Morgunblaðið - 28.03.2002, Page 4
4 D FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
en líklegt er talið að hann stafi af
uppstreymi heits efnis í möttlinum
sem hugsanlega á upptök við mörk
möttuls og kjarna. Möttullinn er
þykkasta lag jarðar, hann er á
föstu formi en seigfljótandi og
liggur á milli jarðskorpunnar, sem
er 5–70 km. þykk og kjarnans sem
er á 2.900 km dýpi,“ heldur Ingi
áfram.
Í stuttu máli var lagt upp með
það meginmarkmið hjá Ísbráð að
skilgreinalykil hugtök jarðvísinda,
steinhvel og linhvel, sem ekki hafa
áður verið skilgreind fyrir Ísland
með beinum mælingum svo nokkru
nemi. „Steinhvel er stíft efsta lag
jarðarinnar sem myndar jarðplöt-
urnar. Það inniheldur skorpuna og
stífasta hluta möttulsins sem kall-
ast möttullok. Linhvelið er seig-
fljótandi fastefni undir steinhvel-
inu og inniheldur hlutbráð sums
staðar á jörðinni. Það er með öðr-
um orðum kvika innan um fasta
bergið.
Steinhvelsplöturnar fljóta á lin-
hvelinu og færast úr stað með
plötureki. Út á þetta gengur land-
rekskenningin.
Jarðskjálftabylgjur af tegund yf-
irborðsbylgna voru notaðar til að
reikna út S-bylgju hraða jarðar-
innar með góðri loftréttri ná-
kvæmni niður á 100 til 150 km
dýpi eftir landshlutum.“
Óvænt niðurstaða
En hver er niðurstaða þessara
rannsókna?
„Niðurstaða þeirra er nokkuð
óvænt. Í ljós kom að steinplatan er
þykkust undir Austurlandi – rösk-
lega 100 km þykk. Næstþykkust er
platan undir Norðvesturlandi og
Vestfjarðakjálka, um 75 km þykk,
en undir miðju Íslands og norður-
gosbeltinu er steinplatan 65 km
þykk. Undir Vesturlandi og vest-
ur-gosbeltinu er steinplatan 40 km
að þykkt. Mest kemur á óvart hin
mikla þykkt plötunnar undir Aust-
urlandi.
Þessi niðurstaða hefur vakið
ýmsar spurningar og tilgátur. Ein
tilgáta mín er sú að undir Austur-
landi sé í raun „meginlandsflís“ af
Grænlandi af sama toga og er í
Jan Mayen-hryggnum.“
Gæti þetta þýtt að meiri líkindi
séu á að olíu sé að finna á land-
grunni fyrir utan Austurland?
„Sú gæti verið raunin,“ svaraði
Ingi og bendir jafnframt á að
Steinar Guðlaugsson hjá Orku-
stofnun geti svarað meiru um
þetta mál en hann sjálfur.
„Við fáum hins vegar ekki sömu
jarðfræðilegu mynd frá þessum at-
hugunum okkar og við höfum feng-
ið frá öðrum athugunum þar sem
yfirborð og fjöll eru skoðuð. Öll
steinplatan er þykkari undir Ís-
landi en almennt undir úthöfunum
vegna þess að við erum á heitum
reit. En meginlandsplötur eru
þykkari en úthafsplötur. Við
bjuggumst við að platan væri álíka
þykk undir Austfjörðum og Vest-
fjörðum og að munurinn væri
minni á þykkasta og þynnsta hluta
plötunnar, en útkoman reyndist
önnur. Platan undir Austfjörðum
lítur út eins og meginlandsplata í
þessum mælingum,“ segir Ingi.
Tilgáta Amundsens
Á jarðfræðiráðstefnu skömmu
eftir áramót kom Norðmaðurinn
Amundsen fram með þá tilgátu í
tengslum við þessar niðurstöður að
undir Öræfajökli væri „flís“ af
meginlandi, sem væri sömu gerðar
og í Jan Mayen-hryggnum, „flís-
ina“ taldi hann hafa orðið eftir
þegar hryggurinn var að „ákveða
sig“ hvar hann ætti að staðsetja
sig og „stökk“ yfir í Kolbeinseyj-
arhrygginn, og væri „flísin“ því
eins konar framhald af Jan Mayen-
hryggnum. Fólk hefur áður velt
þessu fyrir sér en afskrifað þennan
möguleika út frá niðurstöðum jarð-
efnafræðirannsókna. Norðmaður-
inn var með einn millimetra stóran
kristal (sirkon, sem er ódýr gim-
steinn). Þennan kristal fékk hann
eftir að hafa malað fimmtán kíló af
grjóti. Hann fann fjóra slíka krist-
ala, þrír þeirra virtust ungir en
þennan eina kvað hann vera gaml-
an. Þess vegna taldi hann að þarna
væri um að ræða hundraða millj-
óna ára gamlan kristal ættaðan úr
meginlandsefni eins og er í Jan
Mayen-hryggnum.
Það er gott að menn skuli hafi
kjark til að koma með svona kenn-
ingar þó þær séu byggðar á títu-
prjónshaus af efni. En það er samt
ekki hægt að taka mikið mark á
þessu fyrr en búið er að endurtaka
þessar mæliniðurstöður.
Í ljósi þessa finnst mér að ég
geti skilið mínar niðurstöður á
þann veg að undir Austfjarða-
hraunlögunum sem við sjáum sé
grafin gömul meginlandsflís. Það
styður þessa kenningu mína hvað
platan er þykk og köld á þessu
svæði. Það bendir til að platan sé
gömul, í það minnsta 30 eða 40
milljónum árum eldri en platan
undir Vestfjörðum, sem kemur
ekki heim og saman við rannsóknir
okkar á yfirborði jarðarinnar á
þessum svæðum.
Þá tel ég mig hafa fundið „eld-
hjartað“, sem ég kalla svo og vitna
þá í kvæði Einars Benediktssonar
Sóley, þar sem Einar kallar heita
uppsprettu landsins undir jarð-
skorpunni í iðrum jarðar „eld-
hjarta“.
Í rannsóknum okkar kom í ljós
að miðja mestu jarðkviku (eld-
hjartað) sé undir miðhluta landsins
á 100 kílómetra dýpi. Miðja þessi
er undir miðhálendinu, hún er
nokkuð ílöng og nær undir Vest-
urland enda leitar kvika líka upp á
því landsvæði.“
Meginlandsflís undir
öllum Austfjörðum?
Ingi sagði að spennandi væri sú
tilgáta, byggð á mælingum, að þó
djúpt sé niður á meginlandsflísina
undir Austfjörðum þá gæti verið
mun grynnra niður á hana á land-
grunninu, „sem gæfi möguleika á
að bora í gegnum hraunlög, inn í
flísina. Ég tel að þessi meginlands-
flís sé undir öllum Austfjörðum og
landgrunninu þar fyrir utan.
Þá er og spurning hvort ekki séu
aðrar slíkar meginlandsflísar? T.d.
finnst mér spurning hvort ein slík
sé ef til vill undir Tröllaskaga, sem
stendur undarlega hátt.
Meginlandsplata er létt og
stendur því hátt.
Austfirðir standa að meðaltali
300 til 400 metrum hærra en Vest-
firðir og líparít er þar algeng
steintegund. Þetta gæti sagt sína
sögu.“
Ingi sýnir blaðamanni hvar miðj-
an (eldhjartað) er á tölvumyndinni
af „höfuðlausa kettinum“, undir Ís-
landi.
„Miðjan er þar á því svæði sem
höfuð kattarins ætti að vera. Hinn
harði kjarni steinplötunnar undir
Austfjörðum veldur því að linhvel-
ið flæðir fremur til vesturs til
Reykjanesshryggjarins og Kol-
beinseyjarhryggjarins, enda er þar
mikil eldvirkni miðað við marga
aðra staði á Atlantshafshryggnum.
Við uppstreymi heits efnis í
jarðarmöttlinum lækkar þrýsting-
ur á því og bræðslumark. Ýmis rök
hníga að því að á bilinu frá nokkr-
um tugum kílómetra niður á nokk-
ur hundruð kílómetra dýpi sé hit-
inn það hár í möttulstróki (í
hauslausa kettinum) að hluti hans
bráðni; þar er svokallað bræðslu-
svæði. Þannig verður til bergkvika
sem stígur upp vegna þess að hún
er eðlisléttari en grannbergið og
myndar jarðskorpuna þegar hún
storknar í ysta lagi jarðar.
Við gerð myndar af möttul-
stróknum notuðum við bylgjur frá
fjarlægum jarðskjálftum (erlendis)
til þess að skyggnast inn í mött-
ulinn og rannsaka dýptarbilið frá
um það bil 100 kílómetrum niður á
allt að 650 km. Skjálftabylgjur frá
nálægari skjálftum og sprenging-
um sem við stóðum fyrir hafa verið
notaðar til rannsókna á eiginleik-
um jarðplötunnar.
Samstarfsaðilar verkefnisins,
sem eru m.a. frá Bandaríkjunum,
Bretlandi og ýmsum stofnunum
hér á landi, reistu 15 stöðvar
breiðbands-skjálftamæla víðs veg-
ar um landið og nutu góðrar að-
stoðar bænda við uppsetningu
þeirra í byggð. Bandaríski vísinda-
„Ég hef talað aðeins við Inga Bjarnason um rannsóknir hans og mér finnast til-
gátur hans mjög áhugaverðar,“ sagði Steinar Guðlaugsson, jarðeðlisfræðingur hjá
Orkustofnun. „Almennt séð vitum við að það er raunhæfur möguleiki að Jan
Mayen-hryggurinn teygi sig inn á landgrunn Íslands, miðað við þekkingu okkar á
landrekinu á þessu svæði. Ég segi möguleiki en það er auðvitað ekkert vitað um
þetta með vissu, þess vegna er mjög áhugavert þegar berast mæligögn sem
geta sagt okkur eitthvað meira um þetta.
Ég er ekki það vel að mér í jarðskjálftafræði að ég geti lagt mat á þessa rann-
sóknaraðferð en vona að það takist að ljúka þessum rannsóknum.
Hvað snertir möguleika á því að olía finnist á landgrunninu við Austurland
myndi ég ekki segja að þetta breytti mjög miklu. Ef svo væri að leifar af megin-
landsskorpu væru undir hluta af Íslandi værum við í svipaðri stöðu og Færeyingar,
en eyjarnar þeirra eru taldar standa á meginlandsbergi. En þá er vandinn þessi að
það er mjög þykkur hraunstafli sem liggur ofan á meginlandsberginu og allar að-
stæður til að kanna þetta eru erfiðar frá olíuleitarsjónarmiði. Mín fyrstu viðbrögð
eru því þau að það er engin ástæða til að ætla að við getum borað á landi eftir ol-
íu. En hins vegar er þetta vísbending um að Jan Mayen teygi sig langt í suður sem
við vissum ekki áður. Það getur hvatt menn til að stunda olíuleitina sunnar á
hryggnum en menn ætluðu sér í upphafi.“
Getur hvatt til leita sunnar
á Jan Mayen-hrygg
Steinar Guðlaugsson
Eldhjartað
undir miðhluta
landsins
Hér má sjá tölvumyndina af möttulstróknum (uppstreymi heits efnis) undir Ís-
landi, sem líkist hauslausum ketti, og er frá 100 km niður á 650 km dýpi.