neyddan til að fórna enn
meiri mannskap til að halda
sókninni gangandi. 14...
Hxe2 15. Kxe2 De6+ 16.
Be3? Áhugavert hefði verið
að vita hvernig svartur
hugðist svara 16. Kf1 þar
sem þá er allt á huldu hvort
svarta sóknin hitti í mark. Í
framhaldinu stendur ekki
steinn yfir steini hjá hvítum.
16... Rf4+ 17. Kd1 Be4 18.
Da4 Rxc5 19. Db5 Bd3 og
hvítur gafst upp. Lokastaða
mótsins varð þessi: 1. Alx-
endar Beljavsky (2.649) 9
vinninga af 11 mögulegum.
2.-3. Andrey Kharlov (2638)
og Dusko Pavasovic (2.547)
7 ½ v. 4.-5. Liviu-Dieter
Nisipeanu (2.608) og Marko
Tratar (2.424) 7 v. 6. Evgeny
Sveshnikov (2.565) 6 ½ v.
7.-8. Andrey Volokitin
(2.586) og Ivan Farago
(2.500) 5½ v. 9. Primoz Soln
4 ½ v. 10.-11. Bogdan Pod-
lesnik (2394) og Igor Jelen
(2.374) 3 v. 12. Danilo Polaj-
zer (2.421) 0 v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
LJÓÐABROT
UM HRAFNAGANGINN
Breiða sig borginmóðar
bláfjallaðir um allar
grundir, nes og granda,
grúfa sig ofan í þúfur,
grafa með gildu nefi
gormar þessir smá-orma,
í sekk þann niður þeim sökkva,
sjaldan fyllist eða aldrei.
Stefán Ólafsson
Árnað heilla
ÞAÐ eru rúm 50 ár síðan
Eddie Kantar var blindur í
þessu spili…
Suður gefur; enginn á
hættu:
Norður
♠ G1074
♥ 854
♦ 763
♣1084
Suður
♠ ÁK
♥ ÁKG763
♦ 104
♣KD2
… en makker hans í
suðursætinu var spilari að
nafni Julien P. Philippy.
Hann meldaði hressilega:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
Pass Pass 1 spaði 4 hjörtu !
Pass Pass Pass
Philippy lagði ekki fyrir
sig bridsíþróttina í sama
mæli og Kantar, en þetta
spil hans lifir – ekki þó
sagngleði hans, heldur úr-
spilstæknin. Vestur kom
út með spaðaáttu sem
Philippy átti heima og tók
ÁK í trompi. Þegar hjört-
un komu 2-2 fæddist fótur.
Hvernig myndi lesandinn
halda áfram?
Laufásinn er sennilega í
austur, en hins vegar er
aðeins ein innkoma í borð
til að spila að hjónunum.
Philippy fann ráð við því.
Hann tók annan spaðaslag
og spilaði sér síðan út á
tígli.
Allt spilið var þannig:
Norður
♠ G1074
♥ 854
♦ 763
♣1084
Vestur Austur
♠ 82 ♠ D9653
♥ D9 ♥ 102
♦ KG985 ♦ ÁD2
♣9653 ♣ÁG7
Suður
♠ ÁK
♥ ÁKG763
♦ 104
♣KD2
Vörnin má ekki hreyfa
við svörtu litunum og AV
vörðust vel með því að
taka tvo slagi á tígul og
spila þeim þriðja. Philippy
trompaði og spilaði lauf-
kóng. Ef austur drepur,
þarf hann að spila spaða
frá drottningunni eða laufi
frá gosanum. Og ef hann
dúkkar, fer sagnhafi inn í
borð á hjartaáttu og spilar
laufi að drottningunni.
Falleg flétta.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Mynd/Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 29. desember sl. í
Grindavíkurkirkju af sr.
Erni Bárði Jónssyni Guðný
Hlíðkvist Bjarnadóttir og
Sveinbjörn Ágúst Sigurðs-
son. Heimili þeirra er í Óð-
insvé í Danmörku.
70 ÁRA afmæli. Sjötug-ur er í dag, sunnu-
daginn 17. febrúar, Guð-
mundur G. Jónsson, fv.
stöðvarstjóri Flugleiða á
Kastrup-flugvelli, til heim-
ilis á Holtsgötu 31, Njarð-
vík. Eiginkona hans er Þóra
Ingibjörg Jónsdóttir. Þau
verða að heiman í dag.
Ég setti chili í kjöt-
bollurnar, hvernig
finnst þér það?