Morgunblaðið - 17.02.2002, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
f
í
t
o
n
/
s
í
a
www.bi.is
Þú fellur
aldrei á tíma
í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans
ÓVENJU mikið er nú um ýmsar
svæsnar kvefvíruspestir að sögn
Böðvars Arnar Sigurjónssonar
heilsugæslulæknis sem verið hefur á
vakt hjá Læknavaktinni sem sinnir
höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur inflú-
ensa haldið innreið sína og leggst
ekki síst á yngstu börnin. Undir
þetta taka læknar á heilsugæslu-
stöðvunum í Árbæ og Breiðholts-
hverfum en þeir telja að inflúensan
hafi ekki enn náð hámarki.
Böðvar Örn segir að um 140
manns hafi komið á Læknavaktina
eitt kvöldið í vikunni, þ.e. á tíma-
bilinu 17 til miðnættis, og séu það
tvöfalt fleiri sjúklingar en venjulega.
Einnig segir hann mikið um vitjanir
og hafi læknar sinnt þeim á tveimur
bílum en venjulega nægi einn bíll.
Telur hann aukninguna einkum stafa
af inflúensutilfellunum. Böðvar Örn
segir mikið af umferðarpestum herja
í bili og sérstaklega hafi orðið vart
aukningar á streptókokkasýkingum
og hálsbólgu af völdum þeirra.
Haraldur Tómasson, heilsugæslu-
læknir í Árbæjarhverfi, segir inflú-
ensu helst hafa lagst á börn upp að
þriggja–fjögurra ára aldri. Þau geti
haft hita í 5–6 daga og segir hann
helsta ráðið að sjá um að þau drekki
nóg. Hætti þau að drekka, lyfti ekki
höfði og verði sljó sé rétt að kalla til
lækni.
Inflúensa
ekki í há-
marki enn
HEYRNARLAUSIR geta nú sent
SMS-skilaboð til Neyðarlínunnar
þurfi þeir á neyðaraðstoð að halda.
Ekki er hægt að senda SMS-skila-
boð í símanúmerið 112 heldur tekur
farsími við skilaboðunum.
Fram til þessa hafa heyrnarlausir
getað hringt í Neyðarlínuna með
svonefndum textasíma sem er í
rauninni forrit fyrir heimilistölvur.
Þegar heyrnarlausir hafa brugðið
sér af bæ hafa þeir ekki haft neitt
tæki til að óska aðstoðar frá lögreglu
eða slökkviliði.
Hafdís Gísladóttir, framkvæmda-
stjóri Félags heyrnarlausra, segir að
GSM-númerið verði kynnt fyrir fé-
lagsmönnum á næstunni. Í skilaboð-
unum þarf að koma fram hvers eðlis
slysið er, hve margir eru slasaðir,
hvaða aðstoð þarf að berast o.s.frv.
Hafdís segir að GSM-símar séu
helsta öryggistæki sem heyrnarlaus-
ir eigi völ á, jafnvel þó að dreifikerfi
þeirra nái ekki út um allt land. Þá
vilji heyrnarlausir ekki síður veita
fólki í neyð aðstoð sína t.d. með því
að láta vita af slysi. Enn eigi þó eftir
að reyna á hvort GSM-símar verði
viðurkenndir sem almenn hjálpar-
tæki fyrir heyrnarlausa en lögum
samkvæmt eigi Heyrnar- og tal-
meinastöð að greiða niður slík tæki.
„Að okkar mati er þetta mjög einfalt
mál. GSM-símar eru ekkert annað
en hjálpartæki því ekki geta heyrn-
arlausir notað venjulegan síma.“
Viðvaranir með SMS
Neyðarnúmer heyrnarlausra
komst í gagnið í vikunni en Hafdís
vill einnig að Almannavarnir ríkisins
noti SMS-skilaboð til að koma upp-
lýsingum til heyrnarlausra. Ef vara
þarf við fárviðri, jarðskjálftum, eld-
gosum eða öðrum hamförum verði
hægt að koma stuttum, hnitmiðuðum
skilaboðum til heyrnarlausra.
Heyrnarlausir geta sent
neyðarkall með SMS
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir að þegar hann tók við
embætti samgönguráðherra hafi
verið búið að ganga frá því að Þór-
arinn V. Þórarinsson yrði ráðinn for-
stjóri Landssímans. Halldór Blön-
dal, fyrrverandi samgönguráðherra,
hafi verið búinn að gefa fyrirheit um
ráðninguna. Sturla segir að sitt verk-
efni hafi verið að efna þetta sam-
komulag. Hann segist hafa fallist á
kröfur Þórarins um fimm ára ráðn-
ingarsamning en hafnað upphafleg-
um launakröfum hans, sem hafi verið
mjög háar.
„Aðdragandi málsins er sá að þeg-
ar ég tek við embætti samgönguráð-
herra hafði forveri minn, Halldór
Blöndal, gefið Þórarni V. Þórarins-
syni, sem þá var stjórnarformaður
Símans, fyrirheit um að hann tæki
við starfi forstjóra. Verkefni mitt var
þess vegna að efna þetta samkomu-
lag sem þeir höfðu gert,“ segir
Sturla.
Sturla segist hafa fallist á kröfur
Þórarins um fimm ára ráðningu, en
síðan hafi Friðrik Pálsson, stjórnar-
formaður Símans, séð um að ganga
frá ráðningarsamningi. „Hann [Frið-
rik] bar undir mig launakröfur for-
stjórans og þó að það væri ekki mitt
að taka ákvörðun um laun hans gerði
ég stjórnarformanninum grein fyrir
því að ég teldi ekki eðlilegt, miðað við
fimm ára samning, að verða við þeim
launakröfum sem uppi voru. Því varð
niðurstaðan sú, að forstjórinn fékk
samning til fimm ára, en langtum
lægri laun en kröfur hans stóðu til.“
Furðar sig á
ummælum Hreins
Sturla segist furða sig mjög á um-
mælum sem Hreinn Loftsson, for-
maður einkavæðingarnefndar, hefur
viðhaft í fjölmiðlum og segist ekki
skilja hvaða tilgangi þau þjóni.
„Þeir sem þekkja til tillagna
einkavæðingarnefndar og skýrslu
hennar sjá að fullyrðingar hans síð-
ustu daga stangast í veigamiklum at-
riðum á við fyrrnefndar tillögur
nefndarinnar og skýrslu um sölu
Símans. Slík framganga er óforsvar-
anleg, ekki síst af manni sem hefur
gegnt jafnmikilvægum trúnaðar-
störfum fyrir ríkisstjórnina,“ segir
Sturla.
Þá segir Sturla kröfu Steingríms
J. Sigfússonar, formanns Vinstri
grænna, um afsögn sína fráleita.
Sturla Böðvarsson um ráðningu Þórarins V. Þórarinssonar til Landssímans
Ég var að efna fyrirheit
sem Þórarni voru gefin
Krafan um/10–11
DRENGUR á tólfta aldursári ökkla-
brotnaði eftir að hafa orðið fyrir bíl í
Kaupvangsstræti á Akureyri í fyrra-
kvöld. Slysið varð með þeim hætti að
drengurinn hljóp yfir götuna og í veg
fyrir bíl sem kom aðvífandi, að sögn
lögreglunnar á Akureyri. Hann var
fluttur með sjúkrabifreið á slysa-
deild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri. Að sögn læknis þar var
drengurinn ökklabrotinn en lítt
meiddur að öðru leyti.
Akureyri
Drengur
fyrir bíl
SÓLIN gægðist víða fram úr skýj-
um á landinu í gær, enda hækkar
hún á lofti með hverjum deginum
sem líður á þessum veðurmilda
þorra. Sólin varpaði líka skemmti-
legum skuggum á þetta fólk sem
brá sér á gönguför á ísilögðu
Þingvallavatni. Mistrið yfir lands-
laginu í fjarska fær sömuleiðis á
sig þann blæ að myndin gæti verið
tekin við fegurstu vötn um víða
veröld.
Morgunblaðið/Ómar
Sólarganga á
Þingvallavatni