Morgunblaðið - 28.03.2002, Page 10

Morgunblaðið - 28.03.2002, Page 10
10 D FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ GREIÐAR samgöngur ámilli héraða og lands-hluta var fjarlægurdraumur á Íslandi áfyrri hluta síðustu ald- ar. Þannig var málum háttað við norðanverðan Breiðafjörð, að mið- stöð verslunar, þjónustu og mennta var í Flatey og urðu íbúar Barða- strandar að sækja allt slíkt þangað við erfiðar aðstæður. Engar reglu- bundnar ferðir voru á milli lands og eyja, aðeins stopular ferðir tveggja báta frá Flatey, Friðþjófs og Sörla, en ferðir þeirra voru að mestu bundn- ar vor- og haustkauptíð. Vegir voru þá engir á Barðaströnd. Búið var í hverjum dal og nesi, krók og kima, og urðu íbúar þessara sveita að sækja alla verslun og þjónustu fram í Flatey, svo sem fyrr sagði, auk læknis og prests. Þó að margir bændanna á ströndinni ættu smábáta var þeim vart treystandi til langferða eða þungavöruflutninga í misjöfnum veðrum og ef eitthvað bar út af, slys eða veikindi voru engar ferðir á milli staða sem treysta mátti á. Árið 1927 þótti íbúum við norðan- verðan Breiðafjörð ekki lengur mega við svo búið standa. Hinn 15. mars var boðað til fundar í Flatey til að ræða möguleika á stofnun hlutafélags um útgerð flóabáts sem þjóna skyldi byggðunum við norðanverðan fjörð- inn. Nokkur undirbúningur hafði far- ið fram áður en til fundarins kom. Kannað hafði verið hvar finna mætti hentugan bát til verkefnisins og renndu menn hýru auga til nítján tonna eikarbáts sem stóð nýsmíðaður og óseldur vestur á Þingeyri. Þá hafði einnig farið fram söfnun hlutafjárlof- orða, ef af stofnun félagsins yrði. Fundurinn var vel sóttur og fram- farahugur í mönnum. Auk Flatey- inga, sem of langt mál yrði upp að telja, sóttu fundinn eftirtaldir fulltrú- ar hreppanna á Barðaströnd: Frá Múlahreppi, Þórður Jónsson, Firði, Jón Jónsson, Deildará og Halldór Sveinsson, Svínanesi. Frá Gufudals- sveit, Andrés Ólafsson, Brekku, Ágúst Sigurbrandsson, Hofstöðum, og Eyjólfur Magnússon í Múla. Frá Barðastrandarhreppi kom Valdemar Sæmundsson, Krossi. Jafnframt voru eftirtalin hlutafjár- loforð kynnt fundarmönnum: Frá Flateyjarhreppi 1.800 kr. Frá Múlahreppi 975 kr. Frá Gufudalssveit 1.050 kr. Frá Barðastr.hreppi 1.550 kr. Frá Kaupfél. Flateyjar 2.500 kr. Frá sýslusjóði 2.500 kr. Frá ríkissjóði 2.500 kr. Samþykkt var samhljóða að stofna hlutafélag um rekstur flóabáts og hlaut það nafnið Norðri hf. Í sömu svifum og þessi samþykkt var gerð barst fundinum símskeyti frá eig- anda bátsins á Þingeyri, þar sem hann bauð bátinn til kaups fyrir rúm- ar átján þúsund krónur. Kaupin voru samþykkt. Hét báturinn Konráð og bar einkennisstafina BA-152. Fyrsta stjórn Norðra hf. var skip- uð þeim séra Sigurði Einarssyni í Flatey, Andrési Ólafssyni, Brekku, Þórði Jónssyni, Firði, og Valdemar Sæmundssyni á Krossi. Fram- kvæmdastjóri var kjörinn Sigfús Bergmann, kaupfélagsstjóri, Flatey, og skipstjóri var ráðinn Sigurður Jó- hannesson, Flatey. Konráð BA kom til Flateyjar nokkru síðar, þar sem heimahöfn hans var alla tíð síðan. Öll einangrun rofin Konráð BA átti eftir að reynast happafley. Með komu hans þótti íbú- um afskekktra byggða sem öll ein- angrun væri skyndilega rofin. Menn fengu svo að segja heim í túnfót viku- lega vöru sem áður var erfiðleikum háð að nálgast, svo sem byggingar- efni, fóðurbæti og aðra sekkjavöru auk olíu og daglegra nauðsynja. Þá opnaðist einnig sá möguleiki að fólk gat brugðið sér af bæ, jafnvel alla leið til Reykjavíkur og verið komið heim að viku eða tíu dögum liðnum, en slíkt ferðalag var áður nær óhugsandi. Ferðatíðni og viðkomustaðafjöldi Konráðs BA var ótrúlega mikill, en samkvæmt áætlun var hann þessi: Hagi, Siglunes, Brjánslækur, Auðs- haugur, Fjörður, Illugastaðir, Sel- sker, Svínanes, Kvígindisfjörður, Kirkjuból, Bær, Múli, Sveinungseyri, Skálanes, Staður, Gróunes, Hall- steinsnes, Þórisstaðir og Hofstaðir. Auk þessa fór báturinn fjölmargar tilfallandi ferðir til Stykkishólms, Reykjavíkur og víðar. Löngu síðar, þegar samgöngur á landi voru komnar á það stig, að lang- ferðabílar óku helstu leiðir ók einn slíkur vestur um Dali með viðkomu í Bjarkarlundi við botn Þorskafjarðar. Þaðan hélt bíllinn norður yfir Þorska- fjarðarheiði að Arngerðareyri við Ísafjarðardjúp. Þá var það einn þátt- ur í áætlun Konráðs að bíða rútunnar í Þorskafirði með farþega sem leið áttu suður og taka þá farþega sem endastöð áttu út um firði og nes og koma þeim til síns heima. Einnig átti báturinn ríkan þátt í að viðhalda fé- lagslífi á þessu landsvæði yfir sum- artímann. Margar ferðir voru farnar með fólk sem var að sækja skemmt- anir og dansleiki, aðallega að Bjark- arlundi og eins flutti hann fólk sem sótti fundi og skemmtanir í Flatey. Að áliðnu sumri voru farnar ferðir með Flateyinga til berja, oftast upp í Vatnsfjörð eða Vattarfjörð. Af því sem hér hefur verið sagt er ljóst, að sjaldan var báturinn bundinn við fest- ar lengi í einu. Víkur þá sögunni 21 ár fram í tímann, eða til ársins 1948. Stórviðri brestur á Enn sem fyrr þræddi Konráð BA viðkomustaði sína á Barðaströnd en búseta þar hafði þá lítið raskast mið- að við það sem síðar varð. Þetta ár gerðist sá atburður, sem var eins- dæmi í nær 50 ára farsælli sögu báts- ins, að litlu munaði að slys yrði og tveir af þriggja manna áhöfn hans drukknuðu uppi við landsteina. Áhöfnin var skipuð þessum mönn- um: Jóhann Kristjánsson skipstjóri, Eyjólfshúsi, Flatey. Látinn. Einar Steinþórsson vélstjóri, Hólshúsi, Flatey. Búsettur í Stykkishólmi og Jóhannes Þórðarson háseti, Vestur- búðum, Flatey. Búsettur í Stykkis- hólmi. 30. nóvember rann upp með norð- an kalda, nokkru frosti og ótryggu veðurútliti. Þennan dag var fyrirhug- uð ferð með fóðurbæti og aðra vöru að Haga og Hvammi á Barðaströnd. Lagt var af stað frá Flatey upp úr klukkan níu um morguninn og var haldið að Haga, en þangað var um tveggja stunda sigling. Framundan var venjubundin dagsferð og í engu frábrugðin þeim hundruðum, ef ekki þúsundum ferða bátsins á viðkomu- staði sína á undanförnum árum. Í Haga var engin bryggja fremur en á öðrum viðkomustöðum bátsins, ef frá er talinn Brjánslækur. Anker- um var varpað á svonefndri Hagabót. Þaðan varð skipshöfnin að flytja farminn að landi á léttbát sem bar nafnið Samma, og var nefndur eftir fyrrum eiganda sínum, bónda á Barðaströnd. Menn frá nærliggjandi bæjum voru í fjöru til að veita viðtöku vöru sinni. Þar á meðal Hákon Kristófersson, alþingismaður og bóndi í Haga. Hann gerði sér ferð fram í Konráð til að vara Jóhann skipstjóra við að fara inn að Hvammi. Sagði Hákon að stórviðri væri að bresta á og vindhviðurnar „sem hann sendi fram úr Rauðsdalnum“ væru stórhættulegar í þessari vindátt. Allt gekk að óskum í Haga, en að skilja eftir hluta af farminum og halda um hæl til Flateyjar fannst skipstjóranum ekki viðunandi kostur. Eftir losun í Haga voru legufærin Brot af sögu flóabátsins Konráðs BA-152 Flóabáturinn Konráð BA 152. Jóhann Kristjánsson skipstjóri. Einar Steinþórsson vélstjóri. Jóhannes Þórðarson háseti. Farþegar á sólríkum sumardegi. Flatey á Breiðafirði. Flóabáturinn Baldur rauf einangrun afskekktra byggða á Breiðafirði, en stofnað var hlutafélag um kaup bátsins. Ólafur Stein- þórsson ræddi við Einar Steinþórsson og kynnti sér sögu bátsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.